Morgunblaðið - 15.08.1976, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. ÁGUST 1976
EX8LAH0 I«?a
Svokölluð transformation-spil.
Sortarmerkin falla inn f mynd-
ina á bakvið, en spilin eru þýzk
frá 1804.
Rætt við sr.
Ragnar Fjalar
Lárusson,
sem á mikið
safn spila
Meðan sr. Ragnar sagði þetta
sýndi hann okkur spil m.a. með
landakortum og á einu þeirra
gat að lita nafn íslands, eitt-
hvað brenglað að vísu, en sr.
Ragnar sagði að spilin vaeru
ensk og hefðu Bretar líklega
fengið landafræðivizkuna frá
Þjóðverjum. En það hlýtur að
vera dálftill handleggur að hafa
komizt yfir öll þessi spil og okk-
ur lék forvitni á að vita hvernig
hann hefði farið að því:
„Flest þeirra hef ég fengið í
gegnum klúbb, sem hefur að-
setur í Chicago, í gegnum hann
hef ég komizt í ýmis sambönd
t.d. við fleiri safnara, safnara-
klúbba og kaupmenn og eru
ÞEIR sem að undanförnu
hafa átt leið framhjá
Austurbæjarútibúi
Landsbankans hafa ef til
vill rekið augun í að búið
er að setja upp í glugga
þar sýningu á spilum.
Getur þar að líta spil frá
ýmsum tímum og af ýms-
um gerðum. Það kom í
ljós að sá sem safnað hef-
ur spilunum er sr. Ragn-
ar Fjalar Lárusson prest-
ur í Hallgrímsprestakalli
í Reykjavík og hefur
hann dundað við það í
allmörg ár. Fyrir
skömmu litu Morgun-
blaðsmenn við hjá sr.
Ragnari og leituðu örlít-
ils fróðleiks um þetta
safn hans:
„Ég á orðið hátt í áttahundr-
uð stokka," segir sr. Ragnar,
„og eru elztu spilin um þrjú
hundruð ára gömul eða allt frá
17. öld. Margs konar tilgangur
hefur verið á bak við útgáfu
spila og voru þau stundum til
að fræða almenning, landakort
eru á þeim sumum og söguleg-
um atburðum eru gerð skil á
öðrum.“
1392. Sérstakir spilaframleið-
endur önnuðust gerð spilanna
og voru þau handgerð og mjög
falleg. í fyrstu voru það aðal-
lega yfirstéttir, sem eignuðust
spil en þegar prentlistin kemur
til sögunnar verða þau fyrst
algeng og þá tekur almenning-
ur að spila og spilar stundum
fjárhættuspil og fleira sem
kaþólska kirkjan fór að amast
við. Þetta gerist um og eftir
1480.
Sortamerkin, hjarta, spaði
o.s.frv. hafa ekki alltaf verið
eins og eru þau sem við þekkj-
um og notum komin frá Frakk-
landi. Þessi merki voru þrenns
konar, ein gerð á Spáni og
ítalíu, önnur þýzk og hin þriðja
frönsk, en hana tóku Bretar
upp. Sumar þessara gerða eru
enn notaðar t.d. í ýmsum héruð-
um Þýzkalands. í Frakklandi
voru allt fram að stjórnarbylt-
ingunni sérstakar gerðir fyrir
hvert hérað. Það var svo ein-
mitt í frönsku stjórnarbylting-
unni að allar kórónur voru
afnumdar af mannspilunum og
var þá í staðinn farið að nota
myndir ýmissa persóna, m.a. á
spilum sem ég á frá 1792 en það
sett er orðið mjög sjaldgæft.“
Hvenær hófst þú að safna
spilum?
„Það eru orðin ein nítján ár
sfðan en ég hef ekki lagt mjög
mikla rækt við þetta á siðustu
árum, eftir að ég kom til
Reykjavíkur. Sjálfur spila ég
ekki en þetta er eingöngu söfn-
unaráhugi, þetta eru oft falleg-
ir og vel gerðir hlutir. Mér er
ekki kunnugt um að þetta sé
áhugamál mjög margra en um
einn veit ég þó, það er Guð-
brandur Magnússon kennari á
Siglufirði og hefur hann í
hyggju að gefa út bók um
íslenzk og erlend spil. Það hafa
ekki komið út margar gerðir af
spilum á íslandi en ég held þó
að við stöndum jafnvel framar
ýmsum öðrum þjóðum t.d.
Norðmönnum í því að gefa út
spil. Fyrstu islenzku spilin
komu út 1923 með teikningum
eftir Mugg. Síðar hafa nokkrir
ísl. listamenn hannað spil.
Eins og fyrr segir er hluti af
spilasafni sr. Ragnars til sýnis i
glugga Landsbanka íslands að
Laugavegi 77, og er þeim vel
fyrir komið og skipulega og
fylgja skýringar með. Ástæða
er til að hvetja fólk til að
staldra þarna við, þvi margt
fallegt og skemmtilegt er að
skoða, öðru vísi spil en við eig-
um að venjast og um margt
fróðleg.
Ensk landafræðispil frá 1678. Laufasortin fjallar um Amerfku.
Laufadrottningin sýnir mynd af Elfsabetu I. og spilið segir frá
ensku nýlendunum f Norður-Amerfku.
Sr. Ragnar heldur á skinnbðk, sem hefir að geyma elztu spilin f
safninu, skjaldarmerkjaspil með frönskum sortarmerkjum frá
1665.
yfir-
stéttin,
sem áttí spil”
Spil frá frönsku stjórnarbyltingunnl. Kóngar eru Genie (snilli)
drottningin liberté (frelsi) gosar égalité (jafnrétti). Allar kórónur
og konungatákn afnumin (1793).
flest ensk, þýzk eða frönsk. Það
eru ýmis sérsvrð I þessari spila-
söfnun, svipað og er hjá frf-
merkjasöfnurum. Margir safna
aðeins spilabökunum, en ekki
heilum stokkum. En yfirleitt
voru bök spilanna ekki skreytt
framan af, þau voru oftast auð
en myndir og skreytingar á
framhlið spilanna."
Sr. Ragnar geymir spilin í
sérstökum möppum og tekur
hann úr hverjum stokki nokkur
spil, s.s. mannspilin og fleiri, ef
myndir eru einnig á þeim. Sfð-
an raðar hann þeim í möpp-
urnar og hefur hvert land út af
fyrir sig, en spilin eru f plast-
umslögum f möppunum til að
þau verði ekki fyrir hnjaski.
Þær eru orðnar allmargar,
sjálfsagt nokkrir metrar í allt f
hillunum. Einnig á hann nokkr-
ar bækur um spil, m.a. þykkar
og miklar, svipaðar orðabókum
að stærð og f þær er mikinn
fróðleik að sækja.
En hvenær hófu menn að
framleiða spil?
„Elztu spil, sem varðveitt eru
eru sennilega frönsk, frá árinu
Ensku fræðsluspil frá 1679.
Þau segja frá samtfma deilum
rómversk-kaþólskra og mót-
mælenda á Englandi. Spaða-
kóngur, drottning, gosi og tía.
,, , , BnÁsiV
*'•# iht?****&*.
'/irmtrfy A-J.-Jmte tCfc Ca/tmmM.
; . / ----_ PttrtúSa..
t í grt'am* rmcm. Thm*r+(m.
•5? V
|. \ r~ I
■Jbip.Mjite
The Eiigliflj PlaiUaúnm
nti.nr twar, tl«> Contiut nt <>f
Amrrica.
JZ
'Vinrvu* ,
.JwíOn fMz , (
grw joitnn . Tttrhav.
twlngbttá,—. Itetláj,..
Mg liSuti..— , ffl/trJ.
Íífw NVtlwrl.tuij.a/. ,
prtfint ffr* Yórk V' *'v
o'í( - V'/;
Ht-t A'?*'«,>74-.
MturyUnd—. fidtsmjrr.
cturlci .
fat.Afja.
Wk éi
TLr Caribrt or
CANIBALS láLANDS
IWbAflojt., ..Í Csln#' >y
S* yftflij'rensh.
SxiictA Vruil.— Írfttfb*
{írttiúid* --frfuch.
N ifvrá «r>ínril*
Síarútnqu*.~~ frtnth.
Sl Vj ti vrnt — Ihitcfl.
A m t«S
M«»m JttJuin,
Sut+\Cii .*
V pjt ' <?,
frt* Artíck X.*nd*
\C*nmd* crCfov JVaA*«.|
&' yV«i * //»' t*t\~
' - 1 gfith tu*nx>
Jb&xíA*.
!%e*t M.e
*AnU%**
(1*1CÁYC /
iCnrt hc*.% 1
f C& ntlt AÍ
V
ftcrr* ftrmA < .
UrtríðlU -
Urcra
. . IJY r u
; ...
V. ii»oi« lírúi.
kh,u.
f 7>. M,;;. B *„ t»
■fuZrZ.:),
\MCIU-
l%d
iH.iC.rmr
ré*
úm-t, JfjÁ
T
,4upp
hafi
aðeius