Morgunblaðið - 02.07.1976, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. JULl 1976
35
Tvö glæsileg mörk Vikinga
dugðu ekki gegn Frömurum
FRAM krækti sér i bæði stigin ffrá
Víking í skemmtilegum leik liðanna á
Laugardalsvellinum í gærkvöldi, þar
sem barist var allt til siðustu minútu.
Allt gat skeð i þessum leik og ekki
hefði verið ósanngjarnt að liðin
hefðu skipt með sér stigunum, en
Fram hafði heppnina með sér og þvi
fór sem fór. Mörk Vikings í þessum
leik voru sérlega glæsileg, þó sér-
staklega mark Stefáns Halldórs-
TVÖ NÝ BOÐ-
SUNDSMET
TVÖ íslandsmet i boðsundum voru
sett i Laugardalslauginni i gær-
kvöldi. í 4x100 metra skriðsundi
kvenna setti sveit Ármanns nýtt
met, er sveitin synti á 4:39,4 eldra
metið var 4:40.3. í sveitinni voru
þær Birna Bergsdóttir Olqa Ágústs-
dóttir, Guðný Guðjónsdóttir og Bára
sonar, en tvö af mörkum Fram voru
ódýr.
Það var Rúnar Gíslason. sem skoraði
fyrsta mark leiksins á 7 minútu eftir
aukaspyrnu frá Eggert Diðrik náði ekki
til knattarins, sem barst fram í teiginn
til Rúnars og var hann ekki seinn á sér
að skora með hörkuskoti Fleiri mörk
voru ekki skoruð i fyrri hálfleik, en ekki
skorti tækifærin, því fyrri hálfleikur
Ólafsdóttir. Þessi sama sveit setti
einnig met á þessari vegalengd um
siðustu helgi, en það fékkst ekki
viðurkennt, þar sem stúlkurnar köst-
uðu sér út í laugina í fögnuði sínum
áður en siðasta sveitin var komin að
landi.
í 4x200 metra skriðsundi karla
setti sveit Ægis íslandsmet og bætti
þar með aðeins nokkurra daga gam-
alt eigið met. Synti sveitin á 8:42.7
minútum að þessu sinni, en sveitina
skipuðu þeir Hafliði Halldórsson, Ax-
el Alfreðsson, Bjarni Björnsson og
Sigurður Ólafsson.
einkenndist af hraða, baráttu og glöt-
uðum marktækifærum
Ekki voru liðnar nema 5 min. af
síðari hálfleik, er knötturinn hafnaði í
marki Vikinga öðru sinni Kristinn
Jörundsson komst í gott færi og skaut,
en Diðrik varði og missti knöttinn frá
sér og féll við Kristinn fékk hann aftur
og nú stóð hann einn fyrir opnu marki
og gat ekki annað en skorað
Víkingar svöruðu með góðri sókn og
á 63 min lék Óskar Tómasson upp
vinstra megin og gaf góða sendingu til
Jóhannesar Bárðarsonar. sem skoraði
með hörkuskoti óverjandi fyrir Árna
Stefánsson
Það lá i Ipftinu að Vikingar mundu
jafna, en á 72 mín. urðu þeim á
varnarmistök, sem kostuðu þá bæði
stigin. Helgi Helgason .ætlaði að skalla
knöttinn til Diðriks markvarðar, en
Rúnar Gislason fylgdi vel á eftir og
náði knettinum, lék á Diðrik og skoraði.
Víkingar höfðu ekki sagt sitt síðasta
orð, því á 76 min skoraði Stefán
Halldórsson eitt glæsilegasta mark,
sem lengi hefur sést. Fékk hann
knöttinn á vallarhelming Fram og lék
WALKER HNEKKTIMETIJAZY
BJARNI Stefánsson varS annar f
400 metra hlaupi á alþjóðlegu frjáls-
íþróttamóti sem hófst á Bislet-
leikvanginum í Ósló I fyrrakvöld.
Hljóp Bjarni á 49,1 sek. og var þvi
nokkuð frá sfnu bezta f ár. Sigurveg-
ari í hlaupinu varð Mike Solomon frá
Trinidad sem hljóp á 46,4 sek.
Fylgdust þeir Bjarni og hann vel að á
fyrri helmingi hlaupsins, en á sfðustu
100 metrunum varð Bjarni að gefa
verulega eftir. Þriðji f hlaupinu varð
Thor Smith frá Noregi sem hljóp á
49,9 sek.
í Bisletmótinu taka þátt fjolmargir
frjálsfþróttamenn víðs vegar að úr
heiminum. i keppninni f fyrrakvöld
bar hæst 2000 metra hlaup Ný-
Sjálendingsins John Walker, sem
setti nýtt heimsmet með þvf að
hlaupa á 4:51,4 mín. Gamla metið
átti Frakkinn Michel Jazy og var það
4:56,2 mfn., sett árið 1 966.
í hlaupinu í fyrrakvöld fékk Walk-
er dyggilega aðstoð frá nokkrum
hlaupurum, sem héldu uppi hæfileg-
um hraða fyrir hann. Fjölmargir
áhorfendur hvöttu Walker ákaflega
er hilla tók undir heimsmetið hjá
honum, og að því settu var honum
fagnað innilega. Millitfmi Walkers á
1500 metrana í methlaupinu var
3:58,5 mín.
Það vantar ekki einbeitnina f svip þeirra Óskars Tómassonar og Jóns
Péturssonar á þessari mynd sem RAX tók f leik Fram og Víkings f gærkvöldi.
að markinu og skaut af um 30 m færi
og hafnaði knötturinn e*st i markhorn-
inu.
Enn gerðu Vikingar örvæntingbrfulla
tilraun til að jafna, en Framarar létu
ékki bilbug á sér finna og vörðust
öllum sóknarlotum og meira en það,
þvi þeir skoruðu rétt fyrir leikslok, en
markið var dæmt af vegna rangstöðu.
Hdan
LIÐ FRAM: Arni Stefánsson 4, Ágúst Guðmundsson 2, Trausti
Haraldsson 2, Gunnar Guðmundsson 2, Marteinn Geirsson 3,Jón
Pétursson 3, Eggert Steingrimsson 2, Kristinn Jörundsson 2,
Asgeir Ellasson 3, Rúnar Gfslason 3, Pétur Ormslev 3.
LIÐ VÍKINGS: Diðrik Ólafsson 2, Ragnar Gfslason 2, Magnús
Þorvaldsson 3, Róbert Agnarsson 3, Helgi Helgason 1, Adolf
Guðmundsson 2, Gunnlaugur Krisfinnsson 2, Stefán Halldórsson
3, Jóhannes Bárðarson 3, Óskar Tómasson 3, Eirfkur Þorsteinsson
2.
Dómari: Guðmundur Haraldsson 3.
Vinnuvélarslys í
Gnúpverjahreppi
og í Grímsnesi
ALVARLEGT slys varð að Hlfð í
Gnúpverjahreppi f gær er 16 ára
piltur varð undir dráttarvél. Var
hann fluttur á slysavarðstofuna f
Reykjavfk, en mun ekki vera tal-
inn f Iffshættu. I fyrradag varð
vinnuslys að Hæðarenda f Grfms-
nesi, er 17 ára piltur varð á milli
palls og kjálka á sturtuvagni.
Hann var einnig fluttur á slysa-
varðstofuna, en mun ekki vera f
Iffshættu.
LEIÐRETTING
ÞAR SEM ekki var alls kostar rétt
haft eftir ráðuneytisstjóranum i
Félagsmálaráðuneytinu í frétt í
blaðinu í gær varðandi greiðslu
kostnaðar við viðgerð á skemmd-
um þeim sem hlutust af völdum
jarðskjálftanna á siðasta vetri á
hafnarmannvirkjum og vatnsveit-
unni á Kópaskeri skal fréttin hér
með leiðrétt. Sagt var í blaðinu að
Hafnabótasjóður myndi greiða
viðgerðir á höfninni og bjargráða-
sjóður á vatnsveitunni. Hið rétta
er að ráðuneytisstjórinn skýrði
blaðamanni Mbl. frá því, að heim-
ild væri i gildandi hafnalögum til
að styrkja endurbætur á hafnar-
mannvirkjum, sem skemmzt hafa
af völdum náttúruhamfara án
mótframlags hafnarsjóðs staðar-
ins. Þess vegna hefði nefnd sú
sem falið var m.a. að kanna um-
rætt tjón og gera tillögur um úr-
bætur og útvegun fjár til viðgerð-
arinnar lagt til að leitað yrði til
Hafnabótasjóðs og hann beðinn
að veita styrk til þessarar viðgerð-
ar. Varðandi viðgerð á vatnsveitu
Kópaskers lagði nefndin til að
leitað yrði eftir fjárhagsaðstoð
vegna viðgerðakostnaðar hjá
Bjargráðasjóði og félagsmála-
ráðuneytinu með vísun til laga nr.
93, 1947 um aðstoð til vatnsveitna
og lægi beiðni um þessa aðstoð
fyrir hjá þessum aðiljum.
LEIÐRÉTTING
Mishermt var í blaðinu i gær að
Hörður Bjarnason væri formaður
Þingvallanefndar. Hið rétta er, að
Hörður er framkvæmdastjóri
nefndarinnar.
— Farþegar
Framhald af bls. 36
samlega úreltur og að hann skildi
ekki hvernig stjórnvöld ætluðust
til að hægt væri að vinna eftir
honum nú 12 árum síðar.
Varðandi síðustu ráðstöfun
gjaldeyrisyfirvalda sagði Steinn,
að hún kæmi harðast niður á þeim
aðilum, sem verið hefðu að reyna
að selja ferðir um Kaupmanna-
höfn, og það væri þá fyrst og
fremst Ferðaskrifstofan Utsýn,
sem verið hefði nánast eini aðil-
inn hér á landi sem lagt hefði
áherzlu á slíka þjónustu nú um
skeið.
Steinn sagði hins vegar, að eftir
sem áður gæti ferðamaður gengið
inn á ferðaskrifstofu eða af-
greiðslu flugfélaga og keypt far-
seðil hvert sem viðkomandi vildi
fara, hvenær sem væri og hversu
lengi sem hann vildi vera — og
greitt hann í íslenzkum krónum,
svo fremi að um áætlunarferðir
væri að ræða.
Steinn Lárusson sagði enn-
fremur, að hafnar væru viðræður
milli forráðamanna ferðaskrif-
stofanna og gjaldeyrisyfirvalda.
Sagði Steinn, að Félag íslenzkra
ferðaskrifstofa g'erði sér vonir um
— eftir þær byrjunarviðræður
sem átt hefðu sér stað að undan-
förnu — að um einhverja rýmkun
á gjaldeyrisreglum yrði að ræða
mjög bráðlega.
Steinn vildi ekki tjá sig um það,
f hverju þessi rýmkun kynni að
vera fólgin, en Morgunblaðið
hefur fregnað að forráðamenn
ferðaskrifstofanna telji að m.a.
eigi að vera unnt að kóma i kring
kynnisferðum i sólarlanda-
ferðum, sem greiddar verði í
íslenzkum krónum, án þess að það
hafi í för með sér aukna gjald-
eyrisyfirfærslu til ferðaskrif-
stofanna, þar eð þær hafi hingað
til ekki getað fullnýtt leyfilegan
hámarksskammt sinn vegna
þessara ferða, eins og fram-
kvæmd gjaldeyrisreglanna hefur
verið háttað.
— Deilur
Framhald af bls. 36
mýrar, en hafa nú verið
þurrkaðar upp.
Enginn þeirra er þarna voru
mættir gat frætt fréttamann
Morgunblaðsins á því hvort ein-
hverjir sögulegir atburðir hefðu
gerzt á þessum stað, en flestir
hölluðust að því að þarna hefði
verið útivistarsvæði munkanna á
sinum tima. Ruslahaug gat að lita
skammt sunnan kirkjugarðsins og
eru þeir staðnum engin prýði.
Forsaga þessa máls er sú að
nýlega ritaði sóknarnefnd Möðru-
vallaprestakalls dóms- og kirkju-
málaráðuneytinu og mótmælti
væntanlegu malarnámi í landi
Möðruvalla á þeim forsendum að
það raskaði útliti staðarins. Um
svipað leyti ritaði svo sóknar-
prestur staðarins, séra Þórhallur
Höskuldsson, Náttúruverndar-
nefnd Eyjafjarðar og óskaði
stuðnings hennar til hindrunar
óbætanlegum spjöllum, sem
Vegagerðin mundi vinna staðnum
með væntanlegri malartöku.
Yfirverkfræðingur Vegagerðar-
innar, Snæbjörn Jónasson, sagði
það m.a. vera sparnaðarsjónarmið
að taka fremur möl í landi ríkis-
jarðar en kaupa hana af bændum.
Þá taldi hann möl í Möðruvalla-
melum betra efni til ofaníburðar
en völ væri á annars staðar.
Laugaland á Þelamörk er i eigu
Legatsjóðs og á það hefur verið
bent að þar geti Vegagerðin feng-
ið möl fyrir lítið eða ekkert verð.
Þá má nefna að hundruð malar-
hóla er að finna vitt og breitt i
Möðruvallasókn, Kræklingahlíð
ög Hörgárdal.
Vegagerðinni er margt betur til
lista lagt en snyrtimennska þar
sem þeir taka möl og annað efni,
og þeirra hiuta vegna er afstaða
Möðruvallamanna vel skiljanleg
þegar Vegagerðin er komin upp
undir kirkjuvegg hjá þeim.
Náttúruverndarnefnd sat á
fundi er blaðið fór i prentun í
gærkvöldi og afstaða hennar lá
því ekki fyrir.
—St. Eir.
— Hækkanir
Framhald af bls. 36
brauð hækkar úr 96 kr. í 110 kr.,
eða um 14% og vínarbrauð hækka
úr 18 krónum I 20, eða um 11%.
Vínarpylsur hækka úr 590
krónum kg. í 702 krónur og er það
19% hækkun. Kindabjúgu úr 652
krónum í 756 krónur, eða um
16%. Eins og áður sagði eru regl-
ur frá 1. júní um merkingu og
pökkun drjúgur þáttur í hækkun
þessara vörutegunda. Kjötfars
hækkar úr 357 krónum kg i 396
krónur (11%) og kindakæfa úr
915 kr. í 1015 kr. (11%).
Að sögn Georgs Ölafssonar
verðlagsstjóra liggja fyrir beiðnir
um hækkanir á fleiri vörutegund-
um og verður ákvörðun um verð
þeirra væntanlega tekin á þriðju-
daginn.
— Prestastefna
Framhald af bls. 2
2. Nefndin vill opna leikmönn-
um möguleika á vaxandi þátttöku
í starfi kirkjunnar og ákvörðunar-
tekt um málefni hennar. í því
sambandi er t.d. gert ráð fyrir að
stofna sérstaka leikmannastefnu
hliðstæða prestastefnu.
3. Nefndin hefur i tillögum sin-
um tekið tillit til núverandi efna-
hagsástands íslenzku þjóðarinnar
og reynt að gæta þess að breyting-
ar, sem lagt er til að géra^verði
ekki til útgjaldaauka.
í tillögum nefndarinnar er
einnig að finna drög að nýjum
lögum um prestsembættið,
prófastsembættið og biskups-
embættið. Miðað er við sóknina
sem grundvallarstærð innan
kirkjunnar og gengið að mestu út
frá núverandi sóknarskipan.
Prófastsdæmið verði hins vegar
meginstarfsheildin, þar sem kom-
ið verði á auknu samstarfi presta
og annarra starfsmanna prófasts-
dæmisins um lausn sameiginlegra
máiefna þess. Þetta starf verði
skipulagt af kirkjunni sjálfri. Þá
er lagt til að vígslubiskupum
verði fengin aukin störf innan
kirkjunnar og umsjón eigin
biskupsdæma.
Skipun nefndarinnar sýnir að
kirkjan gerir ljósa grein fyrir
nauðsyn þess að laga starfshætt-
ina að nýjum aðstæðum og breytt-
um þörfum samtimans, svipað og
raun hefur á orðið í ýmsum öðr-
um sviðum þjóðlifsins, svo sem í
mennta- og heilbrigðismálum.
Það er von nefndarinnar að starf
hennar megi hjálpa kirkjunni til
að mæta þörfum íslenzku þjóðar-
innar og inna af hendi þjónustu-
hlutverk sitt í þágu fagnaðarer-
indisins.
— Vinsamlegar
Framhald af bls. 36
hinar vinsamlegustu og fuiltrúar
Mikla norræna hefðu virzt opnir
fyrir sjónarmiðum islenzku
nefndarinnar. Að öðru leyti væri
of snemmt að segja nokkuð um
niðurstöður af'viðræðunum.
— Næg loðna
Framhald af bls. 2
góðum loðnutorfum en þær stæðu
nokkuð djúpt, fæstar fyrir ofan
50 metra. I sýnishornum sem
tekin hafa verið hafa bæði komið
fram 3ja ára loðna, — um 13 sm.
að meðallengd, og 4ra ára loðna,
um 15 sm. að meðallengt, og kvað
Hjálmar þar vera mjög fallega
loðnu.
Eins og fyrr segir hefur fram til
þessa gengið erfiðlega að ná
loðnunni, en Hjálmar taldi ekki
ólíklegt að það færi að batna nú á
næstunni.