Morgunblaðið - 18.05.1976, Side 13

Morgunblaðið - 18.05.1976, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MAl 1976 13 Haustið 1968 var svo ráðist í að setja upp saumastofu að sögn Björns og var þá Colin Porter ráðinn sem fatahönnuður. 1 október 1969 keypti svo Karnabær saumavélar af Última h/f og tók á leigu húsnæði það sem Ultíma hafði verið í. Sauma- konur þær sem störfuðu hjá Ul- tíma réðust til Karnabæjar og hóf Karnabær þá rekstur saumastof- unnar. Á þessu ári eru því liðin 7 ár frá því að fyrirtækið hóf fata- framleiðslu. Fleiri verzlanir — Þá var það f apríl 1970 að málin skipuðust þannig að Jón Baldursson seldi okkur Guðlaugi sinn hlut í fyrirtækinu, sagði Björn, en keypti jafnframt okkar hlut í Klapparstig 37. Sama ár opnaði Karnabær nýja verzlun í Reykjavík að Laugavegi 66 og flutti starfsemi sína i það hús. — Árið 1971 kaupir Karnabær húsið að Laugarvegi 20A og gerði á því gagngerðar breytingar, sagði Björn. Síðan fluttum við verzlunina að Týsgötu 1 i þetta hús. — Þá var það árið 1973 að Karnabær tók á leigu mestan hluta hússins að Lækjargötu 2 og opnaði þar verzlunina Bonaparte. Skömmu seinna var opnuð þar önnur verzlun sem kölluð var Ver-búð. Það var svo haustið 1974 að Karnabær opnaði verzlun að Austurstræti 22 og hætti jafn- framt rekstri verzlunarinnar Ver- búð. Karnabær starfrækir nú í Reykjavík fjórar verzlanir. Utan Reykjavíkur starfa einnig verzl- anir á Akranesi, ísafirði, Vest- mannaeyjum og á Akureyri sem Karnabær á með Herbert Ólasyni. — Vorið 1973 stofnaði Karna- bær ásamt nokkrum starfsmönn- um sínum bílaleiguna Geysi, sagði Björn. Bilaeignin á í dag 41 bfl, en þeir voru flestir árið 1974, 49 bíl- ar. Vörusalan hefur tífaldast — Þótt gengi fyrirtækisins í heild hafi verið all mikið á þess- um 10 árum hafa einnig verið erfið ár, sagði Björn. Vinnudagar hafa oft verið langir og ekki ósjaldan verið unnið heilar nætur þegar í skyndi hefur þurft að breyta í verzlun eða flytja i nýtt húsnæði. — Árið 1968 sem var 3. starfsár- ið, var rekstrarafgangur aðeins tæplega 4.000 kr. Fyrsta starfsár- ið var vörusalan tæplega 5 millj- ónir en á s.l. ári var hún rúm- lega 500 milljónir. Af veltunni er nú um 40% eigin framleiðsla, fyrstá árið var allt innflutt. — S.l. ár unnu hjá Karnabæ á saumastofunni 33 konur og Colin Porter sem er þekktur fatahönn- uður og hefur saumað föt á marga víðfræga menn, innlenda og er- lenda, m.a. fyrrverandi heims- meistara í skák Robert Fischer. — Við verzlanir Karnabæjar starfa um 50 manns. Einn starfs- maður, Sævar Baldursson, hefur unnið hjá fyrirtækinu í 10 ár eða frá upphafi. Karnabær greiddi í vinnulaun sl. ár um 74 milljónir kr, þar af um helming við fram- leiðslustörf. Hvetjum alla til að kaupa islenzka framleiðslu — Við höfum lagt okkur mjög fram um að framleiða islenzkan tískufatnað fyrir alla, fólk á öllum aldri, konur og karla. Teljum við okkur hafa náð góðum árangri og er það okkar áhugamál og stolt að vel takist til. Viljum við hvetja alla til að kaupa islenzka fram- leiðslu og veita þannig brautar- gengi þeim vaxtarbroddi sem sjá- anlegur er í íslenzkri iðntækni, bæði framleiðslumagni og vöru- gæðum. Skora á alþingi að fella z-frumvarpið Úr Vesturröst eftir breytingarnar. Vesturröst í breytt um húsakynnum BLAÐINU hefur borizt eftir- farandi áskorun, sem kennarar við Kennaraháskóla tslands og Æfinga- og tilraunaskóla Kennaraháskólans, hafa sent Alþingi: Við undirritaðir kennarar skor- um á hið háa Alþingi að fella frumvarp til laga um íslenska stafsetningu fram borið af Gylfa Þ. Gíslasyni o.fl. Viljum við m.a. rökstyðja þessa áskorun á eftir-1 farandi hátt: Margt veldur því að íslensk tunga á nú i vök að verjast. Ber þvi brýna nauðsyn til að efla kennslu og þjálfun í notkun máls- ins, stuðla að vandaðri meðferð þess í ræðu og riti. Haustið 1973 var z felld úr íslensku ritmáli. Teljum við eng- an vafa á þvi leika að sú einföld- un stafsetningarreglna hafi þegar haft — og muni hafa — jákvæð áhrif á móðurmálskennsluna. Teljum við því að áðurnefnt frumvarp sé sannri málvernd til óþurftar. Við gerum okkur ljóst að tíðar breytingar á samræmdri skóla- stafsetningu eru varhugaverðar og teljum að nú sé stefnt að hrein- um glundroða með þessari fyrir- huguðu lagasetningu, enda unnið í hreinni óþökk alls þorra þeirra sem við móðurmálskennslu fást. Síðast en ekki síst teljum við það fráleitt af hinu háa Alþingi að setja slík lög um íslenska stafsetn- ingu án þess að leita áður álits Islenskudeildar Háskóla íslands, Félags íslenskra fræða, og félaga starfandi kennara. Háttvirta Alþingi. Um leið og við leggjum fram meðfylgjandi áskorun leyfum við okkur að taka fram eftirfarandi: Undir áskorunina hafa ritað all- ir íslenskukennarar við Kennara- háskóla Islands svo og allir aðrir fastir kennarar skólans, utan einn. Einnig hafa nær allir æfingakennarar og aðrir kennarar við Æfinga- og tilrauna- skólann undirritað áskorun þessa (allir sem til náðist). — Þá hafa og allmargir stundakennarar skrifað undir. Einn þeirra, Lýður Björnsson, sagnfræðingur, lætur svofelld orð fylgja undirskrift sinni: „Ég, Lýður Björnsson, er að sönnu í veigamiklum atriðum ósammála reglugerð þeirri um stafsetningu, sem gefin var út i menntamálaráðherratíð Magn- úsar T. Ólafssonar, en ég tel varhugavert að kveða á um náms- efni með löggjöf. Af þessari ástæðu styð ég þá áskorun kennara við Kennaraháskóla Is- lands að Alþingi setji ekki lög um stafsetningu, og álit reyndar, að slík löggjöf gæti orðið varhuga- vert fordæmi varðandi aðrar greinar." Virðingarfyllst. Baldur Jónsson (rektor Kennaraháskóla íslands). Jónas Pálsson (skólastjóri Æfinga- og tilraunaskólans). Sigríður Valgeirsdóttir (prófessor í uppeldis- og sálarfræði við K.H.I.). Guðmundur B. Kristmundsson (æfingakennari i móðurmáli við K.H.I.). Svo horfir sem ætlunin sé að drífa hið svonefnda zetu- frumvarp i gegnum Alþingi áóur en því lýkur að þessu sinni. Enga einstaka stofnun mun frumvarp þetta snerta meira, ef að lögum verður, en Ríkisútgáfu námsbóka. Þrátt fyrir það hefur ekki þótt ástæða til að leita um- sagnar hennar um frumvarpið. Ég vona samt að mér leyfisf — sem starfsmanni útgáfunnar — að beina eftirfarandi spurningu til fylgismanna áðurnefnds frum- varps á Alþingi: Ætla þeir að beita sér fyrir þvi að Ríkisútgáfan fái sérstaka fjár- veitingu vegna þess mikla kostn- aðar, sem leiða mun af þvi, ef zetu-frumvarpið verður að lögum — eða hafa þeir e.t.v. nú þegar útvegað fé til þessa, t.d. 10—20 milljónir króna? Rikisútgáfa námsbóka er þjón- NÝLEGA var lokið við breytingar á sportvöruverzluninni Vestur- röst á Laugavegi 178, en fyrir nokkrum mánuðum tóku nýir eig- endur við rekstri fyrirtækisins. Vesturröst hefur nú starfað í 20 ár og er því með eldri sportvöru- verzlunum landsins. ustustofnun fyrir kennara og skólanemendur. Ef hún fær ekki sérstaka fjárveitingu vegna hugs-‘ anlegra nýrra stafsetningarlaga mundi sú þjónusta, sem hún veitir, minnka í hlutfalli við þann kostnað sem ný lög um stafsetn- ingu hefðu i för með sér fyrir útgáfuna. Ég tel því líklegt að háttvirtir stuðningsmenn zetu- frumvarpsins á Alþingi beiti sér fyrir því að útgáfan fái sérstakan fjárstyrk vegna þessa, ella væru þeir með samþykkt frumvarpsins að rýra þann hlut sem útgáfan getur lagt til heimilanna og skóla- starfsins f landinu. Slíkt vil ég auðvitað ekki ætla þeim. Samt tel ég rétt að spyrjast fyrir um þetta til þess að um það þurfi ekki að vera neinn vafi eftir á. " 15. mai 1976 Jón Emil Guðjónsson. Verzlunin hefur alla tíð lagt áherzlu á vörur til lax- og silungs- veiða, svo og vörur fyrir skot- menn. Nú hin síðari ár hefur einnig verið lögð áherzla á vörur fyrir skiðafólk. Verzlunin er nú mjög smekk- lega innréttuð, en innréttingu teiknaði Haraldur V. Haraldsson, arkitekt, en smíðar annaðist Tré- smiðjan K-14. Núverandi eigendur eru Guðný Guðmundsdóttir, Hinrik Her- mannsson og Friðfinnur Krist- jánsson. Vestur-Húnvetningar óánægðir með ástand vega í sýslunni Staðarbakka, 14. maí— SÝSLUFUNDUR Vestur- Húnavatnssýslu haldinn á Hvammstanga 10. til 14. maí 1976 telur ástand vega i sýslunni al- gjörlega óviðunandi, enda er það álit fulltrúa Vegagerðar ríkisins á Norðurlandi, að sýslan hafi orðið mjög afskipt með framlög til vió- halds og nýbygginga veganna á siðustu árum. Því skorar fundur- inn á Alþingi og stjórn samgöngu- mála að ráða bót á þessu ástandi. Hann álítur að mest þörf til úr- bóta sé á Miðfjarðarvegi og kring- um Vatnsnessfjall." Ályktunin var samþykkt með öllum atkvæðum. Benedikt. Fyrirspurn til alþingismanna BARNAPLATA ARSINS SIMMSiítóBMM hæ krakkar: HAFIÐ ÞIÐ HEVRT ÖLU SKEMMTILEQU LÖGIN ‘A NÝJUSTU PLÖTUNNI MEÐ RUTH REGINALDS CSEM ( SÖNG UM HANN 2 RÓBERT BANGSA) ? T NVJA PLATAN henkiar! ER PLATA í IAGI. í Hljómplötuútgáfan JUDAS HF. Box 59. Keflavík Sími 91-53762

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.