Morgunblaðið - 02.07.1976, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.07.1976, Blaðsíða 1
36 SÍÐUR 141. tbl. 63. árg. FÖSTUDAGUR 2. JULI 1976 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Madrid 1. júlf AP-Reuter. ÖVtST er hver tekur við embætti forsætisráðherra Spánar, eftir óvænta afsögn Carlosar Ariasar Navarros f dag, en stjórnmálafréttaritarar telja að helzt komi til greina þeir Jose Maria de Areilza utanrfkisráðherra eða Manuel Fraga innanrfkisráðherra sem báðir eru framarlega f flokki umbótasinna. Afsögn Navárros kom óvænt Övíst er um eftir mann Navarros einmitt er Spánverjar takast á við mikinn stjórnmálalegan og efnahagslegan vanda. Engin opinber skýring hefur verið gefin á ákvörðun forsætisráð- herrans, en talsmaður hans sagði að konungur hefði sam- þykkt lausnarbeiðnina. Einnig sagði talsmaðurinn að forsætis- ráðherrann teldi að hann hefði nú leitt Spánverja gegnum breytingartimabilið frá ein- ræðisstjórn Francos til tíma, er banni við starfsemi stjórnmála- flokka hefði verið aflétt og kosningar ákveðnar á næsta ári. Aðstoðarmenn forsætisráð- herrans sögðu að hann væri orðinn þreyttur maður, 69 ára Framhald á bls. 20 Portúgal: Greiðsluhallinn er um 460 milljónir kr. á dag Lissabon 1. júlí AP. PORTÚGALSKA stjórnin til- kynnti í dag um harðar efnahags- ráðstafanir, sem fela m.a. f sér hækkun á sköttum fyrirtækja og einstaklinga og hærri viðurlögum og jafnvel fangelsisdómum fyrir þá, sem reyna að koma sér undan að greiða skatta. Tilkynning þessi var gefin út að loknum rikisstjórnarfundi í gær- kvöldi, þar sem fjármálaráðherra landsins, Francisco Salgado Zenha, skýrði frá því að greiðslu halli landsmanna væri óhagstæð ur um 460 milljónir ísl. króna dag. Sagði hann að þessu hefð hingað tii verið mætt með erlend Enn verða Bretar að herða sultarólina London 1. júlf Reuter. BREZKA Verkamannafiokks- stjórnin skýrði frá þvf f gær- kvöldi að þjóðin yrði enn að herða ólina áður en hægt verður að leysa efnahagsvandamál henn- ar. I stefnuyfirlýsingu um baráttu þjóðarinnar gegn verð- bólgunni sagði Denis Heaiey fjár- málaráðherra Bretlands, að Bret- ar yrðu að taka á sig enn eina iækkun í útborguðum launum, ef takast ætti að draga úr atvinnu- ieysi. 1250 þúsund Bretar eru nú atvinnulausir. Jafnframt tilkynnti ráðherrann að i lok þessa mánaðar yrði rýmk- að aðeins um verðstöðvunarlögin, með þvi að leyfa 1% hækkun, en gert er ráð fyrir að sú hækkun muni færa atvinnufyrirtækjum um 1 milljarð sterlingspunda á ársgrundvelli, sem þau myndu væntanlega nota til fjárfestingar og þar með skapa meiri atvinnu. Callaghan forsætisráðherra lét fyrr í vikunni að því liggja að stjórnin myndi enn draga úr áætl- uðum opinberum útgjöldum á fjárlögum fyrir 1977—78. Þessi tilkynning svo og skýr merki um að efnahagsástandið i landinu sé á batavegi, urðu til þess að pundið Framhald á bls. 20 SIGURÐÚR BJARNASON SENDIHERRA Islands í Bretlandi afhenti í gær Elísabetu II. Bretadrottningu trúnaðarbréf sitt við hátíðlega athöfn i Buckinghamhöli. Með sendiherranum við at- höfnina voru eiginkona hans, frú Ölöf Pálsdóttir, Helgi Ágústsson og Eiríkur Bendikz. Myndin var tekin fyrir utan sendiráðið er Sigurður lagði af stað i fylgd Michaels Fitzalans Howards lávarð- ar og hershöfðingja og marskálks diplómatasamfélagsins í London. um lántökum, nú yrði að verða róttæk breyting á. Þjóðin gæti ekki haldið áfram að neyta meira en hún aflaði. Portúgalar hafa fengið um 1 milljarð dollara í lán og efnahagsaðstoð frá V- Evrópulöndum og Bandaríkjun- um á undanförnum mánuðum. Um 20% atvinnuleysi er í land- inu, 50% verðbólga og vöru- skiptajöfnuðurinn á sl. ári var óhagstæður um 1,5 milljarð doll- ara. Stjórnmálafréttaritarar i Portúgal telja að þessar ráðstaf- anir séu aðeins upphafið að mikl- um efnahagsaðgerðum, nú er for- setakosningarnar i landinu eru afstaðnar. ..Hefði horft öðru vlsi við ef vélin hefði verið í ísrael” sagði Rabin er hann féllst á að hefja samn- ingaviðræður við flugræningjana í Uganda Kampala Uganda 1. júlí AP Reuter — NTB STJÓRN Israels hefur látið Lending á Mars 17. júlí Pasadena Kalifornfu 1. júlf AP. EFTIR umfangsmiklar rannsókn- ir hafa bandarískir vísindamenn nú valið nýjan lendingarstað á Mars fyrir geimfarið Víking I. Er nýi staðurinn á NV-hluta Mars, i eins konar þurri gjá. Ekki verður hægt að láta geimfarið lenda fyrr en i fyrsta lagi 17. júlí, en sem kunnugt er átti það að lenda á þjóðhátiðarafmælinu á sunnudag, en myndir sýndu að fyrirhugaður lendingarstaður var of grófur. Er nýi staðurinn um 500 km frá þeim upphaflega. undan miklum þrýstingi ættingja gfslanna 98, sem eftir eru I haldi hjá flugræningjunum á Entebbe- flugvelli í Uganda og fallizt á að verða að einhverju leyti við kröfu ræningjanna um að sleppa úr haldi 53 skæruliðum og hryðju- verkamönnum af ýmsum þjóðern- um, sem eru I fangelsum í tsrael V-Þýzkalandi, Kenya, Sviss og Frakklandi. Flugræningjarnir slepptu ( morgun 101 gfsl úr haldi til viðbótar þeim 47 konum og börnum, sem sleppt var I fyrra- dag og veittu tsraelsmönnum frest til 11.00 á sunnudags- morgun að verða við kröfum þeirra. Nú eru 98 tsraelsmenn eða Gyðingar af ýmsum þjóðern- um f haldi hjá flugræningjunum ásamt 12 manna áhöfn breiðþot-' unnar, sem ræningjarnir rændu tim sl. helgi. Akvörðun ísraelsstjórnar um að semja við flugræningjana er alger stefnubreyting af hennar hálfu, þvi að það hefur verið yfir- lýst stefna hennar undanfarin 7 ár að semja ekki við hryðjuverka- menn eða flugræningja. Hins vegar sagði Rabin forsætisráð- herra ísraels, sem fekk i morgun umboð þingsins í tsrael ásamt 6 af ráðherrum sínum til að semja við ræningjanna, að ef flugvélin hefði verið á ísraelsku yfirráða- svæði hefðu málin horft öðru visi við, en hér væri um að ræða franska flugvél í Uganda og ísraelsmenn gætu ekki treyst á Framhald á bls. 20 Falli Tal Zaatar er útium vopnahlé Beirút 1. júli AP. EKKERT lát er á bardögum í Lfbanon og engar horfur á að vopnahlé komist þar á ( bráð þrátt fvrir áskorun allra utan- rfkisráðherra Arababanda- lagsins f dag. Harðir bardagar geisa um Tal Zaatar flótta- mannabúðir Palestfnumanna og tugir manna hafa fallið þar f stórskotaliðsárásum kristinna hægri manna, að sögn talsmanna Frelsis- fylkingar Paiestfnu-araba. Skæruliðar Palestinumanna og Múhameðstrúarmanna gerðu i dag örvæntingarfulla tilraun til að brjóta á bak aftur sókn hægri manna, en það mis- tókst. Frestur utanrikisráð- herra Arababandalagsins til að koma á vopnahléi rann út I kvöld án þess að nokkur deilu- aðili gæfi til kynna að hann hygðist virða það. Talsmaður Falangistaflokksins, Pierre Gemayel, sem ræður yfir stærstum hópi kristinna hermanna, sagði: „Við viljum vopnahlé en ekki heimskulegt vopnahlé. 50 slik hafa þegar farið út um þúfur og það er alveg nóg fyrir okkur. Framhald á bls. 20 Stjórn Póllands skipulegg- fundi til stuðningssér ur Varsjá 1. júlí AP. DAGBLAÐ pólska kommunista- flokksins, Trybuna Lubu, skýrði frá þvf í dag, að 2 menn hefðu fallið og 75 lögreglumenn særzt f mótmælaaðgerðunum f landinu f sl. viku f kjölfar tilkynningar stjórnvalda um allt að 100% hækkun á matvælaverði. Eru þetta fyrstu fréttir sem berast af mannfalli og átökum f sam- bandi við mótmæiin. Mennirnir tveir voru að sögn blaðsins þjófar, sem skotnir voru af félögum sfnum, er þeir voru að reyna að komast undan með vagn fuilan af þýfi, sem þeir höfðu rænt úr verzlunum f borginni Radom, sem er 200 þúsund manna borg um 90 km fyrir sunnan Varsjá. Blaðið hafði eftir borgarstjóra Radom, Tadeusz Karwicki, að tjón f óeirðunum hefði numið um 4 milljónum dollara, einkum vegna gripdeilda verkfallsmanna og skemmda f átökunum. Framhald á bls. 20

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.