Morgunblaðið - 02.07.1976, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. JÚLl 1976
......"
_
wtm
|
I l S 11
sii*Bisa»ii
;
■
Matterhorn, fjallið sem sexmenningarnir ætla að klífa I næstu viku. Þeir hyggjast fara upp eftir hryggnum sem á myndinni er á miðjum tindinum.
Sex skátar ætla að klífa
Matterhorn í nœstu viku
Fjallgöngukapparnir úr Hjálparsveit skáta sem halda til Sviss I dag, frá vinstri: Arngrlmur Blöndal,
Sighvatur Blöndal, Ágúst Jóhannsson, Ágúst Guðmundsson, Helgi Benediktsson og Pétur Ásbjörns-
SOIl. (Ljósm. Friðþjófur).
— Nei, það er nú ekki
meiningin að skilja ís-
lenzkan fána eftir á toppi
Matterhorns ef við kom-
umst þangað, en eftir-
vænting okkar er mikil
eftir að komast á þennan
víðfræga fjallstind. Það
getur enginn ímyndað
sér hversu stórfenglegt
það er að hafa sigrað slík-
an tind og hafa allt víð-
feðmið og stórbrotna
náttúrufegurðina fyrir
framan sig.
Sex piltar úr Hjálpar-
sveit skáta í Reykjavík
hafa orðið, en í dag halda
þeir til Sviss þar sem þeir
ætla sér að klífa hæsta
tind Matterhorns í næstu
viku. Nokkrir þeirra ætla
sér síðan að verða eftir í
Sviss og m.a. klífa Mont
Blanc, Eiger Tind og
„Ungfrúartind". Þeir
hafa allir æft fjallgöngur
af kappi undanfarið og
klifið fleít fjöll suðvest-
anlands og sömuleiðis
marga jöklanna. Auk
þess voru tveir þeirra,
Sighvatur Blöndal og
Helgi Benediktsson, á
sérstökum klifurskóla í
Austurríki í hitteðfyrra.
Alls eru þeir sex i hópnum
eins og áður sagði og auk Helga
og Sighvats þeir Arngrímur
Blöndal, bróðir Sighvats, Pétur
Ásbjörnsson og nafnarnir Ág-
úst Jóhannsson og Ágúst Guð-
mundsson. Sá elzti í hópnum er
þrítugur, en sá yngsti 17 ára.
— Við fljúgum til Luxem-
borgar a í dag og höldum þaðan
beint til Sviss, sögðu þeir félag-
ar er við ræddum við þá í gær.
— Síðan er ætlunin að dvelja í
tvo daga í hlíðum Matterhorns I
um 3000 metra hæð til að venj-
ast þunna loftinu. Upp ætlum
við síðan aðfararnótt mánudags
og ef allt gengur að óskum
verðum við varla lengur en 12
tíma í ferðinni fram og til baka.
Hæsti tindur Matterhorns er
4477 metrar á hæð og klifu
hann fyrst brezkir fjallgöngu-'
kappar árið 1865, en aðeins
tveim dögum síðar komust Ital-
ir, sem höfðu haft samflot með
Bretunum, einnig á toppinn.
Matterhorn er eitt vinsælasta
fjallið meðal fjallgöngumanna í
Evrópu, en enginn Islendingur
hefur enn komizt á topp fjalls-
ins. Þó kleif Þórður Guðjohn-
sen tind fjallsins árið 1911, en
hann var iæknir f Danmörku og
danskur ríkisborgari.
Matterhorn er i ölpunum á
landamærum Sviss og Ítalíu og
fara sexmenningarnir upp þá
leið Svissmegin, sem vinsælust
er af fjallgöngumönnum. Þeir
félagarnir eru ekki neinir ný-
græðingar í fjallgöngum, þó svo
að sú iþrótt sé ekki mikið
stunduð hér á landi. Þeir Helgi
og Sighvatur hafa t.d. tvö síð-
astliðin sumur lagt á Mount
Blanc, en Sighvatur varð að
snúa við á miðri leið í fyrra með
veika ferðafélaga.
Að lokinni ferðinni á Matter-
horn ætla þeir sér að klifa fjöll-
in Eiger og Jungfrau. Fyrr-
nefnda fjallið er eflaust minn-
isstætt úr kvikmynd, sem sýnd
var hér i vetur og fjallaði að
verulegu leyti um uppgöngu á
Eiger-tind. Eiger-tindur er 3970
m á hæð, en Jungfrau 4150 m.
Helgi og Sighvatur voru staddir
í Sviss er upptaka þeirrar
myndar fór fram og fylgdust að
nokkru leyti með töku myndar-
innar. — I myndinni leit svo út
að verið væri að klífa norður-
vegg tindsins, en það er nátt-
úrulega bara svindl eins og svo
margt annað í myndinni, segja
þeir Helgi og Sighvatur. —
Norðurhlið Eiger er ein alerfið-
asta leið, sem fjallgöngumaður
getur valið sér og ekki»nema
afburðamenn sem geta farið
þar udd.
Að lokinni ferðinni á þessa
tinda ætla þeir Ágúst Guð-
mundsson og Arngrímur sér að
klífa Mount Blanc, en Helgi
ætlar að flakka um svissnesku
fjöllin í einn mánuð. Við spyrj-
um þá hvað sé svo spennandi
við fjallgöngur. — Þetta er eins
og í öðrum íþróttum, því hærra
eða lengra sem þú kemst því
mun æstari verðurðu í að gera
enn betur segja þeir. — Svo er
þetta að sjálfsögðu mjög spenn-
andi og býður upp á stórkost-
legt útsýni og náttúrufegurð.
I dag halda þeir til Sviss
styrktir af Skátabúðinni, Isal,
Sveini Egilssyni og Flugleiðum.
Farangur þeirra verður ekki
líkur farangri annarra farþega
sem fara í sumarleyfi til út-
landa þessa dagana, heldur
hlífðarföt, mannbroddar, ís-
axir, hjámar og fleira nauðsyn-
legt fyrir fjallgöngumenn.