Morgunblaðið - 24.07.1976, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JULl 1976
31
Liija setti nýtt íslandsmet
- en það dugði skammt
LILJA Guðmundsdóttir setti nýtt
Islandsmet f 800 metra hlaupi f
undankeppni Olympfuleikanna í
þeirri grein, sem fram fór f Mon-
treal í gærkvöldi. Hljóp Lilja á
2:07,26 mín. Sjálf átti hún eldra
metið og var það 2:08,50 mfn.
Þessi ágæti tími Lilju nægði
henni þó ekki til þess að komast
neitt áfram f hlaupinu. Hún varð
sfðust í sfnum riðli, nokkrum
metrum á eftir Carmen Valero
frá Spáni.
— Þetta var miklu betra hjá
Lilju heldur en ég átti von á,
sagði Guðmundur Þórarinsson
þjálfari i viðtali við Morgunblaðið
i gærkvöldi. — Hún hljóp ágæt-
lega og skorti aðeins herzlumun-
inn á að skjóta helztu keppinaut-
um sinum aftur fyrir sig.
Lilja hélt í við stúlkurnar
fyrstu 300 metrana, en gaf þá
nokkuð eftir og dróst nokkra
metra aftur úr. Henni tókst síðan
að halda bilinu í þá næstu og
heldur að vinna á undir lokin.
Sigurvegari í riðlinum sem Lilja
hljóp i var Svetlana Styrkina frá
Sovétrikjunum sem hljóp á
2:00,12 mín.
í öóru sæti varð
Judith Pollock frá Ástralíu á
2:00,66 mín. Þriðja varð Doris
Gluth frá Austur-Þýzkalandi sem
hljóp á 2:00,70 mín. fjórða Rita
Thijs frá Belgiu á 2:04,39 min.,
fimmta Abby Hoffman frá
Kanada á 2:05,32 mín., sjötta Car-
men Valero frá Spáni á 2:06,14
mín. og Lilja varð i sjöunda sæti á
2:07,26 mín.
Nútíma fimmtarþraut
EINSTAKLINGSKEPPNI: stig
Janusz Pyciak Peciak, Póllandi 5.520
Pavel Lednev, Sovétr. 5.485
Jan Bartu, Tékkóslóvakíu 5.466
Daniele Masala, ftalíu 5.433
Adrian Parker, Bretlandi 5.298
John Fitzgerald, Bandar. 5.286
Jörn Steffensen, Danmörku 5.281
Boris Moslov, Sovétr. 5.200
Tamas Kancsal, Ungverjal. 5.195
Robert Nightingale, Bretl. 5.187
HÐAKEPPNI
Bretland 15.559
Tékkóslóvakía 15.451
Ungverjaland 15.395
Pólland 15.343
Bandaríkin 15.285
fta>ía 15.031
Finnland 15.000
Svfþjóó 14.946
Frakkland 14.834
Sovézka stúlkan Kim, brosleit að unnum sigrum f fimleikakeppninni f
Montreal. Islenzku fþróttaáhugafólki gefst væntanlega færi að sjá
hana fljótlega í keppni hérlendis.
Búlgaría 14.824
100 METRA FLUGSUND KVENNA:
Kornelia Ender, A-Þýzkal. 1:00,13
Andrea Pollack, A-Þýzkal. 1:00,98
Wendy Bogiloli, Bandar. 1:01,17
Camille Wright, Bandar. 1:01,41
Rosemarie Gabriel, A-Þýskal. 1:01,56
Wendy Quirk, Kanada 1:01,75
Lelei Fonoimoana, Bandar. 1:01,95
Tamara Shelofastova, Sovétr. 1:02,74
400 METRA FLUGSUND KARLA:
Brian Goodell, Bandar. 3:51,93
Tim Shaw, Bandar. 3:52,54
Vladimir Raskatov, Sovétr. 3:55,76
Djan G. Madruga, Brasflíu 3:57,18
Stephen Holland, Ástral. 3:57,59
Sandor Nagy, Ungverjal. 3:57,81
Vladimir Mikheev, Sovétr. 4:00,79
Stephen Badger, Kanada 4:02,83
200 METRA SKRIÐSUND KVENNA:
Kornelia Ender, A-Þýzkal. 1:59,26
Shirley Babashoff, Bandar. 2:01,22
Enith Brigitha, Hollandi 2:01,40
Annelies Maas, Hollandi 2:02,56
Gail Amundrud, Kanada 2:03,32
Jennifer Hooker, Bandar. 2:04,20
Claudia Hempel, A-Þýzkal. 2:04,61
Irina Vlasova, Sovétr. 2:05,63
4x100 METRA FJÖRSUND KARLA:
Bandaríkin 3:42,22
Kanada 3:45,94
Vestur-Þýzkaland 3:47,29
Bretland 3:49,56
Sovéfríkin 3:49.90
Ástralfa 3:51,54
llalfa 3:52,92
Japan 3:54,74
DVFINGAR KARLA:
Philip Bogs, Baivdar. 619,85
Franco Cagnotto, ftalíu 570,48
Aleksandr. Kosenkov, Sovétr. 567,24
Falk Hoffmann, A-Þýzkal. 553,53
Robert Crag, Bandar. 548,19
Gregory Louganis, Bandar. 528,96
CarlosGiron, Mexikó 523,59
Klaus Dibiasi, ftalfu 516,18
Lyftingar — millivigt
Yordan Mitkov, Búlgaríu
(145,0—190,0) 335,0
Vartan Miliosyan, Sovétr.
(145,0—185,0) 330.0
Peter Wenzel, V-Þýzkal.
(145,0—183,5) 327,5
Wolfgang Hubner, A-Þýzkal. 320,0
Dragomir Ciroroslan, Rúmen. 320.0
Arvo Ala-Pontio, Finnl. 315,0
Andras Stark, Ungverjal 315,0
Ondrej Hekel, Tékkóslov. 312,5
Fimleikar kvenna:
/EFINGAR A GÖLFI:
Nelli Kim, Sovétr. 19,850
Ludmila Tourischeva, Sovétr. 19.825
Nadia Comaneci, Rúmenfu 19,750
Anna Pohldukova, Tékkóslv. 19,575
Marion Kische, A-Þýzkal. 19,450
Gitta Escher, A-Þýzkal. 19,450
SVIFRA:
Nadia Comaneci, Rúmenáu 20,000
Teodora Ungureanu, Rúmenfu 19,800
Marta Egervari, Ungverjal. 19,775
Marion Kische, A-Þýzkal. 19.750
Olga Korbut, Sovétr. 19,300
Nelli Kim, Sovétr. 19,225
JAFNVÆGISSLA:
NadiaComaneci, Rúmenfu 19,950
Olga Korbut, Sovétr. 19,725
Teodora Ungureanu, Rúmenfu 19,700
Ludmila Tourischeva, Sovétr. 19,475
Angelíka Hellmann, A-Þýzkal. 19,450
Gitta Escher, A-Þýzkal. 19,275
Framhald á bls. 18
COMANECIOG KIM HLUTU SÍN
TVENN GULLVERÐLAUNIN HVOR
RÚMENSKA fiðrildið Nadia
Comaneci og sovézka stúlkan
Nellie Kim skiptu bróðurlega með
sér þeim fjórum gullverðlaunum
sem keppt var um i fimleika-
keppni kvenna á Ólympiuleikun-
um í Montreal i fyrrakvöld. Vöktu
stúlkur þessar óskipta hrifningu
áhorfenda, einkum þó Comaneci,
sem gerði æfingar sínar i þeim
greinum sem hún hlaut gullverð-
laun i svo óaðfinnanlega að dóm-
ararnir hikuðu ekki við að gefa
henni 10 i annarri greininni, æf-
ingum á svifrá, og 9,95 fyrir æf-
ingar sínar á jafnvægisslánni. Má
segja að áhorfendur hafi staðið á
öndinni meðan þeir fylgdust með
ótrúlegri hæfni þessarar 14 ára
stúlku, sem greinilega hefur tekið
við þvi hlutverki sem sovézka
stúlkan Olga Korbut hafði á Ól-
ympíuleikunum i Múnchen 1972;
Þær Korbut og Ludmila Turis-
cheva, sem er heimsmeistari í
fimleikum kvenna, féllu algjör-
lega í skuggan fyrir frammistöðu
þeirra Comaneci og Kim. Turis-
cheva hlaut þó tvenn silfurverð-
laun. Korbut hlaut ein silfurverð-
laun í æfingum á jafnvægisslá, en
fyrir tiltölulega skömmum tima
hefðu fæstir getað imyndað sér að
hún hitti fyrir ofjarl sinn f þeirri
grein fimleika á næstunni.
Korbut var gifurlega vel fagnað
þegar hún tók við silfurverðlaun-
um sínum, og þá kom loks að þvi
að hún sýndi þá hiið sem gerði
hana hvað vinsælasta á leikunum
i Múnchen, — hún brosti út að
eyrum og óskaði Comaneci inni-
lega til hamingju.
Eftir Ólympiuleikana í Múnch-
en áttu fæstir von á þvi að stúlk-
urnar myndu taka miklum fram-
förum i þessari grein, þar sem
tækni þeirra þótti næstum full-
komin. En hæfni beztu stúlkn-
anna á Ólympiuleikunum i
Montreal hefur verið slik, að æv-
intýri er líkust.
Hreinn Halldórsson f kúluvarpskeppninni á Ólympíuleikunum f
Montreal í gær.
SÁR VONBRIGÐI
- sagði Hreinn Halldórsson,
sem komst ekki í úrslitakeppnina
— VISSULEGA eru það mikil von-
brigði að komast ekki áfram í
kúluvarpinu, en þetta var bara
ekki dagurinn minn. Ég hitti ekki á
stóra kastiðað þessu sinni.
Það var óhress Hreinn Halldórs-
son sem mælti þessi orð skömmu
eftir að forkeppninni í kúluvarpi lauk
hér á Ólympíuleikunum í Montreal í
gær. Hreinn kastaði lengst 18.93
metra i annarri tilraun, en til að
komast áfram þurftu keppendur að
kasta 1 9,40 metra
Fyrsta kast sitt gerði Hreinn ógilt
— Ég missti kúluna upp úr hend-
inni og er ég sá að kastið yrði ekki
nema um 18 metrar þá labbaði ég
strax út úr hreingnum og gerði því
ógilt, sagði Hreinn. í öðru kasti
flaug kúlan 18.93 metra, en ekki
var það nóg og nú átti Strandamað-
urinn sterki aðeins eitt kast eftir
Hann var því undir miklu álagi er
kom að stðasta kastinu Og þó svo
að Hreinn vildi ekki viðurkenna að
hann hefði ekki þolað spennuna
kastaði hann aðeins 1 8,55 metra og
ekki var það nærri nógu langt til
þess að hann kæmist áfram í keppn-
inni
— Ég ætla ekkert að afsaka mig,
þó að ég hafi ekki náð þvi að komast
áfram Meiðslin í handleggnum áttu
ekki að koma i veg fyrir að ég
kastaði 19,40 metra, sagði Hreinn
— Að visu var nokkuð heitt og sólin
skein beint i augun, en þrátt fyrir
þetta hefði ég átt að geta kastað
19,40 metra, ef ég hefði haft örlitla
heppni með mér. Ég hef kannski
ætiað mér um of. þvi það er segin
saga hjá mér, að þegar ég ætla að
gera sem allra bezt þá fer allt i
vaskinn, sagði Hreinn að lokum.
Hreinn hefur sýnt það oftar en
einu sinni að hann á að vera örugg-
ur með 19.40 metra og jafnvel vel
yfir 20 metra, ef sá gállinn er á
honum. Hreinn er mjög sterkur um
þessar mundir hefur aldrei verið
sterkari, enda hefur hann einbeitt
sér að æfingum og keppni siðan i
byrjun febrúar Ætlaði Hreinn sér
stóra hluti hér í Montreal og þó
vonbrigðin séu mikil fyrir islenzka
iþrótta unnendur almennt þá hljóta
þau að vera langmest fyrir hann
sjálfan.
Það voru fleiri en Hreinn sem áttu
slæman dag í kúluvarpinu í gær
Þannig átti Bandarikjamaðurinn
George Woods í brösum að komast í
úrslitakeppnina — varpaði aðfeins
1 9,35 metra i forkeppninni, en flaut
inn sem 12. maður Heimsmethaf-
inn Alexander Barisnikov kastaði
lengst allra i gær, en hann þeytti
kúlunni 21 32 metra þegar i fyrsta
kasti og setti nýtt Olympiumet. Virt-
ist hann ekkert hafa fyrir þvi og
maður hefur það á tilfinningunni að
hann geti kastað lengra á sinn sér-
stæða hátt. en Barisnikov kastar á
svipaðan hátt og kringlukastari
Tveir Norðurlandabúar komust í
úrslitakeppnina Sviinn Hans
Höglund sem kastaði 19,76 metra
og Finninn Reijo Stahlberg sem
kastaði nákvæmlega 19,40 metra i
þriðju tilraun Mikill munur var á
getu keppenda í kúluvarpinu Þann-
ig kastaði t d Saal al Bishy frá
Saudi Arabiu aðeins 11,68 metra,
og varð að sjálfsögðu aftastur allra
„Verð að gera betur í 400 m hlaupinu"
ÞETTA VAR lélegt hlaup hjá mér, og
tíminn eftir því, sagði Bjarni Stefáns-
son eftir að hann hafði komið í mark
í 100 metra hlaupinu á 11,28 sek.
hér á Ólympíuleikunum í Montreal i
gær. — Ég legg reyndar enga
áherzlu á 100 metrana, en hafði þó
vonazt eftir betri tíma en þetta. Ég
verð að gera þeim mun betur i 400
metra hlaupinu, sagði Bjarni
Bjarni Stefánsson varð siðastur Í
sínum riðli, en sigurvegari i riðli
hans varð Harsely Crawford frá
Trinidad á 10,42 sek. Tveir beztu i
hverjum riðli komust i milliriðla, en
auk þess þeir fimm sem náðu bezt-
um tíma á eftir sigurvegurunum.
Voru það þvi 32 sem komust i milli-
riðla. Þeirra á meðal, að sjálfsögðu
kappar eins og Harwey Glance, Don
Quarry og Dieter Kurrat, sem allir
hlupu á 10,37 sek. i forkeppninni.
Þrátt fyrir lélegan tima varð Bjarni
þó ekki síðastur af hlaupurunum.
Tveir af 63 keppendum komu i mark
á lakari tíma en Bjarni.