Morgunblaðið - 15.08.1976, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 15.08.1976, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 1976 Ef vel viðrar... Runólfur, Jóhann og Bjarni. EINHVERN góðan veðurdag ferðu austur á Hellu og athugar tilveruna þar, sagði ritstjórinn. En það dugar Iftið að bfða góðra veðurdaga á Suðurlandi, helzt að sæta lagi milli skúra til að skjótast milli bæjanna — eða þá bara herða upp hugann og leggja út I þokuna, það er aldrei að vita nema það sé létt- ara vfir austan Fjalls. jafnvel þurrkur. En nei — það var Ifka þoka þar. Ekkert að sjá nema holótt- an veginn fram undan, hrakið hey f túni og hrossin með rass- inn upp f vindinn. „Hér á Hellu er stórkostleg fjallasýn," sagði mér Sjöfn Árnadóttir, húsmóðir og starfs- kona á skattskrifstofunni á Hellu. „Ég get svarið að við sjáum Esjuna úr stofugluggan- um okkar, og Skarðsheiðina líka. Það eru ekki bara Reyk- vfkingar, sem hafa Esjuna, skal ég segja- þér.“ — „Þegar vel viðrar,“ bætti hún við. „Þegar vel viðrar“ varð viðkvæði ferðarinnar. Þegar vel viðrar eru undursamlega fallegt á Hellu, fjallahringurinn allt frá Eyjafjallajökli og út á Reykja- nesskaga. Þegar vel viðrar er mannmargt á götunum á Hellu og þegar vel viðrar léttist skap bændanna í sveitunum í Kring. „Þessi ótíð snertir ykkur Reyk- víkinga síður en sveitafólkið," sagði Jón Þorgeirsson, fulltrúi skattstjóra og fyrrverandi odd- viti. „Veðrið skiptir svo miklu meira máli úti á landsbyggð- inni, hér eiga allir afkomu sína undir veðrinu. Og ég skal segja Jón Þorgilsson og Gerður Jónasdóttir. %'é*’ Garðar Björnsson bakari. þér, að einn einasti þurrkdagur gjörbreytir lifsviðhorfi bænd- anna hér f kring, þeir horfa framtfðina allt öðrum augum i sólskini en f þessum fjanda." Þetta er annað sumarið í röð, sem tiðin virðist ætla að bregð- ast — „Já, en sumarið er nú vonandi ekki alveg búið enn, örfáir dagar geta breytt öllu.“ „Annars er þetta ekki eins erfitt nú orðið eins og það var í gamla daga fyrir tfma tækninn- ar. Án hennar skil ég varla hvernig hægt væri að stunda búskap." Jón Þorgilsson er frá Ægis- siðu vestan árinnar, en hefur búið á Hellu síðan 1952. „Já, það er gott að eiga hér heima, ekki vildi ég vera annars stað- ar.“ Á skattstofu Suðurlandsum- dæmis hittum við líka skatt- stjórann og oddvitann, Hálfdán Guðmundsson. Hann sagðist að- eins hafa verið á Hellu í tvö ár, kom þangað frá Vík f Mýrdal. „En mér líkar ágætlega að vera hér.“ „Á Hellu er mikil uppbygg- ing, enda næg atvinna bæði hér á staðnum og í kring, ekki sizt f Sigöldu. Ég myndi gizka á að hér séu í sumar ekki færri en 30 hús í byggingu. Hingað flyt- ur fólk bæði úr sveitunum f kring og svo lengra að og það eru meiri brögð að þvi nú en áður var, að unga fólkið verði um kyrrt.“ Framkvæmdir á vegum bæjarins? „Það er nú helzt hol- ræsagerð og varanleg gatna- gerð. Aðalgata bæjarins, Þrúð- vangur, er olfuborin, en í sumar hófst vinna við eina götu enn, Þingskála. Við erum að vonast til að geta lokið því fyrir haust- ið — ef vel viðrar.“ „Nú, hér fyrir ofan er verið að byggja elliheimili á vegum nærliggjandi hreppa, ég get ekki sagt hvenær því verður lokið.“ Hálfdán og reyndar allt starfsfólk skrifstofunnar var f óða önn að ganga frá skatt- skýrslunum. „Eru greiddir háir skattar á Hellu? „Já, þeir sem vinna í Sigöldu borga háa skatta,“ sagði Jón Þorgilsson. „Annars held ég þetta sé bara eins og gerist og gengur annars staðar." Jón gerðist leiðsögumaður blaðasnápans um bæinn og þeirri ferð lauk heima hjá þeim hjónum. Kona Jóns, Gerður Jónasdóttir, kom heim úr vinn- unni og var auðvitað spurð, hvernig vaeri að eiga heima á Hellu. „Gott, hvergi vildi ég vera annars staðar,“ svaraði hún um hæl.“ Hvað um félags- líf á staðnum? „Helztu skemmtanirnar á vetrum eru t.d. þorrablót og svo er alltaf haldið hér gott ball um áramótin í Hellubfói. Svo eru hér fjölmörg félagssamtök, t.d. Lions og hestamannafélagið, sem standa fyrir lokuðum skemmtunum fyrir sína með- limi. Nei, við förum ekki á al- menn böll, þetta eru mest ungl- ingaskröll." Er unglingavanda- mál á Hellu? Nei, ekki vildu þau nú samþykkja það — „og þó eru brögð að drykkjuskap unglinga, það eru alltaf ein- hverjir f Reykjavík, sem ekki vfla fyrir sér að taka brenni- vinspantanir af unglingunum og senda þetta svo með rút- unni.“ Gerður vinnur f Tjaldborg h.f. „Við framleiðum beztu tjöld á landinu," sagði fram- kvæmdastjóri Tjaldborgar, Einar Kristjánsson. „Og við höfám ekki við að búa þau til.“ Einar er einnig framkvæmda- stjóri Mosfells, hlutafélags, sem f sumar opnaði fyrstu gistiað- stöðuna á Hellu. „Hún hefur varla tekið til starfa enn þá,“ sagði Einar, „ við verjum vetr- inum til að kynna þetta og aug- lýsa. Hér geta 15 manns gist í sex herbergjum, sum tveggja, önnur þriggja." Hann sýndi mér herbergin, sem eru hin vistlegustu og öll með hand- laug. Á Hellu eru rekin mörg fyrir- tæki, flest i einkaeign eða hlutafélög bæjarbúa. „Hér blív- ur einkaframtakið,“ sagði ónefndur maður, „og hér stend- ur allt i miklum blóma." Þarna Einar Kristinsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.