Morgunblaðið - 02.07.1976, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 02.07.1976, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. JÚLl 1976 100 ár síðan Blönduós fékk verzlunarréttindi: Texti og myndir: Tryggvi Gunnarsson. Byggðin á Blönduósi hefur stækkað með hverju árinu en hér sjáum við fremst á myndinni yfir elzta hluta kauptúnsins og austur yfir Blöndu. Efst til hægri á myndinni sjáum við stál- gripaskemmuna stðru, sem hreppsfélagið er að láta reisa. Jón tsberg. mm — Rætt við Jón Isberg, oddvita Barnaheimili er starfrækt á lóð barnaskólans og þar dvelja dag hvern um 50 börn. » Það var sumarið 1875, sem Tómas Thomsen, lausakaupmað- ur, kom á skipi sínu í Blönduós og hóf hann þar verzlun við nær- liggjandi sveitir. Thomsen reisti verzlunarhús sín á syðri bakka árinnar og þar stendur enn elzti hluti kauptúnsíns. Blönduós var löggilt sem höfn árið 1875, en sem verzlunarstaður 1. janúar 1876. Við síðustu áramót voru því eitt hundrað ár liðin frá því að Blönduós fékk verzlunarréttindi. Á þessa ieið fórust Jóni Isberg, sýslumanni, orð þegar blaðamað- ur Morgunblaðsins hitti hann að máli á sýsluskrifstofunni á Blönduósi fyrir skömmu en Jón er oddviti Blönduósshrepps og hefur verið það frá árinu 1970. Erindi okkar á fund Jóns var að fræðast lítillega um sögu Blöndu- óss og hvað væri efst á baugi í málefnum hreppsfélagsins um þessar mundir. En gefum Jóni orðið á ný. — Kauptúnið hefur á þessum hundrað árum sinnt því hlutverki að vera miðstöð þjónustu fyrir sveitir A-Húnavatnssýlu. Verzlun- in hefur lengst af verið miðpunkt- ur þessarar þjónustu og svo er enn þó nýjar greinar hafi komið til sögunnar s.s. heilbrigðisþjón- usta, viðgerðarverkstæði og banki. Það má því með sanni segja að Blönduós fái lífsmátt sinn úr sveitunum og sveitirnar lifsmátt sinn héðan. En allri þjón- ustu eru takmörk sett og við hljót- um því að róa á önnur mið sam- hliða. Þar eigum við að mínum dómi að leggja allt kapp á að koma upp iðnaði, enda hefur það sýnt sig hvað snertir þau iðnfyrir- tæki, sem þegar starfa hér að með þeim hefur verið stigið spor í rétta átt. Iðnaður skapar ekki bara atvinnu, heldur einnig trygga atvinnu, ef rétt er á málum haldið. BRYGGJAN EKKI Á ÓSKALISTA HJA ÞVÍ OPINBERA — En þegar við erum að tala um atvinnumöguleika get ég ekki látið hjá líða að nefna lítið dæmi um hringlandahátt hins opinbera í atvinnuuppbyggingunni. Við er- um hér með bryggju, sem um fara milli 11.000 og 13.000 tonn af vör- um á ári hverju en bryggjuna er ekki hægt að nota nema f sæmi- legu veðri. Þessi bryggja er ekki á óskalista hjá þvi opinbera. Þeir segja að við þurfum enga höfn því við höfum ekki útgerð og þegar rækjan kom sögðu þeir að það þýddi ekkert fyrir okkur að stunda útgerð, hér væri engin höfn. Og þau eru fleiri dæmin, sem mætti nefna eins og þegar verið var að koma prjónastofunni Pólarprjón á fót. ÍBÚUNUM FJÖLGAR UM 3% Á ÁRI — íbúum Blönduóss hefur fjölgað nokkuð jafnt á síðustu ár- um og lætur nærri að fjölgunin hafi verið um 3% á ári. íbúarnir hér voru 1. desember sl. 813 tals- ins. Þú spyrð hvort íbúarnir séu aðallega úr nágrannasveitunum. Þó ég hafi ekki skoðað þáð sér- staklega, þá held ég að megi segja að stærstur hlutinn sé héðan úr sveitunum en það hefur verið mikil hreyfing á fólki til og frá kauptúninu. FJÖLBREYTNI í ATVINNULÍFINU FERVAXANDI — Atvinnuástand hefur verið með ágætum hér á síðustu árum enda hefur fjölbreytni í atvinnu- lífinu hér farið vaxandi með ári hverju. Sem dæmi um einstaka vinnustaði má nefna að milli 40 og 50 manns starfa við sjúkra- húsið á staðnum, hér eru þrjú bifreiðaverkstæði, þar af tvö véla- verkstæði. Þá má nefna fyrirtæk- ið Pólarprjón, sem rekur sauma- stofu og prjónastofu en þar vinna um 35 manns. Sölufélag A- Húnvetninga er hér með sínar aðalstöðvar en það starfrækir sláturhús og mjólkurstöð, sem meðal annars framleiðir þurr- mjólkurduft auk nýmjólkur og rjóma. Sölufélagið er systurfyrir- tæki Kaupfélags A-Húnvetninga en kaupfélagið er aðalverzlunar- fyrirtækið á staðnum. Ég minntist áðan á fjölbreytni í atvinnulífinu hér og það sakar þá ekki að nefna að tvær heildverzlanir starfa hér á Blönduósi. Mikil gróska hefur einnig verið hér í byggingar- iðnaði og á haustin og veturna veitir rækjuvinnslan hópi fólks atvinnu. Má í raun segja að rækjuvinnslan veiti því fólki a1; vinnu sem að öðrum kosti feng1 ekki atvinnu hér i kauptúninu yfir þennan tíma. — Sveitarsjóður er nú að láta reisa 4200 fermetra stálgrinda- skemmu og er ætlunin að þ®f verði aðstaða fyrir iðnfyrirtæk1 Þegar hafa tvö fyrirtæki feng1^ þarna inni en aðstaða er fyrlf fleiri. Áður en við skiljum vi^ atvinnumál staðarins er ekki nr vegi að nefna að hér starfar brauðgerð, Brauðgerðin Krútt fyrirtækið Trefjaplast, sem frad1' leiðir meðal annars kappróðraf' báta og þrjár trésmiðjur. FRAMTÍÐIN BYGGISTÁFRAM- TAKSEMI ÍBU- ANNA SJÁLFRA — Hvað snertir framtíð staðaf' ins hlýt ég að horfa björtum aug' um á hana. Við erum hér í þjóá' braut og að okkur liggur gróská' mikið og gjöfult landbúnaðaf hérað. Fyrir þremur árum vaf Hátíðahöld í tilefni afmælisins um helgina I TILEFNI af aldarafmæli verzlunarréttinda Blöndu- óss verður efnt til sérstakr- ar afmælisdagskrár nú um helgina. Á morgun, laugar- daginn 3. júlí, verður úti- hátíð í Kvenfélagsgarðin- um við Blöndu og hefst há- tíðin kl. 13.30. Meðal dag- skráratriða verður lúðra- blástur, hátíðarfundur hreppsnefndar Biönduóss, sr. Árni Sigurðsson rekur sögu Blönduóss og afhjúp- aður verður minnisvarði af fyrsta Blönduósingnum, Tómasi Thomsen, en minn- isvarðann gerði Jónas Jak- obsson. Klukkan 15 á morgun býður hreppsnefnd Blönduósshrepps til kaffi- drykkju í Félagsheimil- inu. Síðar um daginn verð- ur sérstök skemmtun fyrir börn og fram fer knatt- spyrnuleikur. Um kvöldið verður leiksýning í Félags- heimilinu en þá sýnir Leikfélag -Blönduóss Þið munið hann Jörund eftir Jónas Árnason undir leik- Ír___ stjórn Magnúsar Axelsso^' ar. Þá verður dansað v*. Félagsheimilið en haiö’ veður verður dansleikdr inn í Félagsheimilinu. Á sunnudag, 4. júlí, rð- ur guðþjónusta í hvam in**1'

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.