Morgunblaðið - 23.06.1976, Page 13

Morgunblaðið - 23.06.1976, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JUNÍ 1976 13 Að loknum kosningum á Ítalíu: Stjörnarkreppa, nýjar kosningar eða leynisamn- ingur kristilegra demökrata og kommúnista? Amintore Fanfani, formaSur Kristilega demókrataf lokksins. Róm — 22. júní — Reuter LJÓST er, að þrátt fyrir verulega fylgisaukningu kommunista á Ítalíu, hefur kristilegum demó- krötum tekizt að hrinda alvarleg- ustu atlögu hinna fyrrnefndu allt frá strlðslokum. Úrslit kosning- anna hafa þó ekki orðið til þess að skýra Knurnar í stjórnmálum landsins, heldur er búizt við langri og erfiðri stjórnarkreppu í kjölfar þeirra. Telja sumir stjórnmálaskýr- endur jafnvel, að ekki takist að mynda starfhæfa stjórn t samræmi við þau úrslit, sem nú liggja fyrir, heldur reynist nauðsynlegt að efna til nýrra kpsninga. Hvorki vinstri flokkarnir né mið- flokkarnir hafa fengið meirihluta á þingi, og bendir þvt ýmislegt til þess, að verði ekki efnt til nýrra kosninga á næstunni, sé einhvers konar samkomulag kommúnista og kristilegra demókrata eina hugsanlega lausnin, ef takast á að binda enda á óvissuástandið t ttölskum stjórnmálum. Það. sem hefur komið mest á óvart, er hinn ótvíræði stuðningur ítalskra kjósenda við kristilega demókrata, þrátt fyrir klofning innan flokksins og það, að ýmsir leiðtoga hans hafa verið bendlaðir við hneykslismál að undanförnu Þá var einnig búizt við að erfiðleikar í efna- hagsmálum landsins undir stjórn kristilegra demókrata hefðu veruleg áhrif á úrslit kosninganna Þótt kristilegir demókratar hafi haldið hlut sinum hefur allt þetta þó áreið- anlega haft sin áhrif á hina miklu fylgisaukningu kommúnista, sem hafa bætt við sig 49 þingsætum í fulltrúadeild þingsins og 23 i öld- ungadeildinni Kommúnistar höfðu þó gert sér vonir um enn meiri atkvæðaaukningu, þannig að þeir yrðu stærsti flokkur landsins Fylgisaukning kommúnista kemur bersýnilega frá öðrum vinstriflokk- um, þar á meðal Sósialistaflokknum, sem hefur tapað fjórum þingsætum i hvorri þingdeild. Flokkurinn fékk tæp 10% atkvæða, en i sveitar- stjórnarkosningunum I fyrra fékk hann 12%. Sósíalistaflokkurinn hef- ur ætlað sér mikið hlutverk að lokn- um kosningum, og þrátt fyrir það afhroð, sem þeir hafa nú beðið, er staðreynd, að kristilegir demókratar geta ekki myndað meirihlutastjórn án stuðnings sósialista Leiðtogar flokksins hafa lýst þvi yfir hvað eftir annað, að þeir muni ekki styðja stjórnarmyndun kristilegra demó- krata nema kommúnistar fái einnig aðild að stjórninni. Manchini, leið- togi sósialista, hefur reyndar ítrekað þessa afstöðu flokksins eftir að úrslit kosninganna voru kunn. Þegar úr- Enrico Berlinguer, formaSur Kommúnistaflokks italiu. slitin lágu fyrir í megindráttum sagði vararitari flokksins, Giovanni Mosca, af sér, og skoraði á aðra leiðtoga sósíalista að gera slíkt hið sama. Fámennu miðflokkarnir á ítalíu biðu ósigur í kosningunum og er talið að kristilegir demókratar eigi þessu að verulegu leyti velgengni sina að þakka. Linurnar hafa skýrzt verulega að þvi leyti, að italskir kjósendur hafa flykkst um stóru flokkana Meðal smáflokkanna, sem töpuðu verulegu fylgi, er flokkur sósialdemókrata, og sagði formaður hans, Giuseppe Saragat, af sér þeg- ar úrslit voru kunn, en Saragat er fyrrverandi forseti Ítalíu. Fyrir kosningarnar lýstu leiðtogar kristilegra demókrata þvi yfir, að ekki kæmi til greina, að flokkurinn myndaði samsteypustjórn með kommúnistum eða styddi stjórn, sem kommúnistar ættu aðild að Nú, þegar úrslit eru Ijós, hafa þeir enn itrekað þessa afstöðu, en þeir hafa ekki viljað tjá sig um hugsan- lega stjórnarmyndun að öðru leyti en því, að flokkurinn haldi fast við fyrri yfirlýsingar Því getur virzt svo sem hér standi hnifurinn i kúnni, en i Róm eru nú uppi getgátur um að kristilegir demókratar og kommúnistar kunni að gera með sér einhvers konar leynisamning, sem leiða mundi til myndunar meirihlutastjórnar sósial- ista og kristilegra demókrata, — þó þannig að kommúnistar hefðu viss áhrif á stefnu stjórnarinnar i gegn- um sósialista. Þannig yrðu kristilegir demókratar áfram við völd án þess að fara i stjórn með kommúnistum, sósíalist- ar þyrftu ekki að bregðast kommún- istum, og kommúnistar fengju aðild að stjórn landsins, þótt óbein yrði Danir f æra út í 200 míl ur 1. janúar Kaupmannahöfn 22. jtínl. Frá fréttaritara Mbl. Lars Olsen: ÖRUGGT má nú telja að Dan- mörk færi út fiskveiðimörk sfn f Norður-Atlantshafi f 200 mflur. „Þetta mun gerast innan nokk- urra mánaða," segir Jörgen Peder Hansen, Grænlandsmálaráðherra, og dregur ekki dul á að „nokkrir mánuðir" merki 1. janúar 1977. „Kanadamenn hafa ákveðið þessa dagsetningu," segir Hansen. „En enn hefur málið ekki verið endanlega afgreitt. Meðal annars þarf að fjalla um það innan Efna- hagsbandalagsins, þar sem Bret- land heldur uppi áköfum þrýst- ingi til að lausn finnist. Einnig Norðmenn, sem standa utan við Efnahagsbandalagið, hafa áætlanir um að færa út f 200 mflur.“ Þá leggur Jörgen Peder Hansen Grænlandsmálaráðherra áherzlu á að takmarkanir verði settar á rækjuveiðar i Norður- Atlantshafi. „Við munum m.a. hefja viðræður við Sovétrikin um takmörkun rækjuveiðanna," segir hann. Rækjuveiðarnar eru nánast einu veiðarnar sem unnt er að stunda enn þá undan Vestur- Grænlandi, og takmörkun þeirra yrði einnig liður í uppbyggingu rækjuveiða Grænlendinga sjálfra. Ársfundur Alþjóðahvalveiðinefndarinnar: Seinagangur tef- ur fundarstörfin SEINAGANGUR mikill er á árs- fundi Alþjóðahvalveiðinefndar- innar í London, að þvf er Þórður Asgeirsson, skrifstofustjóri f sjávarútvegsráðuneytinu sagði f samtali við Morgunblaðið f gær, en hann er einn af þremur full- trúum Islendinga á fundinum. Sagði Þórður að raunar væri allt á byrjunarstigi ennþá vegna þess seinagangs, m.a. vegna þess að enn hefði ekki borizt skýrsla vfs- indamanna sem framgangur fundarins byggist mjög á. Væru fslenzku fulltrúarnir jafnvel all- áhyggjufullir vegna þessa hæga- gangs á málum þar eð fundinum á að ljúka á föstudag, og ekki væri þvf mikill tfmi til stefnu. I AP—frétt frá London í gær sagði að- náttúruverndarmenn hefðu haldið mótmælafund fyrir utan fundarstað nefndarinnar í dag, þar sem haldið var á loft skutli með 12 feta löngum gervi- hval. Eru fundirnir haldnir f Waldorf—hótelinu og á skiltum mótmælenda stóð m.a.. “Hvalir eru drepnir á Waldorf í þessari viku“. Sir Peter Scott, einn af kunnustu náttúruverndarmönn- um heims, sagði f ávarpi á fundin- um í dag. “Við verðum að ítreka það, að hvalir eiga ekki fulltrúa f þessari nefnd". Hann sagði að þrátt fyrir betra ástand hval- stofnanna væri enn hætta á því að tegundin dæi út. Scott hvatti til þess að algjört bann yrði sett við hvalveiðum til að gefa stofnunum tóm til að rétta við. Fyrir fjórum árum lögðu Bandaríkjamenn til slíkt bann í nefndinni en tillög- unni var hafnað. Kúrdar berjast á ný í N-írak arar áskorunar í fslpn; Umfangsmiklir nauðungarflutningar eiga sér stað, segii' dr. Erlendur Haraldsson KURDÍSKIR uppreisnarmenn I Norður-trak haf byrjað að nýju skæruhernað í landinu til að knýja fram sjálfstjórn eftir 15 mán. hlé og hafa 90 frask- ir hermenn beðið bana f bar- dögunum, að þvf er Reuter- fréttastofan hefur eftir tals- manni Kúrdfska lýðræðis- flokksins f London. Hins vegar er haft eftir talsmanni sendi- ráðs traks f London að þessi staðhæfing Kúrda sé tilhæfu- laus með öllu. „Ekki einu eín- asta skoti hefur verið hleypt af f Kúrdistan frá þvf f marz 1975,“ sagði hann. Talsmaður Kúrda sagði hins vegar að bar- dagarnir hefðu hafizt snemma f maf er fbúar Haj Omran-héraðs hefðu allir sem einn gripið til vopna til þess að veita viðnám brottflutningum Kúrda til Suð- ur-traks. Þetta eru fyrstu átök- in f Kúrdistan frá þvf trans- keisari hætti stuðningi við Kúrda gegn þvf að fá tilslakan- ir frð Iraksstjórn f landamæra- deilum landanna tveggja. Dr. Erlendur Haraldsson lektor og talsmaður Kúrda á tslandi sagði í sámtali við Morg- unblaðið í gær, að hann hefði haft spurnir af skærum á þessu svæði, en ekki vitað til að slíkt mannfall hefði orðið. „En það hafa staðið yfir hreinir nauð- ungarflutningar mjög umfangs- miklir, á Kúrdum,“ sagði Er- lendur, „frá Norður-Irak, þar sem þeir hafa búið öldum, ef ekki þúsundum ára saman, suð- ur á sléttur Suður'traks, þar sem Kúrdar hafa aldrei búið.“ Erlendur sagði að þessir flutn- ingar væru liður í viðleitni Iraksstjórnar við að lama við- námsþrótt Kúrda með því að flytja stóran hluta þeirra til fjarlægra landshluta. Er styrj- öld Kúrda lauk var þeim heitið griðum, en Erlendur sagði að loforð hefðu öll verið svikin og yfir hundrað manns hefðu ver- ið líflátnir. Reyndar hefði tr- aksstjórn aldrei staðið við nein loforð gagnvart Kúrdum. „Hér er um að ræða tvímælalaus brot á reglugerðum Sameinuðu þjóðanna um meðferð þjóðar- brota, og varðar jafnvel við lög um þjóðarmorð," sagði hann. Þá minnti Erlendur á að Kúrda- nefndir tslands og Svíþjóðar hefðu 4. marz sent Islenzku rfk- isstjórninni áskorun um að reyna að veita málstað Kúrda aðstoð á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, en ekki virtist enn hafa verið tekin afstaða til þess- arar áskorunar i fslenzka utan- rikisráðuneytinu. Sagði Erlend- ur að um þessar mundir reyndu Kúrdar og stuðningssamtök þeirra viða um lönd mjög að koma málum Kúrda á framfæri við undirnefnd á vegum Sam- einuðu þjóðanna sem fjallar um meðferð þjóðarbrota. Getur Kanada ekki var- ið 200 mílurnar? AKVÖRÐUN Kanadamanna um að færa út fiskveiðilögsögu sfna úr 12 I 200 mílur hefur vakið deilur um það hvort þeir hafi getu til að framfvlgja og fylgja eftir framkvæmd út- færslunnar, að þvf er brezka blaðið The Times segir nýlega. Hafi floti Kanadamanna drabb- azt niður á undanförnum árum og margir efuðust um að hann hefði bolmagn til að hafa gott eftirlit með hinni vlðáttumiklu lögsögu. Allan MacEachen, utanrikis- ráðherra Kanada, tilkynnti um útfærsluna fyrr f júnimánuði, og mun hún taka gildi um árs- lok. Kanadamenn hafa lengi búið sig og aðra undir útfærsl- una og gert samninga við ýmsar þjóðir um veiðiheimildir. Hins vegar leikur vafi á þvi hvort Kanadamenn geta haldið uppi nægu eftirliti á þeim milljón fermílum sem falla undir hina nýju lögsögu. Segir Breta og Bandaríkjamenn stuðla að framsökn kommúnista Salisbury — 22. júni — Reuter. JOHN J. Wrathall, forseti Rhodesíu, sagði á þingi I dag, að Bretar og Bandarikjamenn styddu þjóðernis- sinnaða skæruliða i Rhcdesiu í þeirri trú, að kæmist meirihluti blökku- manna til valda I landinu á næst- unni, yrði með þvi móti komið i veg fyrir frekari áhríf kommúnista i suð- urhluta Afríku. Forsetinn lagði áherzlu á að þessi skilningur Breta oa Bandarikiamanna væri rangur. — þvert á móti mundi slik uppgjöf Rhodesiustjórnar, eins og hann tók til orða, leiða til sundrungar og innanlandsátaka, sem Rússar mundu ekki verða seinir að notfæra sér Hann ítrekaði, að stjórn hans hefði ekki i huga að láta fórna Rhodesíu i þvi skyni áð friða kommún- ista, — þvert á móti liti stjórnin svo á að forsenda þess að friður kæmist á I landinu væri að brjóta hryðjuverka menn á bak aftur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.