Morgunblaðið - 23.06.1976, Side 28
AI GI.YSINC,ASÍMINN ER:
22480
JflorgimbUtbiti
AL'GLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JSorjounblaliiti
MIÐVIKUDAGUR 23. JUNÍ 1976
Grindavík:
Rússneskt
hlustunardufl
við Krísuvík
Sams konar dufl fyrir ári á sama stað
Grindavík 22. júní
RÚSSNESKT hlustunar-
dufl fannst á floti í sjónum
skammt úti af Krísuvíkur-
bjargi í dag og var það vél-
báturinn Kári GK 146 sem
fann duflið og tóku skip-
verjar það um borð og
fluttu til lands. Skipstjéii á
Kára er Óskar Gíslason, en
þess má geta að það var
einmitt vélbáturinn Kári
sem fann sams konar dufl á
floti í sjónum á svipuðum
slóðum fyrir svo til ná-
kvæmlega ári eða þann 20.
júní 1975.
Duflið sem Kári kom meö
nú er nákvæmlega eins og
duflið sem skipverjar
fundu í fyrra, en þetta dufl
er mjög heillegt og yfir
hlustunartækjum þess er
sérstök hlíf. Duflið var
flutt til Keflavíkurflugvall-
ar í kvöld til frekari athug-
unar.
— Guðfinnur.
Þessi mynd var tekin af rússneska hlustunarduflinu eftir að búið var að koma þvf ð land f gær. Á því eru
þangdræsur, en þang vex skjótt á flestum hlutum f sjó. Ljósmvnd Mbl. Guðfinnur.
Þj ó ðhagss tofnun:
Geirfinnsmálið:
Rannsókn-
armönnum
fjölgað
ÓLAFUR Jóhannesson dóms-
málaráðherra átti f gærmorg-
un fund með þeim Þórði
Björnssyni rfkissaksóknara og
Halldóri Þorbjörnssyni yfir-
sakadómara í Reykjavfk um
Geirfinnsmálið. ólafur Jó-
hannesson sagði eftir fundinn,
að allt kapp yrði að leggja á að
leysa þetta mál og til stæði að
f jölga rannsóknarmönnum.
7% bati viðskiptakjara í ár
— eftir 25% rýrnun síðustu 2ja ára
ÞJÓÐHAGSSTOFNUN birti f gær
nvja skýrslu um ástand og horfur
í efnahagsmálum Islendinga. I
skýrslu þessari kemur fram, að
umtalsverð batamerki má nú sjá f
framvindu efnahagsmála. Á
fyrsta fjórðungi þessa árs voru
viðskiptakjör landsmanna gagn-
vart útlöndum um 3H% betri en
að meðaltali 1975 og þvf er spáð,
að viðskiptakjörin muni batna
um 7% á þessu ári eftir að hafa
rýrnað um nær 25% á síðustu
tveimur árum.
Verðhækkun á útfluttum sjáv-
arafurðum veldur mestu um
þessa þróun og þannig var út-
flutningsverðlag rúmlega 5%
hærra á fyrsta ársfjórðungi í ár
en á sama tíma í fyrra og nær 7%
hærra en meðaltal síðasta árs. Nú
er gert ráð fyrir, að útflutnings-
verðlag hækki að meðaltali í ár
um 13—14% i erlendri mynt en
um 28—29% í krónum talið. Hins
vegar var almennt verð á inn-
flutningi aðeins 4—5% hærra á
fyrsta ársfjórðungi 1976 en á
sama tíma í fyrra og hafði þá
hækkað um rúmlega 3% frá árs-
meðaltali 1975. Er nú talið líklegt,
að innflutningsverðlag hækki um
7% að meðaltali á þessu ári reikn-
Akranesbátar:
40 tonn úr færaróðri
FÆRASKAK hjá fjórum Akra-
nesbátum hefur gengið mjög vel
og er aflahæsti færabáturinn,
Haraldur. kominn með tæplega
300 tonn á einum mánuði. Bátarn-
ir sem stunda færaveiðarnar eru
Haraldur, sem er 200 tonn að
stærð, Skfrnir, sem er 260 tonn,
Reynir, sem er 70 tonn að stærð,
og Sæfari, sem er 150 tonn.
Haraldur Sturlaugsson fram-
kvæmdastjóri á Akranesi sagði í
samtali við Mbl. í gærkvöldi, að
bátarnir hefðu komizt upp í allt
að 40 tonn eftir tvo daga, „en það
er líka unnið grimrnt", sagði
hann, „þeir standa 15—20 tíma á
sólarhring. Mest er þetta ufsi,
sem þeir hafa fengið djúpt af Eld
ey, en þeir eru 12 á okkar bátum
með jafn margar handfærarúllur
og þeir nota gamla lagið, þ.e. ekki
rafmagnsrúllur. Þetta hefur
gengið ágætlega hjá bátunum og
t.d. kom Haraldur inn með 33
tonn á laugardag og síðan 35 tonn
á mánudag".
„Þetta verða ævin-
týralega skemmti-
leg málaferli”
Björn Löngumýrarbóndi kærir sýslu-
mann vegna „böðunarmálsins”
JÓN E. Ragnarsson hrl. hefur ’
sent Jóni lsberg sýslumanni á
Blönduósi kæruskeyti fyrir
hönd Björns Pálssonar bónda á
Ytri-Löngumýri f Húnavatns-
sýslu vegna böðunarmálsins
svonefnda, sem upp kom í vor.
1 skeytinu er krafizt rann-
sóknar á aðför sýslumanns og
valdböðun á Ytri-Löngumýri á
s.l. vori, sem fram hafi farið
þrátt fyrir þann dóm Hæsta-
réttar, að slík valdböðun væri
ólögmæt. Þess er krafizt af
hálfu Björns bónda, að sýslu-
maður verði látinn sæta viður-
lögum fyrir þetta meinta lög-
brot. Ennfremur eru gerðar
skaðabótakröfur bæði vegna
hinnar meintu ólögmætu vald-
böðunar svo og vegna þess að
valdböðunin hafi verið fram-
kvæmd með harkalegum hætti
þannig að hlotizt hafi af lamba-
lát.
í skeytinu segir:
Krafið er um opinbera rann-
sókn vegna meintrar aðfarar og
refsilagabrota vegna valdböð-
Framhald á bls. 27
Með 36 afbrotamál að baki en aldrei afplánað refsingu:
„Orðnir þreyttir á því að
vinna mál í ruslakörfuna”
- segir rannsóknarlögreglumaður í samtali við Mbl.
„VIÐ rannsóknarlögreglumenn
erum orðnir þreyttir á þvf að
vinna mál fyrir ruslakörfuna,“
sagði Magnús Magnússon rann-
sóknarlögreglumaður f rann-
sóknarlögreglunni f Reykjavfk
í samtali við Morgunblaðið f
gær. Tilefni samtalsins var
óánægja, sem er rfkjandi meðal
lögreglumanna með refsingar
síbrotamanna og framkvæmd á
dómum. „Það er sama fólkið,
sem við erum að eltast við aftur
og aftur, og það virðist ekki
þurfa að taka út neina refs-
ingu,“ sagði Magnús. „Eg veit
dæmi um tvo unga menn, sem
hafa hlotið 3 og 4 dóma á und-
anförnum 2—3 árum og þeir
eru allir skilorðsbundnir. Þess-
ir menn hafa aldrei farið f
fangelsi fyrir afbrot sfn, jafn-
vel þótt annar þeirra sé með
bókuð á sig 36 afbrotamál frá
1973 til sfðustu áramóta og
hinn hafi bókuð á sig 23 af-
brotamál frá 1974 til áramóta.
Þarna er gat á dómskerfinu,
sem hefur það f för með sér að
sfbrotamenn ganga lausir og
svfkja og stela frá almenningi,
sem sfðan kennir okkur lög-
reglumönnunum um allt sam-
an.“ Framhald á bls. 27
að i erlendri mynt en um 20% i
krónum.
Helztu atriði önnur, sem fram
koma i skýrslu Þjóðhagsstofnun-
ar eru m.a. þessi:
0 Viðskiptajöfnuður á þessu ári
verður óhagstæður um
12.4—13.4 milljarða eða um
5!ó % af þjóðarframleiðslu
samanborið við 11.5% 1975 og
11.3% 1974.
0 Vöruskiptahallinn á þessu ári
verður um helmingi minni en f
fyrra, nam þá um 23 milljörð-
um en nú væntanlega 12—13
milljörðum.
0 Gjaldeyrisstaðan versnaði um
2100 milljónir á fyrstu fjórum
mánuðum ársins en um 5200
milljónir á sama tíma í fyrra.
0 Talið er, að almennur vöruinn-
flutningur verði um 6—7%
minni í ár en í fyrra. Fyrstu 4
mánuði ársins var innflutning-
ur um 10% minni en á sama
tíma í fyrra.
0 Talið er, að vöruflutningur
Framhald á bls. 27
Spánarmálið:
Fleiri
komnir
í gæzlu
UNGUR maður var f gærkvöldi
úrskurðaður f allt að 20 daga
gæzluvarðhald vegna hassmálsins
á Spáni. Þá var annar ungur
maður f yfirheyrslum vegna sama
máls, og var óvfst hvort hann yrði
úrskurðaður f gæzluvarðhald.
Menn þessir voru, að sögn Arnars
Guðmundssonar fulltrúa við
Ffkniefnadómstólinn, sóttir
„austur fyrir Fjall“, eins og hann
orðaði það.
Maðurinn, sem fyrst var settur
inn vegna Spánarmálsins, situr
enn í gæzluvarðhaldi. Þá situr
einnig inni ungur maður vegna
hasssmyglsins, sem komst upp um
nokkru síðar, þegar reynt var að
smygla 3 kg af hassi sjóleiðis. í
Keflavík hafa 3 menn setið í
gæzluvarðhaldi vegna hassmáls,
en tveimur þeirra hefur nú verið
sleppt.