Morgunblaðið - 18.05.1976, Side 16

Morgunblaðið - 18.05.1976, Side 16
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MAl 1976 JMfirgiwMatíiifo Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar i Ritstjórnarfulltrúi , Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiósla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavik. Haraldur Sveinsson. Matthias Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sírr i 10100 Aðarlstræti 6, simi 22480. Áskriftargjald 1000.00 kr. á mánuði innanlands. i lausasölu 50.00 kr. eintakið. Isunnudagshugvekju sinni I Morgunblaðinu ( fvrradag gerir séra Þórir Stephensen að umtalsefni hinn almenna bæna- dag bjóðkirkjunnar, sem er n.k. sunnudag, og skýrir frá því, að hiskupinn vfir Islandi hafi sér- staklega óskað eftir því, að I ár verði beðið fvrir „giftu og góðum lyktum í landhelgismálinu“. Sfðan segir séra Þórir Stephen- sen: „Ég hygg, að íslendingum hafi aldrei verið fengið í hendur bænarefni, sem sterklegar hafi talað til tilfinninga þeirra og þjóðerniskenndar. Og ég fæ ekki að því gert, að mér finnst þetta mál okkur svo brýnt, að hér geti enginn sem alvarlega hugsar um þetta mál, skorizt úr leik. — Ef okkur tekst að skapa virkilega þjóðareiningu á sunnudaginn kemur, þá verður það sterkara út á við og gagnvart Bretum en nokkur mótmæli eða stjórnmála- slit. Þá vita þeir, að þeir eiga í höggi við sameinaða þjóð, sem ver málstað, sem er henni jafn helgur og sá andlegi grundvöllur, sem trúarlff hennar byggist á. Og þannig hugsandi þjóð fær enginn sigrað." Þessi orð eins hinna vngri presta okkar mættu verða mörg- um umhugsunarefni. 1 engu máli skiptir jafnmiklu, að þjóðin standi saman sem einn maður og í landhelgismálinu. Og f engu máli ættu að vera jafn góð skilyrði til samstöðu landsmanna allra og f landhelgismálinu. Friðun fiski- miðanna fyrir erlendri ásókn er sjálfstæðismál okkar tíma. Þess vegna ættu allir tslendingar að geta sameinazt um það að ná því markmiði, sem að er stefnt með útfærslunni f 200 sjómflur, sameinast ekki aðeins um út- færsluna sjálfa heldur einnig um að fara skynsamlegar leiðir að þessu marki. En þvf miður hefur ötullegaj verið unnið að þvf af margra' hálfu að sundra þjóðinni f þessui Iffshagsmunamáli okkar. Þessi! sundrungariðja hefur veriðl stunduð með ýmsum hætti, en þó fyrst og fremst með þvf að draga inn f það mál sem þjóðin ætti að geta sameinazt um, mesta deilu- mál f fslenzkum stjórnmálum í meira en aldarf jórðung, aðild okkar að Atlantshafsbandalaginu og varnarsamninginn við Banda- rfkin. Um þetta tvennt hafa staðið harðar deilur með köflum f meira 1 en f jórðung aldar. En niðurstaðan , hefur jafnan orðið sú, að mikill meirihluti kjósenda hefur veitt þeim flokkum og þeim stjórn- málamönnum brautargengi, sem hafa barizt fvrir aðild okkar að Atlantshafsbandalaginu og varn- arsamstarfi við Bandarfkin. And- stæðingar þessarar stefnu f ör-1 yggismálum þjóðarinnar hafa' alltaf beðið lægri hlut. Tvfvegis hefur verið gerð alvarleg tilraun til þess að rifta varnarsamstarfi okkar við Bandarfkin. 1 fyrra skiptið, þegar vinstri stjórnin var við völd 1956 til 1958, og f sfðara skiptið á valdatfma vinstri stjórn- arinnar 1971 til 1974. I fyrra skip'.ið gafst sú vinstri stjórn, sem þá var við völd, hreinlega upp við þessi áform. I sfðara skipttð má segja, að þjóðin sjálf hafi tekið málið f sfnar hendur, þegar 55 þúsund Islendingar skrifuðu undir áskorun þess efn- is, að haldið yrði óbreyttri stefnu f öryggismálum þjóðarinnar. Þjóðarviljinn hefur því alltaf leg- ið skýr fyrir, hvort sem um hefur verið að ræða aðild okkar að Atlantshafsbandalaginu eða dvöl varnarliðsins á tslandi. En þrátt fyrir þennan skýra þjóðarvilja hafa deilur og átök staðið um þessa stefnu. Það er þvf mikið óþurftarverk, þegar stöðugt er gerð tilraun til þess að blanda saman þessum óskyldu málum, baráttu okkar fyrir fullum yfirráðum yfir fs- lenzkri fiskveiðilögsögu annars vegar og stefnu okkar f öryggis- málum hins vegar. Kommúnistar hafa alltaf verið f broddi fylkingar þeirra afla, sem barizt hafa fyrir úrsögn úr Atlantshafs- bandalaginu og brottför bandarfska varnarliðsins. En mönnum hefur jafnan verið Ijóst, að til liðs við þá hafa gengið margir lslendingar, sem af til- finningalegum og þjóðernisleg- um ástæðum hafa ekki getað sætt sig við aðild okkar að banda- laginu og dvöl varnarliðsins hér. En kannski má segja, að sterkust sé þjóðerniskennd þeirra, sem hafa gert sér grein fyrir þvf, að til þess að forðast hina mestu hættu sem sjálfstæði tslands gæti verið búin yrðu menn að láta slfkar tilfinningar lönd og leið. Kommúnistar hafa jafnan í öll-1 um þorskastrfðum okkar við Breta leitazt við að notfæra sér landhelgismálið til framdráttar stefnumiðum sfnum f öryggismál- um þjóðarinnar. Þeir hafa sýnt það aftur og aftur, að þeim er meira f mun að ná þvf takmarki að gera island varnarlaust og einangra það frá samstarfi við aðrar vestrænar þjóðir, heldur en sú umhyggja, sem þeir f orði kveðnu segjast bera fyrir vernd- un fiskimiðanna. Þegar ráðherra- stólarnir voru f veði í nóvember 1973 réttu þeir allir upp hendur með samkomulaginu, sem þá var gert við Breta. Nú er enn einu sinni gerð hatrömm tilraun til þess að nota landhelgismálið f þvf skyni að skaða tengsl okkar við vestrænar þjóðir og stofna öryggi þjóðar- innar f hættu. Og ekki verður annað sagt, en að hinir ótrúleg- ustu menn hafi gengið til liðs við kommúnista f þessum efnum. Til marks um það er m.a. þingsályktunartillaga, sem lögð var fram á Alþingi íslendinga f gær um heimköllun sendiherra tslands hjá Atlantshafsbanda- laginu og borin er fram af þing- mönnum úr öllum flokkum, þar á meðal er einn þingmaður úr Sjálfstæðisflokknum. Sú sundrungariðja, sem þeir menn haldaiuppi, sem draga deilur um stefnuna f öryggismálum þjóðar- innar inn í umræður um land- helgismálið er forkastanleg. En allir þeir Islendingar, sem með einum eða öðrum hætti hafa kom- ið fram á sjónarsviðið, þegar veg- ið hefur verið að stefnu okkar f öryggismálum, hljóta nú að vera á varðbergi, þvf að nú er enn ein tilraun gerð til þess að koma fram þeim markmiðum sem andstæð- ingar Atlantshafsbandalagsins og varnarsamningsins við Bandarfk- in hafa stefnt að f 27 ár. Landhelgisdeilan og öryggismál þjóðarinnar Ellert B. Schram alþm.: Afgreiðsla Alþingis á dómsmálum í vetur hafa dómsmál og rannsókn sakamála mjög verið til umræðu manna á meðal, og nú siðustu vikurnar hafa verið settar fram háværar kröfur um að efla þau embætti og það kerfi sem lýtur að rannsókn og meðferð sakamála. Þessu ber að fagna. Um árabil hefur verið tal það fyrir daufum eyrum, en nú hefur þjóðin vaknað upp við vondan draum. Allur meginþungi rannsókn- ar sakamála hefur hvílt á tveim embættum, Sakadómi Reykja- víkur og Saksóknara ríkisins. Hjá báðum þessum embættum Iiggja hundrað mála sem ekki hefur unnist tími til að sinna. Hér er ekki heildarskipulagi rannsóknarmála um að kenna, heldur einfaldlega mannfæð og aðstöðuleysi þessara embætta. T.d. hefur saksóknari ríkisins haft yfir að ráða sama stárfs- mannafjölda s.l. áratug, þrátt fyrir stóraukin verkefni. Fyrir þessu hefur almenningur verið skeytingarlaus og yfirvöld ekki nægjanlega vakandi. Má þó margt lagfæra þótt ekki sé ráð- ist í að stokka upp allt kerfið. Ég vil nefna dæmi. Á yfirstandandi þingi fluttu tveir þingmenn, Friðjón Þórð- arson og Jóhannes Árnason frv. til laga um breytingu á umferð- arlögum, sem veitti dómurum meira svigrúm í meðferð um- ferðarlagabrota. Er talið að þessi litla breyting muni fækka málum hjá Sakadómi Reykja- víkur um allt að 400, en geri refsingu jafnframt virkarí. Allsherjarnefnd nd. beitti sér fyrir framgangi þessa máls og frumvarpið varð að lögum í þann mund sem dómsmálaráð- herra skammaði þingmenn fyr- ir sinnuleysi um dómsmál. Alls hefur þessi sama nefnd afgreitt 13 mál, sem frá dómsmálaráðu- neytinu hafa borist í vetur, eða öll mál dómsmálaráóherra utan frv. til laga um rannsóknarlög- reglu og ættleiðingu. Vegna frestunar á afgreiðslu rannsóknarlögreglufrumvarps- ins, svo og tillögu Sighvats Björgvinssonar o.fl. um að Al- þingi gefi stjórnvöldum ótak- markaða heimila til að ráða menn til að sinna rannsókn sakamála, hefur orðíð nokkuð fjaðrafok. Stjórnarandstæðingar, dóms- málaráðherra, leiðarahöfundur Morgunblaðsins og einstakir blaðasnápar gefa í skyn að Al- þingi leggist á mikilvæg frv. eða tillögur um dómsmál og hefti af þeim sökum úrbætur í framkvæmd og rannsókn saka- mála. Þennan áburð verður að kveða niður þegar i stað. Þingsáiyktunartillaga Sig- hvats Björgvinssonar o.fl er flutt í neðri deild. I 28. gr. 4. mgr. þingskapa segir hinsveg- ar: „Þingsályktunartillögur, sem fara fram á útgjöld úr rík- issjóði, skal jafnan bera upp í sameinuðu þingi og hafa tvær umræður um þær.“ Þetta hefur Sighvatur sjálf- sagt ekki haft tíma til að kynna sér, enda hefur hann ekki mætt nema á 8 af 19 fundum nefnd- arínnar í vetur. Tillaga hans er óþingleg og gagnlaus þótt sam- þykkt yrði. Hvað varðar stjórnarfrum- varpið um rannsóknarlögreglu ríkisins, þá er óhjákvæmilegt að upplýsa, að fljótlega eftir að frv. hafði verið visað til alls- herjarnefndar, spurðist ég fyr- ir um það, sem formaður nefnd- arinnar hvort rikisstjórnin legði áherslu á afgreiðslu þess á þessu þingi. Ég fékk þau svör. að ekki hefði verið reiknað með því í ríkisstjórninni, þegar frumvarpið var lagt fram, að það yrði afgreitt i vetur. Síðar mun svo dómsmálaráðherra hafa óskað eftir afgreiðslu málsins en hafði aldrei sam- band við mig um meðferð þess. Hinsvegar hringdi ég að fyrra bragði til hans s.l. miðvikudags- morgun og tjáði honum, að nefndin hefði verið á einu máli um, að rétt væri að fresta af- greiðslu frumvarpsins til haustsins, ef ætlunin væri að ljúka þinginu í þessari viku. Síðar þennan sama dag sá ráð- herrann ástæðu til að snupra þingnefndir fyrir seinagang. En jafnvel þótt ríkisstjórnin hefði gefið fyrirmæli um af- greiðslu þessa frumvarps og nefndin hefði gengið fastar fram, þá er mér til efs, hvort slikt hefði tekist, bæði af efnis- legum ástæðum og tímans vegna. Og alveg er víst að það hefði engu breytt um framgang þeirra sakamála, sem nú er mest rætt og ritað um. Menn mega ekki rugla saman rann- sókn einstakra umfangsmikilla mála eins og þeirra, sem nú eru f sviðsljósinu, og lagasetningu sem kveður á um frambúðar- skipan. Stofnun nýs embættis hraðar í engu rannsókn saka- mála, ef starfsliði er ekki fjölg- að — ef hæfni starfsmanna, tækni og allur aðbúnaður situr við það sama. Og varla gera menn ráð fyrir, að það muni hraða meðferð þeirra mála, sem nú eru í rannsókn, að nýir menn og ný embætti fengju þau í hendur, á þessu stigi málsins. Nú hefur ríkisstjórnin látið þau boð út ganga, að ekkert skuli til sparað til að upplýsa þau óhugnanlegu sakamál, sem nú eru í gangi og þurfa menn þá ekki að hafa áhyggjur af löggjöfinni, vegna þeirra mála sérstaklega. Ef slikar ákvarðan- ir hefðu verið teknar oftar og fyrr, þá væru menn ekki slegn- ir þeirri blindu að halda að stofnun nýrra embætta leysti allan vanda. Þá væru menn sjálfsagt sammála um, að breyt- ingar á lögreglu- og dómstóla- kerfinu þyrftu meir en nokk- urra vikna athugun á Alþingi. Ég vil aðeins minna á, hvað hér er verið að fjalla um. Stofna skal nýtt embætti, breyta hlutverki sakadómara og allra lögreglustjóra, bæta við verkefni og umsvif saksóknara, færa út valdsvið og áhrif rann- sóknarlögreglu o.s.frv. Á rannsóknarlögreglustjóri að heyra undir pólitiskan ráð- herra eða beint undir saksókn- ara, eins og fjölmargir máls- metandi lögfræðingar leggja til? Hver er reynsla annarra þjóða af valdamikilli rannsókn- arlögreglu? Hver eru viðhorf þeirra manna, sem best þekkja til lögreglustarfa? Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur sent frá sér umsögn, og bendir á annað fyrirkomulag, sem að hans mati og allra yfir- manna lögreglunnar i Reykja- vík, yrði kostnaðarminna, hag- kvæmara og leiddi til fljótari afgreiðlsu mála. Það yrði og í samræmi við reynslu nágranna- þjóða okkar. Landssamband lögreglu- manna tekur í sama streng. Þingnefndir geta ekki virt slíkar umsagnir að vettugi. Ég er ekki að segja að fara eigi að þeim ráðum, en það er áríðandi, að sú skipan mála, sem ákveðin verður, hafi stuðning og skiln- ing þeirra aðila, sem eiga að bera starfið uppi. Frumvarp ríkisstjórnarinnar átti ekki að koma til fram- kvæmda fyrr en 1977. Lítill tími glatast þótt málið fái vand- legri athugun fram á haustið og verði þá afgreitt. Persónulega er ég reiðubúinn til að leggja vinnu af mörkum svo það megi verða. í þessu máli, sem öðru, skipt- ir öllu, að löggjöf mótist ekki af tímabundinni geðshræringu, heldur af yfirvegun og raun- sæi. Ellert B. Schram.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.