Morgunblaðið - 10.08.1976, Síða 24
Al'íiLÝSINGASÍMINN ER:
22480
®rj0nttií>feí3iiiíi>
ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGtJST 1976
Milljón stol-
ið frá Útsýn
Sólarlandaferð í verðlaun fyrir lausn málsins
KOMIÐ hefur f Ijós, að þjófnaðurinn, sem framinn var f ferðaskrif-
stofuna (Itsýn f Austurstræti aðfararnótt s.I. föstudags, var miklu
meiri en haldið var f fyrstu. Samkvæmt upplýsingum Ingólfs
Guðbrandssonar forstjóra (Jtsýnar er ekki fullkannað hve miklum
verðmætum var stolið en lausleg athugun bendir til þess, að samanlagt
andvirði þýfisins só nærri ein milljón króna. Þetta var mestmegnis
erlend mynt, sem geymd var í læstri hirzlu á skrifstofu (Jtsýnar, en
þjófurinn sprengdi upp hirzluna. Það kom fram f samtalinu við Ingólf,
að hann hefur ákveðið að heita verðlaunum þeim, sem veitir upplýs-
ingar sem leiða til þess að þjónaðurinn upplýsist. Er það sólarlanda-
ferð fyrir tvo eftir eigin vali.
Ingólfur Guðbrandsson sagði
Mbl. :ð hinn erlendi gjaldeyrir
hefði að hluta verið frá Tjære-
borgarfarþegum, sem ekki geta
Veðrið hefur víAa áhrif:
Nytin fellur
í kúm á Suð
urlandi
Kigningartíðin
á Suðurlandi
sfðustu vikur
hefur ekki ein-
asta gert
bændum erfitt
fyrir um hey-
skap heldur
hefur veðrátt-
an orðið þess
valdandi að nyt kúa hefur
vfða fallið verulega. —
Mjólkurmagnið hefur
minnkað ha-gt síðustu vikur
en veðráltan um helgina varð
til þess að draga verulega úr
n.vtinni. Iljá okkur hér í
Laugardælum tók mjólkur-
híllinn helgarmólkina þ.e. frá
þremur dögum, f morgun og
það voru 1986 lítrar eftir
helgina, áður var þriggja daga
skammturinn 2249 lítrar. Það
munar um minna og um helg-
ina lætur nærri að nvtin í kún-
Framhald á bls. 31
lengur greitt ferðir sínar í
íslenzkri mynt. Gjaldeyririnn var
í mynt ýmissa landa, svo sem í
dönskum krónum, mestmegnis í
500 króna seðlum, norskum og
sænskum krónum, þar á meðal
þrír 1000 króna seðlar sænskir,
finnsk og þýzk mörk, dollarar í
seðlum og ferðatékkum og
svissneskir frankar, einnig aðal-
lega í ferðatékkum. Eitthvað
hefur einnig horfið af erlendum
ávisunum stíluðum á Útsýn, sem
átti eftir að leggja inn í banka.
Ingólfur Guðbrandsson sagði í
samtalinu við Mbl., að hann hefði
aldrei fyrr orðið fyrir stórþjófn-
aði, aðeins smáhnupli og á ferða-
lögum erlendis hefði aðeins einu
sinni verið stolið frá honum. Var
það í fyrra, að dýrmætri kvik-
myndavél var stolið frá honum í
Alicante á Spáni og fann lög-
Framhald á bls. 31
Smygl í
Selfossi
TOELVERÐIR í Reykjavik fundu
84 flöskur af áfengi og 7 kassa af
bjór f Selfossi, þegar skipið kom
úr sfðustu ferð frá Bandaríkjun-
um. Áfengið, sem var mestmegnis
vodka, var falið f vélarrúmi og
reyndust vélstjórar skipsins eiga
það.
Féll útbyrðis
og drukknaði
Siglufirði 9. ágúst.
SÁ HÖRMULEGI atburð-
ur varð síðdegis á laugar-
dag, að háseti féll útbyrðis
af skuttogaranum Dagnýju
frá Siglufirði, þar sem tog-
arinn var á veiðum á
Strandagrunni. Maðurinn
hét Páll Reynir Kristjáns-
son, 22 ára gamall, sonur
Lilju Jóelsdóttur og Krist-
jáns Rögnvaldssonar skip>-
stjóra á Dagnýju. Páll heit-
inn var við nám í Háskóla
íslands. Hann var ókvænt-
ur.
Páll Reynir var á vakt á dekki
þegar atburðurinn gerðist og mun
hann hafa verið að vinna við troll-
ið þegar hann féll útbyrðis. Voru
strax gerðar ráðstafanir til þess
Páll Reynir Kristjánsson.
að ná honum úr sjónum, en þær
reyndust árangurslausar. Lfk
Páls er ófundið.
m.j.
1 (JTSYNNINGNUM I gær vissu Reykvíkingar vart hvaðan á þá stóð veðrið, þegar auglýst var f
hádegisútvarpi að nú gætu menn f fiskbúðum borgarinnar fengið ókeypis fisk. Hér var um að ræða
kolmunna, sem sagður er herramanns matur og var hann boðinn án endurgjalds til þess að kynna
mönnum þetta nýmeti. Á myndinni eru menn að fá sér kolmunna, en nánar er skýrt frá þessu á bls. 3.
Bráðabirgðalög vegna sjúkragjalds:
Fellt niður hjá tekjulitlum
elli- og örorkulífeyrisþegum
VANTAÐ hefur I lög um al-
mannatryggingar skýr ákvæði um
það, hverjir skuli greiða svokall-
að sjúkragjald og þar sem I Ijós
hefur komið að gjaldið hefur ver-
ið lagt á tekjulitla elli- og örorku-
lífeyrisþega, staðfesti forseti ís-
lands á föstudag að tillögu heil-
brigðis- og tryggingaráðherra sér-
stök bráðabirgðalög, en f fréttatil-
kynningu frá ráðuneytinu, sem
Mbl. barst f gær, segir að það hafi
ekki verið tilgangur laganna að
elli- og örorkulífeyrisþegar bæru
uppi þennan tekjustofn, sem er
1% á gjaldstofn útsvara.
1 fréttatilkynningu ráðuneytis-
ins segir:
„Samkvæmt 1. mgr. 3. gr. laga
nr. 95 frá 31. desember 1975 um
breytingar á lögum um almanna-
tryggingar nr. 67/1971, sbr. lög
nr. 112/1972 og 62/1974, er sveit-
arfélögum gert skylt að inn-
heimta á árinu 1976 1% álag á
LÖGREGLAN var sfðdegis á
laugardag kölluð i hús eitt i
Holtunum f Reykjavfk, en þar
býr sjötugur maður, einstæð-
ingur. Var aðkoman ófögur
þegar lögreglumennirnir komu
á staðinn, þvf gamli maðurinn
lá rænulaus á gólfinu. Hafði
hann hlotið heilablóðfall, hnig-
ið niður á gólfið og legið þar
hálflamaður og ósjálfbjarga f
sömu stellingum f 5—6 sólar-
hringa að þvf talið er. Liggur
hann nú Iffshættulega veikur á
Landakotsspftalanum.
gjaldstofn útsvara og standa
sjúkrasamlögum skil á fyrirfram-
greiðslu eða hlutfallslegri inn-
heimtu þess mánaðarlega.
í ljós hefur komið, að skýr
ákvæði vantar i lögin um það,
hvaða aðili skuli leggja umrætt
gjaid á og að álag þetta hefur
verið lagt á tekjulitla elli- og ör-
orkulífeyrisþega, en það var ekki
tilgangur laganna.
Vegna þessa staðfesti forseti Is-
lands hinn 6. ágúst 1976 að tillögu
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
VÖRUSKIPTAJÖFNUÐUR
landsmanna varð hagstæður í
„Það er mikið af einstæðing-
um í borginni, sem svipað er
ástatt um og þennan mann. Ég
vona bara að þessi hryliilegi
atburður verði til þess að fólk
gefi þessum einstæðingum
gaum þannig að enginn þurfi
að lfða þær þjáningar, sem
þessi maður hefur þurft að líða
allán þennan tíma,“ sagði
Pálmi Matthiasson rannsóknar-
lögreglumaður við Mbl. f gær,
er hann veitti Morgunblaðinu
upplýsingar um þetta mál.
Framhald á bls. 11
herrans bráðabirgðalög sam-
kvæmt 28. gr. stjórnarskrárinnar
á þessa leið:
1. gr.
3. gr. laga 95/1975 orðist svo:
Á árinu 1976 skal álagningarað-
ili útsvars leggja á og innheimta
1% álag á gjaldstofn útsvara og
skulu sveitarfélög standa sjúkra-
samlögum skil á fyrirfram-
greiðslu eða hlutfallslegri inn-
heimtu þess mánaðarlega.
Hjá þeim, sem náð hafa 67 ára
Framhald á bls. 30
júnfmánuði um 15,2 milljónir
króna og er þá fyrstu 6 mánuði
ársins óhagstæður um tæplega 4
milljarða króna. Til samanburðar
má geta þess að í júnímánuði f
fyrra varð vöruskiptajöfnuðurinn
óhagstæður um 5,3 milljarða
króna og fyrstu 6 mánuðina um
13,7 milljarða.
í fréttatilkynningu frá Hag-
stofu íslands, þar sem bírtar eru
bráðabirgðatölur um verðmæti
útflutnings og innflutnings í júní
1976, segir að flutt hafi verið út
Framhald á bls. 31
Litlar líkur á
veðrabreytingum
MIKIL úrkoma var f allan gærdag
um vestanvert landið og fylgdi
henni talsverður vindur. Þannig
var veðrið f gær sem oft er á
haustin. Á Norðausturlandi var
hins vegar hlýtt og bjart veður,
þurrkur og virtist sem allt léki f
lyndi við fbúum þar.
Framhald á bls. 31
Einstæðingur fékk heilablóðfall:
Lá ósjálfbjarga í
5-6 sólarhringa
Vöruskiptajöfnuður hag-
stæður í júní um 15,2 millj.