Morgunblaðið - 18.05.1976, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 18.05.1976, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MAl 1976 37 VELA/AKAIMIDI Velvakandi svarar ! sima 10-100 kl 14—15, frá mánudegi til föstu- dags 0 Grindverk að falli komin Þórarinn Björnsson skrifar: „Ég hefi átt heima við Norður- mýri um hálfs annars árs skeið. Það hefur vakið furðu mína hve sumt fólk, sem hús og lóðir á þar, er kærulaust með veggi og grind- verk utan um garðana. Sumir veggirnir eru ramsakkir og sumir styðjast við tré í görðunum, að öðrum kosti væru þeir fallnir. Þessa sjón má sjá á þó nokkrum stöðum við Norðurmýri. Fólk virðist ekki vera hrætt um að gildrur þessar falli og slasi börn og húsdýr. Betur að svo fari ekki. En væri ekki betra að byrgja brunninn i tíma og fjarlægja gildrur þessar. Ekki er fegurðinni fyriraðfara. 0 Steinveggur og skúr Ég minnist þess að í fyrra- vor fór ég á fund manns hjá borgarverkfræðingi og benti hon- um á hættulegan, hallandi stein- vegg við Skólastræti og einnig hálfhruninn skúr við Laugaveg i ólokuðu porti. Hékk þak skúrsins að miklu leyti niður og rambaði til. Ég sá börn vera að prila þarna upp á og leizt heldur miður á það. Maður þessi tók ábendingu minni vel, og nokkru seinna var búið að fjarlægja vegg og skúr. Þökk fyrir það. Þórarinn Björnsson" 0 VorveÖur Eftir langan vetur og leiðin- legan er loks kominn sá árstimi og sú tíð að íbúar þessa lands geta notið útiveru. Og það sér sannar- lega á. Allir, sem vettlingi geta valdið, eru úti um helgar i görðunum sínum að starfa og í gönguferðum i fjörum og um holt og móa eða bara á götunum. Þvi sannleikurinn er auðvitað sá, að vorveður á Islandi, og jafnvel sumarveður, er ekki hlýrra en svo, að maður verður að hafa eitt- hvað fyrir stafni til að geta verið úti og notið þess. Aðeins örfáa daga á árinu er hægt að sitja eða liggja og láta sér vera hlýtt. Veðurfarið, þegar best er, er þannig að maður getur best notið þess ef maður er á göngu eða einhverri annarri hreyfingu. Það sanna vel almenningsgarðarnir og útivistarsvæðin í Reykjavík. Þar þarf helzt að vera eitthvað við að vera, til að þeir nýtist. Þetta er lika í lagi, við þurfum bara að var hámenntaður maður með góð sambönd f Suður-Frakklandí. Hann kenndi tungumái við Ox- ford og talaði sjálfur sjö tungu- mál reiprennandi. Þegar hann var sendur til Frakklands sem aðstoðarmaður og skipuleggj- andi, gaf hann sér tíma til að hafa upp á nokkrum tengiliðum sfn- um. Einn þeirra var maður sem hafði verið áhrifamikill f Vichy- stjórninni. Hann naut enn tölu- verðs álits og hafði nokkur völd. Hann hafði gengið svo hressilega til liðs við Þjóðverja að þeir treystu honum fullkomlega og þar með hafði honum tekizt að afla sér geysivfðtækra upplýsinga um varnarkerf i Þjóðverja og mik- ilvægar áætlanir þeirra f Frakk- landi. Rirhardson komst að þvf að hann var reiðubúinn til að gefa honum þessar upplýsingar og snúast tíl stuðnings við Frakka og frönsku útlagastjórnina — svo fremi honum vrði greitf vel fvrir. Og greitt fyrir f gulli. Það var að vfsu töluverðum erfiðleikum bundið að koma þessu f kring. En hann lagði á þetta rfka áherzlu þvf að hann taldi peningaseðla ekki hafa það gildi sem hann sótt- ist eftir. gera okkur grein fyrir því og hegða okkur i samræmi við það. Sitja ekki inni, þó ekki sé veður til að liggja eða sitja úti. 0 Allir úti við Nú undanfarnar helgar hefur þetta verið mjög áberandi. Allt i kring um Reykjavik og uppi I fjöllum mætir maður göngu- fólki. Hestamenn eru hundruðum saman að viðra gæðinga sína á öllum vegum og utan þeirra. Þegar Skógræktarfélag Reykja- vikur bauð upp á fræðslu um plönturæktun, þá streymdu til þeirra í Fossvoginn hátt á annað þúsund manns á tveimur timum og líklega hefur það fólk allt verið í görðunum sinum um helgina. A kappreiðum Fáks var mikill fjöldi manns sem stóð og rölti um. Og fréttir voru um að um 1200 manns hefðu fengið sér gönguferðina úr Keflavik til Reykjavíkur á besta degi vorsins. Og ferðafélögin fengu mikla þátttöku í sínum helgargöngum. I bænum var alla helgina margt um manninn og fjölmargir á kvöldin á göngu með sjónum, þvi einstak- lega fallegt sólarlag var i Reykja- vík. Þetta var sem sagt ein af þessum góðu og dýrmætu vor- helgum, sem koma eftir erfiðan vetur og skammdegið sem sest i skapið á okkur og allir nota tæki- færið til að viðra sig og losna við vetrardrungann. 0 Hvað liggur á? G.K. hringdi i Velvakanda. Kvaðst hann hafa heyrt i útvarp- inu, annað hvort i þingfréttum eða leiðrum einhverra landsmála- blaðanna, að þingmenn hefðu ákveðið að hætta að taka laun ef þeir gætu ekki af einhverjum ástæðum sinnt þingstörfum, og vildi hann þakka þeim sem eiga að vera okkur hinum fyrirmynd í sliku, fyrir að hafa átt að þessu frumkvæði sjálfir, og líta á störf sín sem selda vinnu og seldar vinnustundir. Hann kvaðst þeim mun ánægðari með þetta, að hon- um hefur sýnst í fréttum af at- kvæðagreiðslum að undanförnu að mikið vantaði á að þingmenn væru á sinum stað, þegar þing- fundir eru og mál afgreidd. Oft hefur vantað æði marga í töluna. Og hann kvaðst hafa verið að velta því fyrir sér, af hverju lægi svona á að ljúka þingi, meðan fjölmargt bíður afgreiðslu og ekki er tími til að ræða málin, eins og þarf. Þingmenn eru á launum allt árið, og ættu því auðvitað að halda áfram störfum meðan ein- hver störf biðu, að hans dómi. Kannski liggi einhver önnur rök til þess, fyrir utan það að lamba- burður er hafinn i sveitum, að þingstörfum verður að ljúka á ákveðnum tíma, sagði hann. En þá væri gott að vita hver þau eru. Það er nefnilega allt anna viðhorf síðan farið var að greiða laun allt árið. Sama sagði hann að sér fynd- ist að aðrar stéttir, svo sem kennarar ættu að gera það er að leggja fram vinnu eftir að skólum lýkur, ef með þarf. HOGNI HREKKVISI 0 ð „Kú — Kú —!“ sýningarsalur Tökum allar gerðir notaðra bifreiða í umboðssölu Fiat 128 Rally árg. '74 780 þús. Fiat 128 Rally árg '75 950 þús. Fiat 128 Rally árg. '76 1 millj. 1 50 þús. Fiat 132 Special árg. '73 950 þús. Fiat 132 GLSárg. '74 1 millj. 200 þús. Toyota Crown árg. '70 700 þús. Toyota Carina árg. '74 1 millj. 250 þús. Lada Station árg. '74 750 þús. Lada Topaz 2103 árg. '74 800 þús. Austin Mini árg. '74 570 þús. Dodge Dart árg. '74 1 millj 800 þús. Citroen GS árg. '74 1 millj. 350 þús. Plymouth Valiant árg. '67 450 þús. Fiat 850 Fiat 850 300 þús. Fiat 126 Fiat 126 Fiat 125 Fiat 125 540 þús. Fiat 125 Fiat 125 Fiat 125 Fiat 124 Fiat 127 Fiat 127 Fiat 127 620 þús. Fiat 128 380 þús. Fiat 128 Fiat 128 Fiat 128 Fiat 128 Fiat 128 650 þús. árg. '71 240 þús. Coupé árg. '71 árg. '74 550 þús. árg. '75 600 þús. árg. '71 450 þús. Special árg. '72 P árg. '72 450 þús. Párg. '73 520 þús. P. árg. '75 800 þús. árg. '67 240 þús. árg '72 410 þús. árg. '73 500 þús. 3ja dyra árg. '74 4ra dyra árg. '71 árg. '72 460 þús. árg. '73 570 þús. árg. '74 750 þús. árg. '75 850 þús. Rally árg. '73 FIAT EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI Davíö Sigurösson h.f.# SÍÐUMÚLA 35, SÍMAR 38845 — 38888 Húsbyggjendur Einangrunar- plast Getum afgreitt einangrunarplast á Stór- Reykjavíkursvæðið með stuttum fyrirvara. Afhending á byggingarstað. HAGKVÆMT VERÐ. GREIÐSLUSKILMÁLAR Borgarplast hf. Borgarnesi sími: 93-7370 Kvöldsimi 93-7355. Plastgluggar Passa fyrir öll hús ekkert viðhald fullkomin þétting ódýrir Plastgluggar h/F Nýbýlavegi 12, sími 42510 Höfum til afgreiðslu strax fánastengur úr áli og glerfiber í lengdum 6 —18 Im. Einnig íslenzka fánann og fánastangar húna. Ólafur Kr. Sigurðsson og Co. Suðurlandsbraut 6, Tranavog 1, símar 83499 — 83215.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.