Morgunblaðið - 10.08.1976, Blaðsíða 22
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGUST 1976
—Áhugi á...
Framhald af bls. 11
möguleikum, vinnsluaðferðum og
svo markaðskönnun fyrir afurð-
irnar. Þær afurðir sem viö erum
að vinna núna verða sendar á
markað í Bandarikjunum og
skreiðin fer til Nigeríu og svo er
bara að sjá hvernig menn bregð-
ast við.“
— „Það er rétt að taka fram,“
sagði Sveinn ennfremur, — „að
núna á þessum tíma virðist vera
hægt að veiða kolmunnann í tals-
verðum mæli með þeim veiðar-
færum sem við höfum notað. En
þar sem við höfum ekkert fylgzt
með kolmunna á grunnslóðum á
þessum árstima er ómögulegt að
segja hversu lengi fram eftir
hausti hann heldur sig á þessum
slóóum eða hversu lengi hann
verður veiðanlegur. Það held ég
að sé næsta verkefni sem þyrfti
að kanna.“
—Hús FEF
Framhald af bls. 11
Svo sem kom fram í frétt Mbl.
verður þarna rekið neyðarhús-
næði fyrir einstæða foreldra með
börn, sem standa uppi húsnæðis-
lausir um tíma. Námsfólk mun
einnig fá aðgang að húsinu.
Með þessu telur stjórn FEF sig
aðeins vera að leysa nokkurn
hluta gífurlegs húsnæðisvanda,
en eins og áður hefur verið sagt
frá hefur FEF einnig fengið vil-
yrði fyrir lóð í 2. áfanga Eiðs-
grandaskipulags í Reykjavik.
—Yamani
Framhald af bls. 1
ganga. Ráðherrar OPEC fjalla
um hækkun á olíuverði f
desember á næsta ári i Qatar.
Ráðherrann sagði að nokkur
OPEC-lönd létu sig dreyma um
mikla hækkun í líkingu við þá
10% hækkun sem var ákveðin
1973 en sagði að Saudi Arabía
mundi berjast gegn svo mikilli
hækkun. Hann taldi ótiinabært
að ræða hvað hækkunin yrði
mikil og sagði að mikil hækk-
un yrði ónauðsynleg ef kaup-
máttur OPEC-landa rýrnaði
ekki.
— Óeirðir
Framhald af bls. 1
skammt frá Durban og Khaiso í
norðvestri. Á þessum stöðum
grýttu blökkumenn hvíta menn
og kveiktu i byggingum.
í Soweto kom aftur til óeirða í
dag eftir rólega helgi. Nemendur
kveiktu í tveimur skólum og dóm-
húsi og grýttu verkamenn sem
voru á leið til vinnu sinnar í
Jóhannesarborg. Fyrirtæki í
Jóhannesarborg segja að flestir
starfsmenn sínir frá Soweto hafi
mætt til vinnu i dag en nokkrir
starfsmenn frá Alexandra hefðu
ekki mætt.
John Vorster forsætisráðherra
sagði í dag i fyrsta viðtalinu sem
hefur verið haft við hann siðan
síðustu óeirðirnar hófust að
stjórn sín léti ekki hræða sig til að
grípa til ráðstafana i fáti. Hann
kvað stjórn sina ráða við ástandið
og sagði að hún yrði að halda uppi
lögum og reglu. Hann taldi ekki
alvarlegan þann þrýsting sem
stjórn hans verður að mæta inn á
við og út á við.
— Kolmunni
Framhald af bls. 3
hann á venjulegan hátt og upp úr
eggjum og raspi og einnig ætla ég
að marinera hann eins og síld
Nei, mér lízt varla á að þetta eigi
eftir að verða vinsæll matur ..Við
Islendingar erum svo íhaldssamir á
ýsuna "
„ VILTU EKKI
LIFA LENGUR?"
í fiskbúðinni á Dunhaga var kona
að ná sér í soðið og hún var heppin.
því hún náði í síðustu fiskana
..Láttu mig bara fá þá alla," sagði
hún. en fiskkaupmannmum leizt
ekki á þetta og spurði hana hvort
hún vildi ekki lifa lengur ..Já, það
verður nóg að gera hjá prestunum á
morgun," sagði hann og bætti við
..Þetta þótti nú mesti ódráttur. sem
hægt var að fá hérna á síldarárun-
um."
En konan lét orð hans ekki á sig fá
og sagði að hún skyldi koma til hans
og færa honum bita. þegar búið
væri að matreiða kolmunnann Hún
kvaðSt vera hússtjórnarkennari og
ætlaði að prófa að steikja kolmunn-
ann ..Annars eru ótal möguleikar
við að matbúa þennan fisk og ef
þetta tekst vel og kolmunni verður á
boðstólum þá ætla ég að kenna
nemendum mínum að matreiða
hann Þetta er sennilega svipað og
með síldina á sinum tima Það er
undarlegt að við skyldum ekki nota
hana meira til matar, eins og t d
Norðmenn gerðu, þó þeirra síld
væri mun lakari en okkar "
TILGANGURINN
..Við erum fyrst og fremst að
þessu til að gefa fólki kost á að
smakka kolmunna, en.hann þykir
herramannsmatur," sagði Björn
Dagbjartsson forstjóri Rannsókna-
stofnubar fiskiðnaðarins er við innt-
um hann eftir því hvað lægi bak við
hugmyndina um að hafa ókeypis
kolmunna á boðstólum i nokkrum
fiskverzlunum i Reykjavík
..Runólfur kom með 90—100
tonn, sem veiddust á Héraðsdýpi,"
sagði hann Hann þurfti hvort eð er
að sigla hmgað suður, í slipp, en
hann á að fara i botnhreinsun "
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
undanfarið haft Runólf á leigu til
nýstárlegra veiða og nú hafa leigu-
samnmgar verið framlengdir um
hálfan mánuð
— Bella
Framhald af bls. 1
ið kæmist fljótt heim vegna felli-
bylsins.
Kauphöllum i New York var
lokað snemma og útvarpsstöðvar
ráðlögðu hlustendum að birgja
sig upp af kertum og fylla baðker
sín af vatni ef svo færi að raf-
magnslaust yrði og vatnslaust.
Ríkisstjóri New York-ríkis
skipaði þjóðvarðliðinu að vera við
öllu búið ef svo færi að það þyrfti
að taka þátt í björgunarstarfi.
— IRA- foringi
hótar
Framhald af bls. 1
hefur verið skipað að vera í
viðbragðsstöðu.
Frú Drumm er 56 ára gömul
amma. Rees hefur likt henni
við frú Defarge sem sat við
fallöxina i frönsku stjórnarbylt-
ingunni, taldi höfuðin og prjón-
aði.
—Bráðabirgðalög
Framhald af bls. 32
aldri á skattárinu eða áttu rétt á
örorkulifeyri á skattárinu skv.
lögum nr. 67/1971 um almanna-
tryggingar með áorðnum breyt-
ingum, skal lækka álag skv. 1.
mgr„ sem hér segir:
a. Hjá einstaklingum með tekj-
ur til útsvars kr. 320.000 eða lægri
og hjá hjónum með tekjur til út-
svars kr. 570.000 eða lægri skal
álag þetta alveg falla niður.
b. Hjá einstaklingom með tekj-
ur til útsvars á bilinu kr. 320.100
til kr. 640.000 skal álag þetta
lækkað um 1% af þeirri fjárhæð,
sem á vantar 640.000 króna tekju-
mark.
c. Hjá hjónum með tekjur til
útsvars á bílinu kr. 570.100 til kr.
1.140.000 skal álag þetta lækkað
um 1% af þeirri fjárhæð, sem á
vantar 1.140.000 króna tekju-
mark.
d. Eftirstöðvar álags þessá, sem
lækkað hefur verið skv. ákvæðum
b. og c. liða, skulu að lokinni
lækkun standa á heilum hundruð-
um króna, þannig að lægri fjár-
hæð en kr. 100 skal sleppt.
Gjald þetta er háð sömu reglum
og útsvar varðandi innheimtu og
viðurlög.
Við ákvörðun Tryggingastofn-
unar ríkisins um framlag ríkis-
sjóðs til sjúkrasamlaga sam-
kvæmt 49. gr. skal taka tillit tii
þessa framlags til hlutfallslegrar
lækkunar á framlagi rikissjóðs.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Líkur aukastá því
að líf sé á Mars
Pasadt'na — 8. áf'úst — Reuter.
VÍSINDAMENN í Pasa-
dena segja, aö nú um helg-
ina hafi borizt upplýsingar
sem sterklega gefi til kynna
aö líf geti leynzt á Mars.
Rannsóknirnar eru fólgnar í
endurteknum tilraunum, og benda
nýjustu upplýsingar til þess að
örverur sé að finna í jarðvegi
reikistjörnunnar. Vísinda-
mennirnir segja hins vegar að ekki
sé hægt að taka fullkomið mark á
upplýsingum frá Mars fyrr en 23.
ágúst, þar sem engan veginn sé
áreiðanlegt að upplýsingarnar séu
réttar fyrr en samhljóða upplýs-
ingar hafi borizt a.m.k. tvívegis.
Tekizt hefur að gera við það
tæki Mars-ferjunnar, sem safnar
jarðvegssýnum, en það hafði verið
bilað í fjóra daga.
Austur--Berlín — 9. ágúst — Reuter.
HERBERT Drabant, fyrrverandi
foringi í S.S.-sveitum na/.ista, var
dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir
morð á f jörlmörgum Sovétborgur-
um í stríðinu og fyrir að hafa
tekið þátt f því að taka a.m.k. 4400
manns af Iffi.
Þetta eru fyrstu stríðsglæpa-
réttarhöldin í Austur-Berlín í
mörg ár. Dómarinn vísaði á bug
þeim málsbótum Drabants, að
hann hefði einungis framkvæmt
Mars í grárri morgun-
skímunni. Landslagi í
námunda vió lendingar-
stað Mars-ferjunnar
svipar mjög til eyði-
marka jaröarinnar.
Stöngin, sem sést á miðri
myndinni, er hluti af
„veöurstofunni" á Mars.
fyrirskipanir yfirmanna sinna.
Hann var dæmdur fyrir ómannúð-
lega glæpi, sem framdir voru á
árunum 1941—43.
Vestrænir fréttamenn voru við-
staddir réttarhöldin, og segja
þeir, að þar hafi verið lögð sér-
stök áherzla á glæpi gegn sovézk-
um föðurlandsvinum, einkum
kommúnistum.
Drabant var handtekinn á
sfðasta ári.
Stríðsglæpamaður
dæmdur 1 A-Berlín
Hver verður varafor-
setaefní repúblíkana?
Ford sigurviss
Washington — 9. ágúst
— Reuter — AP
GERALD Ford Bandarfkjafor-
seti sagði f sjónvarpsviðtali í
dag, að þeir repúblfkanar, sem
gagnrýndu John Connally opin-
berlega sem hugsanlegt vara-
forsetaefni, stuðluðu að óein-
ingu innan flokksins. 1 viðtal-
inu lét forsetinn f Ijós það álit
sitt, að Ronald Reagan hefðu
orðið á mistök þegar hann til-
kynnti val sitt á varaforsetaefni
áður en flokksþing repúblfk-
ana kemur saman, en það hefst
í Kansas-borg f næstu viku.
Ford gerði utanríkismál að
umræðuefni í viðtalinu. Hann
sagði að næði hann kjöri legði
hann áherzlu á að ná árangri í
afvopnunarviðræðunum við
Rússa, lausn mála í Miðaustur-
löndum og Afríku sunnan-
verðri, auk þess sem hann hefði
hug á því að efla Atlantshafs-
bandalagið.
Hann sagði, að kosningabar-
áttan yrði án efa mjg^r hörð og
erfitt yrði að sigra Jimmy Cart-
er, en þó væri hann þess full-
viss, að sjálfur mundi hann
sigra f kosningunum.
Þegar talið barst að varafor-
setaefni, sagði forsetinn að val-
ið væri ekki útkljáð, og ýmsir
möguleikar væru þar fyrir
hendi. Nú þegar væru meira en
tólf hugsanleg varaforsetaefni
úr leik vegna þess að fyrsta
athugun á högum þeirra hefði
leitt í ljós eitthvað athugavert.
Hann sagðist aðeins geta nefnt
einn mann, sem örugglega
kæmi ekki til greina við þetta
val, og það væri Richard
Schweiker, varaforsetaefni
Ronalds Reagan, en Schweiker
hefur þótt vera helzt til ótraust-
ur liðsmaður flokkssystkina
sinna á þingi. „Ég mun velja
mann, sem hefur sömu hug-
sjónir og ég, — og hafa af hon-
um stuðning við það, sem ég vil
koma til leiðar, og geta treyst
því að afstaða hans til hinna
ýmsu mála sé í samræmi við
Ronald Reagan ásamt Richard Schweiker, varaforsetaefni sínu.
það sem hann hefur áður sagt-
og greitt atkvæði sitt," sagði
forsetinn.
Sá sem helzt þykir koma til
greina sem varaforsetaefni
Fords, er John Connally. Hann
var ríkisstjóri í Texas þegar
Kennedy forseti var myrtur þar
árið 1963, og hlaut hann þá
skotsár. Upphaflega var hann
demókrati, en gekk í lið með
repúblíkönum fyrir nokkrum
árum. Hann var fjármálaráð-
herra í stjórn Nixons, en lét af
embætti þegar grunur féll á
hann vegna mútumáls, sem
tengdist Watergatemálunum.
Hann kom fyrir rétt, en reynd-
ist sýkn saka. Nú um helgina
lét John Connally svo um mælt,
að þótt honum byðist að verða
varaforsetaefni repúblíkana í
kosningabaráttunni væri mjög
vafasamt að hann tæki það að
sér. Síðan hann lét af embætti
fjármálaráðherra hefur hann
verið ráðunautur í Hvíta
húsinu, og kveðst hann vera
ánægður í því starfi. Hann
segist ekkert hafa aðhafzt til að
hljóta útnefninguna og muni
ekki gera það, — en hins vegar
hafi hann dregið úr þeim, sem
áhuga hafi á því að hann verði
útnefndur.
Annar maður, sem mjög
hefur verið nefndur sem
hugsanlegt varaforsetaefni
Fords, er Elliot Richardson,
viðskiptamálaráðherra. Hann
sagði f sjónvarpsviðtali um
helgina, að aðstoðarmenn for-
setans hefðu komið að máli við
sig og óskað eftir því að hann
legði fram upplýsingar um
heilsufar sitt og fjármál,
þannig aö hægt væri að kanna
þær. Kvaðst Richardson vel
geta hugsað sér að koma til
greina sem varaforsetaefni.
Richardson var um tíma dóms-
málaráðherra í stjórn Nixons,
en sagði af sér þegar forsetinn
krafðist þess að hann ræki hinn
opinbera ákæranda í Water-
gate-málunum, Archibald Cox.
Hann lét svo um mælt I viðtal-
inu, að útnefnin.L: hans til vara-
forsetaframboðsins mundi
draga úr þeim áhrifum, sem
Watergate mun að líkindum
hafa á kosningarnar en Jimmy
Carter og Walter Mondale hafa
látið að þvf liggja, að þeir muni
ræða það mál i kosningabar-
áttunni.