Morgunblaðið - 21.07.1976, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. JULÍ 1976
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Aðalstræti 6. simi 10100
Aðalstræti 6, sími 22480.
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthlas Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
Ámi Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla
Auglýsingar
Áskriftargjald 1000.00 kr. é ménuði innanlands.
í lausasölu 50,00 kr. eintakið.
r
Itíð tveggja vinstri
stjórna var tíörætt um
jafnrétti kvenna og karla
og nauðsyn löggjafar i því
efni. Þá var þó látið sitja
við orðin tóm. Það var ekki
fyrr en í ágústmánuði 1975
aó Gunnar Thoroddsen fé-
lagsmálaráðherra fól þeim
Hallgrími Dalberg ráðu-
neytisstjóra og Guðrúnu
Erlendsdóttur hæstarrétt-
arlögmanni að semja frum-
varp til laga um þetta efni.
Það frumvarp var lagt fyr-
ir síðasta þing og afgreitt,
lítið breytt, sem lög frá Al-
þingi, 18. maí 1976. Þessi
lagasetning var sögulegur
atburóur í réttindabaráttu
kvenna, sem oft á eftir að
veröa vitnað til, þótt jafn-
rétti í reynd vinnist ekki að
fullu og öllu fyrr en með
breyttu viðhorfi og ríkari
réttlætiskennd alls al-
mennings í landinu, ekki
sízt stjórnenda í atvinnulífi
og opinberum stofnunum
og forystu launþegasam-
taka. Það tekur áreiðan-
lega sinn tíma að þróa viö-
horf og breytni samfélags-
afla að því marki, sem um-
rædd löggjöf stefnir að, en
það má flýta þeirri þróun
með eðlilegum umræðum i
fjölmiðlum.
Samkvæmt hinum nýju
lögum skulu konur og karl-
ar hafa jafna möguleika til
atvinnu og menntunar og
fá greidd jöfn laun fyrir
jafnverðmæt störf. At-
vinnurekendum skal
óheimilt að mismuna
starfsfólki eftir kynferði,
og gildir þaö m.a. um ráðn-
ingu og skipun, i starf,
stöðuhækkun, stöðuheiti,
uppsögn úr starfi, veitingu
hvers konar hlunninda og
almenn vinnuskilyrði, sem
og til stafsþjálfunar eða til
að sækja námskeið, sem
haldin eru til að auka
hæfni í starfi eða til undir-
búnings annarra starfa.
Sérstakt jafnréttisráð
skal annast framkvæmd
þessara jafnréttislaga og
hefur það þegar verið skip-
að. Hæstiréttur skipar for-
mann ráðsins en aðrir ráðs-
menn eru skipaðir af eftir-
töldum aðilum: Alþýðu-
sambandi íslands, Vinnu-
veitendasambandi Islands,
Bandalagi starfsmanna rík-
is og bæja og félagsmála-
ráðuneyti. Auk þess að sjá
um að ákvæðum jafnréttis-
laga sé framfylgt skal það
vera ráðgefandi stjórn-
völdum, stofnunum og fé-
lögum í málefnum, er
varða jafnrétti með konum
og körlum í kjaramálum og
við ráðningu eða skipun til
starfs; fylgjast með þjóðfé-
lagsþróun, sem varðar
þetta lagaefni, og gera til-
lögur til breytinga til sam-
ræmis við tilgang laganna.
Ennfremur að stuðla að
góðri samvinnu við samtök
atvinnurekenda og laun-
þega um þetta efni; taka til
rannsóknar af sjálfsdáð-
um, hver brögð kunni að
vera að misrétti í jafnrétt-
ismálum, að þvi er lög þessi
varóar. Og síðast en ekki
sízt að taka við ábending-
um um brot á ákvæðum
laganna og rannsaka slík
mál. í því sambandi getur
ráðið, ef aðfinnslum þess
er ekki sinnt, hafið mál i
umboði aðila, sem það telur
að réttur hafi verið brotinn
á, til að ná fram leiðrétt-
ingu í hans þágu.
Ýms ákvæði þessara laga
kunna að orka tvimælis,
eins og oft vill verða um
löggjöf á nýjum vettvangi
þar sem tiltæk reynsla er
ekki fyrir hendi. Það kann
því að þurfa að taka þessa
löggjöf til endurskoðunar
að liðnum hæfilegum
reynslutíma og í ljósi þá
tiltæks lærdóms af fram-
kvæmdinni. Það sem skipt-
ir þó mestu máli er, að með
þessari löggjöf er ísinn
brotinn að jafnrétti í
reynd, sem svo lengi hefur
verið talað um, en nú loks-
ins gert eitthvað raunhæft
í.
Morgunblaðið birti
sunnudaginn 10. júlí at-
hyglisverð viðtöl við fólk á
ýmsum vinnustöðum í
borginni. Flest af þessu
fólki staóhæfði, að þótt
konur og karlar ættu að
lögum að búa við sama rétt
til menntunar, atvinnu og
launa, vityist skorta nokk-
uö á, að þann veg væri það
í raun. Kæmi þetta m.a.
fram í umframgreiðslum
til viðbótar umsömdum
launum í kjarasamningum
við stéttarfélög, sem og
mismunandi starfsheitum,
þó að um sömu eða lík störf
væri að ræða. Að hluta til
væri þó orsökin meiri hlé-
drægni kvenna en karla,
bæði að því er varðar
menntunar- og starfs-
frama, þegar á heildina er
litið. í þessu efni þarf, eins
og fyrr segir, almennings-
viðhorf að breytast, svo
markmið jafnréttislaganna
náist fyrr og betur. Hver
er t.d. hlutur kvenna í for-
ystu launþegasamtaka,
bæði einstakra félaga og
heildarsamtaka, hvort
heldur sem er innan
Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja eða Alþýðu-
sambands íslands? Rikir
máske fastheldni á forna
karlhefð í sjálfum laun-
þegasamtökunum? Og ef
svo er, þarf þá ekki að stíga
þar fyrstu skrefin?
Ef litið er til stjórnmála-
flokka, sveitarstjórna, eða
Alþingis, blasir við svipuð
mynd. Konur eru þar örfá-
ar i forystusveit miðað við
karla. Hér má einnig stíga
nokkur skref í átt að settu
marki. En athyglisvert er
það, og máske lærdómsríkt,
að i Sjálfstæðisflokknum,
sem sumir kenna þó vió
íhald, hafa mun fleiri kon-
ur skipað sæti fulltrúa i
sveitarstjórnum og á Al-
þingi á undanförnum árum
og áratugum en nokkrum
öðrum íslenzkum stjórn-
málaflokki. Einn af forset-
um Alþingis er kona úr
röðum sjálfstæðisþing-
manna. Og það segir og
sína sögu að það var ráð-
herra Sjálfstæðisflokksins
sem lét semja frumvarp að
lögum um jafnrétti kvenna
og karla og fékk það sam-
þykkt á löggjafarþingi
þjóðarinnar.
Jafnrétti kvenna og karla
Rockefeller spá-
ir sigri Fords
Washington, 20. júlí. NTB.
NELSON Rockefeller
varaforseti Bandaríkj-
anna hefur lýst því yfir
að hann ætli að hætta
afskiptum af stjórnmál-
um á næsta ári.
Rockefeller hélt blaða-
mannafund i borginni
Wilmington í Delware í
gær, og sagði þar meðal
annars að eftir að næsti
forseti Bandaríkjanna
sver embættiseið í janú-
ar næsta ár, ætlaði hann
að setjast í helgan stein,
hlusta á útvarp, horfa á
sjónvarp og lesa. „En ég
læt frá mér heyra þegar
ég tel ástæðu til,“ bætti
hann við.
Rockefeller taldi að
Gerald Ford forseti yrði
tilnefndur forsetaefni
republikana á flokks-
þinginu i Kansas City í
ágúst, og að hann sigraði
Jimmy Carter frambjóð-
anda demókrata i kosn-
ingunum í nóvember.
Ford veróur sterkur
frambjóðandi, sagði
Rockefeller, meðal ann-
ars vegna þess að hann
getur sýnt fram á góðan
árangur efnahagsstefnu
sinnar. Bandaríkin og
Vestur-Þýzkaland hafa
hægt en örugglega krafl-
að sig upp úr bylgjudal
efnahagsmálanna, þótt
fáir hafi gert sér vonir
um að það yrði unnt.
Mega Bandaríkjamenn
vera hreyknir af því,
sagði varaforsetinn.
Viðbúnað-
ur í S-
Afríku
Jóhannesarborfí,
20. júlí — Reuter.
KENNSLA hófst á ný i dag, i
barnaskólum Suður-Afriku, og
hafði lögreglan mikinn viðbún-
að af ótta við ný uppþot á borð
við óeirðirnar í bænum Soweto
í fyrra mánuði, þar sem 176
manns biðu bana.
Víðast hvar var allt með kyrr-
um kjörum, en þó kom til
óeirða i blökkumannabænum
Mhluzi, um 100 kílómetrum fyr-
ir vestan Jóhannesarborg eftir
að skólabörn fóru í hópgöngu
og grýttu bifreiðar. Var sex
skólum bæjarins þegar lokað,
og lögreglan lokaði einnig öll-
um umferðaræðum til bæjar-
ins.
Þótt kyrrt væri i flestum öðr-
um byggðarlögum blökku-
manna, var lögreglan vel vopn-
um búin og á verði, sérstaklega
i Soweto þar sem rikisstjórnin
hefur neitað að opna skólana á
ný.
ísraelskt eldflaugaskip á siglingu nálægt Haifa. Nýlega var því lýst yfir í ísrael, að
sex önnur eldflaugaskip væru nú í smíðum í landinu.
Manntjón og eyðilegging
vegna flóða í Mexíkó
Mexíkóborg,
20. júlí. AP.
MESTA úrkoma í manna
minnum hefur valdið
mannskæðum flóðum í
Mexíkó og gífurlegum
skemmdum. Að minnsta
kosti 120 manns hafa far-
izt i flóðunum, og 50 er
saknað, en um 200 þús-
und manns hafa misst
heimili sín. Þúsundir bú-
penings hafa drukknað,
og vegum, brúm, járn-
brautum og uppskeru
hefur skolað burt.
Flóðin eru nú í rénun, og
björgunarstarf hafið. Yfirvöld
segja að vatnsborð Panuco ár-
innar, sem er mesta fljót norð-
austurhéraða landsins, hafi
lækkað verulega eftir að það
náði hámarki á mánudag, en þá
var vatnsborðið 8,3 metrum
hærra en eðlilegt er.
Verst úti urðu miðhéruð
landsins, og sérstaklega lág-
lendið á austurströndinni, þar
sem ræktuð eru jarðarber til
útflutnings. Segja landbúnað-
aryfirvöld að þar hafi um 5,7
milljón hektara ræktunarlands'
skemmst eða eyðilagzt.
Orkoman stóð í tæpan hálfan
mánuð, og stytti upp nú um
helgina.