Morgunblaðið - 18.05.1976, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 18.05.1976, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MAl 1976 33 félk í fréttum + Sagt er, að Andy Warhol, þessi tæplega fimmtugi sérvitr- ingur sé ekkert fvrir heimboð og aðra mannfagnaði gefinn. Þegar honum berast slfk tii- mæli segir hann gjarna, að „konan hans sé veik“. Konan hans er segulband sem hann skilur aldrei við sig. + Sagt er, að Zsa Zsa Gabor, sem er væntanlegur ólvmpfu- hafi f skilnuðum — og gifting- um — sé á förum til Lunduna- borgar þar sem hún mun fara með aðalhlutverkið f nýju leik- riti. + Lögreglan f London hefur nú beðið Karl prins vinsamlegast um að aka aðeins hægar. Prins- inn hefur margoft verið stað- inn að þvf að aka á 130 km hraða. á bláa Aston Martin- bflnum sfnum, á vegum þar sem hámarkshraði er 90 km. Goðsögnin um Buffalo Bill + „Buffalo Bill og Indfánarnir eða söguskýring Sitjandi Bola“, heitir kvikmynd, sem væntan- leg er innan tfðar. Framleið- andi myndarinnar, Robert Alt- man, segir að myndin geri hvort tveggja í senn að hafna goðsögninni um William F. Colby, öðru nafni Buffalo Bill, og vekja athygli á fjölmiðlum nútfmans og hetjum þeirra. Paul Newman, sem fer með hlutverk Buffalos Bills, hefur sfnar skoðanir á fyrirmvnd- inni: „Buffalo Bill er sam- nefndari allra þeirra, sem gerðu garðinn frægan f Villta vestrinu og ástæðan fyrir þvf, að ég kann vel við mig sem Buffalo Bill er sú, að hann tekur öllum fram; mér, Red- ford, Gable, Winston Churehill, Machiavelli, Adolf Hitler og MeQueen, og reyndar er engum manni unnt að afreka það, sem á hann er borið, sfzt af öllu kvikmyndaleikurum. Paul Newman sem Buffalo Bill Betra seint en aldrei + Hér á myndinni sést þegar Charlie Smith hlaut heiðurs- nafnbót við skóla einn í Bartow f Flórida. Charlie, sem er 133 ára gamall, var ánauðugur þræll á sfnum vngri árum og hefur aldrei notið nokkurrar skólamenntunar. Eins og vera ber við slfka athöfn var Charlie færður f kjól og hvftt og til að auka á ánægju dagsins bárust honum hamingjuóskir frá Ford forseta. + Við lesum oft um harðneskjulegar aðferðir stjórnvalda f Suður- Afrfku f kynþáttamálum og virðist flest vera á eina bókina lært f þeim efnum. Einhver bilbugur sýnist þó vera á hvftu herrrunum f hinni svörtu álfu og til sannindamerkis um það birtast hér myndir af tveimur blökkumönnum, sem skipaðir hafa verið f há embætti f suður-afrfsku utanrfkisþjónustunni. Þeir heita Richard L. Baltimore og Joseph M. Segars og segjast þeir vonast til þess, að útnefning þeirra sé aðeins fyrsta skrefið f þá átt að brjóta niður þá múra, sem reistir hafa verið til að stfa f sundur hvfta menn og blakka. — Happdrætti Framhald af bls. 10 fram í litlum kjallarasal, sem varla er stærri en allstór stofa og f meira en helmingnum er ólögmæt hæð til lofts. Á æskulýðsfélags- fundum er oftast troðfullt. Öll þessi starfsemi hefur eflst og vaxið með árunum. Því er það okkur svo mikil gleði að hafa loks fengið lóð fyrir væntanlegt safn- aðarheimili á hagkvæmum stað og í hæfilegri fjarlægð frá kirkjunni. Er nú verið aða ganga endanlega frá teikningum og rannsókn á grunni og verður síðan hafist handa svo fljótt sem verða má. En til þess þurfum við hjálp. Og því eru nú þessir happdrættismiðar útgefnir. Vinningar eru mest ferðir til Kanarieyja, ýmist fyrir einn eða tvo og svo nokkur Crown-kassettutæki. Heiti ég nú á Laugarnesbúa og fyrrverandi Laugarnesbúa, hvert, sem þeir hafa flutt, og alla vel- vildarmenn Laugarneskirkju og Laugarnessafnaðar að styðja okk: ur drengilega í hollu kristilegu menningarstarfi. Nánari upplýs- ingar gefur Július Sveinbjörns- son sími 20480. Garðar Svavarsson. — Rörasteypa Framhald af bls. 26 Rangárvöllum, en sú framleiðsla hefur ekki fullnægt þeirri eftir- spurn sem er eftir þessari vöru í Rangárvallasýslu. I viðtali við Ólaf Guðmundsson framkv.stj. Bjöllu h/f kom fram að vélar steinasteypunnar eru frá Danmörku, af viðurkenndri gerð, sem reynzt hefur mjög vel hér- lendis. Fyrirtækið hefir þegar hafið framleiðslu á milliveggja- plötum, gangstéttarhellum og öllum algengustu stærðum steyptra röra. Hvað varðar hráefni í fram- leiðsluna kvað Ölafur fyrirtækið eiga mjög auðvelt með vikur og sandöflun og vara þeirra hefði fengið fulla viðurkenningu þeirra er rannsaka slíkt á vegum hins opinbera. Ólafur sagði, að mjög miklar pantanir lægju nú þegar fyrir og ynnu starfsmenn af kappi til þess að anna eftirspurn. Varð- andi steinrörin sagði Ólafur, að nú væru þau þannig frágengin, að til þéttingar væri sérstakur gúmi- hringur og nú þyrfti ekki lengur að þétta með hampi eins og á eldri gerðum steinröra. Þetta auð- veldaði mjög niðursetningu og væri mun tryggara. — Sig. Ósk. — Bókaklúbbur Framhald af bls. 10 Sama gildir um dagsetningar og aðrar tímasetningar. Sumar eru réttar, aðrar gefa aðeins hug- mynd um tiltekin tfmabil. Henri Charriére lést í sjúkra- húsi í Madrid 1. júlí árið 1973. (Frá AB). Kaupmannahöfn er stærsti ferðamarkaðiur Xoröurlanda > tr > 00 * > x' O- 3J o- 2 2 O w < > 00 c > 30 m C/5 30 > Z * m C x H O m Z Tl 2 C= í sumar fljúgum við 3 kvöld í viku til Kaup- mannahafnar á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Héðan verða farnar 4 ferðir í viku til Narssarssuaq í sumar. „Hvað er svo glatt sem góðra vina fundur" kvað Jónas Hall- grímsson í Kaupmannahöfn fyrir nærri 1 50 árum. Enn má rekja spor Jónasar í borginni við sundið Kaupmannahöfn er mesta sam- göngumiðstöð á norðurlöndum Þaðan liggja leiðir til allra átta. Á ferðamarkaði Kaupmannahafnar er feikilegt úrval ferða um allan heim. Þar fást dýrar ferðir og ódýrar, langar og stuttar, til aust- urs og vesturs og til norðurs og suðurs SAS er áhrifamikill aðili á ferða- markaði Kaupmannahafnar Góð þjónusta SAS saman- stendur af mörgum þáttum og miklu starfi Hér eru fáein atriði nefnd, sem setja svipmót á starf- semi SAS Umhyggja fyrir farþegunum frá upphafi ferðar til leiðarloka Flugvélar af nýjustu og bestu gerðum Skandinaviskt starfsfólk um allan heim. Sérstök sæti fyrir reykingar- menn Fyrirgreiðsla í fjarlægum löndum. Matur fyrir sykursjúka. græn- metisætur og smábörn, sé hann pantaður í tæka tið Á löngum flugleiðum skiptir slikt máli. Þjónusta SAS er rómuð um allan heim vegna þess, að starfsmenn félagsins leggja sig fram um að greiða fyrir viðskiptamönnunum eftir því sem efni standa frekast til. x/x Laugavegi3 Simar 21199 22299 'WSSA SINGAPORE NAIRÓBÍ JÓHANNESARBORG TO* PR.AG AMSrERUAM LISSABON BRUXELLES BARCELONA PARÍS HAMBORG

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.