Morgunblaðið - 21.07.1976, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 21.07.1976, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR21. JULÍ 1976 21 félk í fréttum Vildi ekki aftur í fangelsið... + NOKKRUM srkúndum eftir aú þessi mynd var tekin lá þessi ungi hlokkumaúur f valnum, eftir ad liafa hleypt af skamm- hyssunni sem hann miúaði að höfði sér. Maúurinn, sem hét Gregory Moore. hafði gert mik- ið uppistand á bar einum í St. Louis, haldið fólki þar föngnu í þrjár klukkustundir. Lögregl- an hafði umkringt staðinn, en Gregory hótaði að drepa alla á barnum ef þeir freistuðu inn- göngu. Barþjónninn sagði sfðar svo frá, að hlökkumaðurinn ungi hefði sagt sér, að hann vildi lieldur deyja en fara f fangelsi og því hafi hann ákveðið að fyrirfara sér er hann sá að fokið var í flest skjól. Nóttin sem hún gleymir aldrei + KARLA Petersen, seiri’ nú er 83 ára, var eini Daninn sem Jkomst lífs af þegar Titanic sökk 15. apríl 1912. Hún var á leið til Ameríku þar sem hún ætlaði aö setjast að og hefja nýtt líf, ásamt unn- usta sínum og tveimur ættingjum. En örlögin tóku þá hastarlega í taumana og í sjóslysinu fórust unnustinh og ætt- ingjarnir. Þótt langt sé nú um liðið hefur Karla ekki gleymt dauðahróp- umhinna 1500 farþega sem fórust með skipinu, og í 64 ár hefur hún vaknað upp nóttina fyrir umræddan mánaðardag þegar slysið varð. Þá tek- ur hún fram gamla nátt- kjólinn sinn, sem hún stóð í þegar hún fór í björgunarbátinn, og hug- urinn reikar til baka . .. Á miðri þessari mynd má sjá hve vel grasið hefur sprottið þótt mjög stutt hafi verið síðan þvi var sáð. Hér gefur einnig að lita hið nýja garðasvæði, sem er langt uppi á nýja hrauninu, en einmitt þarna er a11 góður varmi og víða of mikill fyrir ræktun, a.m.k. fyrir kartöfluræktun, þvi i fyrstu tilraun hálfsoðnuðu þær og má segja að útsæðið hafi komið upp sem ..franskar" kartöflur. Hins vegar koma radisur, rófur og fleiri jurtir mjög vel upp og útlit er fyrir jafnvel nokkrar uppskerur á ári af fljótsprottnum jurtum. Úr Eyjum: Nytjajurtir og skraut- blóm á gló- andi hrauni Rauð- og gulrófa spretta upp úr nýju landi. Hlöðver skoðar hádegisblómin sem hann hefur ræktað f hrjúfu hrauninu yfir gömlu byggðinni. ÞAÐ HEFUR verið tómstunda- gaman hjá áhugasömu fólki í Vestmannaeyjum að rækta upp spildur i nýja hrauninu og gera sér þar matjurtareinar Hlöðver Johnsen, sem unnið hefur að tilraunum og uppbyggingu hraunhitaveitunnar reið á vaðið og ræktar nú 8 tegundir mat- jurta i nágrenni hraunhitaveitu- hússins, auk skrautblóma svo sem lúpinu, hádegisblóma og fleira, en siðan hafa nokkrir aðrir Eyjaskeggjar tekið upp þráðmn og rækta eitt og annað i moldarsalla sem þeir hafa borið i hraumð Fyrstu upp skeruna fengu Eyjaskeggjar i júnibyrjun. en jurtirnar vaxa mjög fljótt og vel i hrauninu. enda ylurinn nægur. Upp hafa komið hugmyndir um að reisa gróðurhús i stórum stil á hrauninu. því viða er ekki nema nokkurra tuga sentimetra dýpt niður á mörgfiundruð stiga hita — á.j. Tvær Eyjakonur, Sigga f Skuld og Sigrún, að reyta arfann hjá kart- of lugrösunum, ræktunarskilyrðin eru góð og þá lætur arfinn ekki lengi bfða eftir sér. Ljósmyndir Mbl. Sigurgeir í Eyjum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.