Morgunblaðið - 23.06.1976, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 23.06.1976, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 1976 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar Áskriftargjald 1000,00 í lausasölu 50 hf. Árvakur, Reykjavfk. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, simi 10100 Aðalstræti 6, simi 22480. kr. á mánuði innanlands. ,00 kr. eintakið. Ljóst er, að flokkur kristilegra demókrata á Italíu hefur haldið hlut sínum meðal kjósenda. I Kosningum þeim, sem fram fóru á sunnudag og mánudag, hlutu kristilegir demókratar svipað fylgi og í síðustu þingkosningum og nokkuð meira fylgi en í síð- ustu sveitarstjórnakosn- ingum. Ef tölurnar einar eru skoðaðar út af fyrir sig, verður útkomu kosning- anna á Ítalíu bezt lýst sem varnarsigri kristilegra demókrata. Þeir halda stöðu sinni sem stærsti flokkur á Ítalíu og kjósend- ur veita kommúnistum og sósíalistum ekki slíkt brautargengi, að vinstri stjórn á ítalíu geti komið til greina. En í raun og veru er hér ekki aðeins um varnarsigur kristilegra demókrata að ræða, heldur eru þeir hinir raunveru- legu sigurvegarar þessara kosninga á Ítalíu, sem sagt hefur verið, að séu hinar mikilvægustu er fram hafa farið frá stríðslokum. Eftir síðustu sveitar- stjórnakosningar, sem leiddu í ljós mjög verulega stefnu, sem ítalir hafa markað i utanríkismálum frá stríðslokum og m.a. byggist á aðild að Atlants- hafsbandalaginu, í þriðja lagi, að ítalski kommúnista- flokkurinn væri gersam- lega óháður sovézka komm- únistaflokknum og í fjgrða lagi, að útilokað væri að stjórna landinu án aðildar ítalska kommúnistaflokks- ins að ríkisstjórn beint eða óbeint. Jafnframt hefur verið haldið uppi mikilli herferð gegn flokki kristilegra demókrata, sem sagður hefur verið spilltur og úr- kynjaður undir forystu gamalla manna. Vafalaust er sitthvað til í þeim ásök- stærri flokkur kristilegum demókrötum, og að jafnvel mundi koma til myndunar vinstri stjórnar á Ítalíu að kosningum loknum. Það er í þessu samhengi, sem líta verður á úrslit ítölsku kosninganna sem sigur fyrir flokk kristilegra demókrata. ítalir, sem hafa átt við margvísleg vandamál að etja á undanförnum árum og hafa alls ekki náð því lífskjarastigi, sem þekkist í norðurhluta Evrópu, stóðu í þessum kosningum frammi fyrir því að taka ákvörðun um, hvort þeir ættu að veita kommúnista- flokknum aðild að ríkis- stjórn landsins og forystu í Kosningar á Ítalíu fylgisaukningu kommún- ista, hefur kommúnista- flokkurinn á Ítalíu hafið einhverja stórfelldustu áróðursherferð síðari tíma stjórnmálasögu í Evrópu til þess að sannfæra ítalska kjósendur um, í fyrsta lagi, að kommúnistaflokkurinn væri lýðræðissinnaður stjórnmálaflokkur, í öðru lagi, að flokkurinn mundi í engu hvika frá þeirri unum, sem bornar hafa verið fram á hendur þess- um höfuðflokki Itala frá stríðslokum. Allavega er ljóst, að flokkurinn hefur ekki fengið þá endurnýjun, sem hverjum stjórnmálaflokki er nauðsynleg. Þess vegna hafa allir spádómar um úr- slit þessara kosninga hneigzt að því, að kommún- istar yrðu jafnstór, ef ekki málefnum þjóðarinnar eða ekki og ekki verður annað sagt en að úrskurður þeirra sé ótvíræður. Þeir hafa hafnað kommúnískri forystu í landsmálum, þrátt fyrir öll vandamál og alla þá galla, sem auðveld- lega má sjá hjá flokki kristilegra demókrata. Þess vegna eru úrslit ítölsku kosninganna fyrst og fremst sigur heilbrigðr- ar skynsemi almennings í þessu suðlæga Evrópu- landi. Úrslitin eru jafn- framt áminning til stjórn- málamanna og fjölmiðla um, að þrátt fyrir allt það gjörningaveður, sem stundum er þyrlað upp á hinum pólitíska vettvangi, sér hinn almenni kjósandi furðuvel í gegnum þá blindhríð. Almenningur á Ítalíu hefur bersýnilega ekki látið blekkjast af fagurgala kommúnista. Úr- slitin sýna einnig, að styrk- ur lýðræðisins í Vestur- Evrópu er meiri en margur hefur viljað halda fram nú hin síðari ár, þegar menn hafa verið gripnir vonleysi um, að lýðræðisþjóðfélögin gætu staðizt stöðuga ásókn einræðisaflanna, sem hafa komið sér upp fimmtu her- deildum í öllum Vestur- Evrópulöndum, mismun- andi sterkum, og vinna leynt og ljóst, bæði utan frá og innan, að því að brjóta þessi þjóðfélög niður. Úrslit ítölsku kosning- anna eru mál, sem varðar ekki aðeins Itali, heldur allan hinn lýðræðissinnaða heim og lýðræðisinnar hvar í flokki, sem þeir standa, hljóta að fagna því, að ítalskir kjósendur hafa kveðið upp svo ótvíræðan úrskurð, sem raun ber vitni um. Milliríkja viðskipti og alþjöða- t stjörnmöl a b Það rfkir vissulega ekki ein- skær ánægja með árangur af fundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins f Kingston á Jamaica f.vrstu dag- ana í janúar sfðastliðnum. Hans Apel f jármálaráðherra Vestur-Þýskalands sagði eftir fundina, að nú hefði verið opnað- ur sjálfsafgreiðslumarkaður fyrir alþjóðleg lán. En margir fundar- manna voru mjög ánægðir með árangurinn og segja hann marka tfmamót. Miðað við grunnmúrað sam- komulag eins og Bretton Woods samningana 1944 er þetta raunar engin framtfðarskipan, sem um var samið. Það samkomulag stóðst ekki breyttar aðstæður og ný vægi og stærðarhlutföll f heimsviðskiptunum — auk þess var það ekki tryggt gegn óvænt- um efnahags hamförum. Hugm.vndir manna um gagn- gera umsköpun tóku Ifka mið af atburðunum sem skullu yfir 1973, þ.e. svokallaðri olfukreppu og sf- vaxandi verðbólgu. Og þessvegna gætti ekki óraunsærrar bjartsýni við mótun þeirra hugmynda sem nú eru smám saman að koma til framkvæmda. í janúar 1974 hafði áformunum um varanlegar endurbætur á gjaldeyrismálakerfi heimsins ver- ið skotið á frest, en menn settust á rökstóla og leystu til bráðabirgða úr þeim vandamálum, sem lágu þá fyrir til tafarlausrar úrlausn- ar. A fundinum á Jamaica voru ekki birtar neinar endanlegar hugmyndir eða tröllsleg áform. En samt eru flestir bankamenn og aðiljar fjármálaheimsins mjög ánægðir með þann árangur sem þar náðist. Og ánægjan ríkir helst með það, að nú sér fyrir endann á tímabili frumskógahernaðarins í alþjóðlegum fjármálaskiptum. Ný viðhorf Hinar nýju samþykktir og við- horf, sem gera má ráð fyrir að duga muni um nokkurt árabil eru í stuttu máli þessi: — Ef ekki hefði tekist samkomu- lag í Kingston — næstum sama um hvað — hefðu hin 128 lönd Alþjóðagjaideyrissjóðsins áfram þurft að búa við reglur sem fá þeirra virtu í raun. Það hefði skapað hættulegt sálfræðilegt andrúmsloft, þar sem hver og einn hefði ráðskast með gjald- eyrismál sín sjálfur. Og þar hefðu lög frumskógarins gilt áfram. — Nú hafa verið samþykkt nokk- ur höfuðatriði, t.d. viðurkennt fljótandi gengi gjaldmiðlanna. Og með þvi að samræma starfsreglur þjóðanna um þessi nýju viðhorf eru möguleikar á því að þjóðirnar séu ekki að pukrast með gengis- skráningu miðla sinna í þvi skyni að hagnast á annarra kostnað, eins og oft hefur verið hin siðustu ár. — Samtímis að viðurkennt er að fljótandi gengi er staðreynd sem búa verður við um hríð, alveg í mótsetningu við grundvallarhug- myndirnar i Bretton Woods sam- komulaginu, er það nær einróma skoðun meðlimaþjóðanna, að hið sameiginlega takmark sé stöðugra gengi gjaldmiðlanna og stefnt verði á því áfram. Vandamálið um hlutverk gulls í SAMANTEKT EFIR BRAGA KRISTJÓNSSON l.GREIN Siðvæðingin Straumhvörf í gjaldeyris- málum heimsins gjaldeyrisskiptunum er nú loks afgreitt og er ekki lengur ásteyt- ingarsteinn betra samstarfs í gjaldeyrismálum. En þetta vanda- mál var lengi til fyrirstöðu öllum raunhæfum framförum í þessu samstarfi. Með stórauknum möguleikum meðlimaþjóðanna til lántöku hjá sjóðnum og sanngjarnri skiptingu þessara dráttarréttinda milli olíu- landa, þróunarrikja og iðnríkja hafa skapast auknir möguleikar til lána fyrir þjóðir sem búa við tímabundinn hallarekstur og Alþjóóagjaldeyrissjóðurinn gegn- ir lykilhlutverki f þeirri mikils- verðu siðvæðingu, sem orðið hefur f gjaldeyrismálum heims- byggðarinnar. „þriðji" og „fjórði" heimurinn hafa fengið uppfylltar óskir sínar um aukin áhrif á ákvarðanatöku Alþjóðagjaldeyrisjóðsins. En Jamaica-samkomulagið leggur rikjunum jafnframt á herðar víðtækar skuldbindingar sem stefna að því að koma i veg fyrir og bregðast við vandamál- um, sem upp koma i gjaldeyris- málum heimsins. Og þar sem heldur slæm reynsla liggur fyrir um efndir samninga á þessu sviði, mun á næstunni allmjög reyna á raúnverulegan vilja þjóðanna til að fylgja hinni mörkuðu stefnu í gjaldeyris- og efnahagsmálum: nokkurnveginn í takt við um- hverfið. Það er t.a.m. mjög óheppilegt, ef meðlimaríkin áskilja sér rétt til að ráða sjálf vexti verðbólgu í viðkomandi löndum. Og nauðsynlegt er talið að almennt verði stefnt að greiðslujöfnuði í sem flestum löndum og pólitískar og efnahags- legar ráðstafanir gerðar í því skyni. Og þetta gildir ekki bara um þau lönd sem hafa halla á viðskiptajöfnuði sínum, heldur einnig hin, sem betur standa. Aðdragandinn Það er sannarlega mikið stór- mál að koma á breytingum á sam- komulagi meðlimaríkja Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins. Nær öll ríkin þurfa samhliða að gera breyting- ar á eigin löggjöf eða öðrum opin- berum ákvæðum. En þó er það oft svo, að raunveruleikinn hefur ekki tíma til að bíða eftir lyktum tímafrekra formsatriða. Því var á sínum tíma sett á stofn 20 manna starfsnefnd, sem skyldi undirbúa þessa endurskoð- un. Sú starfsnefnd var siðar leyst af hólmi af fjölmennri ráðherra- nefnd. Það var gert, þegar starf hinnar fyrri var nokkuð vel á veg komið og þörf var á valdameiri aðiljum til mótunar og ákvarðana- töku. Erfiðasta vafningsmálið var fljótandi gengi gjaldmiðlanna. Ýmsar þjóðir notuðu fljótandi gengi af ásettu ráði til að bæta stöðu útflutningsatvinnugreina sinna og létu verðbólguna ráðast, en höfuðáherslan var lögð á að tryggja fulla atvinnu. Þetta hafði verðbólgu- og atvinnuleysisauk- andi áhrif í för með sér i þeim viðskiptalöndum þessara landa sem á hinn bóginn reyndu að halda gengi gjaldmiðla sinna stöð- ugu. Því var það, að sumarið 1974 sendi Alþjóðagjaldeyrisjóðurinn meðlimaríkjunum tilmæli um fljótandi gengi, og hvernig haga skyldi. Þar voru ríkin hvött til að vinna gegn verulegu „rokki“ gjaldmiðla sinna. Mælt var með, að unnið yrði gegn þvi að miklar daglegar sveiflur yrðu á gengi gjaldmiðlanna og þannig m.a. unnið gegn talsverðri spákaup- mennsku sem borið hafði á; þann- ig að daggengi gjaldmiðils væri ekki fjarri jafnvægisgenginu. En það er einskonar raungengi byggt á öllum staðreyndaþáttum efna- hagslífs viðkomandi lands; og eru menn þó ekki á eitt sáttir, hvernig eigi að reikna það út — eða hvort stefna beri að því. Framhald á bls. 21

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.