Morgunblaðið - 18.05.1976, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 18.05.1976, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MAI 1976 15 Skiptanefnd handritanna á fundinum f Revkjavík. Frá vinstri: Jónas Kristjánsson, Ólafur Halldórsson, Magnús Már Lárusson, Chr. Wester- gaard-Nielsen og Ole Widde. 16. fundur handritaskiptanefndar: Einróma tillögur um 780 handrit Tæplega 2000 handrit óafgreidd SKIPTANEFND handritanna I Árnasafni og Konungsbókhlöðu f Kaupmannahöfn hélt 16. fund sinn dagana 5.—14. maf 1976 f Reykjavík. Fundarstjóri var að þessu sinni dr. Magnús Már Lárusson prófessor, en auk hans sátu fundinn af Islands hálfu dr. Jónas Kristjánsson prófessor og Ólafur Halldórsson cand. mag., sem var fundarritari fvrir hönd tslendinga. Af hálfu Dana sátu fundinn að vanda þeir dr. Chr. Westergárd-Nielsen prófessor og dr. Ole Widde orðabókarritari. Á þessum fundi var einkum fjallað um handrit með biblíuefni og öðru trúarlegu efni og þar með lokið að fara yfir þau handrit í skrá Kr. Kálunds um Árnasafn ásamt viðbótarsöfnum þess og Azzessoria, sem fullt samkomulag náðist um samkvæmt greinimarki hinna dönsku laga frá 19. maí 1965, ennfremur var gengið frá uppkasti að fjórðu afhendingar- skrá. Ákveðið var að halda næsta fund í Kaupmannahöfn dagana 5.—24. júlí 1976, fundarstjóri verður Chr. Westergárd-Nielsen og mun einkum verða fjallað um handrit sem ekki hefur náðst samkomulag um í fyrstu lotu eða þau handrit sem krefjast sér- stakrar rannsóknar. Einnig mun verða gengið frá fjórðu af- hendingarskrá. Fjórða afhendingarskrá telur 122 handrit. Alls eru handrita- númerin 2870, en við forsætisráð- herra Dana hefur nefndin mælt einróma með afhendingu 789 handritanúmera til Islendinga auk bréfa, en eftir er að afgreiða talsvert á annað þúsund númera. Meðal nr. sem búið er að afgreiða má nefna frumbréf og afskriftir bréfa sem Árni Magnússon safn- aði, koma með tölu heim, en þau eru á sjöunda þúsund talsins, sagði Magnús Már Lárusson i spjalli við Morgunblaðið. Amnesty International: Víðtæk kynning sam- takanna í undirbúningi I samtökunum Amnesty Inter- national sem berjast fyrir lausn fanga sem hnepptir hafa verið í fangelsi vegna skoðana sinna, eru nú yfir 70.000 manns. Samtökin eru starfandi í meira en 60 þjóð- löndum og 34 löndum eru skipu- lagðar deildir. Á blaðamanna- fundi 1 gær kom fram að á fslandi er nú staddur Guv Binsfeld, en hann vinnur að víðtækri kvnn- ingu á starfseminni. Ferðast hann um þessar mundir á milli ýmissa deilda Amnestv Inter- national og samræmir starf- semina auk þess sem hann kvnnir samtökin út á við. Á næsta ári verður lögð rík áherzla á kynningu samtakanna um víða veröld. Verða m.a. haldn- ir tónleikar i MUnchen sem Leonard Bernstein stjórnar og verður þeim tónleikum sjón- varpað víða. Þá verða gerð ýmis listaverk s.s veggmyndir sem eru á einn eða anna hátt táknræn fyrir starfsemina. Innan skamms, 28. maí verður Amnesty International 15 ára. Eins og kunnugt er, taka samtök- in ekki afstöðu á grundvelli stjórnmálaskoðanna, kynferðis, kynþáttar, uppruna eða öðru álíka, en beita sér fyrir að mönn- um sé ekki misþyrmt eða settir í fangelsi vegna skoðana sinna. Hafa samtökunum borist mörg þakkarbréf frá föngum sem Amnesty hefur haft afskipti af og hlotið hafa frelsi. Amnesty International vinnur nú að undirskriftasöfnun þar sem skorað er á ríkisstjórn Uruguay að heimila óháðum alþjóðlegum aðilum að rannsaka sannleiks- Hilmar Foss, formaður Islands- deildar Amnesty International, og Guv Binsfeld á blaðamanna- fundinum f gær. Ljósm. Mbl. Ól. K.M. gildi grunsemda um pyntingar þar í landi. Guy Binsfeld heldur héðan til Kanada, Bandaríkjanna, Mexikó og Bahama, en þar er verið að undirbúa stofnun nýrra deildar innan Amnesty International. Ekki getur hann farið til allra ríkja þar sem skipulagðar deildir eru þar sem fjárhagur samtak- anna takmarkar svo mikil ferða- lög. Sýningum fækkar á „Umhverfis 99 SYNINGUM Leikfélags Akur- eyrar á „Umhverfis jörðina á 80 dögum" fer að fækka, því síð- arihluta maí mun LA hefja leikför með „Kristnihald undir Jökli" um norðaustanvert landið og til Suðurlands. Leik- förinni lýkur í Reykjavík þar sem LA mun sýna „Glerdýrin" á Listahátið. Þórir Steingrfmsson í hlutverki „Fix“. Orlofsdvöl að Bifröst sumarið 1976 Aðstaða: Orlofsdvölin er seld á tveggja manna herbergjum með handlaug og þriggja manna herbergjum með snyrtingu og sturtu. Orlofsgestir hafa m.a. aðgang að gufubaði, bókasafni og vel búinni setustofu. Börn: Börn undir 8 ára aldri fá ókeypis mat og uppihald í fylgd foreldra sinna 8—12 ára börn greiða 1 / 2 fæðisgjald og 1 000 kr. fyrir aðstöðu á herbergi. Orlofstímar 1976 5. — 8. júní opið hús 1 — 3 dagar orlofskjör 8. til 15. júni uppselt 1 5. til 19. júni opið hús 1 —4 dagar orlofskjör 19. til 26. júni orlofsdvöl vika 6.300 á mann 26. til 3. júlí orlofsdvöl vika 6.300 á mann 3. til 10. júlí orlofsdvöl vika 6.300 á mann 10. til 17. júli orlofsdvöl vika 6.300 á mann 17. til 24. júli orlofsdvöl vika 6.300 á mann 24. til 31. júli orlofsdvöl vika 6.300 á mann 31. til 8. ágúst uppselt 8. til 1 2. ágúst opið hús 1 —4 dagar orlofskjör 12. til 21. ágúst uppselt 21. til 28. ágúst orlofsdvöl vika 6.300 á mann Opið hús: Fólk getur pantað pláss og framlengt að vild og kynnst þannig starfseminni. Gisting og fæði á orlofskjörum. Tveggja m herb kr 1 800 og þrtggja m herb kr 2700 Fæði orlofskjör: Sérstök matarkort ávlsun á 7 heitar máltíðar og morgunmat eða síðdegiskaffi og brauð í 10 skipti Matarkortið er ekki bundið við einn, handhafi getur ráðstafað því að geðþótta Pantanir og upplýsingar í Bifröst simatimi 9— 1 3 og 1 5— 1 9 virka daga og i síma 81255 kl 14—17 til 21. mai Innlend orlofsdvöl Sumarheimiliö Bifröst Borgarfirði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.