Morgunblaðið - 18.05.1976, Side 25

Morgunblaðið - 18.05.1976, Side 25
V MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1976 25 Ingólfur Guðbrándsson: „Þú skalt ekki bera ljúg- vitni gegn náunga þínum” gagnrýnandans á verkefni stnu og fagleg vinnubrögð, sýna hins vegar, að hann er með öllu ókunnugur verkinu og auk þess annaðhvort ólæs á nótur og tón- heyrn hans skeikul eða hann skrifar gegn betri vitund. GAGNRÝNI „Á HEIMSMÆLI- KVARÐA“. Eftirfarandi grein hefur Tfminn tregðast við að birta þrátt fyrir gefin loforð og bið ég þvf Morgunblaðið fyrir hana: Framtak Pólýfónkórsins að æfa og frumflytja i heild H- moll messu J.S. Bachs á Islandi var svo vel tekið að húsfyllir var i Háskólabíói þrjá daga í röð i vikunni fyrir páska. Þeim mun furðulegri eru viðbrögð þeirra sem reynt hafa að rista flytjendum — og þá einkum stjórnandanum — níð með öf- undsjúkum, háðslegum og fölsuðum lýsingum á flutn- ingnum og aðdraganda hans. Ég er óvanur að elta ólar við rógburð um sjálfan mig. Þótt „tónlistargagnrýni" Sigurðar Steinþórssonar i Tímanum um nefndan flutning virðist til þess eins skrifuð að hnekkja heiðri mínum og mannorði, þætti mér hún ekki svaraverð nema af tveim ástæðum: 1) Hún er — ef tekin er al- varlega — líkleg til að valda góðu málefni tjóni, sem getur orðið til að binda endi á starf Pólýfónkórsins og e.t.v. aðra listastarfsemi, sem unnin er af áhugafólki. 2) Höfundur lýsir því yfir í síðari grein sinni í Tímanum 5. mai, að hann „hafi reynt að taka starf sitt alvarlega". Hér er tilefni til viðvörunar. Skrif SSt eru líkleg til að rugla dóm- greind almennings, því að undir yfirvarpi fræðimennsku og fagþekkingar beitir hann rangfærslum í nafni siðfræði og sannleiksástar. Listgagnrýni getur verið mikill áhrifavaldur um skoðanamótun almennings og framgang listastarfsemi. Séu forsendur hennar hæpnar, við- miðun byggð á persónulegri öf- und eða óvild samfara vanþekk- ingu á efninu, er hætt við að hún gefi lesanda alranga hug- mynd um iistgildi og rugli mat hans, taki hann mark á dómn- um. Sigurður Steinþórsson reiðir hátt til höggs, því að nú skyldi á fagmannlegan hátt ganga milli bols og höfuðs á Pólýfónkórn- um, eða a.m.k. stjórnanda hans, því að hann kann ekki að stjórna, „hann gefur engar inn- komur" (fyrr en í mesta lagi eftir á!), „slag hans er tón- listarfólkinu óskiljanlegt", hann segir bara „einn, tveir og nú!“ og svo „spilar H-moll messan sig sjálf“! „Gagnrýni" hans er svo mikil að vöxtum og ítarleg, að sennilega hefur aldrei verið ritað jafnlangt mál um nokkurn tónlistarflutning í veraldarsögunni. Hér hefur því skeð atburður í tengslum við þennan tónflutning, sem ekki er aðeins „á heimsmæli- kvarða“, heldur heimsmet á sínu sviði. Einhvern tíma í vetur las ég „tónlistargagnrýni" eftir SSt í Tímanum um tónlistarflutning, sem hann hafði ekki verið við- staddur sjálfur, heldur látið einhvern hlusta fyrir sig og skrifað gagnrýni gegnum miðil- inn! Hefur hann e.t.v. haft sama hátt á um H-moIl messuna? Hann telur mig hafa „keypt mér sess með listamönnum", þótt ég telji mig meb nokkrum rétti hafa skapað það hljóðfæri, sem Pólýfónkórinn er, en ekki keypt það. Gjarnan vildi ég að hann talaði máli mínu við skatt- yfirvöldin, því að ég hef aldrei hlotið neina „ívilnum skatta" vegna Pólýfónkórsins og ekki hikar hann við að lofa mér frá- drætti hinum megin líka og er það nokkuð til marks um stöðu Nokkrar athugasemdir við „gagnrýni” og völd gagnrýnandans! En ekki veit ég hvort SSt hefur „eflzt fyrir tilstilli þess klyfjaða asna, sem alla múra klífur" — hver sem hann nú er. Þessar hugleiðingar hans um kaup, sölu og ívilnanir vekja hins vegar þá spurn, hvort SSt hafi látið einhvern öfundar- mann minn kaupa sig til að skrifa hinn mótsagnakennda þvætting, sem birtist í dagblað- inu Tímanum hinn 28. apríl og 5. mai sl. og kallað er gagnrýni um tónlist. FÖLSK FRÆÐI- MENNSKA Mér dettur ekki i hug að halda fram, að flutningur H- moll messunnar á föstudaginn langa hafi verið óaðfinnan- legur, en eftirfarandi athuga- semdir leyfi ég mér að gera við fræðimennsku SSt.: Bach var þjónn lúthersku kirkjunnar og starfaði í anda hennar. Hæpið er því að telja H-moll messuna „hákaþólskt verk“, þótt hún sé samin við latneskan messutexta, enda vitnar SSt í Durant og segir hana aldrei hafa hljómað í kaþólskri kirkju. Gagnrýnand- inn segir H-moll messuna samda á árunum 1733—1738, þótt talið sé, að Credo-kaflinn hafi verió frumfluttur við endurvígslu Tómasarskólans í Leipzig 5. júní 1732 og Sanctus á jólum 1724. Kenning SSt um að auðveldast sé að syngja hreint í mezzo-forte er alveg ný af nálinni og e.t.v. merkasta uppgötvun hans á tónlistarsvið- inu hingað til, en hún ber hins vegar ekki vott um mikla þekk- ingu á söng né tónlistar- flutningi almennt. SSt telur Pólýfónkórnum það til foráttu, að hann sé „nær helmingi of stór til að syngja pólýfóníu svo vel sé, því að kontrapunkturinn týnist". Að sjálfsögðu er erfiðara að koma raddfleygum linum verksins skýrt fram í jafnstórum kór og Pólýfónkórnum heldur en í fá- mennum úrvalskór, en fjöldi flytjenda verður þá öðrum þræði að miðast við hljómskil- yrði, sem eru ekki hin ákjósan- legustu i Háskólabíói. Þá segir SSt að „kórinn virðist hvorki geta sungið veikt né sterkt, heldur þembist alltaf áfram með mezzoforte-tónstyrk". Fjöldi atvinnutónlistarmanna bæði úr hópi flytjenda og áheyrenda vitnar um það, að hvorki týndist kontrapunktisk raddfærsla verksins né skorti þá „dynamik" eða styrkleika- breytingar, sem verkið og still Bachs gefur tilefni til. Hafi þetta farið fram hjá SSt, hlýtur hann að hafa óvenju- lélegt formskyn og tónheyrn, sem vissulega er mikill ljóður á ráði gagnrýnanda og gerir skrif hans að markleysu einni. Lík- lega er SSt lítt handgenginn verkum Bachs og stfl þess tíma- bils tónlistarsögunnar, enda var þá ekki búið að finna upp klarinettið. Þótt SSt. kunni að leika dável á klarinett hjá Garðari Cortes f tómstundum sfnum, efast ég um að hann hafi tekið þátt í að flytja neina tón- list eftir meistarann Bach, og mér er til efs að hann hafi nokkurn tfma hlustað á H-moll messuna fyrr, nema þá af hljómplötum Karls Richters. Af þeim samanburði dregur hann þá ályktun, að hraðaval mitt, t.d. í Kyrie, hafi verið „a.m.k. þriðjungi of hratt", þótt aðrír stjórnendur, sérfróðir um verk og stíl Bachs eins og t.d. Nikolas Harnoncourt flytji kaflann miklu hraðar (Richter 46 — móti 63 hjá Harnoncourt). Aðfinnslur gagnrýnandans um skort á ,,dynamik“ benda til að hann hafi ætlazt til róman- tískrar túlkunar H-moll mess- unnar í stíl Brahms eða Tchaikovskys með miklum til- finningasveiflum og til- heyrandi styrkleikabrigðum í tíma og ótíma. Að svo var ekki, þykir SSt ekki bera vott um stilkennd flytjenda heldur náttúruleysi! ÓNÁTTÚRA GAGNRÝNANDANS Eitt sinn var það haft f heiðri á íslandi að hafa fremur það, er sannara reynist. Þá dyggð hefur „tónlistargagnrýnandi" Tímans ekki tileinkað sér, heldur virðist hann haldinn þeirri ónáttúru að bera á borð fyrir lesendur sina fullyrðingar og aðfinnslur, sem engan veg- inn fá staðizt. Tilvitnanir hans í einstaka takta hinna ýmsu þátta verksins, þar sem „söng- fólkið kom ekki inn“, vegna þess að „stjórnandinn gaf enga innkomu" (50. taktur resurrexit) eða „allt fór í handaskolum" eins og í 101. takti Gloria „þar sem flutning- urinn riðlaðist gersamlega um hríð“ og 126. takti Confiteor unum baptisma („ráfuðu allir i tímalausri eyðimörk um hrið, áður en nýr púls fór að slá af sjálfu sér“!) eru einber uppspuni. Nærri 200 flytjendur verksins og fjöldi áheyrenda eru til vitnis um hið gagnstæða, og því til frekari sönnunar er hljóðritun ríkisútvarpsins frá sömu tónleikum, sem sýnir óvéfengjanlega að ekkert fór þarna úr skorðum, og er hópur þekktra tónlistarmanna reiðu- búinn að staðfesta það, ef þurfa þykir. í siðasta dæminu er sam- likingin r.ráfuðu allir í tíma- lausri eyðimörk“ anzi langsótt, þar sem engin hreyfing á sér stað, allar raddir syngja á ein- um tóni og sama atkvæði allan taktinn f gegn, nema alto og tenór, sem færast til um einn tón. Hvert gátu raddirnar ráfað á meðan? Engin hraðaskipti eru heldur í þessum takti held- ur í 121. takti. Hvað gengur gagnrýnandanum til með slfk- um skrifum? Hér er með lymskulegu móti reynt að rugla dómgreind áheyrenda með upp- lognum tilvitnunum um mistök, sem ekki áttu sér stað, en gagn- rýrandinn slær um sig undir yfirskini fagmennsku. Þessi tilgreindu dæmi, sem eiga að sýna yfirburðaþekkingu Hvorki ég né Pólýfónkórinn hefur nokkurn tíma vænzt þess að vera talinn „á heimsmæli- kvarða“ hvað þá heldur „bezti kór í heimi", og „gert kröfu til heiðurs", eins og SSt gefur í skyn. En söngur Pólýfónkórs- ins hefur hlotið verðskuldaða viðurkenningu hjá gagnrýn- endum, sem vissulega eru þekktari tónlistarmenn og bet- ur starfi sínu vaxnir en SSt og nægir þar að vitna til dóma þekktra gagnrýnenda í Svíþjóð, Danmörku, Belgíu, Austurríki og Bretlandi. Að einu leyti er gagnrýni SSt þó á heimsmæli- kvarða. Falskar tilvitnanir hans í tilgreinda 4 takta eins viðamesta verks tónbókmennt- anna (H-moll messan er 2344 taktar) til sönnunar þvf, hvort flutningurinn hafi tekizt eða raunar mistekizt — eru algjör nýlunda, sem ekki þekkjast dæmi um fyrr, hvorki hér á landi né erlendis. Heildarmót- un verksins og andi og stíll flutningsins virðist hins vegar algjört aukaatriði í eyrum SSt. SSt gagnrýnir „undir haus stjórnunar" „afkáralegan fram- burð á latinunni". Forsendur þess að íslendingar noti þýzkan framburð latínunnar, eins og SSt leggur til, eru mér ráðgáta og sjálfsagt fleirum! (Hljóm- plötur Karls Richters?) Getur verið að gagnrýnandinn sé svo fáfróður að hann viti ekki, að ítalskur framburður latínunnar er almennt notaður í söng? Þann „afkáralega framburð“ telur hann hins vegar hafa ver- ið „upp á ensku“! Alyktun SSt, að bassasöngvari sé góður, ef hann kemst „niður á Fís þar sem Fischer-Dieskau verður frá að hverfa“, eða tenór efnilegur ef hann kemst vel upp á G, lýsa einnig vel þekkingu hans á þvi, hvaða menntun og tónlistar- hæfileikum söngvari þarf að vera gæddur til að flytja tónlist Bachs svo vel sé. Sú yfirlýsing, að Ruth Magnússon hafi ekki ráðið við aríuna Laudamus te og að Bach sé „ekki hennar maður“ er gróf móðgun við jafn frábæra söngkonu, sem farið hefur með altohlutverkið í öll- um stórverkum Bachs með góðri stílkennd og miklum ágætum. Einkunn gagnrýnandans um flutning ungs bassasöngvara á hinni vandasömu arfu Quoniam tu solus sanctus est, sem „minnti mest á undirstöðudýr íslenzks landbúnaðar", er frámunalega léleg fyndni og höfundinum einum til vanza, en ekki flytjandanum. Ekki er unnt að elta ólar við allar hinar hótfyndnu aðfinnsl- ur SSt sbr. alltof áberandi „búmm-búmm" í bassanum, sem vel hefði mátt spila bundnara f dúettnum Domine Deus! Þarna hefur Bach sjálfur skrifað pizzicato við bassalín- una og hvar hefur gagnrýnand- inn heyrt „bundið pizzicato"? „Auglýsingastandið í kring- um þennan flutning" tók ekki á sig neinar „annarlegar myndir“, og undirritaður hefur engar tilhneigingar til þess' að gerast pislarvottur, sízt af öllu vegna listahátiðar. Auglýsingar eru nauðsynleg leið til að ná til neytenda, einnig þeirra. sem vilja hlusta á góða tónlist. I útlögðum peningum kostaði uppfærsla H-moll messunnar rúmar 3 milljónir króna. Ef SSt getur kennt Pólýfónkórnum aðrar árangursríkari og heil- brigðari aðferðir til að ná þeirri aðsókn, sem hljómleikar kórsins hljóta, er ég viss um að Framhald á bls. 29

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.