Morgunblaðið - 21.07.1976, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 21.07.1976, Blaðsíða 17
MORC.UNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAC.UR 21. JULI 1976 17 Oskar Pétursson —Minningarorð F. 21. september 1900. D. 12. júlí 1976. I dag er gerð frá Fossvogs- kirkju útför Oskars Péturssonar að Hátúni 10 I) hér í borg, en hann andaðist snögglega 12. júli stadd- ur á ferðalagi norður i landi. Er mér skylt að kveðja hann nokkr- uni orðum að leiðarlokum. Óskar Pétursson var Snæfell- ingur að ætt og fæddist i Hross- holti í Eyjahreppi 21. september aldamótaárið. Ólst hann þar upp í stórum systkinahópi og tók við húi í Hrossholti eftir föður sinn. Bjó Óskar þar til 1960. er hann fluttist til Reykjavíkur. Vann hann eftir það við byggingar- vinnu í höfuðstaðnum og hjá skipafélaginu Jöklum um hríð. I.agði hann meðal annars hönd að byggingu hússins að Norðurbrún 1 og hafði þar lyklavörzlu, meöan á smíði þess stóð. Heima í sveit sinni hafði Oskar verið oddviti og haft ýmsa aðra forustu á hendi. Hann var hagur vel og snyrti- menni. Léku því flest störf í hönd- unt hans. Oskar kvæntist aldrei og eign- aðist ekki börn, en honunt veittist sú hamingja að kynnast ágætri konu, Sesselju Björnsdóttur úr Reykjavík. Bjuggu þau santan hálfan annan áratug, og var sam- búð þeirra eins og bezt verður á kosið, enda Sesselja bæði traust og góð. Voru þau Óskar og Sess- elja sambýlisfólk mitt að Austur- brún 2 i mörg ár. Get ég því unt það borið hversu frábært var til þoirra að leita og með þeim að vera. Glöggt sannaðist og góðvild þeirra og hjálpsemi á atlæti við gamla einstæða konu, Margréti Halldórsdóttur fyrrum hjúkrun- arkonu. sem nú er háöldruð. Önn- uðust þau hana lengi af mikilli og fagurri umhyggju. Sjálf á ég Ösk- ari og Sesselju ógleymanlegar samverustundir að þakka. Óskar Pétursspn var maður glaður og hress í bragði, gjarnan var hann með gamanyrði á vör- um. Sá hann alltaf bjartari hliðar tilverunnar og hafði næmst auga fyrir öllu skemmtilegu og bros- legu. Er sannkiilluð unun að hafa verið samferða á lífsleiðinni sliku fólki sem Óskari og Sesselju. Þau Óskar og Sesselja ferðuð- ust rnikið innanlands og utan og voru einmitt stödd í skemmtiför norðanlands, er hann veiktist. Var Óskar fluttur á sjúkrahús á Hvammstanga og andaðist þar á björtum júlímorgni. Ðannig hélt hann áfrarn í ferð, sem enginn á afturkvæmt úr. Eg bið Öskari Péturssyni guðs- blessunar í nýrri tilverU, og þér, Sesselja mín, votta ég samúð, svo og ættingjum. Ólöf Jönsdóttir. Þegar okkur berst sú fregn að vinir okkar.hafi kvatt þennan heim skyndilega, verður okkur svarafátt í bili. Svo var með ntig er ég frétti að góður vinur niinn, Óskar Pétursson frá Hrossholti. hefði látizt á sjúkrahúsi á Hvammstanga. Hann veiktist snögglega er hann var á ferðalagi, svokallaðri hringferð, ásamt vin- konu sinni er hann bjó með hér í Reykjavík. Eftir ósk hans vildi hann að hún héldi ferðinni áfram. þar sem hann taldi sér rnundi batna fljótlega. Síðan var ferðinni haldið áfrant. þar til að morgni 12. júlí. Hringdi hún strax á sjúkra- húsið að vita um líöan hans, enda búin að gera það oftar i ferðinni. Henni var sagt að honuni liði vel og væri farinn að ganga um og hann gæti komiö sjálfur og talað við hana. Síðan beið hún nokkra stund þá kentur læknir i símann og segir henni þau sorgártíðindi. að hann sé dáinn. hafi hnigið nið- ur á leiðinni í sírnann. Var þetta ntikið áfall fyrir vinkonu hans. er taldi hann úr allri hættu. — Öskar var með kransæðastíflu og búinn að hafa þennan sjúkdóm nokkurn tirna. Við Óskar vorum búnir að vera nágrannar frá þvi við vorum ung- ir drengir. Skammt var á milli heimila okkar, Stórahrauns og Hrossholts, og rnikill samgangur á milli bæjanna Þar ólumst við upp, umkringdir hinurn fagra snæfellska fjaliahring. er blasir við til allra átta. Öskar var prúömenni og atorku- maður með afbrigöum. enda har Hrossholtsheimilið vitni um það. Eftir að hann tók við jörðinni eftir foreldra sína hyggði hann íbúðarhús og öll önnur hús, ásamt mikilli ræktun. öskar var ágætur smiður þó ekki hefði hann tekið próf í þeirri iðn. Var hann oft við smíðar, eftir því sem tími gafst til frá heimilisstörfum. Foreldrar hans. Rósa Markús- dóttir og Pétur Þormóðsson. hjuggu í Hrossholti mestan sinn búskap með barnahóp sinn. tvo syni og sex dætur. Nú eru fjögur dáinn af þessum efnilega syst- kinahópi. — Ef þrátt fyrir stóran barnahóp var alltaf sama snyrti- ntennskan er einkenndi Hross- holtsheimilið. hvort heldur var úti eða inni. Ég minnist þess frá bernsku ntinni og alla tíð, hvað allt var fágað og prýtt i gantla bænurn hjá Rósu í Hrossholti. börnin hrein og svo vel upp færð, að það var til fyrirmyndar þrátt fyrir lítil efni. Það gefur auga leið, að þaö þurfti sparnað og uni- hyggju aö konia þessum barnahóp upp, því þá var nú ekki um neina hjálp aö tala. hvorki barnanteðlög eða aðra fyrirgreiöslu, og iill urðu þessi börn, er aldur færðist yfir þau, góðir þjóðfélagsþegnar. Eftir að faöir Óskars dó. tók hann við búforráöum með móður sinni og systrum, og eftir að hún dó bjó hann nteð systrum sfnum. En jafnmikill hæfileikamaður og Öskar var á flestum sviðurn kommst hann ekki hjá því að vera framámaöur í sinni sveit. Hann var i ýmsum nefndum. og oddviti Eyjahrepps var hann þar til hann hætti búskap og fluttist til Reykjavíkur 1960. Systur hans voru þá á förunt. og giftar suntar; vildi hann því ekki halda áfram búskap og seldi því jiirðina og bústofninn og keypti sér íbúð í Reykjavfk. — Stuttu eftir að hann kom til Reykjavíkur fór til hans ekkja. Sesselja B-jörnsdóttir, og hjuggu þau saman þar til hann féll frá. Hann taldi það mikla hamingju fyrir sig að hal'a kynnzt þessari konu. þó hann væri kom- inn nokktlð til aldurs, enda hel'ur hún einnig sagt mér það. að hún hafi vart kynnzt hetri manni en Öskari. Var því samhúð þeirra hin áhægjulegasta. Oskar kom til okkar hjóna þrent vikum áður en hann dó. og sagði okkur frá hinu fyrirhugaöa ferða- lagi. Eg taldi hann heldur af því að fara; ég vissi að hann gekk ekki heill til skógar. En Oskar vikli litið tala um sjúkleika sinn og svaraöi því til að eitt sinn skyldi hver deyja. Svo var ekki samtalið lengra um þetta efni. — Eg veit að Oskar er syrgður af miirgum og ekki sízt af eldri kyn- slöðinni. og erum við hjón í þeim hópi. Oskar verður iillunt minnis- stæður. er þekktu hann — þessi ntikli áhugi. bæði gagnvart vinnu- afköstum. þjóömálum og iillu er máli skipti. gagnvart lífinu sjálfu. Hann var með afbrigöum bóngóð- ur. vjldi allt fyrir alla gera. þótti sjálfsiigð skylda að hjálpa náung- anum. Ef reiknaðar væru allar þær vinnustundir. er hann vann l'yrir aðra, væru það margar og í krónutali stör upphæð. En nú fer hann að taka við rentunum al’ góðgerðarsemi sinni handan við móðuna miklu. Eg ætla ekki að skrifa langt ntál eftir Óskar. ég býst við hann kærði sig ekkert um það, var ekki þannig maður. Eg og fjiilskylda mín iill munum minnast hins góða nágranna í Hrossholti. og þiikkum allar ánægjustundir er við áttum með honum. Systkinum og öðrum aðstandendum hans vottum við innilegustu samúð okkar. Blessuð sé minning hans. Þórarinn Arnason frá Stórahraum. t Utför eigmmanns mins BERGÞÓRS GUÐMUNDSSONAR, Eystra Súlunesi, fer fram frá Leirárkirkju, laugardaginn 24 júli kl 14 Blóm og kransar vinsanilega afþökkuð Vilborg Helgadóttir. + Þokkum mmlega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför konu mmnar og systur okkar ODDBJARGAR SÆMUNDSDÓTTUR Ingunn Sæmundsdóttir v Steinunn Sæmundsdóttir + Þökkum auðsýnda samúð og vmarhug við andlát og jarðarför, GUÐMUNDAR JÓNASSONAR, garðyrkjumanns. frá Blonduósi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Elliheimilanna i Hveragerði og Grund Börnin og aðrir aðstandendur. + Hjartans þakkir fynr samúð og hlutteknmgu viðfráfall og útfor GUÐJÓNS ATLAARNASONAR Sólveig Ólafsdóttir Arsól M Árnadóttir Bjorn Sigurðsson Drífa H. Arnadóttir Roy Seiwell og börn þeirra + Þokkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útfor MARGRÉTAR ÖLVERSDÓTTUR Sólvallagotu 29 Keflavík. Vandamenn. + V.ð þokkum mnilega auðsýnda samúð og vináttu við útfór ÁSLAUGAR MÖRTU SIGURÐARDÓTTUR hjúkrunarkonu frá Merkisteini, Vestmannaeyjum Kristín Sigurðardóttir Rósa Sigurðardóttir, Ingi Sigurðsson, Agnes Sigurðsson, Valgeir Guðmundsson, Bryndís Jónsdóttir og systkinabörn. + Innilegt þakklæti færuni við ullum sem auðsýndu okkur samúð við fráfall og útför móður okkar, tengdamóður og ömniu JÓNÍNU GUÐMUNDSDÓTTUR GuSmundur Magnússon, Kristin Magnúsdóttir, Sigriður Magnúsdóttir. Margrét Magnúsdóttir, Þorsteinn Jónsson. Pálina Pálsdóttir. Jón Þorsteinsson, Haraldur Magnússon, Guðrún Lárusdóttir. + Inmlegt þakklæti færum við öllum þeim sem auðsýndu okkur samúð við fráfall og útför móður okkar, tengdamóður. fósturmóður og ömmu LILJU HALLDÓRSDOTTUR MELSTED, Nesveg 67. Fyrir fiönd barnabarna og annara ættmgja. Þórný Axelsdóttir, Konráð Ragnarsson, Birna Axelsdóttir, Guðmundur Gíslason • + Þokkum auðsýnda samúð vegna + + andláts og útfarar Maðunnn niinn, faðir okkar. tengdafaðir og afi Þokkum inmlega auðsýnda samúð og vmarhug við andlát og útför GUÐNYJAR EINAR Norðfjörð. eigmmanns mins. foður. fósturföður. tengdaföður, afa og langafa BERGÞÓRSDÓTTIR byggingameistari. DANÍELS ÓLAFSSONAR Sérstakar þakkir tii deildar 3 c á Háaleitisbraut 1 7, frá Tröllatungu. Landspitalanum og kvenfélags verður jarðsunginn frá Keflavikufkirkju fimmtudaginn 22 júli, kl. 2 Eyrarbakka e.h. Ragnheiður J. Árnadóttir Aðalsteinn Sigurjónsson, Blóm eru vinsamlega afþökkuð en þeim. er vilja minnast hins látna, er Jón Guðni Daníelsson Svanhildur Kjartans ísak ísaksson. bent á liknarstofnanir Þórir Danielsson María Jóhannesdóttir Sunneva Jónsdóttir, Sólveig Guðmundsdóttir Árni Daníelsson Helga Rósmundsdóttir Guðmundur Lárusson, Einar G. Norðfjörð Kristín Þórðardóttir Stefán Danielsson Hulda Þorvaldsdóttir Hrefna Pétursdóttir. Guðrún Norðfjörð Steinar Árnason Kristrún Danielsdóttir Ingimundur Guðmundsson Ástdís Bergþórsdóttir, Sigurbjörg Norðfjörð Þorgeir Valdimarsson Sigurbjörn H. Ólafsson Fjóla Guðmundsdóttir Sigurbjörg Bergþórsdóttir. og barnabörn barnaborn og barnabarnaborn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.