Morgunblaðið - 02.07.1976, Síða 23

Morgunblaðið - 02.07.1976, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. JULI 1976 23 smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Verðlistinn, auglýsir Munið sérverzlunina með ódýran fatnað. Verðlistinn, Laugarnesvegi 82, sérverzl- un ími 31 330. Rúllukragabolir 5 gerðir, 1 0 litir. Dragtin, Klapparstig 37. Olíukyndingartæki Til sölu nýlegur brennari, ketill og tilheyrandi að Markarflöt 23. Verð 35 þús. Simi 4241 6. Ódýrt garn í írskar peysur. Munið útsöluna á Hjartagarninu. Hof Þingholtsstræti 1. Rúllukragabolir 5 gerðir, 1 0 litir. Dragtin, Klapparstíg 37. Hjólhýsi Nýtt hljólhýsi til sölu. Tæki- færisverð og greiðsla með bréfum möguleg að hluta. Fyrirgreiðsluskrifstofan Simi 16223 og heima 12469. Verzlunin hættir Allar vorur seldar með mikl- um afslætti. Barnafataverzl. Rauðhetta Iðnaðarmannahúsinu. PípulagnirS, 32818. tilkynningar■ *áA____L-i-Á_«_ Blindraiðn er að Ingólfsstræti 16, s. 12165. Sjónvarpseigendur ath: Þeir, sem ætla að láta mig yfirfara tæki sin, í sumar, ættu að hafa samband við mig sem fyrst. Geri við B&0 og flestar aðrar tegundir sjónvarpstækja. Get einnig bætt við viðgerðum á öllum gérðum útvarpstækja o.fl. Sjónvarpsviðgerðir Guð- mundar, Fifuhvammsvegi 41, simi 42244. Farlugladelld Reyk|avlkur FÖSTUDAGINN 2. júli Þórs- merkurferð. LAUGARDAGINN 3. JÚL( gönguferð á Heklu. Uppl. i skrifstofunni, simi 24950. Farfuglar. ÚTIVISTARFERÐIR Helgarferðir 2/7 1. EIRÍKSJÖKULL. 2. ÞÓRSMÖRK Verð kr. 3.500.-, vikudvöl aðeins kr. 6.200,- Útivist, Lækjarg. 6, s. 14606. ffRflAHUIG ÍSLANBS OLDUGOTU3 SÍMAR. 11798 OG 19533. Fararstjóri: Árni Björnsson. Mánudagur 5. júlí Ferð í Fjörðu, Víkur og til Flateyjar í samvinnu við Ferðafélag Húsavíkur. .Nánari upplýsingar á skrif- stofunni. Ferðafélag íslands, Öldugötu 3. Símar: 19533 og 1 1 798. Föstudagur 2. júlí kl. 20.00 1. Þórsmörk. 2. Gönguferð á Heklu. Farar- stjóri: Sigurður B. Jóhannes- son. Laugardagur 3. júli kl. 08.00 9 daga ferð í Hvannalindir og Hverkfjöll. SÍMAR. 11798 OG 19533. Laugardagur 3. júlí kl. 13.00 Ferð á strönd Flóans. Komið m.a. að Eyrarbakka, Stokks- eyri, Knarrarósvita og rjóma- búinu á Baugstöðum. Farar- stjóri. Sturla Jónsson. Verð kl. 1 500 gr. v/bilinn. Lagt af stað frá Umferðarmiðstöðinni (að austanverðu). Ferðafélag íslands. raðauglýsingar raðauglýsingar raðauglýsingar titkynningar Frá skrifstofu borgarstjórans í Reykjavík. Athygli er vakin á því, að þeir, sem þurfa að koma gögnum til embættis byggingar- fulltrúa í Reykjavík, geta afhent þau í bréfapóststofunni, Pósthússtræti 5,póst- hólf nr. 30. Húsbyggjendur athugið: Eigum fyrirliggjandi steinrör til skolp- lagna 4ra til 16 tommu. Gangstéttarhell- ur litaðar og ólitaðar. Bjalli h. f., steiniðja, Hellu sími 99-5980 tilboö — útboö Tilboð óskast í að byggja 20 bílgeymsluundirstöður að Álfa- skeiði 90—92, Hafnarfirði. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu okkar, gegn 5000 kr. skila- tryggingu. Tilboðum sé skilað á sama stað eigi síðar, en laugardaginn 3. júlí 1976 kl. 14 e.h. Verkfræðiþjónusta JóhannsG. Bergþórssonar Strandgötu 1 1, Hafnarfirði sími 5331 5. húsnæöi öskast iiii Lögfræðiskrifstofa óskar að taka á leigu 60—100 fm skrifstofuhúsnæði í mið- bænum eða inn við Suðurlandsbraut. Frekari upplýsingar í símum 16482 og 82626. ÞARFTU AÐ KAUPA? ÆTLARÐU AÐ SELJA? ¥0 ÞL" ALGLYSIR L'M ALLT LAND ÞEG AR ÞU ALGLYSIR I MORGUNBLAÐINU Ingiríður Jónsdóttir Ljótshólum - Minning Fædd 15. júní, 1888. Dðin 23. júnf, 1976. Hver ævi og saga. hver. aldabil fer eina samleið. sem hrapandi slraumur. EilffAin sjálf. hún er alein til. Vor eigin tfmi er víllaog draumur. (Einar Ben.) Ingiríður í Ljótshólum er horf- in okkar sjónum, löngu jarðvistar- lífi er lokið en annað tekur við sem hvorki er bundið við tíma eða rúm. Þegar brestur hlekkur í þeirri keðju sem samferðafólkið myndar, er hollt að nema staðar, staldra við og líta yfir f arinn veg. Eg horfi til baka hljóður, og minningarnar streyma fram og birtast fyrir hugskotssjónum mín- um, líkt pins og mynd á tjaldi. Á þessum tímamótum er það minn- ingin um • Ingiríði í Ljótshólum sem mér verður efst í huga, og á þá minningu slær engum skugga. Umhyggja hennar í minn garð og minnar fjölskyldu var svo ótví- ræð, að slík vinátta skapar vega- nesti sem aldrei þrýtur og veitir birtu og yl yfir farinn veg, sem jafnframt lýsir langt fram á veg- inn til ókominna ára. Ingiríður var fædd í Ljótshól- um 15. júnf, 1888, dóttir hjónanna Jóns Jónssonar og Guðrúnar Erlendsdóttur, en þau voru þá nýflutt aó Ljótshólum frá Hamri i sömu sveit. Faðir hennar var af skagfirsk- um ættum, en móðir hennar Hún- vetningur og af þeirri ætt eru komnir margir stórmerkir Hún- vetningar. Snemma var höggvið skarð í ástvinahópinn, en þau skörð urðu mörg á fyrrihluta ævi hennar. Sjö ára gömul missti hún föður sinn, en hún var yngst í systrahópnum. Móðir hennar giftist aftur Guð- mundi Tómassyni úr sömu sveit, og hélt búskap áfram í Ljótshól- um. Ingiriður dvaldi hjá þeim til tvitugs aldurs, en það ár, 1908, giftist hún Eiríki Grímssyni frá Syðri-Reykjum í Biskupstungum. Þau hófu búskap á Hrafnabjörg- um og bjuggu þar i eitt ár, en seint á því ári dó Guðmundur stjúpi hennar og fluttu þau þá að Ljótshólum aftur og bjuggu þar alla sina búskapartíð. Guðrún móðir Ingiríðar var áfram í Ljótshólum, og andaðist hún 1917, 67 ára að aldri. Ljótshólahjónin eignuðust þrjá syni, elsta soninn Jónmund misstu þau af slysförum kornung- an og enginn þarf að efast um að þessi sorglegi sonarmissir hefur haft djúpstæð áhrif á líf Ingi- riðar, sem bjó yfir stóru og við- kvæmu geði. En aftur skein sól f heiði yfir Ljótshólaheimilinu, þau hjónin eignuðust tvo syni, sem báðir lifa móður sína og reyndust henni frá- bærlega góðir og umhyggjusamir, Jónmundur áðuf bóndi i Ljótshól- um en síðar á Áuðkúlu, nú skrif- stofumaður hjá Fasteignamati ríkisins hér í borg, kvæntur Þor- björgu systur minni frá Geit- hömrum og eiga þau þrju börn, tvö búsett á Auðkúlu, en eitt í Reykjavík. Grímur áður bóndi í Ljótshólum, nú vaktmaður í Stjórnarráðinu við Lækjartorg kvæntur Ástríði Sigurjónsdóttur frá Rútsstöðum og ejga þau tvö börn sem bæði eru'-búsett hér f Reykjavík. Arið 1928 tóku þau hjónin að sér Guðrúnu, uppeldisdóttur þeirra Valdísar systur Ingiríðar og Lárusar Stefánssonar frá Auð- kúlu. Valdís gekk þá ekki heil til skógar og andaðist árið eftir, 1929. Guðrún dvaldi svo í Ljótshólum öll sin uppvaxtarár og gengu Ljótshólahjónin henni i foreldra- stað. Guðrún er gift Þórði bónda á Grund og hafa þau hjónin bæði reynst Ingiríði góð og umhyggju- söm. Ég man eftir Ingiríði í hálfa öld þó fyrstu árin séu mér í barns- minni. Síðustu 29 árin eftir að ég flutti til Reykjavikur hittumst við sjaldnar en alltaf urðu fagnaðar- fundir þegar leiðir okkar lágu saman. Siðustu misserin var hún á sjúkradeild Héraðshælisins á Blönduósi og má með sanni segja að þann tíma hafi sálin verið jarð- bundin i veikburða llkama, sem nú hefur fengið hvild. Fyrstu kynni mín af Ljótshóla- heimilinu sem mér eru i fersku minni, eru frá því ég var 10 ára gamall, þá var barnaskólinn á Rútsstöðum, en mér var komið fyrir í Ljótshólum og gekk ég á milli bæjanna. Stutt er á milli bæja, en Svinadalsáin skilur á milli. Ég man vel fyrsta morguninn sem ég fór i skólann. Eirikur bóndi fylgdi mér austur yfir ána. Við gengum niður mýrina og ég trítlaði við hliðina á honum, nám- um staðar á árbakkanum að vest- anverðu beint undan Dagmála- hylnum, því hann var ísilagður. Við gengum yfir ána á vissum stað sem Eiríkur valdi og hann lagði á það rika áherslu, hvar ég ætti að fara yfir ána þegar ég kæmi til baka, seinnipart dagsins. Þetta var seint á útmánuðum, og vorísinn getur verið varasamur sérstaklega að kveldi, þótt hann geti verið öruggur eftir kaldsama nótt. Ég hljóp sfðan f einum spretti fram götuslóðana fyrir austan ána og beint heim að Rúts- stöðum, þar sem mér var vel tekið af skólasystkinum, Bjarna kennara og húsbændum þeim Guðrúnu og Sigurjóni. Þegar ég fór til baka gætti ég þess að fara eftir fyrirmælum húsbóndans, því að ég vissi að vökul augu heima i Ljótshólum fylgdust með því að ég færi nú yfir ána á réttum stað. Þegar ég kom heim á hlaðið tók húsfreyjan á móti mér, fór með mig inn i bæ og gaf mér góðan mat að borða. Oftar var mér komið fyrir í Ljótshólum og gekk ég í skólann þaðan, og alltaf var aðbúðin sú sama eins og ég væri í foreldra- húsum. Ljótshólaheimilið var orðlagt fyrir snyrtimennsku og þrifnað, og áttu þar báðir húsbændur hlut að máli. Gestrisni var í hávegum höfð og nutu hennar allir er þangað komu. Búskapur þeirra var farsæll en jörðin kostarýr að öðru leyti en þvi að landgæði voru ágæt þegar þeirra naut. Efni voru ekki mikil frekar en hjá mörgum öðrum á þeim tima, en þau bjuggu vel að sínu og nýtni og hagsýni lögðu hornstein að góðu gengi. Það er ekki mikið útsýni af Ljótshólahlaðinu, þvi bærinn stendur i skjóli hárra hóla. Ljóts- hóllinn að norðan, brattur og gró- inn að sunnanverðu en með kald- an og harðan yfirsvip og byrgir útsýni til norðurs. Langhóllinn að vestan sem nafnið lýsif, mildur á svip grænn og gróinn. Að austan er hálsinn allur grasi vafinn, víð- áttumikið og gott beitiland. Fremst í dalnum eru heiðarbýlin Hrafnabjörg og Gafl (Gafl er nú í eyði) og framar taka við hálsar og heiðalönd en hið efra gnæfir Svínadalsfjallið svipmikið og tignarlegt. 1 september 1932 verða þátta- skil á Ljótshólaheimilinu og enn vegur sigð dauðans í sama kné- runn og nú er það húsbóndinn sjálfur sem er lagður til hinstu hvílu. Ekki kom þó fráf all hans að óvörum, því hann gekk með sjúk- dóm sem talinn var ólæknanleg- ur. Eftir fráfall Eiriks hélt Ingiríð- ur áfram búskap með sonum sín- um sem enn voru á unglingsaldri. Árið 1952 fluttu þau Jónmúnd- ur og Þorbjörg frá Ljótshólum að Auðkúlu. Landnámið hafði þá fengið Auðkúlu til yfirráða og skipt höfuðbólinu í þrjú býli. Þau hjónin fengu eitt býlið til ábúðar og nú tók Ingiríóur þann kostinn að flytjast þangað með þeim. Eftir að systir min og mágur fluttu til Reykjavikur fyrir 9 árum siðan varð Ingiríður eftir hjá sonardótt- ur sinni, Halldóru, og manni hennar, Ásbirni Jóhannessyni, en þau höfðu hafið búskap á einu af Auðkúlubýlunum. Framhald á bls. 20

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.