Morgunblaðið - 02.07.1976, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 02.07.1976, Blaðsíða 20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAC’.UR 2. JÚLI 1976 20 In memoriam: Viðar Thorsteins- son framkvœmdast Þar var sjálfsagt engin tilviljun að Viðar Thorsteinsson dróst að íþrótt á borð við skákina, marg- slungnir valkostir bundnir ströngum kröfum um einbeitingu hæfileikanna, svo og höfðun til óvæntrar og skyndilegrar athurðarásar samræmdust mjög skapgerð og gáfum Viðars. Skák- byrjanir hans voru oftast nær nýtískulegar og viðurkenndar en vel kannaðar. Honum var vel ljóst hversu mjög skákin hjó að skipu- legri og öruggri byrjun en jafn- framt var heimsborgarinn og framkvæmdamaðurinn ofarlega i þeirri hugsun sem upphafið byggðist af. - Við tefldum saman nokkrir félagar Viðars í 25 ár á vetrum. Segir það nokkuð um manninn að ávallt hlökkuðum við mjög til þessara kvölda, því alitaf var von um einhverja nýjung frá Viðari T. En þó að byrjanir hans hafí verið sem fyrr segir og hann gæfi sig óskiptur miðtaflinu með sömu vandvirkni og annað sem hann gerði og byggði upp sína þunga- miðju með óvenjulegri natni og krossvöldun, með næmu auga fyr- ir veikleika okkar hinna á stöðunni, þá var það þó ekki fyrr en eftir uppskipti og snyrtingu stöðunnar að Viðar fór að njóta sín og hafa verulega ánægju af skákinni. Endataflið var hans sterka hlið. Það er táknrænt að þá voru það peðin, veikustu mennirnir, sem í höndum hans urðu að þeim banafleygum, sem gengu á hol inn í stöðuna og sprengdu hana upp. Hugmynda- flug hans, jafnframt nákvæmri taflmennsku, naut sín þar hvað bezt, þegar teflt var á yztu nöf og ekki var lengur hægt að bjarga neinu ef út af skeikaði, þraut- — Hefði horft öðru vísi við Framhald af bls. 1 aðgerðir annarra þjóða, sem í hlut ættu. Idi Amin forseti Uganda, sem unnið hefur að samkomulags- viðræðum við flugræningjana ásamt Pierre Renard sendiherra Frakka i Uganda sagði að hugsan- legt væri að leysa málið áður en frestur ræningjanna til ísraels- manna rynni út á sunnudags- morgun. ísraelsmenn hafa hins vegar ekki sagt hve mörgum föng- um af þeim 40, sem sitja í fangelsi i israel þeir séu tilbúnir að sleppa úr haldi og ekki hægt að gera sér grein fyrir hvort skæruliðar sætta sig við nokkuð annað en að gengið verði að öllum þeirra kröfum. Þeir hafa hótað að sprengja flug- vélina og flugstöðvarbygginguna, þar sem þeír halda til, í loft upp og myrða alla gíslana ef ekki verður orðið við kröfum þeirra. Útvarpið í Uganda sagði í dag, að Valery Giscard D'Estaing Frakklandsforseti hefði í samtali við Amin lagt til að Sameinuðu þjóðirnar hefðu milligöngu um samninga, þar sem svo margar þjóðir ættu í hlut. Sagði útvarpið að Kurt Waldheim framkvæmda- stjóra S.Þ. hefði verið skýrt frá — Minning Ingiríður Framhald af bls. 23 Þau ungu hjón reyndust Ingi- ríði sérstaklega vel, sýndu henni bæði umhyggju og nærgætni. Það er auðlegð að bera gæfu til þess að reynast þeim vel sem þess þurfa með. Fyrir mörgum árum, eftir að ég flutti hingað til Reykjavikur, skrifaði Ingiríður mér bréf og bað mig að gera sér smágreiða, sem ég og gerði eftir bestu vitund og hafði gaman af, því alltaf hef ég staðið i þakkarskuld við þá góðu konu. Bréfið geymi ég enn vel og seigja og skörp dómgreind héldust hér í hendur á óvenjulega skemmtilegan hátt. Endatafl við hann var því hlutur sem vitað var fyrirfram að myndi krefjast fyllstu athygli og aðgæzlu hvers sem var, en jafnframt ánægjuleg, ekki sízt fyrir hnyttilegar athuga- semdir hans sjálfs. Skyndiárásir og fórnartafl var ekki algengt hjá Viðari, þó hann ætti það til. Hin rökrétta og óstöðvandi framvinda veluppbyggðrar áætlunar var honum greinilega mest að skapi. Að notfæra sér smávægilega ávinninga til meiri hluta, stig af stigi, átti vel við hann. Eins og Viðar birtist manni sem skákmaður, þannig var hann einnig í lífi sínu, i tafli lífsins og í samskiptum sínum við samferða- menn eldri sem yngri. Viðar vildi aldrei hagnast á kostnað annarra, heldur eingöngu fyrir góðar og skynsamar athafnir sjálfs sín, að vinna að því að auka hag sinn og þeirra sem hjá honum störfuðu var honum æðsta boðorð. Fáir menn sem ég hefi kynnzt á lífs- liðinni hafa virzt mér eins vakandi fyrir þessu og Viðar Thorsteinsson. Hjálpsemi hans við sína minni bræður og sam- kennd hans við aðra sem erfitt áttu, var svo fáguð að fæstir þeir er hann gerði greiða, og tala þeirra er legíó, tóku eftir því hve mikið hafði verið fyrir þá gert, svo ljúfmannlega var að því staðið; aldrei vildi hann kannast við að hafa gert neinum greiða. Viðar var vinmargur maður, brosmildur og hæglátur yfirlætis- laus vinur barna og smælingja. Hann var mikið snyrtimeni í allri umgengni, húsbóndi svo sérstak- ur að sjaldgæft var hve starfsfólk þessari tillögu. Amin svaraði því til að hægt yrði að leysa málið fyrir sunnudag, ef israelsmenn létu fanganna lausa. Amin neitaði þvi að hann ynni með ræningjun- um, og sagði að fyrir sér vekti aðeins að tryggja öryggi allra gíslanna. Gíslarnir munu hafa sætt góðri meðferð ræningjanna og konurnar og börnin 47, sem komu til Parísar i gær, sögðu að þau hefðu sætt góðri meðferð. Frétta- menn segja að gislarnir 101, sem fóru áleiðis til Parísar í kvöld, hefðu einnig virzt vera vel á sig komnir. Ekki er ljóst hvaða fólk það er, sem stendur að flugráninu, en haft er eftir diplómötum í Uganda, að um sé að ræða þrjá hópa, 2 Araba, 2 V-Þjóðverja og er annar kona, og 3 Palestínu- araba, sem virðast vera foringjar hópsins. Flugræningjarnir segjast vera félagar í Alþýðu- fylkingunni til frelsunar Palestínu, en diplómatar segja að það kunni aðeins að vera hentugt sameiginlegt gervi þessara þriggja hópa. Meðal fanganna í ísrael er japanski hryðjuverka- maðurinn Kozo Okamoto, sem var einn af þremur Japönum, sem myrtu 26 manns og særðu 70 á vandlega, það er fagurlega skrífað, því hún hafði mjög góða rithönd, þá er það ekki síður vel orðað og hlýja og þakklæti endur- speglast á bak við það sem sagt er. Eftir að heilsa hennar var þrot- in, flutti Jónmundur mágur minn kveðju hennar til mín á þann hátt, að hún hefði sagt: ég bið að heilsa Jakob, hann hefur alltaf verið svo góður við mig. Hvort ég hef átt þessa góðu kveðju skilið er ekki mitt að dæma, en hitt er víst að hún er mér mikils virði. Nú eru liðin tvö ár frá því ég sá hana síðast, þá kom ég að Auð- kúlu og við spjölluðum lengi sam- an i litla snotra herberginu hennar, en þar bar allt fyrri ein- kenni um reglu og hirðusemi. hans virti hann og mat, vildi allt fyrir hann gera ótilkvatt. Yfirleitt var sama starfsfólk hjá honum árum saman. Einn þáttur í skap- höfn Viðars ber þó sennilega hæst í minningu félaga hans: Frá- sagnahæfileiki og kímnigáfa hans, svo sérstæð, óvenjuleg að enginn sem kynntist í vinahóp getur gleymt því, hversu langt sem liður. Mörg af hnittyrðum hans lifa enn með vinum og félög- um sum áratugum eftir að þau urðu til. Viðar var meðalmaður á hæð, ljóshærður og bláeygður nokkuð hnellinn, en vel á sig kominn. Ævi hans var margbreytileg eins og skákin sem hann iðkaði svo vel, en hann óx við hverja raun, en einnig í meðlæti sem er sjald- gæfara. Það fýkur fljótt í sporin, jafn- vel þótt fast sé til jarðar stigið á stundum svo skelfur jörðin. Það er trú min að þau spor sem þessi elskulegi féiagi okkar skildi eftir sig meðan hann gekk hér um meðal vor á sinn friðsamlega og hljóðláta hátt muni geymast lengi í krafti þess hreina og tæra lífs- anda sem ávallt barst til okkar með honum. Úlfar Þórðarson Ben-Gurionflugvelli i ísrael 1972 og grísk-kaþólski erkibiskupinn Hilarion Capudji, sem afplánar 12 ára fangelsi fyrir vopnasmygl. — Navarro Framhald af bls. 1 að aldri, og að hann hefði enga löngun til að halda í embættið, sem P’ranco skipaði hann i í janúar 1974, eftir að fyrirenn- ari hans, Luis Carrero Blanco, var myrtur í sprengjutilræði í desember 1973. Stóðu skæru- liðasamtök Baska, ETA, að baki tilræðinu. Stjórnmálafréttaritarar segja að Navarro hafi verið vonsvik- inn yfir þeirri gagnrýni sem hann sætti og efnahagserfið- leikum, en vinstri mönnum á Spáni þótti hann fara of hægt í að koma á umbótum, og hægri mönnum hann fara of geyst. Verðbólgan i maí sl. jókst um 4,58%, og er hún nú orðin 12% á ársgrundvelli. Mikill greiðslu- halli undanfarnar vikur hefur knúið stjórnina til að taka stór erlend lán. Navarro kvaddi stjórn sína á aukafund í kvöld, en skv. spænsku stjórnar- skránni verða allir ráðherrarn- ir að segja af sér með forsætis- ráðherranum. Hún veitti mér af rausn af því sem hún hafði fram að færa, fræddi mig um margt frá liðinni tíð, minnið virtist óskert og frá- sögn hennar öll skýr og skilmerki- leg. Heyrnin var orðin sljó en þó' var enginn vandi að ræða við hana í einrúmi. Að heimsókn lokinni kvaddi ég hana klökkur í huga, en heitt um hjarta, þetta var okkar hinsta kveðja. Þeir eru orðnir margir í Svína- dal á síðustu áratugum sem ég hef kvatt þar í síðasta sinn. Ingiríður átti alla sína ævi heima í Svína- dal, æskudalnum sínum sem hún unni svo mjög, og naut vináttu fólksins sem dalinn hefur byggt. Ingiríður var glöð og kát í góð- — Blönduós Framhald af bls. 13 með það í huga að það geti rúmað héraðssamkomur. Hér hefur risið bókhlaða en auk bókasafns og héraðsskjalasafns eru þar til húsa sýsluskrifstofan og lögreglan á staðrum. Þessi bókhlaða er að vísu nokkuð við vöxt og ætti hún því að geta mætt þörfum framtíð- arinnar. Þá má geta þess að fýrir- hugað er að byggja nýja kirkju og á hún að rísa á hólnum ofan við barnaskólann. MINNISVARÐI UM FYRSTA BLÖNDUÓSINGINN — í tilefni af aldarafmæli kaup- túnsins sem verzlunarstaðar hef- ur ýmsu verið hrundið í fram- kvæmd til að minnast þessara tímamóta. Hreppsnefndin ákvað að vinna að uppgræðslu meianna umhverfis Blönduós og hefur þeg- ar verið hafizt handa um það verkefni en þetta er um langtíma- verkefni. Gert hefur verið merki fyrir kauptúnið og stofnuð hefur verið lúðrasveit. Þá hefur verið gerður minnisvarði um Tómas Thomsen, kaupmann, sem fyrsta Blönduósinginn og verður hann afhjúpaður í Kvenfélagsgarðin- um við Blöndu við hátíðarhöldin 3. júlí nk. — Eins og ég hef áður sagt er ég bjartsýnn á framtíð Blönduóss og hér á eftir að koma kaupstaður og þegar fram líða stundir verður hér ekki kauptún eða kaupstaður heldur borg. — Neita að greiða Framhald af bls. 2 auk 3% menningarsjóðsgjalds, sagði Ellert Schram lögfræðingur Þórskaffis í gær. — Þeir telja að þeir hafi um árabil greitt skatt af skatti því ef aðgöngumiði hefur kostað t.d. 500 krónur þá hafi þeir greitt bæði skemmtana- og sölu- skatt af upphæðinni óskiptri. — Það má segja að þetta mál sé prófmál og telji dómsvaldið að álagningin hafi verið röng mun það eflaust hafa víðtækar af- leiðingar því ólíklegt er annað en að fleiri skemmtistaðir fylgji á eftir. Við höfum fyrst og fremst óskað eftir úrskurði um réttmæti þessarar álagningar og sú upp- hæð, sem Þórskaffi krefst, 3,9 milljónir, er varla rétt lengur, því inni í dæminu er ekki álagning ríkisins tæplega ár aftur í tímann, sagði Ellert Schram að lokum. — Falli Tal . . . Framhald af bls. 1 Um 1500 hermenn úr friðar- gæzlusveitum S-Arabíu og Súdan komu í dag í útjaðar Beirút, en þeir munu ekkert hafast að fyrr en vopnahléi hefur verið komið á. 800 manna friðargæzlusveitir frá Sýrlandi og Lýbíu voru fyrir í borginni. I’arouk Kaddoumi talsmaður PLO sagði í dag að Palestínu- menn hefðu margboðið upp á vopnahlé, en kristnir hefðu alltaf hafnað því. Kaddoumi sagði að ef Tal Zaatar félli væri endanleg úti um alla von um vopnahlé, þvi að slíkt yrði hrein uppgjöf eftir að kristnir menn hefðu framið fjöldamorð á Palestínu-aröbum. vina hópi, bjó y.'ir skemmtilegri kímnigáfu sem hún beitti af mildi og hógværð. Hún hafði ágæta söngrödd og söng ætíð í Auðkúlukirkju þegar þar var messað. Mér fannst til- komumikið að koma í Auðkúlu- kirkju þegar ég var lítill drengur, sjá sr. Björn í fullum skrúða fyrir altarinu, Jóhann í Holti spila á orgelið og stjórna söngnum og Eirík I Ljótshólum vinna með- hjálparastörfin. Kirkjan fannst mér undraheim- ur og húsið á hólnum háreist höll. Í mörg ár Ieit út fyrir að dagar kirkjunnar væru taldir, en nú hefur hún verið færð um set endurbyggð í óbreyttu formi og söfnuðinum til mesta sóma. 11% rafmagns- hækkun HEIMILUÐ HEFÚR VERIÐ 11% hækkun rafmagns hjá Rafmagns- veitu Re.vkjavíkur. Fylgir þessi hækkun í kjölfar hækkunar sem varð á rafmagnsverði frá Lands- virkjun. — Pólland Framhald af bls. 1 8 lögreglumenn eru sagðir þungt haldnir vegna meiðsla, sem þeir hlutu, er grjóti var kastað að þeim, er þeir reyndu að dreifa mannfjöldanum. Sem kunnugt er féll stjórnin frá verðhækkunun- um er verkföll breiddust út um landið. I blaðinu segir að aðeins hafi komið til óeirða i Radom og Ursus, sem er úthverfi Varsjár, en þar rifu verkamenn m.a. upp járnbrautarteina og stöðvuðu hraðlestina frá París til Varsjár. Ríkisstjórnin hefur nú hafizt handa um að skipuleggja fjölda- fundi um landið, þar sem lýst er trausti og stuðningi við stefnu kommúnistaflokksins. Hins vegar sagði verkamaður einn í ræðu á slíkum fundi, að það væri eitt að styðja kommúnistaflokkinn en annað að taka með þögninni svo miklum verðhækkunum. Finna yrði aðra lausn, sem almenningur gæti sætt sig við. — Bretar . . . Framhald af bls. 1 hækkaði í verði á gjaldeyris- mörkuðum og er nú um 1,79 doll- arar fyrir 1 sterlingspund. Healey sagði i ræðu sinni, að sig pundsins á undanförnum mánuðum og hækkanir á neyzluvörum í heim- inum hefðu sett baráttuna gegn verðbólgunni nokkuð úr skorðum og hann sagði að miðað við núver- andi aðstæður mætti búast við að verðbólgan í árslok yrði um 12% og 7M% i árslok 1977. Verðbólg- an, sem fór um tíma yfir 30%, lækkaði nýlega undír 20% og heldur áfram að lækka hröðum skrefum. Pundið hefur fallið í verði um 38,8% gagnvart helztu gjaldmiðlum frá þvi í desember 1971. 5,3 milljarða dollara trygg- ingarlán helztu iðnríkja á Vestur- löndum fyrir 3 vikum urðu til að stöðva hrap pundsins, en það var komið niður í 1,70 dollara fyrir pundið. — Nú bíða . . . Framhald af bls. 2 skipin komi inn með loðnuna. Eru þeir bjartsýnir á að svo verði fljótlega því nokkuð af loðnu hefur fundizt og sömuleiðis hafa handfærabátar á Skagagrunni fengið talsvert af fiski undan- farið fullan af loðnu. Handfæra- veiðarnar hafa mjög glæðzt að undanförnu og þorskur verið meiri hluti I aflanum en áður. Nú er unnið að borun við 5. holuna eftir vatni i Skútudal og er borinn kominn niður á um 800 metra dýpi. Hefur borunin gengið mjög vel og gera menn sér jafnvel vonir um vatn á 900—1000 metra dýpi. Gott veður hefur verið í Siglufirði að undanförnu, sól og blíða upp á hvern einasta dag. — m.j. Ekki orkar það tvímælis að Ingiríður var mjög ánægð með endurbyggingu kirkjunnar, og frá þessari kirkju hefur hún fylgt til grafar nánustu ættingjum og vin- um, sem fallið hafa i valinn á hennar löngu ævi, og nú er hún kvödd hér hinstu kveðju og jarð- sett við hlið eiginmanns síns, eftir að hafa verið ekkja I 44 ár. Ég kveð hana svo með þakklát- um huga með von um endurfund þó seinna verði. Nú er hún flutt þangað sem „eilífðin sjálf hún er alein til“ og ástvinir hennar taka á móti henni og bjóða hana vel- komna heim. Jakob Þorsteinsson frá Geithömrum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.