Morgunblaðið - 18.05.1976, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MAI 1976 39
Reykjarsúla úr flaki spænska olfuskipsins Urquiola.
39% ítala vilja
kommúnista í stjórn
Róm 17. maí Reuter.
ALTIERO Spinelli, yfirmaður
iðnaðar- og tæknimáladeitdar
Efnahagsbandalags Evrópu, hef-
ur tilkynnt, að hann muni verða í
framboði f þingkosningunum á
ttalfu f næsta mánuði fyrir
kommúnista, en sem óháður
stuðningsmaður flokksins. Sagði
Spinelli að hann væri sannfærður
um að þátttaka kommúnista f
næstu stjórn landsins væri nauð-
synleg fyrir raunhæft lýðræði á
ftalfu. Þá tilkynnti Nino Pasti,
fyrrum yfirhershöfðingi ftalska
ERLENT
Sjóferðinni
frestað
Brandon Creek,
Irska lýðveldinu, 16. maí.
LEIÐANGURSMENNIRNIR 5,
sem ætluðu að leggja af stað frá
írlandi á sunnudag á 11 metra
iöngum skinnbáti áleiðis til
Bandaríkjanna, urðu að frestaför
sinni til þriðjudags vegna
óveðurs. Tilgangur leiðangursins
er að sanna að menn hafi getað
siglt yfir hafið 1000 árum áður en
Kólumbus kom til Bandarikj-
anna.
flughersins, að hann myndi einn-
ig verða f framboði sem óháður
stuðningsmaður kommúnista. Til-
kynningar þessar hafa komið
mjög á óvart og þykja mikill sig-
ur fyrir kommúnista.
I skoðanakönnun, sem kunn-
gerð var í Róm í dag, segir, að
39% ítalskra kjósenda séu fylgj-
andi því, að kommúnistar fái að-
ild að ríkisstjórninni, annaðhvort
með kristilegum demókrötum eða
í alþýðufylkingu með Sósíalista-
flokknum. Þá voru 32% fylgjandi
miðflokkastjórn eða vinstri stjórn
án þátttöku kommúnista. Komm-
únistar áttu síðast sæti í stjórn
1947.
Enrico Berlinguer, leiðtogi
La Coruna, 17. maf.
Reuter. AP.
Mengunarsérfræðingur sagði f
dag, að hann teldi að olfa úr flaki
spænska olfuflutningaskipsins
Urquiola hefði borizt langt á haf
út og ræki til strandar Marokkó.
Mikil leynd hvflir yfir málinu og
hún hefur verið gagnrýnd.
Sérfræðingurinn dr. Olav
Carlsen frá Noregi, segist hafa
upplýsingarnar eftir áreiðanleg-
um heimildum, Norska stjórnin
sendi hann til La Coruna til að
ítalska kommúnistaflokksins,
endurtók í ræðu á fjölmennum
kosningafundi kröfu sfna um að-
ild kommunista að næstu stjórn
og sagði að óhugsandi væri að
mynda stjórn í framtíðinni án
þátttöku kommúnista. Sagði hann
að tillaga sin um myndun stjórnar
allra flokka til að leiða Italíu út
úr efnahags- og þjóðfélagskrepp-
unni væri ekki blekking heldur
alvarlegt tilboð. Sagði hann i
ræðu sinni, að kristilegir demó-
kratar væru hræddir við breyt-
ingar, hræddir við einingu, því að
þá teldu þeir sig missa ráðandi
stöðu sína i ítölskum stjórnmál-
um. Sagði hann, að þessari breyt-
ingu yrðu Italir að koma til leiðar
í kosningunum.
fylgjast með olfulekanum, en
upplýsingar hans hafa ekki
fengizt staðfestar enda hefur
spænski flotinn takmarkað allar
upplýsingar um málið.
Olian frá Urquiola heldur
áfram að breiðast út um strönd
Norðvestur-Spánar og fjörur eru
orðnar svartar i E1 Ferrol
Caudillo í um 50 km fjarlægð.
Fimm fjörur á þessu svæði og
hafnarbærinn E1 Ferrol hafa orð-
ið fyrir barðinu á oliulekanum.
Yfirvöld undirbúa enn flutning
hráoliunnar sem enn er i flakinu
og hollenzkt björgunarlið er til
taks en talsmaður í La Coruna
sagði i dag að enn gætu liðið tveir
til þrír dagar áður en tilraunin
gæti hafizt.
Talið er að enn séu um 75.000
lestir um borð í flakinu en fréttir
um að olían hafi breiðzt út um 90
km svæði meðfram ströndinni
benda til þess að olía haldi áfram
að streyma úr því. Spænsk yfir-
völd sögðu fyrir helgi, að talið
væri að 30.000 lestir hefðu lekið
úr skipinu, sem sökk í hafnar-
mynninu þegar kviknað hafði í
því.
Yfirvöld í La Coruna hafa farið
þess á leit að lýst verði yfir
neyðarástandi á svæðinu vegna
eyðileggingar, sem orðið hefur á
skelfiski og stjórnin i Madrid
hefur beiðnina til athugunar. Tal-
ið er að 5.000 fiskimenn hafi misst
atvinnuna.
Leopoldo Calvo Sotelo við-
skiptaráðherra sagði í dag að
fiskimennirnir fengju tveggja
mánaða atvinnuleysisbætur.
Olían komin út
um allan sjó?
Forstjóri markaðs-
mála SAS í heimsókn
Næstkomandi mánudag, 24. maí,
hefjast ferðir SAS hingað til
lands á þessu sumri og verða þær
þrjár í viku frá Kaupmannahöfn,
Ford neitar
Höfðaborg, 17. maí. Reuter.
DR. Hilgaard Muller, utanríkis-
ráðherra Suður-Afríku, sagði á
þingi í dag, að fundur milli
Gerald Fords Bandaríkjaforseta,
John Vorsters, forsætisráðherra
Suður-Afríku, og Ian Smiths,
forsætisráðherra Rhódesiu, væri I
athugun.
í Washington sagði talsmaður
Hvíta hússins, að Ford forseti
hefði ekki tekið slíkan fund til
alvarlegrar athugunar.
— Brezki flotinn
Framhald af bls. 40
inn að halda áleiðis á Austfjarða-
mið með morgninum og að veiði-
svæðið fyrir austan yrði stækkað
lítið eitt frá því sem var. Sam-
kvæmt því sem Tom Nielsen, for-
svarsmaður samtaka togaraskip-
stjóra, sagði í Hull í gær, eru
þessir tilflutningar á veiðisvæð-
um aðeins til að undirstrika skoð-
anir togaraskipstjóra, sem þeir
hafa haldið fram síðustu tvo mán-
uði, að veiðisvæðin við ísland eigi
að vera tvö — eitt stöðugt fyrir
Austfjörðum en hitt fylgi fiskin
um hvar sem hann er að finna í
hvert skipti. Flotamálaráðuneytið
hefur hins vegar ekki viljað fall-
ast á þetta og segist ekki geta gætt
tveggja veiðisvæða í einu, en skip-
stjórarnir hafa þá bent á það á
móti, að tvö veiðisvæði mundu
einnig dreifa kröftum varðskip-
anna á sama hátt og verndarskipa
veiðiflotans.
en halda allar áfram til
Narssarssuaq á Grænlandi. I
tilefni af auknum umsvifum SAS
hér á landi hafa nokkrir af for-
ystumönnum SAS komið hingað í
heimsókn að undanförnu og þann
19. maí lýkur þessum heimsókn-
um með því að þeir koma hingað
Morgen K. Rasmussen, forstjóri
markaðsmála SAS, og Jörgen
Eilersen, framkvæmdastjóri
skipulagsdeildar markaðsmála
SAS. Báðir hafa þeir starfað víða
um heim á vegum SAS þar sem
þeir hafa starfað að markaðsmál-
um, skipulagningu og starfs-
mannahaldi.
— Meiri afli
Framhald af bls. 40
ins, Sigurjón Öskarsson, verður
aflakóngur i þeirri verstöð.
Þorlákshöfn: Aflinn þar frá
áramótum til miðs mai var 12.974
lestir í 1555 róðrum eða 8.3 tonn
að meðaltali í róðri. Þetta er
nokkuð lakara en í fyrra, en þá
bárust 13.864 tonn á Iand á sama
tima í 1625 róðrum og meðalafl-
inn í róðri þá var 8.5 tonn. Afla-
hæsti báturinn i Þorlákshöfn nú
er Friðrik Sigurðsson með 829
tonn.
Grindavik: Þar varð heildarafl-
inn frá áramótum til 15. þ.m.
heldur skárri en í fyrra eða 19.171
tonn á móti 18.236 tonnum í fyrra.
Aflahæstur Grindavíkurbáta er
Hafberg með 636 tonn.
Sandgerði: Þar er aflinn á vetr-
arvertíðinn 912 lestum meiri en í
fyrra, ef miðað er við 15. maí, að
sögn Jóns segir þetta þó ekki alla
sögn Jóns Júlíussonar vigtar-
manns og fréttaritara Mbl. á
staðnum 8389 lestir á móti 7477
lestum. Að sögn Jóns segir þetta
þó ekki alla söguna, þvi sjóferð-
irnar eru 1579 á móti 1265 eða 314
fleiri en i fyrra. Meðalaflinn í
róðri er nú 5,3 tonn en var í fyrra
5,9 tonn. Aflahæsti báturinn var
Bergþór með 790 lestir og næstur
var Jón Oddur með 556 lestir. Á
trollbátunum var Jón Gunnlaugs
hæstur með 514 lestir en Reynir
var með 500 lestir.
— Vilja verja
Framhald af bls. 40
verjendur og fá að sitja allar
vitnaleiðslur, en þvi hafnaði
setudómarinn. Hafa Kristján
og Haukur nú áfrýjað þeim
úrskurði til Hæstaréttar og er
ákvörðunar hans að vænta á
næstu dögum. í bréfi til setu-
dómarans mótmæla þeir Krist-
ján og Haukur „harðlega þeim
fyrirtektum, sem fram hafa
farið i málinu" án þeirra vitn-
eskju.
— Tvísýnt
Framhald af bls. 40
höfðu þrír þingmenn tekið til
máls, Stefán Jónsson, Jón Ár-
mann Héðinsson og Ragnar
Arnalds sem þá varenn að tala.
Að lokinni umræðu átti að senda
það til menntamálanefndar og í
umræðunum hafði þá þegar
fengizt fram, að nefndin skyldi
kalla til sérfróða menn til ráðu-
neytis, og verður að teljast ljóst
að slík álitsgerð fæst ekki fyrr en
i dag í fyrsta lagi. Á sama tíma er
stefnt að því að ljúka þingstörfum
i dag, en óvíst er hvort það tekst.
—30% minni
Framhald af bls. 40
aflinn hjá honum var t.d. ein-
göngu góður þorskur.
„Þetta er búið að vera ein-
dæma stormasöm vertið, ein sú
versta sem ég man eftir í þeim
efnum," sagði Sigurður. Hann
kvaðst sjálfur ekki finna svo
mikið fyrir því á nýju Skarðs
víkinni, enda 348 tonn að stærð
og toppbátur í alla staði. Aftur
á móti yrðu minni bátarnir illi-
lega fyrir barðinu á ógæftun-
um. Þá sagði Sigurður að það
væri gífurlega mikilvægt að
vera með góða og samhenta
skipshöfn og sagðist hann al-
deilis ekki þurfa að kvarta í
þeim efnum.
Þegar -hann var að lokum
spurður að því hvað tæki við
sagði hann að næst lægi leiðin í
Norðursjó, að kroppa upp það
litilræði af sild, sem þar má
veiða. „í haust verða það svo
sildveiðarnar hér heima og þar
er kvótinn enn minni og maður
getur jafnvel náð honum í
tveimur köstum."
— Námsmenn
Framhald af bls. 40
breytingartillögum, sem hún
flytur við frumvarpið ásamt
tveimur öðrum þingmönnum.
Varaforseti deildarinnar,
Ingvar Gíslason, tilkynnti
fundarhlé og í þann mund hóf
umræddur pallgestur reiði-
lestur sinn.
Þingverðir reyndu að
komast að ræðumanni en var
meinað vegarins af háskóla-
stúdentum eins og fyrr segir.
„Já, það er óhætt að segja, að
stúdentarnir lögðu á okkur
hendur," sagði Jakob Jónsson,
þingvörður, í samtali við
Morgunblaðið. „Við hugðumst
fara inn á pallinn ásamt
tveimur borgaralega klæddum
lögregluþjónum til að fjar-
lægja piltinn. Stúdentarnir
hópuðust þá í kringum piltinn
og tveir menn héngu t.d. i öðr-
um lögreglumanninum, þann-
ig að hann komst ekki áfram.
Ég hélt hins vegar áfram í átt
að honum en var þá hindraður.
Við vorum það fáir að við sáum
að við myndum ekki hafa við
þessu ofurefli, en hefðum við
hins vegar viljað beita okkur
af hörku er ekki að vita nema
komið hefði til handalögmála.
Pirturinn fékk hins vegar að
Ijúka máli sínu og þessu lauk
þannig að hópurinn yfirgaf
pallana án þess að til frekari
óspekta kæmi.“
— Kappreiðar
Framhald af bls. 2
64,7 sek., knapi Sigurbjörn
Bárðarson. Annar varð Þjálfi
Sveins K. Sveinssonar á 65,5 sek.,
knapi Guðrún Fjelsted, og þriðji
Rosi Baldurs Oddssonar á 66,6
sek., en hann var ennfremur
knapi.
Loks var keppt í 1500 metra
brokki, og varð þar fyrstur Faxi
Eyjólfs ísólfssonar á 3,19,6 mín.
Athygli vekur að sama fjöl-
skyldan á flesta verðlauna-
hestana. Þau Hörður og Þórdis
eru hjón og Hörður og Helgi eru
synir Harðar G. Albertssonar.
— Friðrik
Framhald af bls. 2
teflir við Browne og hefur
svart.
Eftir þrjár fyrstu umferðirn-
ar eru þeir Friðrik og Karpov
efstir og jafnir með 2 vinninga,
Timman hefur l'A vinning og
Browne l/í vinning. Friðrik
tefldi við Karpov heimsmeist-
ara á laugardaginn og var jafn-
tefli samið eftir tæpa 20 leiki. I
Reutersfrétt segir að Friðrik
hafi sýnt „einarða mótspyrnu"
gegn heimsmeistaranum og náð
jöfnu. 1 3. umferð tefldi Friðrik
við Browne, og var stór-
meistarajafntefli samið eftir
aðeins 13 leiki. „Þetta voru
meinleysislegar skákir og þær
buðu ekki upp á nein umtals-
verð sóknarfæri," sagði Friðrik
i samtali við Mbl. í gær.
1 2. umferðinni vann Timman
Browne snaggaralega og f 3.
umferðinni gerði Timman jafn-
tefli við Karpov i 32 leikjum.
Timman hafði betur framan af
en Karpov tókst að jafna taflið
með nokkrum góðum leikjum.
Biðskák Karpovs og Browne úr
1. umferð lauk með sigri Kar-
povs i 74. leik. Browne lenti í
óskaplegu tímahraki, varð að
leika 13 leiki á rúmri mínútu og
þegar darraðardansinum lauk
stóð hann uppi með gjörtapað
tafl og gaf skákina.