Morgunblaðið - 10.08.1976, Qupperneq 10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. AGUST 1976
10
Fót-
bolta-
menn
sáu
um
lögog
reglu
„ÞJÓÐHÁTlÐIN var velheppn-
uð,“ sagði Sigurgeir Ólafsson
formaður Þ6rs f Vestmanna-
eyjum sem f ár sá um fram-
kvæmd hátfðarinnar. „Veðrið
var að vísu afar leiðinlegt, en
það lét enginn það á sig fá, fólk
bara klæddi sig þeim mun
betur.“
„Allir. sem vettlingi gátu
valdið fluttust búferlum inn á
Breiðabakka yfir helgina, enda
yrði það ekki raunveruleg þjóð-
hátíð ef það legðist af.“
„Nei, það verður nú aldrei
alveg rétti bragurinn á þessu
fyrr en við fáum Herjólfsdalinn
aftur, en ætli það verði fyrr en
eftir 2 ár í fyrsta lagi. En samt
skemmtu sér allir stórvel,
ekkert síður en áður. Hér var
töluvert af fólki úr landi, lik-
lega þriðjungurinn."
Við höfðum heyrt að þið
hafið hætt við að fá auka-
lögreglulið úr landi til að halda
friðinn?
,Já, að þessu sinni tóku
knattspyrnumenn úr IBV að
sér aukagæzlu. Meistara-
flokkurinn bauð okkur þetta og
greiðsluna leggja þeir í ferða-
sjóðinn sinn. — Nei, þeir fengu
nú ekki lögregluskrúða heldur
aðeins hvítt band til aðgrein-
ingar frá öðrum.“
Eru meiri brögð að því en
áður var, að Eyjafólk fari upp á
land yfir hátíðina?
„Ég er nú ekki frá því að svo
sé. Það eru margir sem vilja
nota fríið sitt til að fara að
heiman. Kannski eru svo ein-
hverjir að bíða eftir að hátiðin
verði aftur uppi í dal.“ sagði
Sigurgeir að lokum.
Séð yfir hluta hátíða-
svæðisins á Breiðabakka.
Risasleikjó, stráhattur
og þjóðhátíðarbros.
Eitt
atriðanna,
Scheving
Þetta eru
og Viktor,
skemmtu með
og tali.
skemmti-
The
Brothers.
þeir Páll
sem
söng
Ekki vitum við hvað
krakkarnir á mynd-
inni eru að horfa á,
en greinilegt er, að
sitt er hvert sinnið
sem skinnið í
Eyjum eins og
annars staðar.