Morgunblaðið - 15.08.1976, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. ÁGUST 1976
15
Sjöfn Árnadóttir, Sigrún Olafsdóttir og Unnur Kristjánsdóttir.
Húsmæður og starfskonur á skattstofunni. Þær voru hver annarri ánægðari með að búa á Hellu.
Eygló Guðmundsdóttir, vinnur f Tjaldborg h.f. „Ég hef átt heima f
Reykjavík, en ég vildi miklu heldur búa hér á Hellu.“
er t.d. eina rennilásaverksmiðj-
an á landinu og sú mun verða
að hafa sig alla við í framleiðsl-
unni. Á Hellu er lfka eina
bakariið í gjörvallri Rangár-
vallasýslu, og auk þess að selja
brauð og kökur, verzlar það
með lampa og styttur og alls
kyns glingur, „svona til að bæta
bisnissinn" eins og bakarinn,
Garðar Björnsson, sagði.
„Ég ætlaði nú bara að vera
hér í eitt ár, en kann það vel við
mig hérna að ég hef verið i 15
ár.“
„Hingað kom ég frá Reykja-
vík, annars er ég Húnvetningur
að uppruna, en að baka lærði ég
á Akureyri. Svo var ég lengi á
vellinum í Keflavík, en þetta
æxlaðist nú svona til að ég lenti
hér. Hér líður öllum svo vel að
ómögulegt er að fara héðan ef
maður er einu sinni kominn."
Garðar sagðist baka bæði fyrir
Hellubúa og sveitirnar og
ferðafólk líka, „það setur það
ekki fyrir sig að keyra hingað
upp eftir í brauðin mín,“ sagði
hann að lokum.
Yngsta fyrirtækið á Hellu er
Steiniðjan og sá, sem hana rek-
ur, er Ólafur Guðmundsson.
„Hlutafélagið Bjalli var stofnað
í febrúar 1975 í þeim tilgangi
að koma Steiniðjunni á fót.
Framleiðslan hófst nú í vor. Við
steypum rör af ýmsum stærð-
um, gangstéttarhellur og milli-
veggjaplötur en hér vinna á
milli sex og átta manns.“
„Já, það er sko alveg nóg að
gera hjá okkur — þú sérð nú
bara hvað mikið er verið að
byggja hérna. „Og svo munar
nú um að þurfa ekki að greiða
flutningskostnaðinn annars
staðar frá.“
Á Þingskálum var verið að
leggja regnvatnslögn fyrir oliu-
burðinn. Þeir voru þrír við
vinnuna, Bjarni Arnþórsson frá
Bjólu, Runólfur Haraldsson og
verktakinn, Jóhann Björnsson.
Þeir gáfu sér naumast tíma til
að lita til myndavélarinnar.
„Ekki svo sem verið sé að nota
góða veðrið til neins,“ en það
dugði þó greinilega ekki annað
en að láta hendur standa fram
úr ermum. „Blessuð komdu
með þurrk næst, þegar þú kem-
ur.“
Jón Þorgilsson hafði sagt mér
að næsta ár ætti Hella 50 ára
afmæli. Kannski kem ég aftur
þá — ef vel viðrar.
Hálfdán Guðrnundsson, oddviti
og skattst jóri.
TIL SÖLU
er stór flutningavagn (trailer)
LENGD: 13.30 m
BREIDD: 2.36 m
HÆÐ INNANMÁL: 2.39 m
MESTA HÆÐ: 3.74 m
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR INNKAUPA
DEILD FLUGLEIÐA SÍMI 26622.
Nýjar plötur
Abba
Poco
Steely Dan
Slade
Rolling Stones
The Temptations
10CC
Rainbow
Golden Earring
Seals & Crofts
Barry White
Boxer
The fantastic
Rose of cimarron
The royal scam
Nobodys fools
Black and Blue
Wings of Love
How dare you
Rising
To the hilt
Get closer
Let the music play
Below the belt
, PLOTUR
A KR. 915.—
Roger Whittaker
Neil Sedaka
Chuck Berry
Him Reeves
Top of the poppers
Status Quo
The New seekers
Johnny Cash
Beatles
Bill Haley
Perry Como
Country giants
Butterfly
Let's go steady again
l'm a rocker
Have I told you iately that
I love you
Sing & play
Simon and Garfunkel
Pictures of Matchstic men
Beg, steal or borrow
The great
In the beginning
Rock araound the Clock
Somebody loves me
Album 4
Einnig mikiö
úrval af kassettum.
Sendum í póstkröfu.
heimilistœki sf
HljómplötLJdeild Hafnarstrœti 3-20455