Morgunblaðið - 10.08.1976, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. AGUST 1976
19
ðurlandamótinu
ir í neðsta sæti
BLIKARNIR halda áfram að hala
inn stigin f seinni umferðinni og
hafa aðeins tapað einu stigi, gert
jafntefli við Val, en unnið aðra
andstæðinga sfna. A sunnudaginn
lögðu þeir Keflvfkinga að velli,
úrslitin urðu 3:1 og var sá munur
sfzt of stór miðað við gang leiks-
ins og tækifæri liðanna.
Breiðabliksliðið hefur sýnt
mjög miklar framfarir upp á §ið-
kastið og vex reyndar með hverj-
um leik. Leikmenn liðsins hafa
öðlazt sjálfstraust og þora að
framkvæma hluti, sem þear gerðu
ekki fyrri hluta mótsins. Enda
voru þeir þá við botninn í deild-
inni og þar að auki nýir f 1. deild.
I liðinu eru leikmenn með gott
auga fyrir spili og hafa yfir mik-
og var staðan 2—0, þeim í vil, í
hálfleik.
Þjóðverjar bættu síðan 3. mark-
inu við, en Islendingum tókst að
minnka muninn í 3—1 með ágætu
marki Arnórs Guðjohnsens, sem
þó áður hafði fengið gott tækifæri
til að skora úr vitaspyrnu en hann
hitti ekki markið.
En Þjóðverjar höfðu ekki sagt sitt
síðasta orð, því þeir bættu enn við
einu marki og urðu það lokatölur
leiksins. Sigur Þjóðverja, var
sanngjarn, en markmunurinn
hefði átt að vera minni, því ís-
lendingum tókst ekki að nýta góð
marktækifæri.
Danir,.sem unnu þessa keppni í
fyrra keppni í fyrra í Finnlandi,
léku við Finna í Keflavík um
3.—4. sætið. Að áliti flestra, sem
með keppninni fylgdust, voru
Danir með bezta liðið að þessu
sinni, en þeir höfðu ekki heppn-
ina með sér. Þeir sigruðu Finna
með 3—2 og segja þau úrslit lítið
um gang leiksins, því yfirburðir
Dana voru miklir. Staðan var 3—0
Dönum í vil í hálfleik, en um
miðjan hálfleikinn tókst Finnum
að skora og bæta síðan öðru marki
við á siðustu minútunni.
Urslitaleikurinn fór síðan fram
á Laugardalsvellinum á sunnu-
dagskvöldið. Þegar á heildina er
litið var leikurinn slakur, en tals-
verðrar taugaspennu gætti hjá
leikmönnum beggja liða. Norð-
menn sóttu heldur meira i fyrri
hálfleik og áttu nokkur skot, sem
flest höfnuðu fram hjá markinu.
Svíar sóttu sig er liða tók á hálf-
leikinn og þeir voru sterkari aðil-
inn í síðari hálfleik. Nokkurrar
hörku gætti í leiknum og var
hvergi gefið eftir. Þegar leiktima
lauk hafði hvorugu liðinu tekizt
að skora mark og jöfðu Svíar þó
átt nokkur dauðafæri í síðari hálf-
leik og m.a. skot i stöng.
Leikurinn var því framlengdur
um 2x5 mín. og þrátt fyrir það
tókst liðunum ekki að skora.
Var nú vítaspyrnukeppni og var
hún mjög spennandi og skemmti-
leg. Svíar byrjuðu og skoruðu úr
sinni fyrstu spyrnu og það sama
gerðu Norðmenn. Eftir fjórar
vítaspyrnur var staðan enn jöfn,
en í þeirri fimmtu brást Svíum
bogalistin, því norski markvörð-
urinn varði. Var nú ein spyrna
eftir hjá Norðmönnum, en sænski
illi tækni að ráða margir hverjir.
Engir eru þó sterkari en bræðurn-
ir Hinrik og Einar Þórhallssynir
og áttu þeir báðir skínandi leik á
móti IBK. Þeir Bjarni Bjarnason,
Gfsli Sigurðsson og Heiðar Breið-
fjörð stóðu þeim þó ekki langt að
baki I þessum leik.
Keflavíkurliðið er mikið „papp-
irslið" — myndað af köppum, sem
flestir hverjir mega muna sinn
fífil fegri I knattspyrnunni, menn
eins og Guðni Kjartansson, Jón
Ólafur, Karl Hermannsson og
fleiri. Ungu mennirnir í Keflavik-
urliðinu eru efnilegir, en enn
ekki nógu sterkir til að taka við
merkinu af gömlu jöxlunum. I
Kópavogi á sunnudaginn átti
Keflavíkurliðið aldrei möguleika.
Aðstæður voru erfiðar til knatt-
spyrnuiðkana á sunnudaginn, rok
eftir vellinum endilöngum, kalt
og rigningaskúrir annað slagið.
Var þó mesta furða hvað Breiða-
bliksliðið náði að sýna við þessar
aðstæður og sérstaklega í fyrri
hálfleik þegar liðið lék á móti
vindinum. I fyrri hálfleiknum var
þó ekkert mark skorað, en strax á
annarri mínútu seinni hálfleiks
náðu Blikarnir fallegri sóknar-
lotu, sem lauk með því að Hinrik
Þórhallsson renndi knettinum
inn í vítateiginn til Þórs Hreiðars-
sonar sem Var í dauðafæri og átti
ekki i erfiðleikum með að skora
framhjá Þorsteini Ólafssyni.
Þetta var aðeins forsmekkurinn
að þvi sem átti eftir að koma og 20
minútum siðar juku Blikarnir for-
ystu sína í 2:0. Aftur náðu Blik-
arnir mjög fallegri sókn og nú var
það Vignir Baldursson sem gaf á
Hinrik í dauðafæri og þessi
markakóngur þeirra Blika og
bezti maður vallarins f þessum
leik skoraði með þrumuskoti á
milli fóta Þorsteins Ólafssonar.
Sfðasta mark Blikanna í leiknum
skoraði Heiðar Breiðfjörð á 39.
minútu hálfleiksins eftir að varn-
armönnum Keflavíkur hafði orðið
á í messunni og Ólafur Friðriks-
son var skyndilega einn með
knöttinn við endamörk og átti
ekki í erfiðleikum með að gefa
fyrir markið á Heiðar, sem skor-
aði örugglega.
Keflvikingar áttu svo síðasta
orðið í leiknum, á 43. mínútu náði
Einar Gunnarsson að skalla knött-
inn laglega yfir Ölaf Hákonarson,
eftir að knötturinn hafði borizt á
milli manna i vitateigi Breiðbliks.
Um Keflavíkurliðið í þessum
leik er það að segja að þar var
meðalmennskan allsráðandi og
varla nokkur leikmaður, sem lék
eins og hann bezt getur. Kópa-
vogsliðið hins vegar lék með al-
bezta möti og haldi Blikastrákarn-
ir áfram að leika sem í þessum
leik ættu þeir að ná þriðja sæti i
1. deildinni. Þeir eru nú með 14
stig eins og Akranes og eru liðið i
3.—4. sæti, Islandsmeistararnir
frá í fyrra og nýliðarnir í deild-
inni. Bezti maður liðsins i þessum
leik var Hinrik Þórhallsson og
hlýtur hann að vera undir smá-
sjánni hjá landsliðsnefnd, útsjón-
arsamur leikmaður, sem á góðar
sendingar og er sjálfur stórhættu-
legur.
1 stuttu máli:
Islandsmótið 1. deild, Kópavogs-
völlur 8. ágúst.
Breiðablik — IBK 3:1 (0:0)
Mörk Breiðabliks: Þór Hreið-
arsson á 47. mínútu, Hinrik Þór-
hallsson á 67. minútu, Heiðar
Breiðf jörð á 84. mínútu.
Mark lBK: Einar Gunnarsson á
88. minútu.
Helgi Ragnarsson og Viðar Halldórsson sækja að honum.
%
markvörðurinn varði og var stað-
an því enn jöfn 4—4. Aftur skor-
uðu bæði liðin, 5—5, en sjöundu
vítaspyrnu Svía varði norski
markvörðurinn. Það var þvi mik-
ill spenningur þegar Stig Stening,
leikmaður nr. 4. hjá Norðmönn-
um, undirbjó sig að taka sjöundu
vítaspyrnuna. Hann brást ekki og
skoraði örugglega við gífurlegan
fögnuð félaga sinna og færði þar
með liði sínu sigur í keppninni.
Lokatölur leiksins urðu því 6—5
fyrir Noreg.
Urslit einstakra leikja í keppn-
inni urðu, sem hér segir:
1. riðill:
Danmörk — V-Þýzkaland 2—0
Svíþjóð — V.-Þýzkaland 4—1
Danmörk — Svíþjóð 2—2
2. riðill:
Island — Finnland 1—1
Noregur — Finnland 1—1
Noregur — ísland 4—1
Urslitaleikir:
1:—2. sætið: Noregur — Sviþjóð
6—5 (eftir framlengingu og víta-
spyrnukeppni).
3. —4. sætið: Danmörk — Finn-
land 3—2.
5.—6. sætið: V.-Þýzkaland — Is-
land 4—1.
BLIKARNIR HALDA
ÁFRAM SIGURGÖNGU
SINNI - UNNU ÍBK 3:1
Hinrik Þórhallsson brýst framhjá Astráði Gunnarssyni og
skömmu sfðar hafði hann skorað.
Texti: Agúst Jónsson.
M.vndir: Friðþjófur Helgason.