Morgunblaðið - 15.08.1976, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 15.08.1976, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR Í5. ÁGUST 1976 MEÐ lokaprófinu nær háskólastúdentinn langþráðu takmarki enda er það uppskera áralangrar vinnu og setu á skólabekk sem hefst raunar strax í barnaskóla. Hér áður fyrr þótti háskólamenntun örugg trygging fyrir góðri afkomu í lífinu og í mörgum tilfellum er svo enn þótt nokkur breyting hafi þar orðið á með vaxandi fjölda háskólamenntaðra manna. I vor luku 202 stúdentar prófum frá Háskóla íslands og Mbl. ræddi við nokkra þeirra um námið og viðhorfin að prófum loknum. „náminu lýkur ALDREI“ Slcfán Karlsson lauk stúdcnts- prófi frá Menntaskólanum i Reykjavik voriö 1970 og cmba-ttisprófi í læknisfræði frá Háskóla Islands nú í vor. Stcfán er kvæntur Sigurborgu Ragnars- dóttur sjónvarpsþul op ciga þau eitt barn. Við hittum Stcfán að máli á Vífilsstöðlum cn hann tók við starfi aðstoðarlæknis þar að loknum prófum nu i vor. — „Upphaflega a-tlaði ég að verða verkfræðingur" sagði Stefán þegar við spurðum hann hvers vegna læknisfræðin hefði orðíð fyrir valinu. — „En það breyttist rétt áður en ég inn- ritaðist í háskólann. Ég var á við- kvæmum aldri og var í uppreisn gegn umhverfi mínu — pabbi er verkfræðingur og þá gat ég ekki orðið verkfra>ðingur lika. Auk þess datt mér í hug að það ga-ti verið skemmtilegra að fást við lifandi verur fremur en dauða hluti svo la'knisfra'ðin varð fyrir valinu." Að margra dómi er la’knis- fræðin ein erfiðasta grein háskólans og við spurðum Stefán um námiö sjálft og námsálag i læknadeild: — „Það er eflaust mismunandi námsálag i deildum háskólans og vissulega er álagið töluvert í iæknadeildinni. Ég held þó að það sé ekki erfiðara en í sumum öðr- um deildum s.s. verkfræði. Hváð vinnuálag snertir er síðasti áfanginn erfiðastur. Hins vegar má segja, að andlega pressan sé mest á fyrsta ári sem rekja má til hárrar fallprósentu. Menn vita jú, að margir eru dæmdir til að falla og slíkt hefur ekki heppileg áhrif á taugarnar." Stafar þessi háa fallprósenta e.t.v. af aðstöðulevsi í lækna- deild? — „Það er staðreynd, að mjög erfitt er að koma fleiri en 50 stúdentum með góðu móti á spítala til að þeir geti stundað klínískt nám. Þrengslin verða það mikil að erfitt er að koma við kennslu, Hitt er svo annað mál hvort þessi próf á fyrsta ári t.a.m. í efnafræði, sem hefur reynzt mörgum erfiður Ijár i þúfu, geti dæmt um hæfileika mannsins til að verða læknir. Þá á ég við, hvort hæfni til að leysa efnafræðida>mi geti skorið úr um hvort menn verði góðir læknar eða ekki. Ég efast stórlega um, að efnafræði sé rétta fagið til að nota sdm síu. Og þá vaknar önnur spurning, — þ.e. hvort beztu námsmennirnir verði yfirleitt nokkuð betri þegar öllu er á botninn hvolft. Ég er alls ekki viss um það. Það má sjálfsagt endalaust deila um réttmæti þessara takmarkana eða hvort eigi að hleypa öllum að sem komast. Svarið er fyrst og fremst fjárhagslegs eðlis og min skoðun er sú, að það eigi ekki að vera læknadeildar að takmarka inngöngu heldur miklu fremur st jórnvalda." Ertu að öðru leyti ánægður með námsfyrirkomulagið í lækna- deildinni eins og það er nú? — „Nei, ekki get ég sagt það. Að vísu breyttist þetta nokkuð til batnaðar með reglugerðarbreyt- ingunni 1970, en sú breyting hefði þurft að koma miklu fyrr. Auk þess er ekki nóg að breyta reglugerð heldur þarf líka að koma til breyting á daglegum vinnubrögðum nemenda og kennara sem ekki eru reglu- gerðarbundin. Munurinn á kennslu læknanema hérlendis og í ýmsum nágrannalöndum okkar er fyrst og fremst sá að hér erum við látnir þjösnast i gegnum stærðar doðranta en þeir aftur á móti lesa minni bækur en styðjast meira við fyrirlestra. Hjá okkur er þetta arfur frá fyrri tíð þegar einn kennari þurfti að kenna heilu bækurnar og stunda jafn- framt starf sitt sem héraðslæknir og spitalalæknir. Þá fólst námið i því að læra þessar bækur utan að og því miður hefur þessi aðferð haldist fram á þennan dag þótt kennarar séu nú orðnir mun fleiri. Þetta hefur þó aðeins verið að breytast á síðustu 2—3 árum en fer þó afar hægt.“ Talið barst nú að atvinnumögu- leikum læknakandidata hér á landi: — „I ár útskrifuðust tveir ár- gangar vegna reglugerðarbreyt- ingarínnar 1970, — þ.e. um 65 læknar sem er tvöfalt meira en áður hefur verið Allir höfum við fengið vinnu en segja má að við höfum ekki fengið eins skemmti- leg störf eins og læknar sem hafa útskrífazt á undan okkur, og ég er ekki viss um að við hefðum mátt vera öllu fleiri til að allir fengju eitthvað að gera. Svo virðist sem áhugi fyrir heimilisla-kningum hafi farið minnkandi að undanförnu og menn hafa flykkzt í sérfræðinám — er þetta e.t.v. eitthvað að breyt- ast nú? — „Já, áhugi læknakandídata á heimilislækningum fer vaxandi og kemur þar einkum tvennt til: Aukinn áhugi stúdenta á þjóð- félagsmálum, og um leið áhugi til að baúa þjóðfélagið, og svo hins vegar vaxandi þörf fyrir heimilis- lækna, sem er raunar mjög brýn núna ekki hvað sízt í Reykjavík þar sem skortur á heimilis- læknum er orðinn tilfinnanlegur. Það er mikill misskilningur ef menn halda að læknar líti á heimilislækningar sem annars flokks læknastarf. Hins vegar býður sérgrein oft upp á betri aðstöðu og fullkomnari vinnu- brögð og það er líklega megin- ástæðan fyrir því að menn hafa gjarnan farið í sérnám. Hvað með læknaflóttann svo- kallaða t.d. til Bandaríkjanna og Svfþjóðar? r— „Skýringin á honum er á engan hátt einföld en þessi flótti er staðreynd engu að síður. Hluti lækna sem fer utan til sérnáms Signý Una Sen var ( hópi þeirra er útskrifuðust úr lögfræðideild- inni nú ( vor. kemur ekki aftur og það er skiljanlegt að menn séu reiðir yfir þvi að við séum að mennta lækna fyrir Bandaríkjamenn og Svía. Þetta horfði öðruvísi við ef þessir menn færu til þriðja heims- ins þar sem þörfin er brýn. En skýringin á þessu er helzt sú að mönnum býðst góð staða erlendis, t.d. yfirlæknisstaða eða kennara- staða við háskóla o.þ.h. Ég trúi því ekki að fégræðgi spili þarna inn í. A.m.k. vona ég að menn séu ekki slíkar aurasálir. Við þetta má bæta að aðstöðumunurinn er- lendis freistar margra." Við spurðum Stefán um tildrög- in að því að hann réðst að Vífils- stöðum: — „Læknakandidatar hafa ráðningarstjóra sem sér um ráðningar i lausar stöður. Venjan er að um 40 manns sækja um vinsælustu stöðurnar og síðan er dregið úr. Ég Ienti hér vegna þess að þegar ég sótti um höfðu nokkr- ar stöður losnað eftir að byrjað var að draga og ég hafði vit á að sækja um þriðju vinsælustu stöðuna og var því einn um hit- una. Það má gjarnan koma fram, að ég kann mjög vel við mig hérna. Þetta er svolitið sérstakt þjóðfélag hérna á Vífilsstöðum, — eins konar þorp út af fyrir sig. Auk þess er hér góð vinnuað staða, t.d. höfum við minni spámennirnir skrifstofu út af fyrir okkur. Ðó reikna ég ekki með að vera hér mjög lengi því að i þessu starfi verður maður að sjá sem mest a.m.k. fyrstu mánuðina því ýmislegt er eftir ólært." Þýðir það að náminu sé ekki lokið þótt prófið sé að baki? — „Já, það má segja það. í þessu starfi lýkur náminu aldrei.“ „hAskólanAm er EKKI FYRIR FJÖLSKYLDUFÓLK“ Hjónin Jónas Snæbjörnsson og Þórdís Magnúsdóttir luku bæði prófum frá Háskóla Islands nú í vor, — hann úr verkfræðideild en hún BA prófi úr heimspekideild með almenna bókmenntasögu sem aðalfag. En þar með er ekki öll sagan sögð, því að á meðan náminu stóð eignuðust þau tvö börn, Snæbjörn, sem nú er á fjórða ári, og Kristjönu, sem varð tveggja ára nú nýlega. Þau Jónas og Þórdis kynntust í Mennta- skólanum við Hamrahlíð en bæði luku þau stúdentsprófi þaðan vor- ið 1971. Þegar Mbl. bar að garði voru þau önnum kafin við að pakka rnður því þau eru á förum til Kaupmannahafnar þar sem Jónas hyggur á framhaldsnám við Tækniháskólann í Kaupmanna- höfn. — „Ég ætla að taka mér frí“ sagði Þórdís, — „vera bara hús- móðir og passa börnin. Þetta kann að hljóma illa i eyrum sumra hús- mæðranna, en mér finnst það vera frí eftir að vera búin að stunda nám með tvo börn." Var ekki erfitt að stunda námið og gegna jafnframt foreldrahlut- verkinu? — „Jú, það má segja að það hafi ekki verið neinn dans á rósum," sagði Jónas, — „ en við höfum átt góða að, öðruvísi hefði þetta ekki verið hægt. Það er víst óhætt að fuilyrða að háskólanám er ekki fyrir fjölskyldufólk“ — „Svo höf- um við einnig átt Sumargjöf að“, bætti Þórdís við, — „börnin hafa bæði verið á dagheimili frá því þau voru ársgömul. Hvað með fjárhagshliðina? —„ Það hefur líka bitnað á fjöl- skyldunum," sagði Jónas. — „Lánasjóðurinn stóð sig nokkuð vel svona framan af. En svo fór að halla undan fæti og i haust var það svartasta sem við höfum lent í fjárhagslega. Á tímabili var það hreinlega spurning um að annað okkar hætti námi. En einhvern veginn tókst okkur þó að klóra okkur fram úr þvi. Ég er allavega feginn að þetta er búið sérstak- lega eftir veturinn í vetur þegar vinnuálagið var hvað mest. Það má segja að maöur hafi verið að öll kvöld og allar helgar í vetur.“ — „Krakkarnir fundu fyrir þessu og fannst pabbi þeirra aldrei vera heima," sagði Þórdís. — „Ég man sérstáklega eftir þvi einu sinni í vetur þegar krakkarnir fóru í svona hlut- Að loknu lokaprófi Mbl. ræðir við nýútskrifaða kandidata

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.