Morgunblaðið - 02.07.1976, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 02.07.1976, Blaðsíða 5
Spænski gftarleikarinn sem skemmta mun f Eden. Gítarleikur og tízkusýn- ingar í Eden NC 1 sumar, eða frá 1. júlf, mun "Eden f Hveragerði bjóða kaffi- gestum sfnum upp á ókeypis skemmtun, en þar mun kom a fram spænskur gftarleikari, Miguel Balaguer að nafni. Miguel mun skemmta gestum á hverju kvöldi fyrst um sinn og Ieikur hann aðallega þekkt lög frá Spáni og Suður-Amerfku. Hann hefur á undanförnum ár- um starfað sem skemmtikraftur á ýmsum þekktum stöðum á Mall- orca. I fyrra var í Eden annar söngvari frá Spáni við miklar vin- sældir og má gera ráð fyrir að þessi standi honum ekki að baki. Auk þessa eru tízkusýningar í Eden alla fimmtudaga, en það er Karon, samtök sýningafólks, sem sér um þær. LEIÐRÉTTING í minningargrein um Sigurð Jónsson í Morgunblaðinu s.l. mið- vikudag var faðir hans sagður Sigurðsson, en hann var Jón Tómasson skipstjóri, alkunnur á sinni tíð. Borgar- stjóra stefnt BORGARSTJÓRANUM í Reykjavík, Birgi ísleifi Gunnarssyni, hefur f.h. borgarsjóðs Reykjavíkur verið stefnt fyrir bæjar- þing Reykjavíkur til greiðslu skaðabóta að fjár- hæð 8 milljónir króna ásamt 14% ársvöxtum frá 1. júlí 1976. Stefnandi er Reynir Þórðarson, Safamýri 83, Reykjavík. 1 stefn- unni segir að stefnt sé „vegna tilefnislausra og allt of víðtækra rar.nsóknaraðgerða starfsmanna borgarsjóðs Reykjavfkur á meintu misferli stefnanda i starfi hjá trésmiðju Áhaldahúss Reykja- vikur, vegna rangra og mjög meiðandi upplýsinga starfsmanna Reykjavíkurborgar til fjölmiðla um meint misferli og alvarlegt brot stefnanda i starfi, umfangs- mikilla og tilefnislausra kæru- aðgerða borgaryfirvalda á hendur stefnanda bæði fyrir borgarráði og sakadómsyfirvöldum og kostnaði þeim tengdum, einnig bóta vegna fyrirvaralausrar og óréttmætrar frávikningar úr starfi yfitverkstjóra við trésmiðju Áhaldahúss Reykjavíkur.“ Einnig er áskilinn réttur til að gera siðar kröfur um bætur vegna skertra lifeyrissjóðsréttinda vegna uppsagnar stefnanda úr starfi yfirverkstjóra. Borgarstjóri, Birgir Isleifur Gunnarsson, vildi ekkert láta hafa eftir sér um mál þetta, þegar Mbl. bar málið undir hann. MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. JÚLl 1976 TIZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS KARNABÆR LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a SÍMI FRÁ SKIPTIBORÐI 28155 AUSTURSTRÆTI 22

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.