Morgunblaðið - 15.08.1976, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 15.08.1976, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. AGUST 1976 7 HUGVEKJUR og prédikanir, sálmar og bænir fjalla eðli- lega mikið um Jesú Krist, smiðinn frá Nasaret. Þaðer miklu sjaldnar minnst á fjöl- skyldu hans. Þó átti hann fjölskyldu. Við vitum að visu lítið um hana, en eitthvað þó, og hvað er það þá? Þvi ætla ég að reyna að svara i þeim fáu línum sem ég skrifa til þin i dag, lesandi minn. Jósef faðir hans er talinn af ætt Davíðs konungs, en María trúlega af ætt Levis. Jósef er talinn smiður, að líkindum húsasmiður. Jesús var þeirra elsti sonur og hefur lært handverk föður síns. Hann er nefndur „smiður- inn", og hann tekur líkingar úr starfi smiðsins, þegar hann fer að kenna. Fórnin sem sagt er, að þau hjón hafi borið fram, er þa'u færðu drottni son sinn í musterinu, hún er talin benda til, að þau hafi veriðfátæk. Systkini Jesú hafa verið a m.k sex talsins. Fjórir bræður eru nafngreindir, Jakob, Jóse, Símon og Júdas, og svo nefna guðspjöllin systur hans í fleirtölu, svo að þær hafa veriða.m.k. tvær. Kaþólska kirkjan telur, að þessi börn hafi aðeins verið hálfsystkini Jesú, börn Jósefs frá fyrra Fjölskylda Jesú Krists hjónabandi hans. Þetta er gert til að reyna að varðveita flekkleysi Marlumeyjar, en fyrir þessu eru alls engar heimildir. Systkinin eru nefnd I sambandi við Mariu og því miklu líklegra að þau séu hennar börn og þá yngri en Jesús, sem var hennar „frumgetinn" sonur. Jósef hverfur snemma af sviði sögunnar, og flestir telja að hann hafi látist og þá hafi Jesús, sem elsti sonur, orðið að taka að sér forsjá heimilis- ins og hjálpa móður sinni að koma systkinum sinum til manns. Af frásögnum guðspjall- anna má ráða, að bræður Jesú og jafnvel móðir hans hafi verið andsnúin boðskap hans frekar en hitt, a.m.k framan af starfstíma hans. Um Jakob er talið, að hann hafi ekki snúist fullkomlega til fylgdar við Jesú, fyrr en hann sá hann upprisinn. En þá munaði líka um Jakob i starfinu. Hann verður strax einn af máttarstólpum safn- aðarins. Þegar Pétur fer svo til Rómar síðar meir og tekur við forystu safnaðarins þar, og Jakob Zebedeusson post- uli var svo hálshöggvinn árið 44, þá tók Jakob „bróðir Drottins" eins og hann var kallaður, við forystunni heima fyrir. Hann fékk reyndar lika viðurnefnið „hinn réttláti". Sumirtelja, að hann hafi skrifað Jakobs- bréfiðí Nýja testamentinu, en líklega er það ekki rétt. Um hina bræðurna er litið vitað með vissu annað en, að þeir tóku þátt i starfinu í Jerúsalem. Lengi var talíð, að Júdas væri höfundur Júdasarbréfsins, en nú er það talið óliklegt. Systurnar hverfa líka í hinn ónafngreinda fjölda læri- sveinanna, sen enginn veit deili á. En við sjáum, að fjölskylda Jesú setur mikinn svip á hinn innsta hring fylg- ismanna hans. Bræðurnir Jakob og Jóhannes Zebedeussynir áttu móður, sem hét Salóme. Hún er talin systir Mariu og þeir bræður og Jesús þvi systrasynir. Og býsna lengi eru meðlimir fjöl- skyldunnar í stjórn safnaðar- ins í Jerúsalem og nefndir „Drottinsfrændur". Þeir munu ýmsir hafa borið með sér ættartölu sína til að geta sannað skyldleika sinn við Jesú. Símon Klópason er sá nefndur, sem við þekkjum þar síðastan. Hann var safn- aðarformaður og lést árið 106 Þar með er flest upp talið, sem vitað er um fjölskyldu Jesú, það er að segja fyrr á tíð. Hinu megum viðekki gleyma, sem við syngjum á hverjum jólum: „Vér erum systkin orðin hans." í dag erum við hluti af hinni stóru fjölskyldu Krists, kirkju hans, sem nú starfar æ viðar um heim. Gleymum ekki skyld- um okkar í þeim hópi og við þann, sem hópurinn kennir sig við Ég veit, að við finnum van- mátt okkar. En gleymum því þá ekki heldur, að bæði við og líf okkar allt er i hendi Guðs og frá honum, fyrir hann og til hans eru allir hlutir. Höfum kaupendur að eftirtöldum verðbréfum: VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS: Kaupgengi pr. kr. 100 - 1965 2 flokkur 1513 84 1966 2 flokkur 1290 22 1970 1 flokkur 685 41 1970 2 flokkur 506 43 VEÐSKULDABRÉF: 3ja ára fasteignatryggð veðskuldabréf með hæstu voxtum Höfum seljendur að eftirtöldum verðbréfum: VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS: Sölugengi pr. kr. 100.- 1967 1 flokkur 1205 04 1 967 2 flokkiir 1206.41 1969 1 flokkur 744 44 1972 2 flokkur 381 69 1973 2 flokkur 268 90 1975 1 flokkur 152 00 1976 1 flokkur 108 86 HAPPDRÆTTISSKULDABRÉF RÍKISSJÓÐS: VEÐSKULDABRÉF: Sölugengi pr. kr. 100 - 1973 B 1974 D 1974 E 1975 G 1976 H 333 30 244 14 1 72 76 120 33 1 16 53 6 ára fastergnatryggð veðskuldabréf með 1 0% vöxtum FJÁRPESTMGRRFÉIAG ÍSUMDS Verðbréfamarkaður Lækjargötu 12, R (Iðnaðarbankahúsinu) Sími 20580 Opið frá kl. 13.00— 16.00 alla virka daga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.