Morgunblaðið - 02.07.1976, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. JULI 1976
Konurnar ráði einar
Merkur úrskurður Hæstaréttar Banda-
ríkjanna varðandi fóstureyðingar
Washington. 1. júlí — AP. Reuter.
Hæstiréttur Bandaríkjanna úr-
skurðaði í dag að einstök ríki
Bandaríkjaanna geti ekki krafizt
þess af konu að hún hafi heimild
eiginmanns til að láta eyða fóstri
sínu, né heldur að stúlkur undir
18 ára aldri þurfi heimild for-
eldra til fóstureyðingar.
Þessi úrskurður Hæstaréttar
fellir úr gildi riksilög i Missouri
frá árinu 1974, sem mæla svo fyr-
ir að samþykki eiginmanns eða
foreldra þurfi til þegar um fóstur-
eyðingar er að ræða. Hinsvegar
úrskurðaði dómurinn að hver sú
kona, sem gengst undir fóstureyð-
ingu skuli leggja fram skriflega
yfirlýsingu um að hún geri sér
fulla grein fyrir mikilvægi
ákvörðunar hennar um að láta
eyða fóstri sínu.
Frá því að Hæstiréttur úrskurð-
aði árið 1973 að einstök ríki geti
ekki haft afskipti af því ef kona
ákveður að láta eyða fóstri sínu á
fyrstu þremur mánuðum með-
göngutímans, hafa ýmis ríki reynt
að setja ný lög til að draga úr
sjálfsákvörðunarrétti konunnar.
LOFTBELGSFLUCIÐ MISTOKST
Flugmanninum bjargað í sovézkt skip
Halifax Nova Scotia,
1. júlí — AP, Reuter
Bandaríkjamaðurinn Kari
Thomas, sem ætlaði að
verða fyrstur allra til að
fljúga í loftbelg yfir
Atlantshafið er nú um
borð í sovézku skipi, sem
hirti hann upp af fleka á
sjónum um 300 mílum frá
strönd Kanada. Er skipið á
leið til Hollands, og segja
björgunarmennirnir að
Thomas sé við beztu heilsu.
Karl Thomas lagði upp í ferð
sína yfir Atlantshafió frá New
Jersey á föstudagskvöld. Hann
hafði talstöðvarsamband við
stöðvar á jörðu niðri þar til á
sunnudagskvöld, en þá heyrðist
síðast frá honum. Leit var hafin
að loftbelgnum, en árangurslaust,
BANDARÍSKI ljóða- og
lagasmiðurinn Johnny
Mercer lézt að heimili sínu
í Bel Air, Kaliforníu, fyrir
viku.
Hann var óvenju afkasta-
mikill höfundur texta við
vinsæl lög eins og til dæmis
„Jeepers, Creepers",
„Goody Goody“ eða „GI
Jive“, og lagasmiður vin-
sælla< dægurlaga eins og
og voru margir sem töldu Thomas
af.
1 dag barst svo tilkynning frá
sovézka skipinu Dekabrisk um að
Thomas væri fundinn og heill
heilsu, og að hann yrði settur í
land i Rotterdam 8. júli.
„Atchison, Topeka and
Santa fe“, „Moon River“ og
Days of Wine and Roses“.
Johnny Mercer var 66
ára er hann lézt. Hann var
mjög fjölhæfur og starfaði
oft með mörgum þekktustu
dægurlagasmiðum Banda-
ríkjanna eins og Jerome
Kern, Hoagy Carmichael,
Henry Mancini og fleirum,
en einna bezta samvinnu
átti hann við Harold Arlen.
Þeir sömdu lög eins og
„Old Black Magic“, „Blues
in the Night“ og „One for
my Baby“ auk þess sem
þeir sömdu söngva við
söngleikina „St. Louis
Woman“ og „Saratoga“.
Matvæla-
skortur
Ames, Iowa, 1. júlí — Reuter
Á FUNDI Alþjóða matvælaráð-
stefnunnar 1976 sem haldin er í
borginni Ames í Iowa,
Bandaríkjunum, sagði dr. Sylvan
Wittwer í dag að eina leiðin til að
brauðfæða íbúa heimsins á næstu
Öld væri að tvöfalda matvæla-
framleiðsluna og stórbæta
dreifingu matvæla. Dr. Wittwer
sagði að dreifing matvælanna
væri ekki síður mikilvæg en fram-
leiðslan, því næringarskortur
stafaði af hvoru tveggja.
Um 700 fulltrúar frá 50 löndum
sitja ráðstefnuna, en henni lýkur
á morgun, föstudag.
Við afgreiðum
litmyndir
yðar á 3 dögum
Þér notið Kodak filmu. við
gerum myndir yðar á Kodak
Ektaco/or-pappír og myndgæðin
verða frábær
Umboðsmenn um /and a//t
— ávallt feti framar
HANS PETERSEN HF
Bankastræti - S. 20313 Glæsibæ - S: 82590
l
Johnny Mercer látinn
Sfmamynd AP
JIMMY CARTER, sem væntanlega verður forsetaefni demókrata
í kosningunum í nóvember, er hér með vænan silung, sem hann
háfaði upp úr tjörn heima í Plains i Georgiu. Carter, fjölskylda
hans og nágrannar þurrkuðu upp tjörnina og hirtu fiskinn, sem
allur fór á sameiginlegt veizluborð bæjarbúa.
Hún er ástfangin...
London, 1. júlf — Reuter.
SlMASTtJLKAN Valentína
Francis elskaði unnusta sinn og
hringdi þvf til hans allt að þvf 12
sinnum á viku á kostnað vinnu-
veitanda sfns. Gallinn var sá að
Valentina býr í London, en
unnustinn, Bruno Trimm, f
Ontario, Kanada, og sfmareikn-
ingurinn er kominn upp í nærri
10 þúsund pund (3,3 milljónir
króna) á tfmabilinu frá þvf í apríl
í fyrra.
Valentina er 26 ára, og í gær
kom hún fyrir rétt í London
vegna símtalanna. Var hún dæmd
í árs skilorðsbundið fangelsi, sem
þýðir að hún þarf ekki að sitja
inni, ef hún ekki lendir í útistöð-
um við lögin næstu tvö árin.
Henni var gert að endurgreiða
eitt þúsund pund af heildarupp-
hæðinni, 200 pund innan viku og
afganginn með 10 punda vikuleg-
um greiðslum.
Eric Crowther dómari sagði við
Valentinu þegar hann kvað upp
dóminn: „Þú ert heiðvirð stúlka,
og ástin hefur leitt þig út í
óheiðarleika."
Engin von
um vætu...
London, 1. júní — AP
N(J ER brennheitur júnímánuóur í Bretlandi liðinn, en
veðurfræöingar sögðu í dag að enn væru heitir dagar
framundan.
í fyrsta skipti í 135 ár komst hitinn í London upp í 32
gráður fjóra daga í röð frá föstudegi í fyrri viku til
mánudags. Venjulega fer hitinn sjaldan yfir 23 gráður
seinni hluta júnímánaðar. Spáir enska veðurstofan því
að hitabylgjan haldi áfram næstu daga og að júlímánuð-
ur í heild verði bjartur og heitur.
Hitinn hefur farið illa kæla hann niður, því ísvél
með marga. Að sögn
Scotland Yard hefur verið
óvenju mikið um fjöl-
skylduerjur og óspektir í
ölkrám, og í sumum kránna
seldist allt öl upp. Þrjár
snotrar stúlkur afklæddu
sig ofan mittis á Tafalgar
torgi i London á miðviku-
dag til að kæla sig í gos-
brunnunum, en voru hand-
teknar og færðar í næstu
lögreglustöð. Ungur lög-
regluþjónn fékk sólsting á
varðgöngu í Wales og
þurfti að smala ísmolum úr
hótelum og ísvélum til að
sjúkrahússins annaði ekki
eftirspurn. Hitabylgjan
hefur haft áhrif á græn-
metisverðið, og til dæmis
má nefna að verð á tómöt-
um hefur sumsstaðar þre-
faldast.
Vegna mikilla þurrka er
eldhættan mikil á engjum
og skóglendi, og víða hafa
eldar eytt stórum svæðum,
lokað þjóðvegum og stöðv-
ar járnbrautarsamgöngur.
En veðurfræðihgarnir geta
ekki gefið neinar vonir um
vætu.