Morgunblaðið - 18.05.1976, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1976
5
Winston -skákmót
haldið hér í júní
Skáksamband ísland lýsir van-
þóknun sinni á mótinu
FRAMLEIÐENDUR Winston-
vindlinga hafa ákveðiö að gangast
fyrir skákmóti dagana 8. og 13.
júnf á Hótel Loftleiðum. Veitt
eru verðlaun samtals að upphæð
250 þúsund krónur. Keppt verður
eftir svissneska kerfinu f 10
styrkleikaflokkum. Alls verða
tefldar 9 umferðir. Rekstrarráð-
gjöf s.f. sér um framkvæmd móts-
ins og eiga menn að láta skrá sig
hjá fyrirtækinu.
Vegna þessa fyrirhugaðs skák-
móts, sendi Skáksamband íslands
frá sér eftirfarandi yfirlýsingu í
gær:
I tilefni af fréttum í fjölmiðlum
um fyrirhugað skákmót á vegum
bandariskrar tóbaksverksmiðju
og umboðsmanns hennar hér á
landi, vill stjórn Skáksambands
lslands taka skýrt fram að móts-
hald þetta er á engan hátt tengt
Skáksambandi íslands né einstök-
um félögum innan vébanda þess
og það nýtur ekki stuðnings skák-
hreyfingarinnar í landinu.
Með hliðsjón af skaðsemi reyk-
inga og lagaákvæðum, sem banna
auglýsingar á tóbaksvörum og
jafnframt með hliðsjón af því, að
mikill fjöldi ungmenna tekur þátt
i starfsemi Skáksambands tslands
og taflfélaganna, vill stjórn Skák-
sambands íslands lýsa van-
þóknun sinni á þessu mótshaldi
og lýsa þeirri von sinni, að félagar
í aðildarfélögum Skáksambands
Islands taki ekki þátt i umræddu
móti.
Mosfellsprestakall
auglýst að nýju
Sr. Sveinbjörn Bjarnason, sem
fékk veitingu fyrir Mosfells-
prestakalli I Kjalarnessprófasts-
dæmi frá 1. marz s.l. að afstaðinni
kosningu, hefur af sérstökum
einkaástæðum beðizt lausnar frá
þessu embætti og fengið hana
eins og komið hefur fram í Mbl.
Hefur biskup Islands þvi auglýst
Mosfellsprestakall laust til um-
sóknar og er umsóknarfrestur til
15. júní n.k. Þá hefur biskup
einnig auglýst Hjarðarholts-
prestakall i Snæfellsness- og
Dalaprófastsdæmi með um-
sóknarfresti til 5. júní n.k. þar eð
settur prestur í því prestakalli sr.
Svavar Stefánsson, hefur óskað
eftur að verða settur í Norð-
fjarðarprestakalli, en um það kall
hefur enginn sótt, þótt það hafi
verið tvívegis auglýst í vetur.
FJÖLSKYLDUDAGUR SVFf-Kvennadeild SVFl og björgunarsveitin Ingölfur
gengust fyrir fjöiskyldudegi á Grandagarði á sunnudaginn. Var þar margt um
manninn f göða veðrinu eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Margvfsleg
sýningaratriði fðru fram á Eiðsvfk og fullt var út úr dyrum alian daginn f
Gróubúð og húsi SVFt, þar sem kaffisala fór fram. Friðþjófur
Nina Gautsdóttir
hlaut tvenn verðlaun
Nlna Gantsdóttlr
NlNA Gautsdóttir á um þessar
mundir teppi á tveimur listsýn-
ingum I Parfs og hefur hún hlotið
verðlaun fyrir þau bæði segir 1
fréttatilkynningu, sem Mbl. hef-
ur borizt.
Á sýningu, sem haldin er í Or-|
ley-flugstöðinni á verkum eftir
listamenn frá ýmsum löndum,
sem eru í Frakklandi og hafa hlot-
ið franskan rfkisnámsstyrk, fékk
hún fyrstu verðlaun. Þá viður-
kenningu veita eigendur sýning-
arsalanna.
Þá hlaut hún bronsverðlaun á
stórri sýningu sem haldin var i
Grand Palace.
Nina er nú við nám i Ecole
Nationale Superieure des Beaux-
arts, sem er alhliða myndlista-
skóli. Um þessar mundir vinnur
hún að prófverkefni sínu, sem er
stórt teppi, en öðrum hlutum
námsins hefur hún lokið.
elefctnonísfcanfAneifcniuélan
tegundir fjrrirliggjandi
SKRIFSTOFUVILAR H.F.
Hverfisgötu 33 Sími 20560