Morgunblaðið - 24.07.1976, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 24. JÚLÍ 1976
■ plinrgiMwMalíí
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
• Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
ASalstræti 6, simi 10100
Aðalstræti 6. simi 22480.
hf. Árvakur, Reykjavik.
Haraldur Sveinsson.
Matthias Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn GuSmundsson.
Björn Jóhannsson.
Árni GarSar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla
Auglýsingar
Áskriftargjald 1000,00 kr. á mánuSi innanlands.
í lausasölu 50.00 kr. eintakið.
r
Aaðalfundi Slipp-
stöðvarinnar á Akur-
eyri, sem haldinn var
snemma vors, varpaði
iVIatthias A. Mathiesen
fjármálaráóherra fram
hugmynd þess efnis, að rík-
issjóður gæfi starfsmönn-
um Slippstöðvarinnar og
öðrum heimamönnum
nyðra kost á að kaupa hlut
sinn í fyrirtækinu.
Þessi hugmynd fjármála-
ráðherra vekur fólk óneit-
anlega til umhugsunar um
réttmæti aðildar ríkisins að
atvinnurekstri. Kikið hef-
ur eðlilega á hendi marg-
þætt félagsleg verkefni,
sem ekki er einungis rétt-
lætanlegt aö það sinni held-
ur beinlínis skylt. Hins
vegar þykir mörgum sem
það hafi í einstökum tilfell-
um þrengt sér inn á vett-
vang, sem betur væri i
höndum hinnar frjálsu at-
vinnustarfsemi í landinu, á
vegum einstakiinga, hluta-
félaga eða samvinnufélaga.
Keynslan hefur fært okkur
heim sanninn um, aó opin-
berir aðiiar eigi að hafa
mikið hóf á afskiptum sín-
um af venjulegri atvinnu-
starfsemi. Þar komi hvort
tveggja til: spurningin um
rekstrarform meó hliðsjón
af arðsemi atvinnustarf-
seminnar og grundvallar-
sjónarmið um fjárhagslegt
sjálfstæði einstaklinganna
í þjóðfélaginu.
Slippstöóin á Akureyri
er þó gott dæmi um fyrir-
tæki, sem ríkið var beinlín-
is að bjarga yfir erfiða
rekstrarþröskulda; að
koma á fætur í bókstaflegri
merkingu, þó á engan hátt
skuli lítið gert úr því fram-
taki og framsýni, sem var
undanfari stofnunar þessa
atvinnurekstrar. Þessi —
hugsanlega tímabundna —
aöild rikisins hefur stuðlað
að þvi, með og ásamt end
urskipulagningu fyrir-
tækisins heima fyrir, að
það er í dag stórt og vel
rekið fyrirtæki, sem hefur
mikið gildi fyrir atvinnulif-
ið í höfuðstað Norðurlands.
Hugmynd Matthíasar Á.
Mathiesen fjármálaráð-
herra um eignaraðild
starfsmanna fyrirtækisins
og hins almenna borgara
norður þar að fyrirtækinu,
gegn um sölu á eignarhluta
ríkisins, er einkar lofsverö
og athyglisverð, þó naum-
ast sé hún nýlunda í um-
ræðu um atvinnurekstur
hér á iandi. Hún á og for-
dæmi í rekstri ýmissa
stærri fyrirtækja á erlend-
um vettvangi. í þessu sam-
bandi verður ekki komizt
hjá aó minna á hugmyndir
um almenningshlutafélög,
en Eyjólfur Konráð Jóns-
son alþingismaður skrifaði
um það mál athyglisvert rit
fyrir nokkrum árum, sem
enn er í fullu gildi.
Hugmyndir fjármálaráð-
herra, sem hér hafa lítil-
lega verið gerðar að um-
talsefni, mættu gjarnan
verða að veruleika, til efl-
ingar frjálsri atvinnustarf-
semi og sem fordæmi um
fleiri fyrirtæki, er ríkið á
aðild að; og raunar verða
stefnumarkandi fyrir
framtíðina. Þær mættu og
minna á þá nauðsyn, sem
fyrir hendi er, á nýjungum
I hlutafélaga- og skattalög-
aö hefur vakið verð-
skuldaða athygli að
Þjóðviljinn, málgagn svo-
kallaðs Alþýðubandalags,
hefur forðast eins og heit-
an eldinn að taka máiefna-
lega afstöðu til meginþátta
kosningastefnuskrár
ítalska kommúnistaflokks-
ins, „hinnar sögulegu
málamiðlunar“, sem átti
drýgstan þáttinn i því
fjöldafylgi sem flokkurinn
fékk í nýlega afstöðnum
kosningum þar í landi.
Þessi kosningastefnuskrá
þótti móta sjálfstæðari
stefnu gagnvart sovézka
kommúnistaflokknum og
gjörbreytt viðhorf tif aðild-
ar ríkja V-Evrópu aö
Atlantshafsbandalaginu,
ekki sízt þeirra, sem sökum
hnattstöðu sinnar hafa
hernaðalega þýóingu.
Hin sögulega málamiðl-
un gerði ráð fyrir áfram-
haldandi aðild Ítalíu aó
Atlantshafsbandalaginu af
tveimur meginástæðum. I
fyrsta lagi væri öryggi
landsins bezt borgið innan
varnarbandalags vest-
rænna ríkja. í öðru lagi
myndi úrsögn ítala úr Nato
veikja valdajafnvægið í
heiminum. Formaður
ítalska kommúnistaflokks-
ins sagói skýrt og skorinort
að auðveldara væri að
gjöf i því skyni aó auóvelda
hinum almenna borgarara
þátttöku og eignaraóild að
atvinnurekstri í landinu.
byggja upp „frjálsan
sósialisma“ innan en utan
hins vestræna kerfis. Hann
sagði til viðbótar aó ekki
væri nægjanlegt að
kommúnistar og jafnaðar-
menn fengju nauman
meirihluta í ítalska þing-
inu, heldur þyrfti til aó
koma breitt samstarf þess-
ara aðila við Kristilega
demókrata, sem er sterkur
hægri/mið-flokkur, ef
leysa ætti þann efnahags-
vanda, sem ítalir ættu við
aó stríða. Og enn bætti
hann því við að flokkurinn
stefndi ekki að frekari
þjóðnýtingu i itölskum iðn-
aói.
Þjóóviljinn hefur ekki
úttalað sig um eitt einasta
atriði, sem hér hefur verið
nefnt í hinni „sögulegu
málamiðlun". Hann virðist
mun hliðhollari stefnu-
mörkun sovézka kommún-
istaflokksins en þess
ítalska. Sér í lagi væri fróð-
legt að fá, skýrt og skorin-
ort, málefnalegar skoðanir
blaðsins á hinni breyttu af-
stöðu gagnvart Atlants-
hafsbandalaginu og aðild
vestrænna ríkja að því,
bæði að því er varðar rök-
semdina um öryggi vió-
komandi landa og röksemd-
ina um valdajafnvægið í
okkar heimshluta.
Þátttaka almennings
í atvinnurekstri
Þögnin
THE OBSERVER THE OBSERVER THE OBSERVER THE OBSERVER THE OBSERVER THE OBSER
Samos. (.rikklandi.
FERÐAMENN frá Vestur-
Evrópulöndum verða varir vió
það i sumar, að það eru margar
andstæður i paradis Eyjahafs-
ins. Grikkland og Tyrkland eru
komin í hár saman vegna rétts-
ins til vinnslu á oliu á þessu
svæði og hvar sem farið er
verða ferðamenn varir við
sovézka flotann, sem er orðinn
jafnöflugur á þessu svæði og
Sjötti flotinn bandaríski.
Þrátt fyrir þetta rísa ný hótel
á vesturströnd Tyrklands og
grískir matsölustaðir halda
áfram að selja sjávarrétti sína
við undírleik bouzouki-
spilaranna. Verðlag hefur ekki
hækkað að ráði i ár og fyrirtæki
sem leigja út lystisnekkjur
stæra sig af því að hafa gert
leigusamninga fyrir allan
ferðamannatímann.
Flestir ferðamennirnir sem
dveljast á grísku eyjunum und-
an Tyrkiandsströndum hafa
þegar sætt sig við nærveru her-
manna og vígvéla sem þátt i
umhverfinu. A ströndinni í
Limnos og Pyþagóriu rölta
grísku hermennirnir og glápa
úr sér augun á norrænu og
þýzku stúlkurnar sem stunda
sólböðin á þessum slóðum.
En embættismenn NATO, svo
ekki sé talað um foringjalið
Sjötta flotans bandaríska, eru
ekki eins rólegir og ferðamenn-
irnir. Tölurnar tala sínu máli.
Miðjarðarhafsflofi Bandaríkj-
anna telur að jafnaði 55 her-
skip, en Miðjarðarhafsfloti
Rússa aftur á móti um 70 her-
skip. Að vísu hefur rússnesku
herskipunum fækkað úr 102
þegar flest var árið 1973. En
sovézku flotadeildin er miklu
öflugri hvað vopnabúnað snert-
ir og er betur skipuiagður til
hernaðarihlutunar. Og nú hef-
ur rússneska flugmóðurskipið
Kiev bætzt í hópinn og ekki
Vaxandi spenna
áEyjahafi
bætir það stöðuna. Bandarikja-
menn eru ekki lengur hús-
bændur á Miðjarðarhafinu.
Undanfarna mánuði hefur
rússneski flotinn beint umsvif-
um sínum fyrst og fremst að
Eyjahafinu og virðist tilgangur-
inn sá, að geta lokað sundunum
milli grísku og tyrknesku eyj-
anna. Jafnframt þessu hafa
Rússar tryggt sér herskipalægi
á fjarlægum stöðum eins og á
Hammamet-flóa undan Túnis,
undan Kýpur og i grennd við
strendur Sýrlands.
Þótt Anwar Sadat, forseti
Egyptalands, hafi svipt sovézka
flotann bækistöðvum í egypzk-
um höfnum hefur það ekki
valdið Rússum teljaridi vand-
ræðum. Rússar hafa fengið að-
stöóu fyrir birgðaskip flota sins
í sýrlenzku hafnarborginni
Tartous og þeir hafa einnig
fengið skipalægi undan Soll-
oum, sem er rétt hjá landamær-
um Líbíu og Egyptalands. '1
hafnarborginni Tivat, sem er á
Adriahafsströnd Júgóslavíu má
segja að tvö rússnesk herskip
hafi fengið fastan samastað og
önnur rússnesk herskip koma
þangað i heímsóknir sem taka
allt að vikutíma.
A síðastliðnu vori komu Rúss-
Sovétskt herskip
á siglingu
eftir JULIET
PEARCE
ar sér upp aó heita má föstu
herskipulagi undan Limnos og
eynni Krit og baujur með rúss-
neskum áletrunum eru stað-
settar skammt utan við land-
helgi Túnis i grennd við Hamm-
amet.
I byrjun júnímánaðar efndu
Rússar til flotaæfinga undan
stföndum Krítar og beindust
þær fyrst og fremst að þjálfun
flotans í kafbátahernaði og
vörnum gegn flugvélaárásum.
Bandaríkjamenn voru búnir að
spá þvi, að rússneskt flugmóð-
urskip myndi koma á þessar
slóðir þegar liði á sumarið. Um
miðjan júlí kom svo flugmóður-
skipið Kiev og hafði rússneska
stjórnin fengið leyfi rikis-
stjórnar Tyrklands til að leyfa
því að sigla um Bosphorus og
Dardanellasund. Leyfi tyrk-
nesku stjórnarinnar var nauð-
synlegt samkvæmt Méntreux-
sáttmálanum sem bannar um-
ferð um stundin skipum sem
eingöngu eru ætluð til árása,
eins og flugmóðurskip t.d. Sátt-
málinn féll úr gildi 20. júlí.
Hann var gerður árið 1936 og
gilti til 20 ára. Hann var fram-
lengdur sjálfkrafa árið 1956 til
20 ára. Ennþá er óljóst, hvað
tekur við af Montreux-
sáttmálanum eða hvort hann
verður framlengdur einu sinn
enn. Gerist það ekki þarf að
endurskoða yfirráð Tyrkja yfir
sundunum og stjórn þeirra á
siglingum um þau.
Samkvæmt Monteux-
sáttmálanum þurfa öll riki við
Svartahaf að tilkynna með átta
daga fyrirvara um siglingar
herskipa um sundin. Öll önnur
lönd þurfa að tilkynna siglingar
herskipa sinna með 15 daga fyr-
irvara. Kafbátum er aðeins
heimilað að fara um sundin á
yfirborðinu.
Öflugustu skipin í Sjötta
flota Bandarikjanna eru flug-
móðurskipin Saratoga og
America. Til viðbótar þeim eru
í flotanum fjögur beitiskip og
14 tundurspillar og hraðskreið-
ar freigátur. i flotanum eru til
viðbótar birgðaskip og smærri
herskip sem ætluð eru til kaf-
bátahernaðar.
Bandaríski flotinn er fyrst og
fremst staðsettur á Miðjaróar-
hafi en hann hefur einnig að-
gang að Svartahafi, en aóeins
skamman tima í einu.
Bæói bandaríski og sovézki
flotinn fylgjast náið með at-
höfnum hvor annars. Á flotaæf-
ingum senda þeir á vettvang
skip hlaðin rafeindaútþúnaði
til að fylgjast með því sem fram
fer og flugvélar sveima yfir
svæðinu í sama skyni.
Þessi miklu flotaumsvif virð-
ast engin áhrif hafa á ferða-
mennina á þessum slóóum eða
draga úr siglingum lystibáta.
Þvert á móti virðist sumum
þykja það sport að sigla innan
um bryndrekana.