Morgunblaðið - 18.05.1976, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MAl 1976
17
Aðeinseinn áfram
úr KKÍ-stjórninni
ÁRSÞING Körfuknattleikssambands tslands hið 16. í röðinni verður
haldið um næstu helgi, og hefst á Hótel Loftleiðum á föstudagskvöldið
kl. 20. Þinginu verður sfðan framhaldið á sama stað á laugardag og þá
K kur þvf.
Athvgli manna mun beinast verulega að stjórnarkjöri að þessu sinni
þvf aðeins einn núverandi stjórnarmanna gefur kost á sér til
endurkjörs en það er Páll Júlfusson. Um nvja menn f stjórn er ekki
mikið vitað, en nöfn eins og Birgir Birgis, Kolbeinn Pálsson, Þor-
steinn Hallgrfmsson og Bogi Þorsteinsson hafa verið nefnd f sambandi
við hina nýju stjórn. Og þá er ekki vitað hver þessara manna mun vera
f framboði til formanns.
Engin stórmál liggja fyrir þessu
þingi svo vitað sé, en talsvert er
um tillögur varðandi ýmsar laga-
breytingar.
Það mál sem mun vekja einna
mesta athygli er tillaga Hilmars
Hafsteinssonar þjálfara UMFN
en hann hefur farið fram á um-
ræður um veru erlendra leik-
manna hér á landi og f beinu
framhaldi af þeim hyggst hann
e.t.v. leggja fram tillögu sem
bannar stjórn K.K.I. að veita
keppnisleyfi til erlendra
leikmanna. Vitað er um mikla
andstöðu margra félaga gegn
þessari tillögu Hilmars, og eru
e.t.v. ekki miklar Ifkur á þvi að
þessi tillaga nái fram að ganga.
gk—•
Ólafur Jónsson mátti gera sér að góðu annað sætið f þýzku 1. deildinni
og sömuleiðis f Evrópukeppni bikarhafa á keppnistfmabilinu, sem
lauk f Þýzkalandi á laugardaginn.
Ólafur ógnaði
Gummersbach
Bærileg byriun
FYRSTA umferðin f 1. deild
Islandsmótsins f knattspvrnu
bauð upp á óvenjumörg mörk
og mikið af marktækifærum.
Þegar leiknir hafa verið 5 leik-
ir f 1. deildinni hefur verið
skorað 21 mark f deildinni og
er það 20 mörkum meira en
skorað var f fyrstu umferðinni í
fyrra. Eina markið sem þá var
skorað gerði Leifur Ilelgason
fyrir FH og var hann þvf mark-
hæstur eftir umferðina með 1
mark. Nú þegar hafa fjórir
leikmenn skorað 2 mörk, Frið-
rik Ragnarsson, Ólafur Júlfus-
son, Hermann Gunnarsson og
Björn Pétursson.
Nýliðarnir f hinum ýmsu fé-
lögum voru mjög f sviðsljósinu
um helgina og skoruðu fimm
leikmenn, sem nú léku í fvrsta
skipti f 1. deildinni, mark f
sfnum fvrsta leik. Þeir Rúnar
Georgsson, Þórir Sigfússon,
Haraldur Haraldsson, Valdi-
mar Valdimarsson og Þorvald-
ur Þorvaldsson. Allt mjög efni-
legir leikmenn, sem sjálfsagt
eiga eftir að láta meira frá sér
hevra áður en sumarið er allt.
Áhorfendum fór fjölgandi
eftir því sem leið á 1. umferð-
ina og voru þeir flestir f Laug-
ardalnum f fyrrakvöld er Vfk-
ingar léku gegn Fram. 1250
manns keyptu sig inn á völlinn,
300 hafa boðsmiða og talsverð-
ur fjöldi fylgdist með leiknum
án þess að fá nokkurt boð eða
að borga nokkurn skapaðan
hlut. Bæði svindluðu menn sér
drjúgt inn með þvf klifra yfir
girðingar og sömuleiðis með
þvf að standa fyrir utan og
glápa f gegnum girðinguna eða
þá með þvf að sitja f bflum
sfnum fvrir ofan völlinn og
horfa á það sem fram fór.
Sjálfsagt eiga liðin f 1. deild-
inni eftir að tapa drjúgum
skildingi á þessum þjófum og
er það til háborinnar skammar
að fólk skuli fvlgjast með leikj-
um vitandi það að það er að
stela frá fþróttafélögunum,
sem það svo ef til vill stvður á
annan hátt. Á næstu leikjum
atarna
munu þó vera uppi áform um
að grfpa til ráðstafana sem
koma í veg fyrir þessa
óskemmtilegu iðju.
Það er ýmislegt sem fylgir
knattspyrnuvertfðinni annað
en leðurkúlan sem menn
sparka á milli sfn. Til að mynda
eru þær komnar á kreik kon-
urnar í Félagi einstæðra for-
eldra og selja hina vinsælu
trefla sfna f litum íþróttafélag-
anna grimmt hverjum þeim
sem hafa vill og munu gera
áfram á leikjum 1. deildarinn-
ar f sumar. — áij.
Lögregluþjónn nr. 12 f Keflavfk fvlgdist náið með þvf sem fram fór
inni á vellinum f leik IBK og FH á laugardaginn enda ekki nema
eðlilegt þar sem maðurinn var Karl Hermannsson fvrrum landsliðs-
maður þeirra Keflvfkinga. 1 Laugardalnum hefði ekki veitt af þvf
að hafa nokkra kollega Karls f svarta búningnum til að hindra þann
straum áhorfenda sem stvtti sér leið vfir girðingarnar. (Ijósm.
RAX).
Oskar boðaðnr til Noregsfarar
á elleftn stnnðu á stað Ásgeirs
HINN skemmtilegi tengiliður
Framliðsins, Ásgeir Elfasson,
meiddist f leik Vfkings og Fram í
fyrrakvöld og varð að yfirgefa
völlinn. En meira en það. Ásgeir
gat ekki heldur farið með lands-
liðinu til Noregs f gærmorgun og
var Víkingurinn Óskar Tómasson
valinn í hans stað. Var Óskar boð-
aður til ferðarinnar klukkan
22.30 á sunnudagskvöldið og hon-
um sagt að mæta úti á Keflavfkur-
flugvelli klukkan 7 morguninn
eftir. Hann hefði verið valinn f
landsliðið í stað Asgeirs og hefði
átta tfma til að gera sig kláran!
Annars er það athyglisvert að
tveir þeirra leikmanna, sem eru i
landsliðshópnum, voru varamenn
hjá félögum sínum um helgina.
Árnarnir Stefánsson og Sveinsson
frá Akranesi.
Guðgeir Leifsson og Ásgeir Sig-
urvinsson ætluðu að fljúga beint
frá Belgíu til Noregs i gær og
hitta hópinn í Ósló. Jóhannes Eð-
valdsson lék hins vegar með
Celtic gegn Manchester City í
gærkvöldi og heldur til Osló í dag.
Sagði Tony Knapp landsliðsþjálf-
ari í fyrrakvöld áð hann vonaðist
innilega til að fleiri leikmenn
meiddust ekki fyrir leikinn við
Norðmenn, það væri nógu slæmt
að hafa þegar misst Ásgeir Elías-
son. — Leikir félaganna eru alltof
nálægt landsleikjunum og maður
veit aldrei hvaða lið maður hefur
í höndunum fyrr en flautað er til
leiks, sagði Knapp.
Fyrsti hluti meistaramótsins
ÓLÁFUR Jónsson hafði nærri þvf tekist að hala Þýzkalandsmeistara-
titilinn f land fyrir Dankersen á laugardaginn. Liðið lék þá gegn
Gummersbach f Frankfurt í úrslitaleik um titilinn og á tfmabili f
seinni hálfleik skoraði Ólafur 4 mörk f röð og brevtti stöðunni úr 9:5 f
9:9. Gummersbach reyndist svo sterkari aðilinn sfðustu mfnúturnar og
sigraði 12:11, naumur sigur og að þessu sinni þurfti Gummersbach að
hafa meira fyrir sigrinum en oftast áður. Áxel Axelsson lék ekki með
Dankersen að þessu sinni vegna meiðsla, sem hann hlaut skömmu
fyrir leikinn.
Ekki fór þó alit landsliðið sam-
an til Osló í gærmorgun. Árni
Stefánsson, varamarkvörður
Fram, gat ekki komist með hópn-
um vegna prófa í íþróttakennara-
skólanum á Laugarvatni. Fer
Árni utan i dag, en til að hann
gæti farið þó þetta snemma þurfti
hann að fá flýtt prófi í skólanum.
MEISTARAMÓT Islands i frjálsum iþróttum hefst laugardaginn 29.
mai nk. og verður þá keppt í tugþraut, fyrri hluta, 4x800 metra hlaupi
og 400 m hlaupi kvenna. Sunnudaginn 30. maí fer seinni hluti
tugþrautarkeppninnar fram og þá verður einnig keppt í fimmtarþraut
kvenna og 10 km hlaupi. Keppnin hefst báða dagana klukkan 14.00 og
þurfa þátttökutilkynningar að berast til Jóhanns Jóhannessonar
Blönduhlíð 12, simi 19171 fyrir 26. maí ásamt 100 króna þátttökugjaldi
á keppanda.
íþróttakennarasamband
íslands opnaði á sunnu-
daginn sýningu á verkum
barna og unglinga þar
sem þau tjáðu sig um
íþróttir og eðli Ólympíu-
leikanna, en íþróttakenn-
arar efndu í vetur til
myndgerðarsamkeppni
þar sem fjallað skyldi um
þetta efni og vinnur dóm-
nefnd nú að þvi að meta
verkin og verða verð-
laun, sem eru skíði og
Færeyjarferð, afhent á
næstunni.
Meðfylgjandi mynd
var tekin við opnun sýn-
ingarinnar og það er
Ingimar Jónsson formað-
ur íþróttakennarasam-
bandsins, sem er í tröpp-
unum nýbúinn að festa
síðustu myndina upp.
Fyrir aftan hann er Þjóð-
verjinn prófessor Eichel,
sem hélt fyrirlestur á
þingi íþróttakennara á
laugardaginn, en Eichel
er prófessor í íþrótta-
sagnfræði.
Sýningin á verkunum
um iþróttir og eðli
Ólympíuleikanna verður
opin í kvöld og annað
kvöld frá kl. 17—21 í Æf-
ingaskóla Kennarahá-
skólans.
Fyrsta æfing hanéknatt-
leikslanésliðsins verður
á móti Bandaríkjamönnnm
BANDARlSKA landsliðið f handknattleik dvelur hér á landi um
þessar mundir og lék f fyrrakvöld við iR-inga. Unnu Bandarfkjamenn
leikinn með tveggja marka mun. 1 vikunni verður leikið við.FH, Fram,
Vfking, Þrðtt og á föstudaginn gegn úrvalsliði, sem hin nýja landsliðs-
nefnd HSÍ mun velja. Verður það væntanlega fvrsta æfing þess
landsliðshóps, sem landsliðsnefndin er nú að setja saman. Sagði Birgir
Björnsson f viðtali við Morgunblaðið f gær að hann gæti ekki að svo
komnu máli gefið upp hverjir yrðu f landsliðshópnum, en væntanlega
verða það 20—24 leikmenn og verða nöfn leikmanna tilkynnt sfðar f
vikunni.
Svo aftur sé vikið að heimsókn
Bandaríkjamannanna þá komu
þeir öllum á óvart á föstudaginn,
en höfðu ekki boðað komu sína
fyrr en á laugardag. Ætla þeir að
dvelja hér fram á laugardag og
nota tfmann þangað til til að fín-
pússa lið sitt, sem tekur þátt í
handknattleikskeppninni á Olym-
píuleikunum.
Varðandi pólskaþjálfarann sem
vonast er til að komi hingað til
lands í haust sagði Sigurður Jóns-
son formaður HSI i gær að haft
hefði verið samband við hann á
laugardaginn og myndi endanlegt
svar. fást innan 10 daga.