Morgunblaðið - 24.07.1976, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JULt 1976
Ekið á kyrr-
stæða bifreið
Föstudaginn 9. júlí sl. var ekið á
bifreiðina G-81 — sem er rauður
Audi, þar sem hún stóð á bifreiða-
stæði við Hagkaup, Skeifunni, að
vestan verðu. Sjónarvottar voru
að ákeyrslunni, en þeir náðu ekki
númeri eða tegund bifreiðarinn-
ar. —Þarna mun hafa verið um
gamla stóra fólkshifreið að ræða
sem helzt líktist því að vera af
Dodge gerð. —Var kvartmílu-
merki í vinstri hliðarrúðu að
framan. — I bifreiðinni voru pilt-
ur og stúlka, og virtist sem þau
hefðu orðið vör við ákeyrsluna.
Ford lætur
Reagan ekki
mana sig
Washington 23. júlí Reuter.
FORD forseti hefur hafnað þeirn
áskorun Ronalds Reagan að mæta
honum i sjónvarpi og eiga þar við
hann kappræður. Blaðafulltrúi
forsetans gaf þá skýringu á þess-
ari ákvörðun forsetans, að kapp-
ræðurnar mundu aðeins auka á
sundrungu innan Repúblíkana-
flokksins.
Afvopnunar-
viðræður
komnar í
strand
Washington — 23. júlí AF.
BANDAKIKJASTJORN lýsti þvi
yfir í dag, að nokkuð hefði miðað
áleiðis í afvopnunarviðræðum við
Sovétríkin, en frekari árangurs
væri ekki að vænta á næstunni,
þar sem ágreiningur væri um eft-
irlit með framleiðslu og meðferð
háþróaðra vopna af nýjustu gerð.
Jafnvel
kýrnar
flýja
Hitzaeker, V-Þýzkalandi
23. júlí — Reuter.
NAUTGRIFAHJÖRÐ fór yfir
landamæri A-Þýzkalands og V-
Þýzkalands i gærkvöldi. Lögðust
gripirnir til sunds yfir Saxelfi.
V-þýzka lögreglan var 18 klukku-
tima að smala þeim saman, og
sendi síðan a-þýzkum yfirvöldum
165 þús. króna reikning fyrir
ómakið.
Eldur um
borð í Queen
Elizabeth
Lundúnum — 23. júlí AP.
ELDUR kom upp í vélarrúmi
Oueen Elizabeth II í dag, en þá
var skípið um 80 sjómíiur vestur
af Scilly-eyjum. Farþegar um
borð i skipinu voru um 1200, og
voru þeir flestir í fasta svefni
þegar eldur varð laus. Skipið
sneri til hafnar i Southampton,
en fljótlega tókst að slökkva eid-
inn, og sakaði engan. Ein vél
skipsins er mikið skemmd, en bú-
izt er við að viðgerð Ijúki innan
fárra daga.
IRA-forsprakk-
ar handteknir
Dyfllnni— 23. júlí — AP.
FATRICK Cooney, dómsmálaráð-
herra í írlandi, fyrirskipaði i dag
handtöku allmargra foringja
irska lýðveldishersins, og hafa að
minnsta kosti 25 manns verið
handteknir i Dyflinni og Dundalk
í dag.
12 hinna handteknu eru í hreyf-
ingunni Sinn Fein, og var þeim
sleppt að yfirheyrslu lokinni.
Ákvörðun um handtökurnar
var tekin vegna morðsins á brezka
sendiherranum, Ewart-Briggs, s.l.
miðvikudag. Irska stjórnin er nú i
þann veginn að leggja siðustu
hönd á lagafrumvarp, sem miðar
að því að halda hryðjuverkaöflum
i skefjum, og verður það lagt fyrir
írska þingið fljótlega.
Varað við róandi
lyfjum fyrstu
mánuði með-
göngutímans
Washington — 22. júlí
— Reuter.
BANDARlSK heilbrigðisyfirvöld
hafa gert ráðstafanir til að koma í
veg fyrir, að vanfærar konur taki
inn róandi iyf, svo sem ,,valium“
og „líbríum" fyrstu þrjá mánuði
meðgöngutímans. Rannsóknir
leiddu nýlega i Ijós möguleika á
sambandi milli neyzlu þessara
lyfja, og annarra skyldra, og því
að börn fæðist vansköpuð, t.d.
með skarð i vör. Læknar telja
ekki ástæðu til að vara við því að
konur noti þessi lyf síðar á með-
göngutímanum.
Djöfulóð
stúlka dó
úr hungri
Aschaffenburg, V-Þýzkalandi
— 23. júlí — Reuter.
„DJÖFULLINN talaði í gegnum
hana, og brá sér jafnvel í gerfi
Nerós og Hitlers", sagði kaþólsk-
ur prestur i viðtali víð þýzka blað-
ið Bild. Sú, sem hann átti við, var
23 ara stúlka sem svelti sig i hel.
Hún lézt 1. júlí s.l., en þá hafði
presturinn, Arnold Renz, reynt að
reka út af henni illa anda um 11
mánaða skeið, og hafði til þess
leyfi kaþólsku kirkjunnar. Málið
er nú í rannsókn hjá dómsmálayf-
irvöldum í V-Þýzkalandi.
Neto fær höfð-
inglegar mót-
tökur á Kúbu
Miami —'23. júli — AP.
AGOSTINHO Neto, forseti Ang-
óla, kom til Kúbu í dag i boði
Fidel Castros forsætisráðherra að
þvi er Kúbu-útvarpið skýrði frá i
dag. Neto kom fljúgandi í sov-
ézkri þotu frá Aeroflot, og meðal
þeirra sem tóku á móti honum á
flugvellinum i Havanna ásamt
Fidel Castro, voru Raul Castro og
forseti landsins Ovaldo Dorticos.
Neto verður viðstaddur hátíða-
höld, sem fram fara n.k. mánudag
i tilefni af þvi, að þá eru liðin 13
ár frá því að Castro komst til
valda.
— Alviðra
Framhald af bls. 32
skilmála þá sem fylgt hefðu gjöf-
inni á sinum tíma né um málið að
öðru leyti að sinni.
Páll Hallgrimsson, sýslumaður i
Arnessýslu, staðfesti einnig i sam-
tali við Morgunblaðið að embætti
hans hefði borizt bréf frá lög-
manni Magnúsar Jóhannssonar,
en kvaðst að öðru leyti ekkert
hafa um málið að segja fyrr en
hann hefði borið saman bækur
sínar við fulltrúa Landverndar.
Magnús gaf á sinum tíma
Arnessýslu og Landvernd i félagi
Alviðru ásamt þeim hluta Önd-
verðarness, sem i hluta Alviðru
er, en hluti Sogsins er innan
landamerkja þessarar eignar.
— Islenzk
frímerki
Framhald af bls. 9
gefin út fyrir það uppboð, en af
örstuttu sýnishorni, sem út hefur
verið sent, er ljóst, að þar verður
margt gott frímerkjaefni í boði.
Þá munu fyrirtækin taka við efni
til uppboðs af þeim, sem heim-
sækja sýninguna og hafa um leið
eitthvað girnilegt til að selja.
Verður þetta gert fram á síðustu
stund. Síðan verður allt boðið upp
og selt „eins og það er“. Að sögn
þeirra sjálfra táknar það, að ekki
Verður unnt að kvarta undan því,
sem keypt er, eða endursenda
það. Menn verða þess vegna að
kynna sér efnið á staðnum í sölu-
deild þeirra.
Loks hafa fyrirtækin ákveðið
tvöfrimerkjauppboð um miðjan
september, og verða skrár þeirra
uppboða fáanlegar í söludeild
þeirra á Hafnia 76. Um leið geta
menn fengið að skoða efni þeirra
uppboða. Er enginn vafi á, að
margir munu notfæra sér það.
J.A.J.
— PortúgaJ
Framhald af bls. 1
herra er hinn sami og áður —
Manuel de Costa Braz. Hann er úr
röðum hersins, og sama er að
segja um varnarmálaráðherrann,
Maro Firmino Miguel. Hann
gegndi sama embætti í bráða-
birgðastjórninni, sem mynduð var
eftir byltinguna vorið 1974. Litlu
munaði að hann yrði forsætisráð-
herra, en í byltingu vinstri sinna
sama ár, var hann sviptur
embætti.
Þetta er í fyrsta skipti í þau tvö
ár, sem liðin eru frá því að bylting
var gerð gegn einræðisstjórninni
í Portúgal, að kommúnisti er ekki
í ríkisstjórn. Síðan byltingin var
gerð hafa sex bráðabirgðastjórnir
setið við völd i Portúgal. Áður en
Soares myndaði stjórn leitaði
hann stuðnings miðdemókrata og
alþýðudemókrata, sem hafa sam-
tals 115 sæti á þingi, og er ljóst að
þessir flokkar munu ljá stjórn-
inni stuðning, a.m.k. fyrst um
sinn. Sósialistar hafa 107 þing-
sæti, en alls eiga 263 fulltrúar
sæti á þingi.
Búizt er við því, að Mario
Soares birti stefnuskrá stjórnar
sinnar eftir nokkra daga.
— Egyptar
Framhald af bls. 1
Gaddafhi leiðtoga i Líbíu, þótt
hann nefndi hann ekki með nafni.
Sadat tók skýrt fram í ræðu sinni,
að Egyptar mundu ekki liða slíka
framkomu öðru sinni, en bylt-
ingartilraunin hafi verið í þeim
tilgangi gerð, að „þjóna dutlung-
um sumra og hagsmunum ann-
arra“, eins og hann orðaði það.
Aður en Sadat lét þessi ummæli
falia hafði stjórn Libiu lýst því
yfir, að hún kynni að slita stjórn-
málasambandi við Egyptaland.
— Slasaður
maður
Framhald af bls. 2
skuttogaranum Dagstjörnunni, og
hinn er ögmundur Magnússon,
sem verið hefur skipstjóri á Jóni
Garðari.
Eigendur skipsins buðu hrepps-
nefnd Miðnesshrepps, starfsfólki
fyrirtækisins og fjölda gesta að’
skoða skipið og þiggja veitingar.
Að skoðun lokinni voru allir sam-
mála um að skipið væri stórglæsi-
legt i aila staði óg stæði sízt að
baki erlendri framleiðslu. Guð-
mundur Jónsson er annar togar-
inn sem hyggst landa afla hér í
Sandgerði, en hinn er togarinn
Erlingur, sem að mestu hefur
landað hér síðan á sl. vetri. Þriðji
skuttogarinn bætist við með
haustinu og verður hann eign Hf.
Miðness og verður þá áskípað við
þá einu bryggju, sem hér er, og
má ekki dragast öllu lengur að úr
því verði bætt. — Jón.
— Gríski flotinn
Framhald af bls. 1
Umdeildustu svæðin eru um-
hverfis eyjuna Limnos, vestur og
suðvestur af Lesbos og nálægt
Rhodos. Stjórnin í Ankara iætur
ekki uppi hvert ferð Sismik I er 1
heitið og segir aðeins að leit skips-
ins muni fara fram i tyrkneskri
landhelgi og á úthafinu.
Átök milli flota Grikkja og
Tyrkja fara því eftir þvi hvar
skipið stundar rannsóknir sínar
að sögn kunnugra.
Tyrkir halda þvi fram að land-
grunn þeirra nái út á mitt Eyja-
haf. En Austur-Eyjahaf er þakið
grískum eyjum og Grikkir gera
kröfu til landgrunnsins umhverf-
is þær.
Vestrænir diplómatar telja að
báðir aðiiar vilji reyna að forðast
að I odda skerist ef unnt er. Þeir
búast við miklu orðaskaki en
varla stórátökum.
Þegar Sismik I fór frá Istanbul
kvöddu önnur skip í höfninni
rannsóknarskipið með þvi að
þeyta flautur sínar. I Aþenu sagði
grfska stjórnin að „þjóðareining“
ríkti í Grikklandi. Almenningur
virtist rólegur en eitt síðdegis-
blaðanna sagði i fyrirsögn: „Við
biðum ykkar."
— íþróttir
Framhald af bls. 31
ÆFINGAR A HESTI:
Nelli Kim, Sovétr. 19,800
Ludmila Tourischeva, Sovétr. 19,650
Carola Dombeck, A-Þýzkal. 19.650
NadiaComaneci, Rúmenfu 19,625
Gitta Escher, A-Þýzkal. 19,550
ÍVIarta Egervari, Ungverjal. 19,450
4000 metra hjólreiðar:
Cregor Braun, V-Þýzkal.
Herman Ponsteen, Hollandi
Thomas Huschke, A-Þýzkalandi
Skilmingar — korði
Victor Krovopovskov, Sovétr.
Vladimir Nazlymov, Sovétr.
Viktor Sidiak, Sovétr.
Ioan Pop, Rúmeníu
Mario A. Montano, ftalfu
Michele Maffei, Ítalí
—Náttfari
Framhald af bls. 32
Loks tók jijófurinn lykla. Húsráð-
andinn er forstjóri fyrirtækis ná-
lægt miðbænum. Lagði „Náttfari"
næst leið sína i fyrirtækið og
komst inn í skrifstofu þess. Fór
hann í tvo peningaskápa og tók
þaðan 152 þúsund krónur í pen-
ingum og um 400 þúsund krónur í
ávísunum. í íbúðinni tók hann um
50 þúsund krónur í peningum.
Aðfaranótt s.l. miðvikudags var
farið á svipaðan hátt inn i þrjú
hús í Smáíbúðahverfi og tilraun
var gerð til að fara inn í eitt hús
til viðbótar, en það mistókst.
Hafði „Náttfari" upp úr krafsinu,
nokkur þúsund krónur f pening-
um og nokkra minnispeninga
Þjóðhátíðarnefndar frá 1974 úr
gulli og bronsi.
Að sögn Jóns M. Gunnarssonar
rannsóknarlögreglumanns er fuli
ástæða til að brýna enn einu sinni
fyrir fólki að ganga tryggilega frá
gluggum og svölum. Sagði hann
að mesta öryggið væri í þvi að
hafa góða króka, en ekki dygði að
hafa bara stormjárn á gluggum,
eins og dæmin með „Náttfara"
hefðu áþreifanlega sannað.
— Veiðibjallan
Framhald af bls. 17
aðrar máfategundir, svo og hrafn
inn, hafa hið bezta viðurværi
vegna þess að of mikið er skilið
eftir af úrgangi á þeim tima sem
fuglarnir eiga annars erfitt upp-
dráttar rétt fyrir varptímann og
um leið hænir þessi úrgangur á
glámbekk fuglinn að byggðu bóli í
stað þess að hann leiti fanga til
hafs. Fyrst og fremst vegna þessa
verður viðkoman hjá þessum
hreinsunarsveitum náttúrunnar
of mikil og þeim nægir ekki að
hreinsa upp, heldur leggjast þeir
á aðra fugla, egg, fræ og jafnvel
lömb. Það er einnig sorgleg stað-
reynd að það er ekki nóg með að
skilinn sé eftir úrgangur á víða-
vangi og klóök renni út um f jörur,
heldur eru geymslur loðnu- og
fiskimjölsverksmiðja I mörgum
tilvikum opnar fyrir fuglum him-
insins og þar fá þeir yfirfljótandi
æti. Loks má ekki gleyma þvi að
máfurinn sem lifir á sorpi og
skolpi ber með sér smit, bæði
saurbakteriur og jafnvel tauga-
veikibakteriur eins og hefur
sannazt viða um lönd og þessu
dritar hann síðan yfir hýbýli
manna og dvalarstaði og jafnvel
vatnsbói.
Það er vandfundið það jafn-
vægi sem hefur raskazt, en mað-
urinn þarf að vanda betur sorp og
skolphirðingu, hreinsun og hrein-
læti í umhverfinu og þrifnað yfir-
leitt. Þetta er háð framkvæmda-
vilja einstaklinga, félaga og
byggðarlaga, en fólk verður að
horfast i augu við þetta vandamál
og taka á þvi, það er ekki svo
erfitt að nokkrum ætti að vera
kefli“.
— 39 leiðangrar
Framhald af bls. 2
ir komizt að honum fyrir sóða-
skap.
Skálinn á Grimsfjalli er ávallt^
opinn og til taks, ef slys verða á
jökli. En ætlazt er til að þeir sem
vilja nota hann, fái til þess leyfi
og spyrjist fyrir hvort rúm er þar,
áður en þeir fara í skálann. Skál-
inn var gerður upp i hitteðfyrra i
sjálfboðavinnu og í fyrra var farið
með nýja einangrun upp á jökul-
inn og komið fyrir milli veggja, til
að ekki slagaði og til að gera hann
snyrtilegri. Er því ætlazt til að
menn gangi þar vel um, þrifi er
þeir fara og skilji ekki eftir mat-
arleifar, sem rotna i pottum, eins
og gert er.
— Óhugnanleg
Framhald af bls. 32
þannig að útgönguleiðin væri
greið og þar héfur hann síðan
gengið út þegar hann fór án
þess að skemma neitt. Þjófur-
inn hafði greinilega aðeins
áhuga á peningum, þvf hann
skildi eftir ýmis önnur verð-
mæti, eins og frfmerki og
minnispeninga.
Við erum vön að hafa opna
glugga hjá okkur á nóttinni til
að fá ferskt loft inn f íbúðina og
höfum aldrei verið hrædd um
að atvik eins og þetta gæti
gerzt,“ sagði húsráðandi að lok-
um.
Athugasemd vegna
ummæla forsvars-
manns Fiskveiðasjóðs
SNORRI Snorrason, útgerðarmað-
ur á Dalvík, hefur beðið Morgun-
biaðið að koma á framfæri at-
hugasemdum við ummæli for-
svarsmanns Fiskveiðasjóðs Is-
iands, Guðjóns Halldórssonar, í
Morgunblaðinu 22. júlí sl. vegna
synjunar á lánsumsókn til smíði á
sérbyggóum rækjubát:
„í fyrsta lagi: Guðjón segir að
aðalástæðan fyrir synjuninni sé
hve fjárhagsstaða sjóðsins sé
slæm. Ekki hefur neinum dulizt
að svo sé, enda var af minni hálfu
tekið mjög mið af því og þannig
um hnúta búið, að ekki hefði kom-
ið til greiðslu úr sjóðnum fyrr en
um mitt næsta ár og nýtt fjár-
magn úr sjóðnum hefði orðið 58
milljónir kr. til loka byggingar-
tímans.
I öðru lagi: Dreginn er í efa
möguleiki minn til að standa við
greiðslu á eigin framlagi. Slíka
athugasemd hef ég ekki fengið
frá viðskiptabanka mínum, þó að
það sé sá aðili, sem það metur og
veit ég ekki betur en bankastjóri
þess banka hafi staðfest á fundin-
um, að framlag mitt væri fyrir
hendi miðað við þær áætlanir sem
frammi lágu.
í þriðja lagi: Guðjón lýsir i við-
talinu ótta fiskveiðisjóðs, aó ef
þetta skip hefði komið, þá h'efði
fylgt i kjölfarið fjöldi slíkra
skipa. Þann ótta verður að telja á
nokkrum rökum reistan, því að
allar spár sem gerðar hafa verið
sýna góðan rekstrárgrundvöll fyr-
ir slíkt skip, en hvort eina leiðin
til að losa sjóðinn við óþægindi
við skipakaupum til rækjuveiða
sé að það sannist aldrei að rekstr-
argrundvöllurinn sé góður, það
þykir mér i meira lagi broslegt.
Snorri Snorrason".