Morgunblaðið - 10.08.1976, Page 26
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGUST 1976
þeirra og Björgvin kom inn á flöt
á 18. braut, sem sigurvegari i
meistaraflokki, Ragnar í öðru
sæti og Sigurður Thorarensen í
þriðja sæti, en hann lék mjög vel
síðustu 9 holurnar eins og áður
sagði. Byrjunin á þessum vel-
gengiskafla Sigurðar var það að
hann setti niður langt ,,pútt“ á 9.
holu, eftir að allt hafði gengið á
móti honum fram að því.
Talsverður fjöldi áhorfenda
fylgdist með köppunum allar 18
holurnar á laugardaginn og lét
fólkið leiðinlegt veður ekki aftra
sér. Sumir veigruðu sér þó við að
fara út á vatnsveðrið og sátu upp í
skála þeirra GR-manna. Þar var
líka auðvelt að fylgjast með, því í
gegnum labb-rabb-kerfi bárust
upplýsingar fljótlega í skálann.
Reyndar bárust upplýsingar það-
an og einn kylfingur sem einnig
er áhugasamur um knattspyrnu
spurðist fyrir um það hvernig leik
Vals og lA í 1. deild hefði lyktað.
Fékk hann greið svör við
spurningunni, en sá sem varð
fyrir svörum í skálanum hnýtti
því aftan við að engin hesta-
mannamót hefðu farið fram um
helgina og fannst honum greini-
lega Iítið til 1<nattspyrnuáhuga-
mannsins koma.
Svo aftur sé vikið að keppninni
í meistaraflokki þá voru hvorki
meira né minna en 12 högg í þá
sem urðu jafnir í 4.—5. sæti. Þeir
voru unglingameistarinn Sigurð-
ur Pétursson og Óskar Sæmunds-
son, báðir á 318 höggum. Sýnir
þetta vel í hve miklum sérflokki
Björgvin, Ragnar og Sigurður Th.
eru meðal íslenzkra kylfinga.
Hvað um það, árangur Sigurðar
og Óskars er athyglisverður,
Sigurður mjög efnilegur kylfing-
ur og árangur Óskars stórgóður
miðað við það að hann hefur lítið
æft golf síðastliðið ár.
Sjötti i keppninni í meistara-
flokki varð Þorbjörn Kjærbo á
319 höggum, en Þorbjörn lék
mjög vel siðasta dag keppninnar.
1 næstu sætum urðu þeir síðan
jafnir Einar Guðnason, Sigurður
Hafsteinsson og og Magnús
Halldórsson, allir á 321 höggi. Síð-
an komu þeir Gunnar Þórðarson
frá Akureyri, Ágúst Svavarsson
handknattleiksmaður úr ÍR og
Haraldur Júlíusson fyrrum knatt-
spyrnumaður með ÍBV, allir á 327
höggum.
Einvígi blaðamanns
og læknis
Keppnin um efsta sætið í 1.
flokki var æsispennandí og háðu
þeir Kjartan L. Pálsson blaðamað-
ur og Knútur Björnsson læknir
mjög „taugastrekkjandi" einvígi.
Hafði Kjartan eins höggs forskot
þegar keppnin hófst síðasta dag-
inn. Jók Kjartan þá forystu og var
Kjartan Pálsson og Knútur Björnsson að lokinni spennandi keppni 11
flokki.
Óánægður með spila-
mennskuna, ánægður
með sigurinn, sagði
Björgvin Þorsteins-
son að landsmótinu
loknu á laugardaginn
— ÉG ER ekki sérlega ánægður
með spilamennskuna f þessi.
móti, sagði Björgvin Þorsteins-
son er við ræddum við hann á
laugardaginn. — Það er vissu-
lega ánægjulegt að hafa unnið
enn einu sinni, en ég hefði bara
viljað leika miklu betur. En
það verður ekki við öllu gert og
ég fann mig einhvern veginn
ekki þessa daga, nema kannski
þriðja daginn þegar ég lék á 71
höggi, sagði Björgvín.
Björgvin kvartaði ýfir veðr-
inu og sagði að ekki væri hægt
að ætlast til að góður árangur
næðist nema veðrið væri skap-
legra en verið hefði keppnis-
daga landsmótsins að þessu
sinni.
Þá sagði Björgvin að sér
hefðu fundizt flatirnar slæmar
á fyrstu 9 holunum á vellinum í
Grafarholti, en hins vegar
ágætar seinni helming vallar-
ins. — Nei, nei ég var alls ekk-
ert slæmur á taugum síðustu
brautirnar. þó að Ragnar væri
kominn fskyggilega nærri mér,
sagði Björgvin á lokum.
Um næstu helgi verður Jað-
arsmótið á Akureyri og verður
Björgvin þá á sfnum heima-
velli. Hvort hann nær þá eins
frábærum árangri og á dögun-
um er hann )ék völlinn á 65
höggum f meistarakeppni GA
skai ósagt látið, en hann sagðist
hafa mikinn hug á að leika bet-
ur f þeirri keppni heldur en f
landsmótanu.
Kristfnu Pálsdóttur óskað til hamingju með sigurinn f meistaraflokki kvenna, Jakobfna Guðlaugsdóttir
stendur álengdar. „
BJÖRGVIN Þorsteinsson varð Is-
landsmeistari í golfi f fimmta
sinn er landsmótinu lauk f
Grafarholti á laugardaginn og er
þetta f fjórða skiptið í röð sem
Björgvin verður meistari f íþrótt-
inni. Keppnin var mjög spenn-
andi á laugardaginn og saxaði
Ragnar Ólafsson mjög á sex
högga forskot Björgvins strax á
fyrstu holunum. Var munurinn
ekki orðinn nema eitt högg þegar
hann var minnstur, en Björgvin
hristi þá af sér slyðruorðið og
kom inn á 79 höggum á laugar-
daginn eða á samtals 300 höggum
sléttum. Ragnar lék á 75 höggum
á laugardaginn og samanlagt á
302 höggum. t þriðja sæti varð
sfðan Sigurður Thorarensen á 306
höggum og var það ekki fyrr en á
seinni 9 holunum á laugardaginn
að Sigurður sýndi hvers hann er
megnugur.
Ragnar Ólafsson óskar Björgvini Þorsteinssyni til hamingju með fimmta Islandsmeistaratitilinn og
þakkar skemmtilega keppni.
Landsmótið í Grafarholti er
sterkasta golfmót sem farið hefur
fram hérlendis þar sem aðeins
Islendingar hafa verið þátttak-
endur. Gaf mótið samanlagt 250
stig til landsliðs og af þeim fékk
Björgvin 47.50 stig. Fór mótið
mjög vel fram þrátt fyrir leiðinda-
veður aila keppnisdaga og þá sér-
staklega sfðasta daginn, en þá
rigndi stanzlaust frá hádegi og
þar til keppninni var lokið. Háði
það keppendum mjög og voru
flestir langt frá sínu bezta. Hlýtur
rigningin sérstaklega að hafa
komið niður á leikmönnum eins
og Björgvini og Ragnari, en báðir
nota þeir gleraugu.
Konráð Bjarnason var mótstjóri
og tjáði hann Morgunblaðinu að
keppendur hefðu verið vel á
þriðja hundrað og starfsmenn við
mótið hefðu verið á annan tug
þegar mest hefði verið. Golf var
leikið I Grafarholti frá því
snemma á morgnana og fram I
myrkur á kvöldin, alls I um 65
klukkustundir. Sagðist Konráð
Bjarnason vera ánægður með
hvernig til hefði tekizt við fram-
kvæmd mótsins og væri miklu
auðveldara að halda svona mót á
18 holuvelli heldur en á minni
völlunum. Ekki sagði Konráð að
ákveðið væri hvar næsta lands-
mót yrði haldið og yrði sjálfsagt
erfitt að finna þvi stað. Annað
hvort yrði að leika á tveimur 9
holu völlum eða þá aftur í Grafar-
holti, sem væri eini 18 holuvöllur-
inn á landinu.
Ragnar saxar á
forskot Björgvins
Þegar keppnin hófst á laugar-
daginn hafði Björgvin Þorsteins-
son sex högga forystu á Ragnar
Ólafsson, én strax á fyrstu holun-
um náði Ragnar fjórum höggum
af Björgvini. Hélzt sá munur
nokkurn veginn þangað til kom
að 13. holu. Þar missti Björgvin
aftur eitt högg, en náði því síðan á
14. braut. Á 15. holu varð munur-
inn aftur eitt högg, en Björgvin
gaf sig ekki og náði aftur tveggja
högga forystu á 16. braut. Eftir
það breyttist bilið ekki á milli
Björgvin komst í hann krappan
en sigraði þó með 2 höggum og
meistari í fimmta skipti
er