Morgunblaðið - 18.05.1976, Síða 38

Morgunblaðið - 18.05.1976, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MAl 1976 Mikið blóðbað á N-írlandi Belfast 17. mai. AP-Reuter. SL. HELGI er ein sú blóðugasta um langt skeið á N-trlandi og liggja eftir hana 11 manns í valn- um og 55 særðir. Þar af voru 4 lögreglumenn myrtir, sem er mesta mannfall 1 lögregluliði N- trlands f sögu þess. Talið er vfst að (rski Lýðveldisherinn IRA hafi verið hér að verki, en IRA- menn hafa hótað lögreglunni löngu og heitu sumri. Þrír lögregluþjónanna voru myrtir á laugardag, er sprengja sprakk fyrir utan lögreglustöð þeirra í Belcoo, er þeir gengu út úr henni, sá fjórði liggur lífs- hættulega særður. Síðar um dag- inn var enn einn lögregluþjónn- inn myrtur úr launsátri í s-hluta N-írlands. Á laugardag voru einn- ig 5 óbreyttir borgarar myrtir í skotárásum á fjölsóttar krár. 2 miðaldra menn voru siðan skotnir til bana úr launsátri skömmu fyr- ir miðnætti á sunnudagskvöldi og tala fallinna þvi 11 eftir þessa helgi. Meðal særðra eru tveggja ára barn og nokkurra mánaða gamall hvítvoðungur. 15 féllu í árás skæruliða í Thailandi Bangkok 17. mai AP — Reuter.. SKÆRULIÐAR kommúnista i Thailandi myrtu 15 manns um helgina í mestu skæruliðaárás þar í landi það sem af er þessu ári. Var árásin gerð á æfingabúðir Thailandshers í s-hluta landsins. 100 manns voru í skæruliðasveit- inni. Æfingabúðir þessar eru notaðar til þess að þjálfa óbreytta borgara til varnar þorpum og bæj- um í landinu. Dagblöð i Thailandi segja að skæruliðarnir hafi ráðizt inn í búðirnar undir dögun og skotið á allt, sem kvikt var. Meðal fallinna voru 2 konur og 4 börn. Voru lík hinna myrtu síðan brennd á bál- kesti og búðirnar brenndar til grunna. 15 manns særðust í þess- ari árás, en komust lífs af í skjóli myrkurs áður en birti af degi ásamt 30 öðrum. Skæruliðar kommúnista hafa verið mjög her- skáir í s-hluta landsins undan- farna mánuði. Margrét Danadrottning og Henrik prins eru nú 1 opinberri heimsókn f Bandarfkjunum og var þessi mvnd tekin er þau hjón heimsóttu Hvfta húsið f sl. viku. Á myndinni sjást auk hjónanna og forsetans Rockefeller, varaforseti, K.B. Ánderson, utanrfkisráðherra Danmerkur, og Nancv Kissinger, sem er að ræða við Henrik prins. Kosningabarátta Eanes hafin Lisabon 13. maí Reuter. ANTONIA Ramalho Eanes, yfir- maður herafla Portúgals, hefur byrjað kosningabaráttu sína, en allt útlit er fyrir að hann njóti yfirgnæfandi stuðnings hjá þrem- ur stjórnmálaflokkum í landinu, Mótmæli við brezkt herskip í Arósum Árósum 16. maí frá Axel Peder- sen íslenzkir námsmenn í Árósum og nágrenni efndu í dag til mót- mælaaðgerða við brezka herskip- ið Interpid, sem er í kurteisis- heimsókn í Danmörku. Báru um 100 Islendingar spjöld, sem m.a. var á ritað ísland úr NATO, Guð sósialistum, alþýðudemókrötum og miðdemókrötum. Hershöfðing- inn, sem er 41 árs gamall, fór til Evora i morgun til viðræðna við yfirmenn hersins í suðurhluta landsins, en það er eini landshlut- inn þar sem ekki hefur verið tek- blessi þorskinn og veiðiþjófar. Einnig dreifðu þeir miðum, þar sem gefnar voru upplýsingar um rök og afstöðu íslendinga í þorskastríðinu. Skipherra skipsins bauð islend- ingunum að koma um borð, ef þeir skildu eftir mótmælaspjöld sín, en þvi boði var hafnað. Mót- mælaaðgerðirnar fóru rólega fram, en um 5000 Danir heim- sóttu skipið. in jákvæð afstaða með forseta- framboði Eanes. Bent er á að kommúnistar séu mjög sterkir í þeim hluta Portúgals og þvi kunni róður Eanes þar að verða nokkuð þungur. Forsetakosningarnar fara fram þann 27. júní eins og frá hefur verið sagt. Nú er allt útlit fyrir að eini frambjóðandinn á móti Earies verði núverandi forsætis- ráðherra, Pinheiro Azevedo. Azevedo er ekki talinn hafa neina sigurmöguleika nú, en búizt. er við að kommúnistar muni veita honum brautargengi og ákveðinn armur innan Sósíalistaflokksins. Þá gæti Azevedo einnig fengið nokkurn styrk frá flotanum sem jafnan hefur verið róttækastur innan portúgalska hersins. — Flensborg Framhald af bls. 2 afmælisárgangar gagnfræðinga og stúdentar frá í fyrra koma saman. Kvöldfagnaðurinn verður í Skiphól sunnudagskvöldið 23. maí og hefst með borðhaldi kl. 19.00. Fagnaðinum stýrir Vil- hjálmur Skúlason. Stutt ávörp flytja: Guðlaugur Þorvaldsson háskólarektor og fulltrúi nýstúdenta. Berglind Bjarnadóttir og Margrét Pálma- dóttir syngja og Ömar Ragnarsson flytur skemmtiþátt. Að lokum verður dansað til 2. e.m. Miða má panta á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag í síma 50922 milli kl. 14 og 17.00. Þeir verða afhentir í Flens- borgarskóla, laugardaginn 22. máí milli kl. 16.00 og 18.00. Er þess sérstaklega vænst- að eldri afmælisárgangar skólans fjölmenni til þessa kvöldfagnaðar félagsins. — Fjögur töp Framhald af bls. 2 tækifærið til að sýna hvers vegna titillinn hefði hafnað í höndum þeirra). ísland — Þýzkaland 20—-^l tsland — Frakkland 2—18 ísland — Bretland 11—9 ísland — Noregur 16—4 ísland — Monaco 9—11. — Crossland Framhald af bls. 1 lag til lengri tíma ef það reyndist nauðsynlegt. Blaðið Sunday Telegraph sagði í leiðara í gær, að tími væri kominn til að binda enda á fiskveiðideiluna, sem það kallar fáránlega og skaðlega. Blaðið segir, að fræðilega séð sé staða Breta sterk, en það veiki málstað þeirra, að þeir séu sjálfir að berjast fyrir 200 mílum. Sunday Telegraph segir, að ef helmingur þeirrar orku sem hafi farið í að bæta sambúðina við Rússa, hefði verið notaður til að semja við íslendinga, sem séu mikilvægir banda- menn í NATO, væri málið úr sögunni. Rétt sé að brezki flotinn geti sprengt upp íslenzku fallbyssubátana en muni auðvitað ekki gera það og betra sé að horfast í augu við staðreyndir en að halda áfram stefnu sem sé fum- kennd og árangurslaus. — Njósnari Framhald af bls. 1 handtekinn á röngum forsendum. „Ég er saklaus," sagði hann. Heimildir í Bonn herma að leit hafi verið gerð í íbúð Böx eftir að hann var handtekinn. Frú Berger er sögð hafa játað að hafa starfað í þágu Austur-Þjóðverja en neitað því að hafa reynt að beita Böx fjárkúgun. Helmut Kohl, formaður CDU, segir að dr. Böx hafi harðneitað því að hann hafi á nokkurn hátt verið viðriðinn njósnamálið. Hann er kvæntur og tveggja barna faðir. Frú Berger starfaði með dr. Böx í Varsjá á árunum 1966 til 1970. Þegar hún var handtekin var hún ritari í viðskiptadeild ut- anríkisráðuneytisins. Hún neitaði þvf í yfirheyrslum að hafa rætt við dr. Böx um njósnir samkvæmt góðum heimildum. Frú Berger var handtekin í eins herbergis fbúð í fjölbýlishúsi, sem hún hefur búið í. Nágrannar hennar segja að hún sé hljóðlát og hlédræg. — Ríkisútgáfa Framhald af bls. 3 um, sem komið hefðu út á síðustu tveimur árum, væru hins vegar allar með nýju stafsetningunni. Sigurður kvað erfitt að geta sér til um heildarkostnað þess að breyta kennslubókum á nýjan leik með tilliti til stafsetningar- innar frá 1929, en það skipti vafa- laust milljónum króna. Hins vegar sagði Sigurður, að þrátt fyrir að enn væri töluvert til af kennslubókum með gömlu staf- setningunni teldi hann að það yrði engu að síður kostnaðar- samara að fara nú að breyta kennslubókunum f heild yfir í gömlu stafsetninguna aftur en að halda sér áfram við hina nýju. Sigurður gat þess ennfremur, að Ríkisútgáfa námsbóka hefði á sínum tíma, þegar nýja staf- setningin tók gildi, gefið út ís- lenzka réttritun eftir Halldór Halldórsson samkvæmt tilskipun frá menntamálaráðuneytinu og þeirri bók hefði verið ætlað að vera handbók fyrir kennara í hinni nýju stafsetningu. Sú bók hefði verið gefin út í 3 þúsund eintökum, en hún yrði öskuhauga- matur, ef gamla stafsetningin yrði nú aftur tekin upp. — Rocefeller Framhald af bls. 1 geti innt af hendi þá grund- vallarskyldu sfna að tryggja siglingafrelsi á úthöfunum. Bandaríkjamenn munu leggja fram sinn skerf til varnar hin- um frjálsa heimi, sem V- Þjóðverjar og aðrar vestrænar þjóðir hafa lagt til mikilvægt framlag. Þessir bandamenn ættu að vinna saman að því að skapa opnari heim, þar sem þjóðunum er gefinn kostur á meiri fjölbreytni í þjóðfélags- og stjórnskipulagi." Ræðu varforsetans var ákaft fagnað og hann þurfti margoft að gera hlé á henni vegna lófa- taks. Rockefeller var spurður að því á blaðamannafundi á flugvellinum í Frankfurt fyrir brottförina til Bandaríkjanna hvort ummæli hans mörkuðu upphafið að nýrri og harðari stefnu Bandarfkjastjórnar í garð Sovétríkjanna og hann svaraði: „Nei, það var aðeins verið að segja þeim hvernig hlutirnir væru.“ Helmut Schmidt kanslari V- Þýzkalands flutti einnig ræðu, þar sem hann sagði að vinátta Bandaríkjanna og V- Þýzkalands væri staðreynd, sem íbúar beggja gætu treyst á og „hinn aðilinn yrði að horfast í augu við“. Schmidt lýsti NATO sem sterkasta friðarsátt- mála þessarar aldar og sagði að íbúar Vesturlanda mættu aldrei gleyma ógnununum við frelsið utan og innan sinna landamæra. — Ford Framhald af bls. 1 tóm í úthverfum bílaborgarinnar Detroit þar sem samdráttur hefur haft atvinnuleysi í för með sér. Um 450.000 eru skráðir atvinnu- lausir í Michigan. Forsetinn hefur 13 sinnum ver- ið kosinn á þing í kjördæmi sínu, Grand Rapids. Hins vegar hefur hann aldrei boðið sig fram í rfkis- kosningum í Michigan. Michigan sendir 84 fulltrúa á landsfund repúblikana í Kansas City í ágúst og Maryland, þar sem Reagan hefur unnið á, 43 fulltrúa. Demókratar í Michigan senda 133 fulltrúa á flokksþing sitt og demó- kratar í Maryland 43. — Jarðskjálfti Framhald af bls. 1 mældist jarðskjálftinn nfu stig. Jarðskjálfti sem mælist átta stig á þessum kvarða veldur alvarlegu tjóni á byggingum. Upptök jarðskjálftans voru í Kyzyklum-eyðimörkinni. Næsta byggð við hana eru tveir litlir eyðimerkurbæir: Gazli, 70 km frá upptökunum og þar mældist jarð- skjálftinn átta stig og Tamdy- bulak 120 km f norðaustur þar sem hann mældist rúm sjö stig. Tass hermir að jarðskjálftinn hafi sums staðar valdið tjóni en nefnir ekki hvar og segir að skjótar björgunarráðstafanir hafi verið gerðar. Frétt í síðdegis- blaðinu Izvestia bendirtil þess að mesta tjónið hafi orðið í Gazli þar sem íbúar voru 7.800 fyrir sex árum, þar af margir starfsmenn nálægra jarðgasstöðva. Embættismenn í hinum fornu borgum Tashkent, Samarkand og Bukhara sögðu að jarðskjálftinn hefiði valdið litlu sem engu tjóni þar. í Bukhara var sagt að sprungur hefðu komið í byggingar og jarðskjálftinn mælzt 6—7 stig. Nokkru vægari jarðskjálfti varð á nákvæmlega sama svæði 8. apríl. Að sögn Tass olli sá jarð- skjálfti nokkru tjóni í Gazli og einnig nokkru tjóni á byggingum í Bukhara en þó ekki manntjóni. Fyrir tiu árum eyðilagðist mið- borg Tashkent í jarðskjálfta sem mældist átta stig, 28.000 heimili jöfnuðust við jörðu og rúmlega 100.000 manns misstu heimili sín. Síðan hefur Tashkent verið endurreist og hús byggð með tilliti til þess að þau þoli jarð- skjálfta. Alvarlegt tjón varð í jarð- skjálfta í Dagestab á vesturströnd Kaspiahafs 1970. Þar urðu einnig miklar jarðhræringar 1974. — Giscard Framhald af bls. 1 síðan de Gaulle var forseti og auki álit Bandaríkjamanna á Frökk- um. Samkvæmt nýlegri skoðana- könnun líta aðeins 35% Banda- ríkjamanna á Frakka sem banda- menn. Hann vill líka draga úr and- spyrnu Bandaríkjamanna gegn Concorde-þotunni sem hefur reglulegar áætlunarferðir til Bandaríkjanna á mánudaginn. Giscard var 3 klst. og 20 mínútur á leiðinni og Concorde hefur ekki lent í Bandarfkjunum í 18 mán- uði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.