Morgunblaðið - 10.08.1976, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. AGUST 1976
13
12—13 ára. Þátttakendur ( mót-
inu skiptu hundruðum og þurftu
Framararnir að leggja marga
andstæðinga að velli áður en þeir
náðu úrslitunum. Fyrirliði Fram-
strákanna heitir Hermann Þórð-
arson og var hann kosinn bezti
sóknarleikmaðurinn í slnum ald-
ursflokki. Þjálfari flokksins er
bróðir hans, Gústaf Björnsson
meistaraflokksmaður úr Fram og
unglingalandsliðsmaður.
Fleiri áslenzk lið tóku þátt (
þessu móti. 3. flokkur stúlkna úr
Fram komst i 8 liða úrslit, þriðji
flokkur karla úr KR varð ( 3. sæti
í stnum aldursflokki' og auk
flokka frá þessum félögum áttu
Haukar þarna s(na fulltrúa.
Framstrákar áttu
bezta liðið og
sterkasta sóknar
manninn í Oslo
YNGSTU handknattleiksmenn-
irnir úr Fram gerðu góða ferð til
Noregs ( sfðustu viku. Þeir tóku
þar þátt ( miklu móti, sem nefnist
„Oslo Cup“ og sigruðu ( flokki
MEÐ SIGURBROS A VÖR — Norska drengjalandsliðið bar sigur úr býtum á Norðurlandamóti
drengja sem lauk á Laugardalsvellinum á sunnudagskvöldið. Sá sigur vannst ekki átakalaust og þurfti
vftaspyrnukeppni til að fá úrslit I leik Norðmanna við Svfa. Frá Norðurlandamóti drengja I
knattspyrnu er skýrt á blaðsfðum 18 og 19.
Eyjapeyjarnir meistarar á Akureyri
EKFIÐLEIKAR — Vilhjálm-
ur Árnason hefur lent utan
brautar og það er sins gott að
vanda sig við að koma boltan-
um inn á brautina aftur.
Myndin er tekin ( öldunga-
keppni landsmótsins f golfi, en
frá þv( er skýrt á blaðsfðum 14
og 15.
tJRSLITAKEPPNIN í Is-
landsmóti 5. flokks í
knattspyrnu fór* fram á
Akureyri fyrir og um
helgina. Það voru Sex fé-
lög sem áttu fulltrúa í
úrslitakeppninni og var
þeim skipt í tvo riðla. í
A-riðli léku Vestmanney-
ingar, |R og Valur, Reyð-
arfirði, en í B-riðli Fram,
KA og Þróttur, Neskaup-
stað.
Vestmanneyingarnir byrj-
uðu á því að leggja Val að velli,
sigruðu með 10 mörkum gegn
engu. ÍR-ingar urðu Vestmann-
eyingum heldur engin hindrun
á leiðinni í úrslitaleikinn, sigr-
uðu ÍR með 7 mörkum gegn 2.
Viðureign Vals og IR lyktaði
siðan með sigri IR með 2 mörk-
um gegn engu. Það kom því i
hlut ÍR-inga að leika við lið no.
2 í B-riðli um 3.—4. sætið.
I A-riðli var baráttan öllu
harðari og mátti vart á milli sjá
hvert liðanna væri sterkast.
Framarar byrjuðu á því að
leggja Þrótt að velli með einu
marki gegn engu. Sömuleiðis
sigraði Fram KA með einu
marki gegn engu og var það
mark skorað þegar um ein mín.
var til leiksloka, svo tæpara
mátti það vart standa. Loks
sigraði KA Þrótt með einu
marki gegn engu og hlaut þar
mað annað sætið í riðlinum.
Urslitaleikirnir fóru siðan
fram á grasvellinúm á Akur-
eyri á sunnudag og léku KA og
IR fyrst um 3. sætið. Skemmst
er frá því að segja að Akureyr-
ingarnir voru greinilega mun
sterkari og sigruðu með 5 mörk-
um gegn einu, eftir að hafa haft
yfir i leikhléi tvö gegn engu.
Bergþór Ásgrímsson og Ómar
Pétursson skoruðu hvor um sig
tvö mörk fyrir KA og Bjarni
Jónsson eitt. Mark IR skoraði
Bóas Árnason.
Þá var komið að úrslitaleikn-
um og þar voru það að sjálf-
sögðu Fram og IBV sem mætt-
ust. Piltarnir voru svolítið
óöruggir til að byrja með og bar
mikið á löngum spyrnum fram
og aftur. Smám saman fóru þeir
þá að átta sig betur á hlutunum
og náðu Vestmanneyingacnir
þá undirtökunum. Ekki leið á
löngu þar til Eyjamenn náðu
forystu með marki Lúðvíks
Bergvinssonar. Skömmu siðar
var Lúðviðk aftur á ferðinni og
jók forskotið með marki af
stuttu færi. Næsta orðið áttu
Framarar. Agnar Sigurðsson
skaut miklu skoti af um 40
metra færi sem hafnaði í neti
Eyjamanna, mikið skot það.
Þannig var staðan i leikhléi og
Eyjamenn höfðu vindinn í bak-
ið i þeim síðari.
Eftir því sem á leið sóttu þó
Eyjamenn í sig veðrið og Hlyn-
ur Stefánsson skoraði fallegt
mark um miðbik hálfleiksins.
Síðasta orðið i leiknum átti sið-
an Lúðvík Bergvinsson
skömmu fyrir leikslok þegar
hann skoraði fjórða mark Eyja-
manna og kórónaði þrennu
sina. Urslitin urðu þvi fjörur
mörk gegn einu og Vestmann-
eyingar Islandsmeistarar í 5.
flokki. Sanngjarn sigur, því
IBV hafði greinilega sterkasta
liðinu á að skipa í 5. flokki að
þessu sinni.
Hermann Gunnarsson skorar annað mark Valsmanna ( leiknum við
Akranes á laugardaginn. Ingi Björn Albertsson átti mestan heiður-
inn af því marki og er hann lengst til vinstri á myndinni. Sjá bls. 20.
„TAKMARKIÐ EKKIAÐ VERÐA MARKA-
KÓNGUR HELDUR AÐ TAKA VIÐ ÍS-
LANDSBIKARNUM FYRIR HÖND VALS"
INGI Björn Albertsson hefur
skotizt eins og spútnik upp
markaskoraralistann og eftir
leikinn á laugardaginn trónar
hann í efsta sæti með 11 mörk
og ( þremur sfðustu leikjum
Vals hefur Ingi skorað 9 mörk.
„Það er ekki takmarkið hjá
mér að verða markakóngur
mótsins heldur að taka við
íslandsbikarnum fyrir hönd
Vals I mótslok,“ sagði Ingi
Björn eftir leikinn við Akranes,
en hann er sem kunnugt er
fyrirliði Vals. „Ég held að
ekkert geti stöðvað okkur fyrst
við unnum uppi á Skaga og við
ætlum okkur að vinna bæði
deild og bikar. Valsfuglinn er
kominn á flug aftur.“
Ingi Björn byrjaði að leika
með meistaraflokki Vals 1970
og hann hefur síðan verið fasta-
maður í liðinu að undanskildu
einu ári þegar hann var við
nám og störf í Frakklandi. Ingi
hefur skorað 45 mörk í 1. deild-
inni frá því hann hóf að leika
þar og einu sinni áður hefur
hann náð 11 mörkum á einu
keppnistlmabili en hann hefur
aldrei orðið markakóngur. „Það
væri vissulega gaman að verða
markakóngur I ár, en það er
ekki takmarkið eins og ég sagði
áðan og það yrði ekki á kostnað
Vals. Ég ætla mér ekki að verða
með neina græðgi fyrir framan
markið.“
I sumar hefur Ingi Björn
leikið f nýrri stöðu, sem fremsti
tengiliður á miðjunni. „Þetta er
mín rétta staða. Áður fyrr lék
ég sem fremsti maður og í fyrra
á kantinum, en í þessari stöðu
kann ég bezt við mig,“ sagði
hann. Og það eru vist flestir á
sama máli, að Ingi hafi aldrei
verið betri en í sumar. Þetta er
kannski merkilegast fyrir þá»
sök, að hann hefur átt við
slæman sjúkdóm að stríða i
sumar, sjúkdóm í liðamótum.
Veikin gerði vart við sig í
sumar og missti Ingi af fyrstu
leikjum Vals fyrir bragðið. „Ég
tek pillur við þessu og held
þannig sjúkdómnum i skefjum,
en ég hef miklar þrautir eftir
hvern leik.“
Ingi Björn hefur leikið
nokkra landsleiki, en hann
hefur samt ekki klæðzt lands-
liðspeysunni síðan 1971. Hann
hefur mjög verið orðaður við
landsliðið eftir góða frammi-
stöðu i sumar. „Ég mundi
auðvitað segja strax já, ef ég
yrði beðinn að leika með lands-
liðinu í haust. Það er draumur
allra knattspyrnumanna að
leika með landsliði“, sagði Ingi
Björn að lokum.
— SS.