Morgunblaðið - 18.05.1976, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MAl 1976
IB Vmarði sigur gegn
Þórsurum áAkureyri
VESTMANNAEYINGAR gerðu góða för til Akureyrar á laugardag þar sem þeir
mættu Þór í fyrsta leik liðanna í 2. deildinni í ár. Vestmannaeyingar héldu suður
með bæði stigin, sigruðu með einu marki gegn engu, f viðureign liðanna, sem flestir
telja hvað líklegust til sigurs í deildinni í ár.
Knattspyrnan, sem leikin var á
Þórsvellinum nýja á laugardag,
var kannski ekki upp á það besta,
en þó brá öðru hvoru fyrir ágæt-
um sóknarlotum. Leikurinn fór
lengst af fram á miðju vallarins
og gekk liðunum illa að skapa sér
veruleg marktækifæri. Markið,
sem færði Vestmannaeyingum
stigin tvö, var sannkallað
heppnismark. Dæmd var auka-
spyrna skammt utan vítateigs og
Óskar Valtýsson lyfti boltanum í
átt að marki Þórs og Samúel
markvörður kom á móti og hugð-
ist góma boltann, en áður en af
því yrði kom boltinn á koll
Gunnari Austfjbrð og breytti við
það um stefnu og sigldi í netið.
Markið var skorað þegar um átta
mín voru af leik. Skömmu síðar
áttu Þórsarar sitt hættulegasta
færi. Sendur var langur bolti inn
fyrir vörn Vestmannaeyinga og
Óskar Gunnarsson náði boltanum,
en Ársæll varði skot hans vel.
Þórsarar sóttu öllu meira í
leiknum, en tókst illa utan þetta
eina sinn að skapa sér hættuleg
færi. Friðfinnur Finnbogason
stóð sem klettur f vörninni og
hirti nær alla háu boltana sem
komu í átt að marki. Vestmanna-
eyingar áttu líka all snarpar
sóknarlotur, en vörn Þórs var
sterk með Gunnar Austfjörð og
Odd Óskarsson sem sterkustu
menn. Líkast til hefði markalaust
jafntefli verið sanngjörnustu úr-
slitin í þessum leik. Magnús
Theodorsson dæmdi leikinn og
gerði sínu hlutverki þokkaleg
skil.
Sigb.G.
Mótlætið fór í skap KA-manna
og Hankar unnu anðveMlega 4:0
HAUKAR áttu ekki í erfiðleikum með lið KA frá Akurevri er þessi lið mættust á malarvellinum f
Kaplakrika á laugardaginn. Urslitin urðu 4:0 Haukum í vii, og skoruðu þeir 2 mörk f hvorum hálfleik.
Voru Haukarnir betri aðilinn allan leiktfmann og sigur þeirra sanngjarn. Lið KA virðist hreinlega ekki
vera I æfingu og leiki liðið ekki betur gegn sterkari liðum deildarinnar þurfa KA-menn ekki að gera sér
vonir um að komast upp í 1. deild. Þá virtust KA-menn brotna við mótlætið.
A laugardag léku Völsungar og Selfoss á Húsavík og var það fyrsti
leikur liðanna f 2. deildinni f ár. Það var blíðskaparveður á Húsavfk,
lygnt og hlýtt og margt áhorfenda, sem sáu sína menn bera sigurorð af
Selfyssingum; skoruðu Völsungar tvívegis en Selfyssingar einu sinni.
Það voru Selfyssingar sem urðu
fyrri til að skora. Það var Gísli
Sváfnisson, sem markið gerði
eftir hornspyrnu, og Selfyssingar
leiddu þannig f leikhlé.
Steingrímur Hálfdánarson og
Ólafur Torfason skoruðu mörkin í
fyrri hálfleiknum og var vel
unnið að marki Steingríms. I
seinni hálfleikn'um skoruðu þeir
Loftur Eyjólfsson og Guðmundur
Sigmarsson. Kom mark
Guðmundar á síðustu sekúndum
leiksins, en var sérlega fallegt.
Steingrímur framkvæmdi horn-
spyrnu, gaf út á vitateigshornið
til Steingrims, sem gaf háa send-
ingu inn að markinu. Þar var
Guðmundur fyrir og skallaði
knöttinn glæsilega í bláhornið
uppi við slá.
Lið Hauka á áreiðanlega eftir
að ná langt í 2. deildinni f sumar.
Baráttan í liðinu er mjög góð,
samleikur sömuleiðis og andinn
innan liðsins er til fyrirmyndar.
Sömu sögu er ekki hægt að segja
um lið KA, e.t.v. eru þar of stórar
stjörnur til að liðsheildin verði
sterk. Kannski á KA-liðið þó eftir
að verða betra þegar kemur á
gras. Hörður Hilmarsson leikur
með KA-liðinu og virðist ekki
TBR-liðin mœt-
ast í aukaleik
A-liði TBR tókst að sigra a-lið Siglfirðinga 13:0 er liðin mættust
í féiagakeppninni í badminton á Akurevri um helgina. Eru a og
b-lið TBR því hnffjöfn að keppninni lokinni. Bæði lið eru með 5
stig og punktatalan er sú sama hjá háðum, 50:28. Verða liðin því
að mætast aftur og verður sá leikur innan skamms.
Mikil spenna rikti meðan1
leikur TBR (a) og TBS (a)
stóð yfir því ekkert mátti út-
af bera hjá TBR, ættí liðinu
að takast að sigra 13:0 eins og
nauðsynlegt var fyrir liðið.
Siglfirðingarnir komust að vísu
Fimleika-
dómarafélag
ANNAÐ kvöld gengst Fim-
leikasambandið fyrir stofnun
dómarafélags. Verður stofn-
fundurinn haldinn í Hlíðaskóla
og hefst fundurinn klukkan
20.30. Með dómaranámskeiðum
FSÍ hefur hópur fimleikadóm-
ara stóðugt farið stækkandi og
er þvf orðið nauðsynlegt að
stofna félag fyrir fimleikadóm-
ara. í undirbúningsnefnd að
stofnun dómarafélags eru þau
Ólafur Sigurjónsson, Ingveldur
Bragadóttir og Kristján Ást-
ráðsson.
nokkrum sinnum í oddaleik, en
heldur ekki meira og TBR (a)
náði þvi aukaleik.
KR (a) lék einnig við Sigl-
firðinga á Akureyri um helg-
ina, en þar var ekki um eins
ójafna keppni að ræða. Siglfirð-
ingarnir töpuðu að vísu aftur,
en nú aðeins 4:9. Urðu KR-
ingar í 2. sæti f keppninni með
2 stig og punktatöluna 44:34,
TBS rak sfðan lestina með ekk-
ert stig og punktatöluna 12:66.
Færeyingar bjóða
lil landsleiks
FÆREYINGAR hafa boðið fs-
lenzkum badmintonmönnum
til landsleiks f Þórshöfn f lok
þessa mánaðar. Vilja Færey-
ingarnir keppa í 3 einliðaleikj-
um og 2 tvíliðaleikjum. Fer
landsleikurinn fram 28. maf,
en ekki er enn vitað hverjir
keppa fvrir tslands hönd.
vera í þeirri æfingu, sem gerði
hann að landsliðsmanni í fyrra.
Vinnslan var lítil á miðjunni og
sjaldan að framherjarnir hefðu
úr einhverju að moða.
Fjórum leikmönnum var sýnt
gula spjaldið i leiknum, i
Haukunum Axel og Sveini og KA-
leikmönnunum Herði Hilmars-
syni og Guðjóni Harðarsyni, en
báðir léku þeir áður með Val.
Völsungar hófu síðari hálfleik-
inn af miklum móði og sóknarlot-
urnar báru árangur eftir um tíu
minútur. Helgi Helgason átti þá
skot á markið, sem einn Selfyss-
inga varði með höndum á mark-
iínu og vítaspyrna því dæmd. Úr
henni skoraði Páll Ríkharðsson af
öryggi. Nokkrum min. síðar léku
Helgi og Hermann Jónasson sig
skemmtilega f gegn um vörnina
og batt Helgi endahnútinn á sókn-
ina með góðu skoti sem hafnði í
neti Selfyssinga. Eftir síðara
markið sóttu Selfyssingar heldur
í sig veðrið, án þess þó að skapa
sér verulega hættuleg færi. Ur-
slitin urðu því tvö mörk gegn einu
Völsungum f vil og verður að telja
það sanngjörn úrslit.
Leikur liðanna var fremur
slakur, einkum í fyrri hálfleik, en
þegar á leið batnaði knattspyrnan
til muna. Völsungar hafa æði
ungu liði á að skipa og bráðefni-
legu. Enn sem komið er hafa
kapparnir kunnu, Magnús Torfa-
son og Hreinn Elliðason, ekki
leikið með liði Völsunga, en þess
mun skammt að bíða, og er ekki
að efa að þeir munu verða hinum
ungu leikmönnum liðsins mikill
styrkur, og verða stigin vart auð-
sótt til Húsavíkur. Arnar Einars-
son dæmdi leikinn af stakri prýði.
Sigb. G.
v.#'
ögmundur Kristinsson markvörður Ármenninga skorar hjá kollega sfnum f marki tBt f leik liðanna á
laugardaginn. Sfðar f leiknum brást ögmundi þó bogalistin f vftaspyrnu og Armenningar náðu aðeins
jafntefli. (Ljósm. RAX).
Ármann og ÍBÍskildu jöfn
ARMANN og tBt skildu jöfn á Melavellinum á laugardagskvöldið. Bæði liðin gerðu 1 mark, Armenning-
ar í fvrri hálfleik, en tsfirðingar f þeim sfðari. Auk þess misnotuðu Ármenningar vftaspvrnu í leiknum,
en þeir voru betri aðilinn í leiknum ef eitthvað var.
Það var ögmundur Kristinsson markvörður Ár-
menninga, sem skoraði fyrir lið sitt. Var dæmd
vítaspyrna á varnarmann ÍBl, sem átti að hafa
brotið á Arnlaugi útherja Ármanns. Var þetta mjög
vafasamur dómur, en dóminum varð ekki breytt og
skoraði Ögmundur af öryggi. Síðar í leiknum var
síðan dæmd önnur vítaspyrna á isfirðinga, en nú
brást ögmundi heldur betur bogalistin og skot
hans fór lang framhjá.
Fyrir isfirðinga skoraði Þórður Pálsson eftir að
Ögmundur hafði hálfvarið skot, en misst knöttinn
frá sér. isfirðingarnir sóttu síðan mun meira loka-
kafla leiksins, en tókst ekki að skora. Hefði það líka
verið ósanngjarnt að þeir hefðu farið með sigur af
hólmi í þessum leik.
Guðjón Sveinsson f harðri
baráttu við mark KA-manna.
en að þessu sinni höfðu
varnarmenn KA betur.
Selfyssingar höfðu ekki er
indi sem erfiði á Húsavík