Morgunblaðið - 15.08.1976, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 15.08.1976, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. AGUST 1976 37 — Steindir Framhald af bls. 3 frá steindum gluggum í skólabygg- ingu eftir teikningu þýzka lista- mannsins Wilhelms Buschulte Og eins hafði nýlega verið gengið frá steindum glugga í Vatikaninu í Róm eftir listakonuna Mariu Katzgrau, sem m a hefur teiknað gluggana fyrir kirkjurnar í Höfn í Hornafirði og á Siglufirði og kirkjuna í Kulusuk á Grænlandi Margvisleg fleiri verk eru i gangi hjá okkur, sagði Fritz Oidtman T d liggur nú fyrir að gera kopíur af öllum kirkjugluggunum af hinni 1000 ára gömlu Augsburgar- dómkirkju, en vegna hættu af að þeir eyðileggist af mengun, á að varðveita þá á safni, en setja eftirlik- ingar í kirkjuna Unnu Oidtmans samkeppni um gerð þeirra glugga Þeir eru einnig að gera eftirlikingar af gömlu gluggunum í Konstanz en fyrr á öldum voru gluggarnir þar fluttir i Freiburgardómkirkju Fjölda- mörg önnur verk eru i gangi hjá Oidtmans, bæði nýir steindir glugg- ar eftir þýzka listamenn og viðgerðir á gömlum kirkjugluggum Og einnig mosaikverk fyrir skóla, lögreglu- stöðvar og elliheímili 1 Þýzkalandi M a er verið að gera 3 mósaik myndir eftir franska leikarann Jean Marais, sem nú á tvo myndlistarsali I Parfs, svo og 4 nýja steinda glugga eftir teikningum listmálarans Jeans Cockteaus, sem setja á upp I París — Kvikmyndir Framhald af bls.46 kveöja. Þetta er gert aðeins áhrifanna vegna, líkt og hið snögglega glamur stálhurða fangelsisins. Og tvö önnur at- riði eru sérstaklega vel útfærð! Nicholson og Young leggja lykkju á leið sina svo að dreng- urinn fái tækifæri til þess að kveðja móður sína sem býr þar ein. Hún er ekki heima, — aðr- ar umbætur á bókinni, sem lýsti heimkomu þeirra á marg- þvældan hátt. Eftir kuldabrölt, sem og blástra fyrir utan heim- ili piltsins opnar Nicholson dyrnar. í sjónhending sjáum við inn í sóðalega vistarveru drykkjukonu. Pilturinn stigur jafnve! ekki inn fyrir dyrnar. Það sem við sáum þegar gægst var inn og viðbrögð drengsins við því, segir okkur allt sem við þurfum að vita um fortíð hans, sem komið hefur honum i þann vanda sem hann nú er í. Seinna á meðan yfir stendur þvermóðskuleg og barnaleg úti- grill-veisla í snæviþöktum garði í Boston, gerir drengurinn til- raun til þess að flýja. Verðirnir elta hann uppi og yfirbuga. Ashby heldur myndavélinni fjarri í löngu skoti. Þetta er gert af frábærri smekkvisi, Ashby vill ekki hrjá okkur með óvæntu og óþörfu ofbeldi; hann vill að við sjáum þessa þrjá menn áður vini, að brjótast um á miðju opnu sviði, þrjár and- lega og likamlega samtvinnaðar greinar mannlegs eðlis. — N-Irland Framhald af bls. 20 málahreyfingar Provisional-armsins Hún hótaði þvi i ræðu í Belfast að Belfast yrði rifin til grunna stein fyrir stein ef forréttindi pólitískra fanga yrðu afnumin og þeim yrði stungið i fangaklefa eins og venjulegum föng- um Ræða hennar leiddi til óeirðanna sem hafa áftur gert Belfast að vig- velli Daginn eftir handtók lögreglan hana og i athugun er að stefna henni samkvæmt lögum sem banna að æsa fólk til haturs Brezkir embættismenn sem lengi hafa reynt að finna lausn á deilumál- unum á Norður-írlandi hafa fylgzt með siðustu óeirðunum, sem hafa blossað upp, með hálförvæntingar- fullu jafnaðargeði ..Við gerum ráð fyrir að ofbeldið haldist á þvi stigi sem þaðer," sagði einn þeirra Lundúnablaðið Evening Standard hefur eftir öðrum embættismönnum að óeirðirnar muni halda áfram í tiu ár Max Hastings segir í grein í Standard: ..Það sem þeir segja þýðir að fjórir eða fimm verða drepnir í hverri viku á næstu tíu árum og að það sé skömminni skárra pólitfskt séðen að nokkur hundruð verði drepnir sem er liklegt að gæti gerzt innan nokk- urra mánaða ef brezka stjórnin reyndi að knýja fram róttæka lausn í Úlster " — Bókmenntir Framhald af bls. 25 lífslýsing og heita kaflar sam- kvæmt því, t.d.: „Baðstofa", „Hey- annir". „Sjósókn“, „Garðrækt", „Ylrækt", og svo framvegis (fyr- irsagnir aðeins i efnisyfirliti). Myndskreyting er í samræmi við efni. Til dæmis éru á einni síð- unni sýndar myndir af kerti fyrst, síðan lýsiskolu, þá olíulampa og loks raflampa. Á öðrum stað er saga fiskiskipa rakin i myndum: fyrst árabáturinn, síðan skútan, svo mótorbáturinn, lpks skuttog- arinn. Inn á milli er svo skotið mynd af gamla Gullfossi sem að vísu sker sig litið frá togurunum elstu, að minnsta kosti við fyrstu 1 sýn! Mikið er þarna um frásagnir af gömlum vinnuaðferðum og myndir af gömlum verkfærum, þar með talin heyvinnuáhöld. Löngum þótti varða heiður skóla- nemenda að þekkja þau með nöfnum. Kannski var það nú full- langt gengið. Eigi að síður koma heitin á gömlu verkfærunum svo víða fyrir í bókmenntunum að þær verða ekki auðveldlega skild- ar nema kannast sé við þá hluti. Mikið er undir þvi komið að bók af þessu tagi skýri satt og rétt frá hverju einu. Villur eru hvimleið- ar. Og komist þær inn i höfuð ungra getur reynst erfitt að toga þær þaðan út. Hvorki hef ég leit- að þarna að skekkjum né heldur rekist á margar slíkar. Fulldjúpt þykir mér þó tekið I árinni þegar sagt er um langeldinn forna: „Stundum náði eldurinn eftir endilöngum salnum og hét þá langeldur." Mig rámar í að hafa lesið að iangeldurinn hafi tæpast verið svona langur eða hvað? Það var vel til fundið, þar sem bókin er ætluð bæði til fróðleiks og skemmtunar, að geta um skák- einvígu Fischers og Spasskys hér. „Arið 1972 var einvígi um heims- meistaratign í skák háð í Reykja- vík. Þar keppti rússneskur maður (Spassky) við mann frá Banda- víkjum Norður-Amerlku (Fischer). Þessi keppni vakti mikla athygli og var mikið um hana skrifað i blöðum um allan heim svo að tsland var vlða á vörum manna þá dagana. Bækur hafa líka verið samdar um keppn- ina.“ Þetta segir þar. En hvor vann, hvor fór héðan sem heims- meistari? Hefðu börnin ekki gam- an af að vita það líka? En þetta eru smámunir. Bókin er greinagóð og ásjáleg. Nám get- ur ekki verið eintóm skemmtun. En ekki sakar að það hafi skemmtun i för með sér. Bók þarf að laða að, vekja forvitni, freista til kynna með hressilegu útliti og liflegum texta. Fyrstu bækur, sem börn fá i hendur, geta markað hugmyndir þeirra þaðan i frá, ekki aðeins um námsgrein, heldur og um bókina sem þátt i daglegu lífi, yfirhöfuð. Með slikt i huga tel ég þetta vera góða bók. MIKE OLDFIELD/TUBULAR BELLS DAVID BOWIE/STATION TO STATION SURPREMES/AT THE COPA NEIL SEDAKA/ BREAKIN UP IS HARD AL GREEN/ EXPLORES YOUR MIND BACHMAN TURNER OVERDRIVE/NOT FRAG PLATTERS/SUPER HITS LABELLE PHOENIX KINGS ROAD/BEATLES 1962—1970 BILL HAYLIE & THE COMETS/ROCKIN' CHUCK BERRY/JOHNNY B. GOOD 20 GIANT HITS/BEATLES? JANIS JOPLI NEW SEEKERS/ BEAUTIFUL PEOPLE HARRY NILSSON/SANDMAN LOBO/OF A SIMPLE MAN MILLION OR MORE 1976/ LOU REED/CONEY ISLAND BABY MAR Y SOL/ FRÁBÆR ROKK KONSERT JETHRO TULL/WAR CHILD JIMMY RUFFIN/THE GROOVE GOVERNOR SUNDAY AFTER CHURCH/JOHNNY CASH JAMES BROWN/EVERYBODY'S DOING THE THE IMPRESSIONS/CHART BUSTERS HELEN REDDY/FREE AND EASY 15 HITS OFTHE 50's MOTOWN MONSTER HITS/FRÁBÆR SOUL RUFUS/RUFUSISED ROCK ORIGINALS/FRÁBÆRIR ROKKARAR PAUL ANKA/PAULANKA OG ÞETTA ER AÐEINS SMÁHLUTI AF ÞEIM PLÖTUM SEM ERU Á ÚTSÖLUNNI c H (0 > Laugavegí 17 27667 FRÁBÆR PLÖTUÚTSALA STÓRAR PLÖTUR FRÁ KR. 500!!! AUK ÞESS VEITUM VIÐ 10% AFSLÁTT AF ÖLLUM VÖRUM VERZLUNARINNAR ÚTSALAN STENDUR MÁNUDAG, ÞRIÐJUDAG OG MIÐVIKUDAG

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.