Morgunblaðið - 24.07.1976, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JULI 1976
13
Söngfélag Þorlákshafnar undir stjórn Ingimundar Guðjónssonar söng á hátíðinni.
þannig hreppsfélaginu kleift að
eignast þær. Hún gaf verð-
launagrip sem maður hennar
hafði eignazt hér i Þorlákshöfn
og lét hann fylgja myndunum,
en þær eru ómetanleg heimild
um liðinn tima i Þorlákshöfn og
eru Þorlákshafnarbúar að sjálf-
sögðu innilega þakklátir frú
Lydiu fyrir velvilja hennar og
rausn. Þá bárust kveðjur og
árnaðaróskir viða að. Þorláks-
hafnarbúar þakka og kunna vel
að meta þann hlýja vinarhug
sem þeim hefur verið sýndur.
Alla daga vikunnar var eitt-
hvað til skemmtunar, svo sem
kvöldvaka, barnaksemmtun,
handbolti, hestamenn staðarins
fóru hópreið um þorpið, frjáls-
ar iþróttir og knattspyrna. Kon-
ur úr kvenfélagi Þorlákshafnar
sáu um kaffiveitingar af mikilli
prýði.
Á Þorláksmessu, 20. júlí, fóru
svo aðaihátíðahöldin fram. Þau
hófust með því, að formaður
hátiðarnefndar, Gunnar Mark-
ússon, rakti sögu Þorlákshafn-
ar á léttan og skemmtilegan
hátt og stjórnaði siðan samkom-
unni. Þá söng söngfélag Þor-
lákshafnar, söngstjóri Ingi-
mundur Guðjónsson, ieikfélag
Þorlákshafnar flutti leikþátt
eftir Agnar Þórðarson, leik-
stjóri Vernharður Linnet.
Ragnheiður Óiafsdóttir flutti
frumort ljóð, Bergþóra Arna-
dóttir söng og lék á gitar lög
eftir sjálfa sig. Sigurgrímur
Jónsson i Holti, vermaður frá
tíma áraskipanrta, vakti endur-
minningar frá þeim tima. Sig-
urður Þorleifsson, eini ibúi
þorpsins, sem er alinn upp á
sveitabænum Þorlákshöfn
flutti bernskuminningar. Það
var bæði fróðlegt og ánægju-
legt að hiýða á mál þessara
mætu mann. Þá flutti sveitar-
stjórinn Svanur Kristjánsson,
ávarp, þar sem hann þakkaði
öllum fyrir framlag sitt til þess-
ara hátiðahalda og sagðist telja
að á engan væri hallað, þó að
hann þakkaði formanni hátið-
arnefndar mest og bezt hans
mikla starf til þess að þetta
mætti takast og það svo vel sem
raun ber vitni. Að endingu söng
svo söngfélagið nokkur lög. Þá
var sérstaklega ánægjulegt fyr-
ir Þorlákshafnarbúa að sjá
þarna fólk sem flutt var burtu,
en hafði lagt hönd á plóginn
fyrstu árin og heldur enn sinni
gömlu tryggð við staðinn, svo
og marga fleiri góða gesti. Þökk
sé þeim fyrir komuna til Þor-
lákshafnar.
Sýningin verður opin öll
kvöld vikunnar frá kl. 20 til 22,
nema iaugardag frá 16 til 22 og
sunnudag frá ki. 14 til 22. Þann
dag fara fram frjálsar íþróttir
og knattspyrna.
Ragnheiður.
Vel heppnuð
hátíðahöld á
Þorlákshöfn
Þorlákshöfn 21. júlf.
í TILEFNI af 25 ára afmæli
Þorlákshafnar eins og hún er
nú, ört vaxandi útgerðarbær,
var efnt til vikuhátiðahalda
laugardaginn 17. júlí. Voru
boðnir hingað nokkrir vinir og
velunnarar Þorlákshafnar,
menn sem á margan hátt höfðu
komið við sögu staðarins á liðn-
um árum, og margir hverjir
unnið með ráðum og dáð að
framkvæmd hafnarmála hér,
svo sem þingmenn Suðurlands-
kjördæmis fyrr og síðar. For-
maður hátiðarnefndar, Gunnar
Markússon, flutti ræðu og
stjórnaði samkomunni af sinni
alkunnu lipurð og röggsemi.
Söngfélag Þorlákshafnar söng
undir stjórn Ingimundar Guð-
jónssonar og konur úr kvenfé-
lagi Þorlákshafnar báru fram
veitingar. Margar góðar ræður
voru fluttar við þetta tækifæri,
sem báru órækan vott um góð-
hug og velvilja ræðumanna til
staðarins. Góðar gjafir voru
gefnar. Ketill Kristjánsson af-
henti formanni bókasafns-
nefndar, Benedikt Thoraren-
sen 100 þúsund króna gjöf frá
Verkalýðsfélagi staðarins. Odd-
viti Selfosshrepps, Óli Þ. Guð-
bjartsson, afhenti veggskjal
með merki Selfoss. Þingmenn
færðu fögur blóm í vasa og
einnig barst fögur blómakarfa
frá Sambandi islenzkra sveitar-
félaga. Sögu- og heimilisiðnað-
arsýningin var svo opnuð með
þvi að hinir ágætu gestir skoð-
uðu hana fyrstir. A sögusýning-
unni gefur að lita listaverk,
sem eru myndir og teikningar
eftir listamanninn Guðmund
frá Miðdal, sem ekkja hans
seldi mjög vægu verði og gerði
Frá hátfðarhöldum Þorlákshafnarbúa f tilefni 25 ára afmælis
staðarins.
Þingi norrænna endurskoðenda lokið:
Éndurskoðun sífellt
umfangsmeira starf
Á ÞINGI norrænna endurskoð-
enda. sem staðið hefur yfir í
Reykjavfk undanfarna daga, voru
umræðuefnin tvö. Annars vegar
var fjallað um góðar endurskoð-
undarvenjur f nútfð og framtfð og
hins vegar um áritanir endur-
skoðenda á reikningsskil og end-
urskoðunarskýrslur, hvort
tveggja með hliðsjón af ákvæðum
nýrra laga um hlutafélög, sem
annaðhvort hafa nýlega verið
samþykkt eða vænta má að verða
samþykkt von bráðar allsstaðar á
Norðurlöndum.
Það er Norræna endurskoð-
endasambandið, samtök félaga
löggiltra endúrskoðenda á Norð-
urlöndum, sem stendur að þing-
haldinu, en um framkvæmd þess
hefur séð Félag löggiitra endur-
skoðenda.
Bo Fridman, frá Svíþjóð, er for-
maður Norræna endurskoðenda-
sambandsins og Morgunblaðið
ræddi suttlega við hann um þing-
haldið. Hann var fyrst spurður að
þvf í hverju starf endurskoðenda
væri einkum fólgið.
A,,ðalverkefni endurskoðand-
ans er að skapa traust í viðskipt-
um milli aðila m.a. með því að láta
í ljós álit á reikningum fyrirtækis-
ins að undangenginni skoðun
þeirra. Annað aðalumræðuefni
þingsins var einmitt upplýsinga-
skylda endurskóðenda og þær
leiðir sem þeir hafa til þess að
koma upplýsingunum á framfæri
við eigendur fyrirtækja, stjórn-
endur og aðra notendur reikn-
ingsskilanna. Ástæðan fyrir þess-
um umræðum nú er sú, að þeim
aðilum fjölgar sífellt, sem áhuga
hafa á því að fylgjast með rekstri
fyrirtækja. Fleiri aðilar þurfa á
upplýsingum að halda, sem end-
urskoðendur verða að tryggja að
komi fram með þeim hætti sem til
er ætlazt."
Hann sagði að ekki væri mikill
munur á starfi endurskoðenda á
Noröurlöndunum, þröunin væri í
Framhald á bls. 25
Frá þingi norrænna endurskoðenda.
*Ævintýrið
um rauðu rósina
V u
Já, það er staðreynd að nú er rauða rósin ekki lengur grá
— hún er eðlilega rauð í PHILIPS litsjónvarpstækjum.
Þau sýna þér eðlilegustu litina. Heimilistæki sf. býður þér
fullkomna þjónustu og sérþjálfaða viðgerðarmenn.
PHILIPS kann tökin á tækninni-
heimilistæki sf
Sætúni 8 — Hafnarstræti 3
it-.-