Morgunblaðið - 18.05.1976, Síða 24

Morgunblaðið - 18.05.1976, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MAl 1976 Glœsileg mörk gáfu Víkingum góðansigur VÍKINGAR unnu dýrmætan sigur gegn Fram í 1. deild- inni á sunnudagskvöldið. Skoruðu Vfkingar 2 mörk, Framarar ekkert og voru þessi úrslit sanngjörn eftir gangi leiksins, en mörkin hefðu þó getað orðið mun fleiri í leiknum. Leikurinn einkenndist af sterkum varnarleik og mikilli baráttu á miðjunni, en það sem fyrst og fremst gaf Víkingum undirtökin í leiknum var þó mun beittari framlína liðsins, en framlína Fram var með eindæmum máttlaus í leiknum. Gunnlaugur Kristfinnsson bregður Ásgeiri Elfassyni og var Ásgeir eini miðvallarleikmaður Kram, sem Víkingar áttu í virkílegum erfiðleikum með. Bæði mörk leiksins voru lagleg og þá sérstaklega það síðara sem Gunnlaugur Kristfinnsson skor- aði á 78. mínútu leiksins. Skot Gunnlaugs af um 25 metra færi fór i bláhornið uppí undir slá og þandi út netmöskvana. Hafði Gunnlaugur verið að dóla með knöttinn í rólegheitum á vallar- helmingi Framara, er hann allt í einu tók mikið viðbragð, lék á Gunnar Guðmundsson og sendi knöttinn síðan með þrumuskoti í netið. Fögnuðu Víkingar þessu marki ákaflega enda full ástæða til. Markið innsiglaði sigur gegn —ÞETTA er það ánægjulegasta sem ég hef gert í langan tíma, sagði Haraldur Haraldsson, nýlið- inn í Vfkingsliðinu, sem skoraði fvrsta mark sitt f 1. deildinni í sínum fvrsta leik og það eftir aðeins 12 mfnútna leik. —Ég vissi ekkert hvað ég var að gera á vell- inum næstu mfnúturnar á eftir, ég var svo ánægður. —Blessaður vertu ég hefði átt að skora fleiri nörk f leiknum, en þegar ég komst í færi var ég of æstur þannig að ekkert varð úr, sagði þessi geðþekki unglinga- landsliðsmaður, sem nýlega lauk prófum úr 3ja bekk Menntaskól- ans við Tjörnina. Gunnlaugur Kristfinnsson sá er skoraði seinna mark Víkinga á glæsilegan hátt var ekki sfður ánægður eftir leikinn. —Vörnin gliðnaði allt í einu fyrir framan mig, ég lék á einn Framara og lét sfðan vaða að markinu. Að sjálf- sögðu var ánægjulegt að sjá á eftir knettinum f netið og það er bara vonandi að mörkin verði fleiri hjá manni, sagði Gunnlaug- ur Kristfinnsson að lokum. Fögnuður Billy Havdock þjálf- ara Vfkinga var mikill er hann sá skot Gunnlaugs hafna í net- möskvunum uppi undir slá. Hljóp hann inn á völlinn og faðmaði leikmenn Vfkings að sér. Eftir leikinn sagði hann að markið hefði verið stórkostlegt og hann væri mjög ánægður með frammi- stöðu hvers einasta leikmanns Vfkingsliðsins f þessum leik. —Mér fannst Framliðið alls ekki leika þennan leik illa og varnar- menn þeirra eru mjög sterkir, sagði Havdock. — En okkur tókst að komast aftur fyrir þá með góð- um stungusendingum og þá sátu þeir eftir. Jú, það er rétt að þeir náðu miðjunni um tfma f seinni hálfleiknum, en segðu mér hve mörg skot þeir áttu að marki f leiknum. Ætli þau séu ekki telj- andi á fingrum annarrar handar? Guðmundur Jónsson þjálfari Framara sagði að loknum leikn- Frömurum, en fyrir þeim tapaði Víkingur tvívegis 1:0 í fyrra. Fyrra markið í leiknum kom á 12. mínútu leiksi'ns eftir langt innkast Gunnlaugs — en þau sköpuðu ávallt mikla hættu við mark Framara í leiknum. Náðu varnarmenn Fram að skalla knöttinn aðeins frá markinu, en ekki tók betra við því knötturinn lenti hjá Haraldi Haraldssyni, sem skaut viðstöðulaust að marki Framara og í hliðarnetinu fjær söng knötturinn án þess að Þor- bergur kæmi vörnum við. Voru varnarmenn F’ram of seinir að um að Vfkingsliðið væri gott um þessar mundir, mun betra en í fyrra og það væri ekkert til að skammast sfn fvrir þó Fram hefði tapað f þessum leik. —Þetta kemur hjá okkur, sagði Guðmundur, á þvf er ekki nokkur vafi. —Framlfnumennirnir okkar voru ekki nógu frekir f þessum leik og með hugarfarshrevtingu hjá þeim förum við að skora mörk og þá verður þetta f lagi. Aðspurð- ur um hvers vegna Pétur Ormslev hefði ekki verið notaður meira í leiknum sagði Guðmundur að hann hefði átt við meiðsli að stríða og þvf verið nauðsynlegt að hlffa honum. átta sig þarna og sagði Marteinn Geirsson eftir leikinn að honum hefði fundist Haraldur vera svo langt frá markinu að hann hafi alls ekki reiknað með skoti. Mun fleiri tækifæri voru í þess- um leik en nýttust, t.d. komust þeir Kristinn Jörundsson og Har- aldur Haraldsson einir inn fyrir i lok fyrri hálfleiksins en bæði Dið- rik og Þorbergur björguðu vel. Vörn Framara virðist ekki eins örugg nú og undanfarin ár og þurftu varnarmenn Fram að hafa mikið fyrir lífinu í þessum leik. Marteinn er þó greinilega að sækja sig, en Jón Pétursson þurfti oft að gripa til grófra að- ferða til að stöðva Víkinga. Ásgeir Elíasson var sá eini miðjuleik- manna Fram sem hafði í fullu tré við Vikinga og um framlínu Framara er það að segja að það var ekki fyrr en Pétur Ormslev kom inn á í leikhléi að lífsmark varð sjáanlegt í framlínunni. Vörn Vikinga á hrós skilið fyrir leikinn og allir stóðu þeir sig vel, en þó enginn eins og Róbert Agn- arsson. Átti hann flesta bolta sem komu að vítateignum og skipti þá ekki máli hvort þeir voru uppi eða niðri. Á miðjunni börðust Adolf og Eiríkur ósleitilega, en Gunnlaugur var sá sem reyndi allan tímann að byggja upp. Ósk- ar stóð sig mjög vel í framlínunni og gerði margt laglegt, þótt við ofurefli væri að etja eftir að Vík- ingarnir drógu sig aðeins aftar á vellinum. í heildina verður það að segjast að þetta var leikur tveggja líkam- lega sterkra liða þar sem ekkert Texti: Ágúst I. Jónsson Mynd: Friðþjófur Helgason. var gefið eftir. Nettur samleikur varð því yfirleitt að víkjar en í heild sinni var leikurinn allgóður, en greinilegf er að leikmenn lið- anna eru enn ekki fyllilega búnir að venjast grasinu. 1 stuttu máli: Islandsmótið 1. deild, Laugardals- völlur 16. maL Víkingur — Fram 2:0 (1:0) Mörk Vfkings: Haraldur Haraldsson á 12. mín. og Gunnlaugur Kristfinnsson á 78. mínútu. Áminning: Engin. Ahorfendur: 1255. Llð vlkunnar Diðrik Olafsson, Víkingi, Einar Gunnarsson, ÍBK, Róbert Agnarsson, Vfkingi, Lúðvík Gunnarsson, ÍBK, Sfmon Kristjánsson, Fram, Björn Pétursson, KR Halldór Björnsson, KR, Þorvaldur Þorvaldsson, Þrótti. Óskar Tómasson, Víkingi, Hermann Gunnarsson, Val, Karl Þórðarson, t A, EinkunnagiöHn lBK: Þorsteinn Ólafsson 2 Lúðvík Gunnarssonar 3 Einar Ölafsson 2 Einar Gunnarsson 4 Guðni Kjartansson 2 Sigurður Björgvinsson 2 Friðrik Ragnarsson 3 Ólafur Júlfusson 3 Rúnar Georgsson 3 Gfsli Torfason 3 Þórir Sigfússon 2 Þórður Karlsson 2 (varam.) FH: Ómar Karlsson 1 Viðar Halldórsson 2 Andrés Kristjánsson 2 Gunnar Bjarnason 1 Janus Guðlaugsson 2 Jón Hinriksson 1 Ólafur Danivalsson 2 Pálmi Sveinbjörnsson 2 Logi Ólafsson 1 Helgi Ragnarsson 2 Leifur Helgason 1 Friðrik Jónsson 1 (varam.) Magnús Teitsson 1 (varam.) DÓMARI: Þorvarður Björnsson 4 BREIÐABLIK: Sveinn Skúlason 2 Gunnlaugur Helgason 2 Bjarni Bjarnason 1 Haraldur Erlendsson 1 Einar Þórhallsson 2 Ólafur Friðriksson 1 Vignir Baldursson 2 Valdimar Valdimarsson 2 Hinrik Þórhallsson 2 Gísli Sigurðsson 3 Þór Hreiðarsson 1 Heiðar Breiðfjörð (varam.) 2 VALUR: Sigurður Dagsson 2 Vilhjálmur Kjartansson 2 Grfmur Sæmundsen 1 Magnús Bergs 2 Dýri Guðmundsson 2 Bergsveinn Alfonsson 2 Atli Eðvaldsson 3 Albert Guðmundsson 3 Hermann Gunnarsson 4 Guðmundur Þorbjörnsson 2 Kristinn Björnsson 1 Kristján Asgeirsson (varam.) 1 DÓMARI: Magnús V. Pétursson 3 AKRANES: Davfð Kristjánsson 2 Björn Lárusson 1 Rúnar Hjálmarsson 2 Þröstur Stefánsson 2 Jón Gunnlaugsson 3 Jón Áskelsson 2 Karl Þórðarson 3 Pétur Pétursson 1 Teitur Þórðarson 2 Matthías Hallgrfmsson 2 Sveinbjörn Hákonarson 1 Árni Sveinsson (varam.) 2 ÞRÓTTUR: Jón Þorbjörnsson 2 Ottó Hreinsson 2 Gunnar Ingvarsson 2 Leifur Ilarðarson 1 Guðmundur Gíslason 2 Erlendur Björnsson 2 Aðalsteinn Örnólfsson 1 Þorvaldur Þorvaldsson 3 Baldur Hannesson 1 Jóhann Hreiðarsson 2 Sverrir Brvnjólfsson 2 Halldór Arason (varam.) 1 Sverrir Einarsson (varam.) DÓMARI: Rafn Hjaltalfn 2 VÍKINGUR: Diðrik Olafsson 2 Ragnar Gfslason 2 Magnús Þorvaldsson 2 Róbert Agnarsson 3 Helgi Helgason 3 Eirfkur Þorsteinsson 3 Gunniaugur Kristfinnsson 3 Adolf Guðmundsson 3 Haraldur Haraldsson 2 Óskar Tómasson 3 Jóhannes Bárðarson 2 Kári Kaaher 1 (varam.) FRAM: Þorbergur Atlason 2 Sfmon Kristjánsson 3 Ágúst Guðmundsson 1 Marteinn Geirsson 2 Jón Pétursson 2 Gunnar Guðmundsson 1 Ásgeir Elfasson 3 Trausti Haraldsson 1 Eggert Steingrímsson I Kristinn Jörundsson 1 Rúnar Gfslason 1 Pétur Ormslev 3 (varam.) Rafn Rafnsson 1 (varam.) DÓMARI: Evsteinn Guðmundsson 3 „Það ánægjulegasta sem ég hef gert í langan tíma”

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.