Morgunblaðið - 15.08.1976, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. ÁGUST 1976
FBI rannsakar
morð Rosellis
Washington, 14. ágúst. AP.
EDWARD H. I,evi, dómsmálaráð-
herra Bandaríkjanna, hefur skip-
að alrlkisiögreglunni FBI að
rannsaka hvort glæpamaðurinn
John Roselli var myrtur vegna
uppljóstrana um samsæri um að
myrða Fidel Castro forsætisráð-
herra Kúbu.
FBI á að rannsaka hvort morðið
á rætur að rekja til framburðar
hans um þessi samsæri í vitna-
leiðslum fyrir leyniþjónustu-
nefnd öldungadeildarinnar eða
hvort hann var myrtur til að
koma í veg fyrir að hann veitti
nefndinni meiri upplýsingar.
Lik Rosellis fannst í tunnu sem
var á floti á Biscayne-flóa undan
strönd Florida um síðustu helgi.
Roselli hafði skýrt þingnefnd-
inni frá hlutverki sínu i fyrirætl-
unum CIA um að nota glæpasam-
tök til að myrða Castro. Fyrirætl-
unum var aldrei hrundið i fram-
kvæmd.
fW\mm \ i* *
1 opuðu tyrir
Bandaríkjunum
tSLENZKA skáksveitin tapaði
fyrir þeirri handarlsku f fjórðu
umferð alþjóðaháskólaskákmóts-
ins f Caracas með ‘A vinningi
gegn 3'A.
íslendingar hafa fengið 4 vinn-
inga í sínum riðli, en Bandaríkja-
menn eru efstir með 11 vinninga.
ísraelsmenn eru með 11 vinninga,
Mexíkanar 6 og Nicaraguamenn
með 1 vinning.
Riðlarnir eru fjórir og tvær
efstu sveitir í hverjum riðli kom-
ast í úrslit. Rússar og Svisslend-
ingar eru efstir i fyrsta riðli.
Kúbumenn og Brasilíumenn í
þriðja riðli og Venezuelamenn og
Pólverjar í fjórða riðli.
OAS-maður skotinn
París, 14. ágúst. Reuter.
HRYÐJUVERKAMAÐUR sem
var viðriðinn frægustu tilraunina
sem var gerð til að ráða Charles
de Gaulle Frakklandsforseta af
dögum beið bana 1 misheppnaðri
tilraun til að ræna pósthús f Par-
fs.
Maðurinn var Laslo Varga, 33
ára gamall ungverskur liðhlaupi
úr (Jtlendingahersveitinni, sem
mannaði vélbyssu þegar Leyni-
samtök hersins (OAS) veittu bif-
reið de Gaulles hershöfðingja fyr-
irsát skammt frá Parfs 1962.
Starfsmaður pósthússins skaut
Varga til bana þegar hann reyndi
að fremja ránið. Maður, sem var i
vitorði með honum og mun einnig
hafa verið fyrrverandi félagi úr
OAS, lézt af sárum sínum í
sjúkrahúsi.
De Gaulle hershöfðingja sakaði
ekki í árásinni 1962, og OAS-
mennirnir, sem skipulögðu hana
og vonuðu að þeir gætu kollvarp-
að frönsku stjórninni, voru hand-
teknir skömmu síðar.
Varga var dæmdur i ævilangt
fangelsi en látinn laus 1967 þegar
fangar fengu uppgjöf saka. For-
ingi samsærisins, Jean-Marie
Bastien-Thiery, var dæmdur til
dauða og leiddur fyrir aftöku-
sveit.
Bretar hætta
að virða kvóta
London, 14. ágúst AP
BRETAR ákváðu f dag að hætta
að virða kvótakerfi sem á að
vernda sfldarstofninn f Norður-
sjó.
Landbúnaðar- og sjávarútvegs-
ráðuneytið sagði að brezkir fiski-
menn þyrftu ekki að virða kvót-
ann, sem er 9.700 lestir á þessu
ári, þar sem aðrar þjóðir virtu
ekki þá kvóta sem Norðaustur-
atlantshafsfiskveiðinefndin
ákvað á fundi sfnum f aprfl.
Visindamenn skýrðu frá því á
fundinum að síldarstofninn væri í
Framhald á bls. 47
— Strandríki
Framhald af bls. 1
armiðum, ekki síður en aðrir,
og gefum ekkert eftir þar sem
við teljum Iífshagsmuni ís-
lenzku þjóðarinnar vera í húfi.
Hingað til hefur fullt tillit verið
tekið til okkar hagsmuna, og
við gerum allt sem í okkar valdi
stendur til að ekki verði breyt-
ing á því, en þolinmæði verðum
við að hafa.
Það er áberandi hér, að þeir,
sem sjá fram á það að þeir fá
ekki framgengt þvf sem þeir
vilja, eyða tíma til að tala og
tefja þannig fundarstörfin, en
þetta þokast í áttina.
Störfin hér fara fram á svip-
aðan hátt og á fyrri fundum.
T.d. heldur strandríkjahópur-
inn stöðugt fundi til að sam-
ræma afstöðu sína, og innan
hans hefur verið komið á undir-
nefndum.
Umræður um fjórða kafla
frumvarpsins eru hafnar, en
hann fjallar um lausn deilu-
mála. Þessi kafli er ræddur á
sérstökum allsherjar fundum.“
1 lok viðtalsins sagði Hans G.
Andersen, að ýmislegt benti til
þess, að halda yrði einn fund til
viðbótar áður en hægt yrði að
stefna fulltrúum saman í Cara-
cas til að undirrita nýjan haf-
réttarsáttmála.
— Handtökur
Framhald af bfs. 1
Samson Ndou og dr. Natho úr
foreldrasamtökum blökkumanna.
í Port Elizabeth hefur aðalrit-
ari suður-afríska stúdentafélags-
ins, Barney Pityana, verið hand-
tekinn. Studentaleiðtogi í Höfða-
fylki, L. Appies, hefur einnig ver-
ið handtekinn svo og einn helzti
leiðtogi blökkumannasamtakanna
BPC, Nxolisi Movov, og einn af
leiðtogun suður-afrfska stúdenta-
félagsins, Silumko Sokupa.
Vill f á fleiri
íslendinga
til Berlínar
NYLEGA var staddur hér á
landi yfirmaður söludeildar
ferðaskrifstofu Vestur-
Berlfnar, Bernd-Giinter Schön,
f þeim tilgangi að kynna sér
möguleika á auknum ferðum
Islendinga til borgarinnar.
Blaðamaður Morgunblaðsins
hitti Schön að máli og rabbaði
við hann um Vestur-Berlín og
tilveruna þar.
„Vestur-Berlfn er miklu
stærri en fólk virðist almennt
gera sér grein fyrir,“ sagði
Schön. „Þar b'úa núna um 2
milljónir manna, en allt
borgarsvæðið er um 500 ferkm.
Það er svipað og allt Ruhrhér-
aðið t.d. Um 30% borgarsvæðis-
ins eru græn belti og útivistar-
svæði.“
„Sjálfur finn ég aldrei til
innilokunarkenndar heima og
ég held það eigi við um flesta
Berlínarbúa nú orðið. Eftir
samningana sem gerðir voru
við Austur-Þjóðverja 1972 og
'73 erum við svo miklu frjálsari
ferða okkar en áður var, getum
brugðið okkur til Vestur-
Þyzkalands hvenær sem er og
nú getum við eytt 30 dögum á
hverju ári fyrir austan. Auðvit-
að erum við þess ævinlega með-
vitandi, að við búum á n.k. eyju
en maður venst þvi eins og
öðru. Berlín var um skeið afar
hægri sinnuð borg þar
skapaðist eðlilega mótstaða
gegn sósialisma, en þetta á ekki
við þar lengur og ungt fólk i
Vestur-Berlin er vinstri sinnað
rétt eins og gengur og gerist
annars staðar."
„Ferðamenn eru fimmta
hæsta tekjulind borgarinnar.
Og við erum að reyna um þess-
ar mundir að auka ferðamanna-
strauminn þangað. Borgin
hefur upp á margt að bjóða,
hún er mikil menningarmíðstöð
í Þýzkalandi. Ég hafði heyrt að
íslendingar væru afar
menningarlega sinnað fólk og
einmitt þess vegna held ég þeir
hefðu bæði gaman og gagn ai
að koma til Berlinar. Þar eru
ótal listasöfn, leikhús og tón-
listarlíf er mjög fjölbreytt í
Berlín. Þar er líka hægt að
skemmta sér allan sólarhring-
inn ef maður vill, og það er
hægt að fara þar út að borða
fyrir minni pening en i mörg-
um öðrum borgum. Svo held ég
það hljóti að vera forvitnilegt
fyrir ferðafólk að fara yfir til
Austur-Berlínar og skoða sig
þar um,“ sagði Schön að lokum.
— Hægri menn
Framhald af bls. 1
Bashir Gemayel, sonur Pierre
Gemayel, var að því spurður í
gær, hvort fjöldamorð hefðu átt
sér stað eftir að hægri menn náðu
búðunum á sitt vald. Vildi hann
ekkert fullyrða um það, en sagði
hugsanlegt, að slíkt hefði átt sér
stað.
Yfirmaður Alþjóða Rauða
krossins í Beirút lýsti því yfir I
dag, að um 6 þúsund manns hefðu
fengið leyfi til að yfirgefa búðirn-
ar og svæði hægri manna í Beirút,
og væri þetta fólk nú á því svæði
borgarinnar sem er á valdi vinstri
manna. Herma fregnir, að þegar
íbúar flðttamannabúðanna yfir-
gáfu búðirnar, hafi flestir karl-
menn, sem þar voru, verið að-
skildir frá hinum, og hafi sumir
þeirra verið skildir eftir hjá frið-
argæzluliði Arababandalagsins,
en aðrir hafi verið handteknir.
Óvíst er um örlög einhverra þess-
ara manna.
— Ford
Framhald af bls. 1
ingar á flokksþinginu Jafnvel er
rætt um upplausn flokksins. Þó
hefur tekizt að tryggja samkomu-
lag um ýmis atriði utanríkismála í
stefnuskránni sem verður lögð
fyrir flokksþingið.
Þannig varð samkomulag um að
flokkurinn lýsti sig andvígan ein-
hliða brottflutningi bandarísks
herliðs frá Evrópu. Stuðnings-
menn Reagans segjast vera
ánægðir með stefnuskrána en þó
tókst þeim ekki að fá þvl fram-
gengt að flokkurinn lýsti sig and-
vígan samningum sem skertu eða
gerðu að engu réttindi Banda-
ríkjamanna við Panamaskurð.
Gert er ráð fyrir því að
stuðningsmenn Reagans haldi
áfram tilraunum sinum til að
neyða Ford til að tilnefna varafor-
setaefni sitt áður en atkvæða-
greiðslan hefst á miðvikudag.
Einn af um tólf mönnum sem
Sérkenni-
Ie^»t umferðar-
óhapp í Eyjum
SÉRKENNILEGT umferðar-
óhapp varð í Vestmannaeyjum á
fimmtudaginn. Stór vörubifreið
var að aka niður Brimhólabraut,
þegar annað afturhjólið datt
skyndilega undan bílnum. Fór
hjólið framúr bilnum, yfir
Hásteinsveg, þar skoppaði hjólið
yfir 30—40 sentimetra vegg, hélt
áfram ferð sinni meðfram endi-
langri ibúðablokk, fór yfir Faxa-
stig, framhjá viðlagasjóðshúsi
sem þarna er og stoppaði loks á
nýlegum fólksbil, eftir 150 metra
langt ferðalag. Ferðin var orðin
svo mikil á hjólinu, að það
skemmdi bilinn töluvert mikið.
í vandræðum í
Veiðileysufirði
BÖRGUNARSVEITIN Hjálp i
Bolungarvík fór í gærmorgun til
að aðstoða tvo menn, sem voru í
vandræðum í Veiðileysufirði í
Jökulfjörðum. Höfðu þeir farið
þangað til berja og voru á báti.
Skildu þeir bátinn eftir í fjör-
unni. Veður fór versnandi og
losnaði báturinn og rak hann upp.
Ekki bætti það úr skák, að menn-
irnir urðu viðskila og varð annar
þeirra að baksa við bátinn. Gat
hann komizt út í bátinn i fyrrinótt
og kallað á hjálp í gegnum talstöð.
Fór björgunarsveitin á staðinn.
Fann hún hinn berjatínslumann-
inn og gat aðstoðað við að koma
bátnum á flot. Er ekki gott að vita
hvernig farið hefði, ef bátinn
hefði rekið frá landi og maðurinn
ekki komizt í talstöðina, því leið-
indaveður gerði I Veiðileysufirði
um nóttina.
Líður eftir atvikum
FÓLKINU, sem slasaðist í bif-
reiðaslysinu á Draghálsi i fyrra-
dag, leið eftir atvikum þegar Mbl.
kannaði málin í gær. Ungi maður-
inn, sem fluttur var með þyrlu til
Reykjavikur liggur nú á gjör-
gæzludeld Borgarspítalans. Hann
lærbrotnaði og skarst mjög illa á
fótum, en aðgerð á fótum hans
mun hafa heppnazt vel. Tvennt
liggur á sjúkrahúsinu á Akranesi,
en er minna slasað.
Ökumaður gefi sig fram
SLYSARANNSÓKNADEILD lög-
reglunnar hefur beðið Mbl. að
auglýsa eftir ökumanni, sem ók á
konu á reiðhjóli á mótum Mikiu-
brautar og Lönguhlíðar um
klukkan 17.20 s.l. fimmtudag.
ökumaðurinn stoppaði og ræddi
við konuna, en hélt síðan ferð
sinni áfram þar sem hún taldi sig
ómeidda. Annað kom síðar á dag-
inn og þarf slysarannsóknadeild-
in að ná tali af ökumanninum.
Konan telur að hann hafi verið á
stórum amerskum bil.
koma til greina er John Connally
frá Texas, fyrrverandi fjármála-
ráðherra Nixons forseta. Ýmsir
repúblikanar leggjast gegn til-
nefningu Connallys vegna
meintra tengsla hans við vafa-
sama fjársöfnun I kosningasjóði
Nixons.
Bandarísk skúta
í Siglufirði
Siglufjörður 14. ágúst
HINGAÐ kom í dag stór banda-
risk seglskúta á leið sinni vestur
um haf. Skútan ber nafnið Rein-
der og er að koma frá Svalbarða
en heimahöfn hennar er Phila-
delphia. Sex manna áhöfn er á
Reinder og er hún mjög vel búin
öllum tækjum m.a. er ratsjá um
borð og ennfremur lítil hjálpar-
vél, sem notuð er þegar byr er
óhagstæður.
mj