Morgunblaðið - 23.06.1976, Síða 24

Morgunblaðið - 23.06.1976, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JUNI 1976 Strákurinn og einbúinn Eftir E.V. LUCAS — Þar sem ég má engan tíma missa, vildi ég gjarna að við byrjuðum undir eins, sagði gamli maðurinn. Ég vona að það sé ekki óþægilegt fyrir þig? — Nei, alls ekki, sagði Kjammi. En nú skalt þú kalla mig Kjamma, og ég kalla þig Geitarskegg, vegna þess hvað þú hef- ir mikið skegg. Strákar kalla alltaf hverj- ir aðra einhverjum skrítnum nöfnum. ()g þannig byrjaði námstími einsetu- mannsins. — Við skulum fara í fótbolta, sagði Kjammi, eftir að hann hafði hugsað sig dálítið um. Fótbolti, sagði hann, er besta skemmtun í heiminum. Það er ieikur. Þú ættir að sjá hann Hróa. Æ, auðvitað veistu ekki hver Hrói er. ()g mikið skelf- ing hefurðu misst vió að sjá hann ekki. Hrói er alskæðasti miðframherjinn, sem til er. — Já, ójá, sagði gamli maðurinn vand- ræðalega, þvi hann skildi ekkert hvað Kjammi var að fara. COSPER-----------------------\ Ég er búinn að setja upp neyðarflaggið — Ég vona að þú sért þá ánægð? Kjammi hélt áfram eins og sá sem hefir vald þekkingarinnar. — Meðan ég er að troða mosa í þennan sokk, til þess að gera bolta, en þú getur tálgað spýtur til þess að hafa í markstengur. Þú hefir líklega á þér hníf? Einsetumaðurinn viðurkenndi að það hefði hann ekki. Hvað segirðu, hrópaði Kjammi. Þú get- ur aldrei orðið almennilegur strákur, nema því aðeins að þú hafir hníf. Lof mér gá í vasa þina. Einsetumaðurinn hafði aðeins einn vasa og allt sem í honum var, var vasa- klútur. Þetta getur ekki gengið, sagði Kjammi. Líttu bara á minn hníf, bætti hann við og tók upp úr vasa sínum ægilega, tvíblaða sveðju, sem hafði þar að auki til sins ágætis ýmis merkileg verkfæri, svo sem tappatogara og fleira. Einnig var í vasa hans væn snærishönk, úr fjöður, 20—30 högl, buxnatala, blýantur, eldspýtustokk- ur, blístra, fimmeyringur með gati og umslag með frímerkjum, öllum klesstum saman af sjávarseltunni. — Eru allir þessir hlutir bráðnauðsyn- legir, spurði einbúinn hikandi. — Nei, sagði Kjammi, nei, ekki allir. Hnífurinn og snærið eru það auðvitað og svo er fremur gaman að safna frímerkj- um, en þess þarf maður ekki nema mann langi til þess. Líka getur maður safnað fiðrildum og eggjaskurn. Hitt er allt nyt- samlegt. Og þeim mun meira sem maður hefir af svona hlutum, því betra fyrir mann. — Ég á snæri, sagði einsetumaðurinn, en engan hníf. En með þínu leyfi ætla ég að bera á mér borðhnífinn minn í fram- tíðinni. Það er að vísu ómerkilegt vopn, það veit ég, en ég get ekki séð að mikil þörf sé á þessari eyju fyrir tappatogara. — Ætli borðhnífurinn geti ekki dugað, sagði Kjammi nokkuð efablöndnum rómi. En eitthvað meira verðurðu að hafa, annars getum við ekki farið í nein kaup. Drengir eru alltaf að skipta hinu og þessu, eins og þú veist. — Fara í kaup? hvað er það, sagði öldungurinn. — Já, ef þig langar í etthvað sem annar strákur á, þá læturðu hann hafa eitthvað fyrir það sem þú átt. Til dæmis, ef þú ættir hvíta rottu (hér fór hrollur um - einsetumanninn) og ég léti þig hafa Hinn kunni bandaríski prest- ur Beecher var eitt sinn á fundi þar sem guðleysinginn Inger- soll hélt aðalræðuna. Ingersoll hélt fram guðsafneitun af hinni mestu mælsku, en enginn varð til andsvara. Þá spurði fundarstjórinn Beecher hvort hann ætlaði ekki að verja trú sfna, því að henni hefði verið höggvið. — Önei, svaraði Beeeher, ég tók lítið eftir því sem ræðu- maður sagði. Ég var að hugsa um það, sem ég sá á leiðinni hingað. — Nú, hvað var það?, spurði Ingersoll. — Þegar ég var á leið hingað gekk ég eftir götu, sem ekki var steinlögð og því ákaflega forug, enda rigning. Þá sá ég aumingja mann, sem studdist við tvær hækjur. Hann ætlaði að fara þvert yfir götuna en festist I forinni og datt. Þegar hann ætlaði að staulast á fætur aftur, kom þar að maður og tók báðar hækjurnar frá honum og fór burtu með þær — en maðurinn lá ósjálfbjarga eftir I forinni. — Það var illa get, sagði Ingersoll. — Sama gerið þér, sagði Beecher. Þér takið daglega frá mönnum, sem haltra I trúnni, trúarstafinn, sem þeir ætluðu að styðja sig við, en liggja nú eftir I for synda og örvæntingar. Engir aðrir en meistarar geta reist mikla höll, en að kveikja í þeirri höll og brenna hana til ösku þarf ekki að vanda meira en svo, að hægt er að fá til þess óbótamann eða aumasta vesalmenni. X Rithöfundurinn les fyrir: — Rut, elskan mfn, ég elska þig, viltu verða konan mfn. Einkaritarinn (stúlka): — Er þetta skáldskapur eða alvara? X Það er öl bezt drukkið, að óskert hafi geð sitt gumar. Hóskadraumar Framhaldssaga eftir Mariu Lang Jóhanna Kristjónsdóttir þýddi 8 Persónurnar f söxunni: Andreas llalimann BjörK — kona hans Kári Jón Ylva hörn hans Cirilia — tengdadóttir Andreas Haiimanns Greiíor Isander — læknir fjölskyldunnar og náinn vinur Malin Skog — hráóabirgóaeinkaritari Andreas Hallmanns Lars Petrus Turesson — ókunnugur traust- vekjandi maóur ásami meóí'hrister Wíjk hergið er nákvæmlega eins og það var í tfð föður mfns. Bækur þöktu veggi frá gólfi og til lofts. Skuggamyndir trjánna voru eins og hljóðlátir skuggar f kvöldhúminu. Það var hiyiegt þarna inni og Malin hugsaði ósjálfrátt með sér að allir litir í þessu herbergi væru í svo full- komnu samræmi hver við annan að það væri nánast sérstakt og áhrifin af þessu samnemi komu fram f þvf að hún fann hugarró gagntaka sig. Evrir innan bóka- herbergið sá hún svo inn f svefn- herbergi Andreas. Malin hvarflaði augum á flygil- inn sem stóð á miðju gólfi f þessu gevsilega stóra herbergi og hún spurði fcimnislega: — Leikíð þér á hljóðfæri, dr. Ilallmann? — Já, við gerum það öll f fjöl- skyldunni. Engir snillingar þó. En Kári hefur numið tónlist í Uppsulum. Ég bf’st við að Jón sé sá sem mesta hæfileikana hefur frá náttúrunnar hendi. Hann hafði gefið henni bend- ingu um að fá sér sæti á einum af stóru sófunum, en sjálfur tók hann aftur að ganga fram og aflur um gólfið. Hann hrukkaði auga- hrýrnar og var erfitt að segja til um hvort það var af óróa eða af hcilahrotum. Malin sat þögul og uppskar laun fyrir þögn sfna von bráðar. — Jón er einkasonur minn af fyrra hjónahandi. Móðir hans lézt þegar drengurinn fæddist og Jón er einnig ... mjög heilsuveill. Ilann hefur of stórt hjarta ... ég veit ekki hvort vður er kunnugt um hvað slfkt hefur f för með sér. Beizkjan f rómnum var svo mik- il að henni hnvkkti við. Svo hristi hún höfuðið. — Ne.. .ei ciginlega ekki. — Hann var hraustur og frískur þangað til hann var þriggja ára gamall. Þá fékk hann skarlatsótt — sem f flestum tilfellum er ósköp meinlftill barnasjúkdómur eins og þér sjálfsagt vitið. En ég komst á snoðir um annað þegar Jón átti í hlut. Það leiddi til að meðfæddur hjartagalli hans vernsaði og leiddi smám saman til að hjartað stækkaði og stækk- aði svo að það fvllir nú út mest allan brjóstkassann. Það slær óreglulega og ef hann re.vnir hið minnsta á sig fa-r hann öndunar- erfiðleika. Hann hefur einnig óeðlilega stóra lifur og fæturnir eru þrútnir ... ég get ekki nóg- samlega lýst hvað þetta er stór- hættulcgt. Með jöfnu millibili verður að leggja hann inn á sjúkrahús til að losa hann við vatn sem safnast fvrir í Ifkama hans. Og sem stcndur ... er hann mikið veikur og má ekki við neinu. Malin vissi ekki hvernig hún átti að láta hluttekningu sfna f Ijósi, en hann vírtist heldur ekki' búast við neinum undirtektum frá henni og sagði: — Auðvitað er ekki viðkunnar- legt að faðir játi að honum þvki vænna 'um eitt harna sinna en annað. En samt sem áður verð ég víst að horfast f augu við að þann- ig er mér innanhrjósts. Og það stafar ekki aðeins af þvf hvernig Jón er til heilsunnar. Það var hann sem stóð mér nær þegar hann var drengur ... — og skildi mig betur ... og ég hann. Auk þess hcfur hann verið mér ómet- anleg hjálparhella við ritstörf mfn ... En auðvitað þreytir þetta áhyggjuraus mitt vður. fröken Skog. — Alls ekki, sagði Malin alvar- lega. — En ég skil ekki. Hvernig getur hann verið yður til aðstoðar við ritstörf yðar? Andreas Ilallmann nam staðar og stóð eins og á báðum áttum á miðju gólfi nokkra stund, en kast- aði sér sfðan niður í djúpan hæg- indastól. — Hafið þér lesið bækurnar mfnar. fröken Skog? Spurningin var alveg hlutlaus og á honum var að heyra að það skipti hann engu máli í sjálfu sér hverju hún svaraði. — Maður les þær f skóla. Hún sagði þetta þurrlegar en ætlun liennar hafði veriö. — Væntanlega ekki allar? — Nei. Við lásum fvrstu bókina yðar. „Eiisabet" og síðan bóka- fiokkinn um Dfsu. „Dóttirin", „Eiginkonan" og „Móðirin“ og við lásum Ifka hókina sem gerðist f Vesterás ... hvað hét hún nú aftur ... Myrkrafurstinn .. . — Svo að þér vitið þá að þær eru margar sögulegar. Mér líöur alltaf bezt þegar égget fengizt við aö skrifa um fortíöina og fmvnd-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.