Morgunblaðið - 10.08.1976, Page 28
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. AGUST 1976
ENN EINU SINNI SETTU VEÐUR-
GUÐIRNIR STRIK í REIKNINGINN
- Erlendur vann bezta afrek meistara-
mótsins er hann kastaði kringlu 59,30 m
ENN einu sinni eyðilögrtu veður-
guðirnir frjálsíþróttamót hér-
lendis. Að þessu sinni var það
meistaramót Islands, sem varð
fyrir barðinu á þeim, en það fór
fram á Laugardalsvellinum á
laugardag og sunnudag. Báða dag-
ana var veður mjög óhagstætt til
keppni, rigning og kuldagjóstur,
þannig að ekki var unnt að búast
við miklum afrekum hjá frjáls-
íþróttafólkinu. Var'það raunar
karlmennskuverk hjá því að
hoppa eða hlaupa um í slagviðr-
inu.
Þrátt fyrir þessu óblíðu skilyrði
leit eitt íslandsmet dagsins ljós á
mótinu. Sveit ÍR bætti verulega
íslandsmetið í 4x100 metra boð-
hlaupi kvenna, hljóp á 48,9 sek.
Gamla metið átti sveit Ármanns
og var það 50,2 sek., sett árið 1974.
Þá voru á mótinu sett þrjú ný
aldursflokkamet. Thelma Björns-
dóttir UBK setti stelpnamet í 800
og 1500 metra hlaupi og Eggert
Guðmundsson, bráðefnilegur
stangarstökkvari úr HSK, setti
nýtt drengjamet í stangarstökki,
stökk 3,70 metra. Var það vel af
sér vikið hjá honum, ekki sfzt
þegar tekið er tillit til aðstæðna.
Má vera að þarna sé á ferðinni
íþróttamaður sem loks hrífur
stangarstökkið úr þeim öldudal,
eða jafnvel niðurlægingu, sem
verið hefur undanfarin ár.
Þrátt fyrir allt verður ekki ann-
að sagt en þátttaka í mótínu hafi
verið allgóð, og utanbæjarfólk
mætti nú betur til keppni en oft
áður. Hins vegar var um veruleg
frávik að ræða frá keppnisskrá,
og óneitanlega var sumra af beztu
frjálsíþróttamönnum landsins
saknað á mótinu. Sigurður Sig-
urðsson, Ármenningur, keppti
ekki vegna meiðsla og Stefán
Hallgrímsson keppti aðeins í
einni grein, spjótkastinu, en Stef-
án á stöðugt við meiðsli að stríða
og Olympíufarinn Bjarni Stefáns-
son mætti ekki til keppni —
þurfti að vera að vinna. Þá var
Jón Diðriksson einnig fjarver-
andi.
Köstin:
Það leikur ekki á tveimur tung-
um að það var Erlendur Valdi-
marsson, KR, sem vann bezta af-
rekið á þessu meistaramóti, en
hann kastaði kringlunni 59,35
metra og er það bezti árangur
Erlends í.5r, og rösklega 4 metr-
um betra en hann kastaði á meist-
aramótinu í fyrra. Samt sem áður
virtist þetta ágæta kast Erlends
ekki vera fullkomlega heppnað,
og varla er vafi á því að hann á
eftir að þeyta kringlunni vel yfir
sextíu metra í sumar. Má vel vera
að metið hans 64,32 metrar, fatli.
Víst er að Erlendur er greinilega
mjög sterkur um þessar mundir,
og mikill kraftur í köstum hans,
sem ekki virðist þó nýtast sem
skyldi — sennilega vegna þess að
Erlendur hefur orðið fyrir tölu-
veróum frátöfum við æfingar sín-
ar í sumar vegna meiðsla. Annar í
kringlukastinu varð Öskar Jak-
obsson og kastaði 53,26 metra. Má
segja hið sama um hann og Er-
lend. Krafturinn er fyrir hendi,
en eitthvað skortir á til þess að
kringlan fljúgi mun lengra.
Ólympíufarinn Hreinn Hall-
dórsson hafði yfirburði í kúlu-
varpinu, svo sem vænta mátti,
varpaði 19,20 metra, en Guðni
Halldórsson náði sínum bezta ár-
angri er hann varpaði 17,83
metra. Er greinilega tímaspurs-
mál hvenær Guðni nær 18 metra
kastinu.
Árangur í spjótkastinu var
heldur iélegur, og sennilega mest
vegna þess að veðrið var ákaflega
óhagstætt til keppni í þeirri
grein. Öskar sigraði með 64,82
metra kasti — kastaði meira en
sjö metrum lengra en næsti mað-
ur, Elías Sveinsson.
Spretthlaupin:
Vilmundur Vilhjálmsson sigr-
aði örugglega í ölium spretthlaup-
unum þremur, 100 metra hlaupi,
300 metra hlaupi og 400 metra
hlaupi, en árangurinn var fremur
slakur, sérstaklega í 100 og 200
metra hlaupi þar sem vindurinn
var beint í fangið. Þá skorti Vil-
mund einnig keppni, en hann er
harður keppnismaður og nær
jafnan mun betri árangri við slík-
ar aðstæður. 400 metra hlaupið
hljóp Vilmundur með miklum
ágætum og verður það að teljast
gott að vera undir 51 sek. við
aðstæður eins og voru á sunnu-
daginn, en þá var brautin einnig
orðin mjög lin, eftir stórrigningu
laugardagsins.
Millivegalengdahlaup:
Sem betur fer virðast miilivega-
lengdahlaupin eiga miklum vin-
sældum að fagna meðal íslenzkra
frjálsíþróttamanna um þessar
mundir og á engum greinum
meistaramótsins var eins góð þátt-
taka og í 800 metra og 1500 metra
hlaupi. Er ólíkt skemmtilegra að
sjá 10—15 hlaupara á brautinni
en 2—3 eins og var fyrir nokkrum
árum, jafnvel þótt árangurinn sé
ekkert sérstakur.
800 metra hlaupið var þó nokk-
uð gott, og átti þar sovétmaðurinn
V. Podoliako hlut að máli, en
hann sigraði nokkuð örugglega og
virtist ekki gera eins og hann gat.
Ágúst fylgdi honum allt hlaupið
og munaði aðeins 4/10 úr sek. á
þeim í lokín. Var Ágúst ekki langt
frá meistaramótsmetinu sem
Svavar Markússon setti árið 1955,
1:54,3 mín. 1 800 metra hlaupinu
vakti 17 ára EH-ingur, Gunnar Þ.
Sigurðsson, athygli, en hann
hreppti þar þriðja sætið. á eftir
Ágústi og Sovétmanninum, hljóp
á 1:58,4 mín. Þar er á ferðinni
piltur sem vafalaust á eftir að
heyrast frá á næstu árum.
í 1500 metra hlaupinu hafði Ág-
úst mikla yfirburði. Hljóp hann
vel fyrri hluta hlaupsins, en slak-
aði síðan á undir lokin, enda að
engu að keppa nema meistaratitl-
inum sem hann varöruggur með.
Meiri barátta var hins vegar um
annað sætið og þar hafði Haf-
steinn Óskarsson, ÍR-ingur, bezt,
en þriðji varð Akureyringurinn
Jónas Clausen. Var verulega
ánægjulegt að sjá Akureyringa
mæta til leiks á meistaramótinu,
en undanfarin ár hefur ekki verið
mikil reisn yfir frjálsum íþróttum
á Akureyri. Er vonandi að það
unga fólk sem keppti á meistara-
mótinu rífi frjálsar upp á Akur-
eyri — það hefur í það minnsta
alla burði til þess að gera það.
Langhlaup:
Aðeins -var keppt í einu lang-
hlaupi um helgina, 5000 metra
hlaupinu. í því sigraði Sigfús
Jónsson með yfirburðum, og má
segja hið sama um hann og Ágúst
í 1500 metra hlaupinu. Hann
hafði að engu að keppa nema
meistaratitlinum, og því var ekki
að búast við ýkja góðum árangri.
Grindahlaupin:
Valbjörn Þorláksson varð enn
einu sinni meistari í 110 metra
grindahlaupi, en að þessu sinni
þurfti hann að hafa meira fyrir
titli sínum en oftast áður þar sem
ír-ingurinn Jón Sævar Þórðarson
fylgdi honum vel allt hlaupið.
Vegna mótvindar var ekki að
vænta góðs árangurs, enda reynd-
ist tíminn ekki vera betri en 16,6
sek. hjá Valbirni og 16,7 sek. hjá
Jóni.
I 400 metra grindahlaupinu
sigraði hinn ungi Skagfirðingur
Þorvaldur Þórsson á 57,0 sek.,
sem er ágætur árangur miðað við
aðstæður. Hefur Þorvaldur náð
allgóðri tækni yfir grindunum og
á vafalaust eftir að bæta sig veru-
lega við betri skilyrði.
Stökkin:
Keppni í stökkgreinunum fjórum
var næsta tilþrifalítil á meistara-
mótinu. Friðrik Þór sigraði örugg-
lega í langstökki og stökk 6,97
metra með vindinn í bakið. Um
annað sætið var síðan mikið senti-
metrastríð og í því hafði Snæfell-
ingurinn Sigurður Hjörleifsson
bezt. Vegna-'iTfeiðsla treysti Frið-
rik Þór sér ekki í þristökkskeppn-
ina og vann Skagfirðingurinn Jó-
hann Pétursson meistaratitilinn í
fjarveru hans.
Valbjörn Þorláksson varð
meistari í stangarstökki, stökk
4,10 metra, og reyndi síðan við
4,30 metra sem hann var alllangt
frá að fara. í hástökkinu gerði
Elías sér 1,90 metra að góðu, og þá
hæð stökk einnig Jón Sævar Þórð-
arson.
Sögulegt boðhlaup:
4x100 metra boðhlaup meistara-
mótsins var í senn sögulegt og
broslegt. Aðeins ein sveit mætti
til leiks — sveit KR, — og er það
út af fyrir sig furðulegt að ekki
skuli koma nema ein sveit til
keppni í boðhlaupi á meistara-
móti íslands. Valbjörn Þorláks-
son átti að hlaupa fyrsta sprettinn
fyrir KR-sveitina, og var hann
ræstur samkvæmt kúnstarinnar
reglum. Þegar Valbjörn hafði
hlaupið 50—60 metra kom í ljós
að hann hafði gleymt að hafa kefl-
ið með sér og þar með var hlaupið
búið. Greindi menn á um rétt-
mæti þess að endurtaka það, en
svo fór að lokum að úrskurðað var
að það skyldi fara fram að nýju og
átti að hlaupa það í gærkvöldi. í
4x400 metra boðhlaupi varð sveit
KR meistari, eftir að sveit FH
hafði náð góðri forystu um tíma.
Munaði mestu um góða spretti
Elíasar Sveinssonar og Vilmund-
ar Vilhjálmssonar í KR-sveitinni.
Kvennakeppnin:
Ekki fer á milli mála að Ingunn
Einarsdóttir var ókrýnd drottning
frjálsíþróttakvennanna á þessu
móti, og vann hún hin ágætustu
afrek, eins og t.d. að hlaupa 100
metra á 12,6 sek. á móti strekk-
ingnum, og 100 metra grinda-
hlaup á 14,6 sek. Þessi afrek
sanna að Ingunn er i mjög góðu
formi um þessar mundir og líkleg
til góðra afreka þegar skilyrði
bjóða upp á slíkt. Alls hlaut Ing-
unn fjóra meistaratitla á mótinu
um helgina, auk þeirra tveggja
sem hér hafa verið nefndir var
hún í sigursveit ÍR í 4x400 metra
boðhlaupinu og hún sigraði í 400
metra hlaupinu, auk þess sem
hún varð svo þriðja í hástökkinu.
Annars var keppni í kvenna-
greinunum yfirleitt nokkuð
skemmtileg og vel mætt til leiks
nema í einni grein, 1500 metra
hlaupinu, en það hlupu aðeins
þrjár stúlkur. Sigurvegari varð
Thelma Björnsdóttir, 12 ára
stúlka úr Kópavogi, og má mikið
vera ef hún er ekki yngsti Is-
landsmeistari frá upphafi. Lilja
Guðmundsdóttir tók þátt í 800
metra hlaupinu — fór hún sér að
engu óðslega, en varð samt sem
áður langfyrst að marki á 2:14,4
mín.
Ölympíufarinn Þórdís Gísla-
dóttir sigraði örugglega í sinni
grein, hástökkinu og stökk 1,68
metra. í langstökki bar hins vegar
Hafdís Ingimarsdóttir, fyrrver-
andi íslandsmethafi, sigur úr být-
um, eftir harða keppni við núver-
andi Islandsmethafa, Láru
Sveinsdóttur. Stökk Hafdís 5,45
metra en Lára 5,39 metra.
Í köstunum vann Mari'a Guðna-
dóttir bezta afrekið með því að
kasta spjótinu 37,59 metra. Ur
þessu ætti það aðeins að vera
tímaspursmál hvenær María nær
lslandsmeti Arndísar Björnsdótt-
ur, UBK, en það er 39,60 metrar,
sett árið 1972.
Hlaupararnir að leggja af stað f 800 metr;
Gunnar Páll Jóakimsson, Sigurður P. Sig
Bjarnason. (Ljósm. Br.H.).
Marfa Guðnadóttir, HSH, stóð sig vel bæði
af henni f sfðarnefndu greininni.
FriðrilrÞór Óskafsson í langstökkinu.
— stjl.
Stúlkurnar gera sig „klárar“ fyrir 800 metr;