Morgunblaðið - 23.06.1976, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JUNl 1976
5
Börn skráð á biðlista
dagvistunarstofnana
frá fæðingu
Yfir helmingur undir 3ja ára
t SKVRSLU innritunardeildar,
sem Barnavinafélagið Sumargjöf
gaf út á sumardaginn fvrsta, kem-
ur m.a. fram að á biðlistum sl.
áramót um dagvistunarrými í
Reykjavík voru 357 börn og hefur
fjölgað um 61 frá árinu á undan.
Þar kemur jafnframt fram, að af
þessum 357 börnum eru 260 fædd
1974 og 1975 og þvl ekki orðin
tveggja ára gömul. 68 eru fædd
1973 eða þriggja ára gömul. Hjá
leikskólunum voru um áramót á
skráðum biðlista 1043 börn. Er I
skýrslunni bent á hinn mikla
fjölda ungra barna á biðlista, en
það eru 566 börn undir 3 ára aldri
eða 54,27% af heildarfjölda. Hér
eru börn fyrst tekin á leikskóla
tveggja ára gömul, sem er yngra
en i nágrannalöndum okkar, t.d. á
Norðurlöndum og I Þýzkalandi,
þar sem þau eru ekki tekin fyrr
en 3ja ára í leikskóla. Yfir helm-
ingur barnanna á biðlista leik-
skóla er þvf undir þeim aldri, sem
tekinn er á heimili I nágranna-
löndum okkar, og stór hluti of
ungur samkvæmt okkar reglum.
Fer það mjög vaxandi að fólk láti
skrá börn sfn til á dagvistunar-
heimili skömmu eftir fæðingu
eða á fyrsta og öðru ári.
Fækkun vegna
nýrrar reglugerðar
Sumargjöf hafði til ráðstöfunar
814 rými á dagheimilum
um sl. áramót. Bættust við 2
heimili, Múlaborg með 58 og
Hlíðarendi með 26 og Völvuborg
bætti við 21 barni. En þá kom
til framkvæmda senni hluti
breytingar, þ.e. áframhald-
andi fækkun á heimilunúm vegna
nýrrar reglugerðar, sem sett var.
Fjöldi rýma eftir þá fækkun er
779, fækkað hefur á dagheimilun-
um samtals um 71 barn. Leikskól-
unum var eftir sömu reglugerð
gert að fækka börnum um 21, úr
1.457 á árinu 1975 i 1.434 eftir
breytinguna. Fækkað var þvi alls
um 94 börn. Var fækkunin á
barnaheimilum látin ganga í gildi
á hálfu öðru ári, en samskonar
aðlögunartimi I Svíþjóð var nær
áratugur. Er þar ein skýringin á
auknum biðlistum. Heildaraukn-
ing rýma í dagheimilum varð á
árinu 1975—6 70 rými, en á því
ári varð fækkunin 35 rými, fækk-
að um 3 börn í Bakkaborg, 2 í
Efrihlíð, 7 börn i Hagaborg, 4
börn í Hamraborg, 10 börn i Lauf-
ásborg, 3 börn í Laugaborg, 1 í
Selásborg, 2 börn í Steinahlíð, 3
börn í Sunnuborg.
1 skýrslunni er að finna yfirlit
yfir meðalbiðtíma á dagheitnilum,
Framhald á bls. 27
Þjóðhagsstofnun:
Breyta verður reglum
um útfhitningsuppbætur
Ferðanefnd Varðar — Unnið að undirbúningi ferðarinnar.
Sumarferð Varðar
á sunnudaginn
Hin árlega sumarferð Lands-
málafélagsins Varðar verður að
þessu sinni farin um Þingvelli,
Þjórsárdal, Sigöldu og
Landsveit sunnudaginn 27. júní
n.k. Varðarferðirnar hafa notið
mikilla vinsælda á undanförn-
um árum og eru nú orðnar fast-
ur liður hjá fjölda fólks á
hverju sumri og hafa þátttak-
endur skipt hundruðum. Ferð-
irnar hafa enda verið vel skipu-
lagðar og jafnan hefur verið
lögð áherzla á að fá beztu leið-
sögumenn sem völ er á hverju
sinni. Aðalleiðsögumaður i
ferðinni á sunnudaginn verður
hinn kunni ferðagarpur Einar
Guðjohnsen. Verður komið víða
við og staðir skoðaðir sem
þekktir eru bæði fyrir náttúru-
fegurð og sögufrægð.
Ferðin er öllum opin og er
raunar ástæða til að hvetja fólk
til að fjölmenna þar sem ferðin
býður upp á mikla yfirsýn á
einum degi og auk þess sem
hún hefur það fram yfir sam-
svarandi ferð á einkabílum að
menn geta ferðazt áhyggjulaust
og fyrirhafnarlaust í glöðum
hópi.
Verð farmiða er mjög i hóf
stillt eins og ávallt áður, en
fyrir fullorðna kostar ferðin
2.500,- en fyrir börn 1.500,- og
er innifalið i fargjaldinu hádeg-
is- og kvöldverður.
Lagt verður af stað frá Sjálf-
stæðishúsinu, Bolholti 7, klukk-
an átta árdegis. Miðasala fer
fram I Sjálfstæðishúsinu alla
daga til klukkan 21:00.
Til að auðvelda undirbúning
óskast þátttaka tilkynnt sem
fyrst í síma 82900.
ef komast á hjá greiðsluhalla hjá ríkissjóði
Gott vor á Norðausturlandi
t nýútkominni skýrslu Þjóðhags-
stofnunar um ástand og horfur 1
efnahagsmálum segir, að fram-
vinda rfkisf jármála á fyrstu mán-
uðum ársins bendi til þess, að sá
Tveir nýir hæsta-
réttarlögmenn
DÓMSMALARÁÐUNEYTIÐ hef-
ur veitt tveimur héraðsdómslög-
mönnum leyfi til málflutnings
fyrir Hæstarétti, þeim Helga V.
Jónssyni og Grétari Haraldssyni.
bati geti náðst á þessu ári f fjár-
málum ríkisins, sem að var stefnt
með fjárlögunum. Hins vegar seg-
ir Þjóðhagsstofnun, að verði regl-
um um greiðslu útflutningsupp-
bóta á landbúnaðarafurðir ekki
breytt, stefni í greiðsluhalla hjá
rfkissjóði. 1 greinargerð fjárlaga-
frv. og í fjárlögum var reiknað
með breytingum á þessum regl-
um, sem draga áttu úr greiðslum
um allt að 900 milljónir króna.
I skýrslu Þjóðhagsstofnunar
kemur fram, að á fyrstu fjórum
mánuðum þessa árs námu inn-
heimtar tekjur ríkissjóðs 17,3
milljörðum króna en útgjöld 20,8
milljörðum og voru því um 3,5
milljarðar umfram tekjur. Lán-
tökur umfram veitt lán og greidd-
ar afborganir námu 1.2 milljörð-
um króna og var því 2,3 milljarða
greiðsluhalli hjá ríkissjóði fyrsta
þriðjung ársins samanborið við
2,7 milljarða greiðsluhalla á sama
tfma í fyrra. Fyrri hluta árs eru
útgjöld jafnan umfram tekjur. Þá
segir í skýrslunni, að ástæða sé til
að ætla að lyktir landhelgisdeil-
unnar valdi þvi, að útgjöld til
Landhelgisgæzlunnar og tengdra
viðfangsefna verði ekki eins mikil
og talið var og mun það hafa
jákvæð áhrif á afkomu ríkissjóðs.
Skinnastað 12. júní.
VORVEÐRÁTTA hefur verið góð
og áfallalaus f öllum sveitum
Öxnafjarðar. Nokkrar frostnætur
komu snemma f maf og nokkrum
sinnum gránaði jörð um nætur.
Sfðast varð grátt f rót 21. maf.
Gróðri'hefur farið vel fram;
skógur er nú skrýddur, lyngmóar
algrænir og tún fyrir nokkru.
Flflar og sóleyjar eru farnar að
skarta undir húsveggjum.
Annasamt var um sauðburð að
venju, en ær bera hér allar i hús-
um. Yfirleitt gekk sauðburður vel
og láta bændur heldur vel yfir
honum. A.m.k. 70—80% áa eru
tvílembd. Sums staðar bar þó á
smitandi Iambaláti og hjá einum
bónda í Öxarfirði létu u.þ.b. 60 ær
lömbum af þeim sökum. Óviða
bar þó á þessu.
Dálitið svellakal er sums staðar
i túnum. Bændur í Skógum á
Austursandi hafa að mestu haft
frið fyrir flóðum og vatnagangi
siðan um sumarmál.
Sr. Sigurður.
Ahugi og alvara
LEIKFÉLAG ÓLAFSFJARÐ-
AR 1 IÐNÓ: □ TOBACCO
ROAD. □ Sjónleikur f þremur
þáttum eftir Jack Kirkland □
Saminn eftir skáldsögu Ersk-
ine Caldwell. □ Þýðandi: Jök-
ull Jakobsson. □ Leikstjóri og
leikmynd: Kristinn G. Jóhanns-
son.
Af hálfu Leikfélags Reykja-
víkur mun sýning Leikfélags
Ólafsfjarðar á Tobacco Road
vera hugsuð sem þáttur í fyrir-
hugaðri Leikviku Iandsbyggð-
arinnar. Ætlunin var að hafa
nýja sýningu á hverju kvöldi í
vikutíma svo að fólk gæti
kynnst leikstarfsemi úti á
landi. Að þessu sinni er Leikfé-
lag Ólafsfjarðar eitt mætt til
leiks.
I leikskrá er yfirlit yfir verk-
efni Leikfélags Ólafsfjarðar frá
1961—1976. Ljóst er að Ólafs-
firðingar hafa óhræddir glimt
við vandasöm verkefni og svo
er enn. Tobacco Road muna
reykvískir leikhúsgestir frá
sýningu Leikfélagsins, einkum
er minnisstæður leikur Sigrfð-
ar Hagalin í hlutverki ödu
Lester. Samanburður milli
Leikfélags Reykjavíkur og
Leikfélags Ólafsfjarðar er að
vísu ekki hagstæður fyrir þá
siðarnefndu, en um Leikfélag
Ólafsfjarðar verður að segja að
eftir sýningu Tobacco Road að
dæma er það þróttmikið og hef-
ur góðum áhugaleikurum á að
skipa.
Leikgerð Jack Kirklands eft-
ir skáldsögu Erskine Caldwells
Tobacco Road er vel heppnuð
þótt ekki jafnist hún á við sög-
Lelkllst
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
una. Caldwell hefur í skáldsög-
um sínum lýst afburðavel frum-
stæðu fólki, einkum fátæku
bændafólki í Suðurríkjunum. 1
Tobacco Road kynnumst við
Lester fjölskyldunni sem á tím-
um kreppunnar miklu er að
flosna upp á hcörlegu koti.
Jeeter gamli Leáter er letingi
og syndaselur, en haldinn
þeirri þrákelkni að vilja ekki
yfirgefa jörðina þar sem hann
hefur alið aldur sinn. Börn
hans eru flest horfin til borgar-
innar i atvinnuleit, aðeins
Duddi og Ella Maja eru eftir.
Duddi er hálfgerður bjálfi og
auðnuleysingi eins og faðir
hans, Ella Maja er með skarð í
vör og gengur ekki út. Eigin-
konan Ada Lester er svipmesta
persónan á heimilinu. Einnig
koma við sögu tengdasonur
þeirra hjóna Lov Bensey sem er
kvæntur dótturinni Pearl sem
ekki vill þýðast mann sinn, far-
lama amma, predikarinn Systir
Bessie Rice sem klófestir
Dudda og fleira fólk.
Þrátt fyrir einfalda sviðs-
mynd er hér sýnt inn í furðu
litríkan heim. Þetta fólk er
kjarnyrt og lætur tilfinningar
sínar óspart i ljós. Guðbjörn
Arngrímsson leikur Dudda og
gerir það mjög skemmtilega
þótt ekki hafi hann útlit fyrir
að vera kvalinn af hungri eins
og hinir i fjölskyldunni. Elín
Haraldsdóttir er töluverð skap-
gerðarleikkona og leikur
hennar i heild er góður þótt ef
til vill hefði mátt leggja enn
ríkari áherslu á þjáningu Odu.
Jón Ólafsson er sannarlega
hæfileikamaður, enda fær hann
tækifæri til að sýna hvað í
honum býr í hlutverki Jeeter
Lester. Ólafsfirðingar geta ver-
ið stoltir af þessum leikara.
Eðlilega er leikur hans misjafn.
En einkum í fyrra hluta leiks-
ins og þegar dregur nær lokum
tekst honum að gera eftir-
minnilega persónu úr Jeeter
Lester. Lov Bensey Sigurðar
Björnssonar vinnur á eftir því
sem líður á leikinn. Hanna
Maronsdóttir er aðsópsmikil
Systir Bessie Rice. Aðrir leikar-
ar eru Hanna B. Axelsdóttir,
Guðrún Víglundsdóttir, Rík-
harður Sigurðsson, Guðlaug
Jónsdóttir, Grétar Magnússon
og Jóhann Freyr Pálsson.
Sigmundur Jónsson skrifar 1
leikskrá um hlut leikstjórans
Kristins G. Jóhannssonar í
þágu leiklistar i Ólafsfirði og
segir m.a.: „Ég vona að enginn
móðgist þó ég segi, að það sé
Kristni að þakka, að L.Ó. hefur
starfað með jafn miklum þrótti
og raun ber vitni.“
Með komu sinni til Reykja-
vikur sýndu Ólafsfirðingar að
hin gamla hefð áhugaleikhúss-
ins er enn í fullu gildi. Áhuga-
leikhús á heldur ekki að vera
bundið við áreynslulitil verk-
efni. Þegar unnið er af áhuga
og alvöru í senn lætur árangur-
inn ekki á sér standa.