Morgunblaðið - 15.08.1976, Qupperneq 29
MORC.UNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. AGUST 1976
29
Sjötugur á morgun:
Sverrir Ragnars
kaupmaður Akureyri
Á MORGUN, mánudaginn 16.
ágúst, verður sjötugur einn af
mætustu mönnum Akureyrar,
Sverrir Ragnars kaupmaður og
sparisjóðsstjóri. Faðir Sverris var
hinn landskunni athafnamaður,
Ragnar Ólafsson kaupmaður,
Jónssonar veitingamanns á Odd-
eyri Ólafssonar frá Syðri-Ey á
Skagaströnd. Móðir Sverris og
kona Ragnars Ólafssonar var Guð-
rún Jónsdóttir sýslumanns Ás-
mundssonar Jónssonar prófasts 1
Odda, en kona sr. Ásmundar var
Guðrún Þorgrlmsdóttir frá Bessa-
stöðum, alsystir Gríms skálds
Thomsen. Sverrir var fjórði I röð
11 barna Guðrúnar og Ragnars.
Sverrir ólst upp á hinu mann-
marga og myndarlega heimjli for-
eldra sinna. Hann lauk ' gagn-
fræðaprófi frá Akureyrarskóla
1922 og stúdentsprófi frá Hinum
almenna menntaskóla I Reykjavík
1926. Cand.phil. frá Háskóla ís-
lands 1927, en hvarf frá lögfræöi-
námi eftir þrjá vetur. Var þá faðir
hans fyrir skömmu látinn, en
Sverrir vildi halda merki hans á
lofti og tók að starfa við fyrirtæki
hans. Hefur hann verið kaupmað-
ur á Akureyri frá 1930.
Ættlægir mannkostir, sam-
viskusemi og færni í starfi, sam-
fara fyrirmennsku og myndug-
leik, allt þetta varð til þess, að
snemma var leitað til Sverris um
ýmis trúnaðarstörf bæði á vegum
einkafyrirtækja og hins opinbera.
Fer það orð af honum, að öllu þvf,
sem hann tekur að sér, sé vel
borgið og ekkert starf hafi hann
innt nema vel af höndum. Hann
hefur stofnað og verið i stjórn
ýmissa byggingarfyrirtækja á Ak-
ureyri, t.d. stjórnarformaður I
Möl og sandi hf. frá 1955. Um-
boðsmaður erlendra skipafélaga,
svo sem Sameinaða gufuskipafé-
lagsins í Kaupmannahöfn og
Bergenska. Vararæðismaður hef-
ur hann verið bæði Frakka og
Norðmanna. Formaður Vinnu-
veitendafélags Akureyrar frá
1941. Hann átti sæti I stjórn
sjúkrahússins á Akureyri
1948—’62 og í rafveitustjórn
1950—'66. Umdæmisstjóri
Rotaryhreyfingarinnar á íslandi
1961—’62.
Sverrir átti sæti I bæjarstjórn
Akureyrar kjörtímabilið
1950— ’54 og var allan þann tíma
1. varaforseti bæjarstjórnar og
þurfti þá oft að koma fram fyrir
bæjarins hönd, og það leysti hann
af hendi af meðfæddri háttvísi og
góðri kunnáttu. Hann átti sæti í
bæjarráði tvö kjörtímabil þess,
1951— ’52 og 1953—’54. Var á
þeim tíma mörgum stórmálum
hrundið fram á vegum Akureyr-
arbæjar, og nægir að nefna við-
bótarvirkjun Laxár, byggingu
fjórðungssjúkrahússins og efl-
ingu togaraútgerðarinnar. Mun-
aði um minna en liðsinni Sverris,
er staðið var I sllkum stórræðum.
En þess gætti hann jafnan, að
kapp væri með góðri forsjá, enda
öll ævintýramennska og óðagot
fjarri eðli hans og skapgerð.
Traustleiki, orðheldni og heiðar-
leiki mættu vera meðal einkennis-
orða hans, svo sem allir hafa
reynt hann að, ekki síst I starfi
hans sem stjórnanda Sparisjóðs
Akureyrar allt frá 1957 til þessa
dags.
Ljóst er af framansögðu, að
Sverrir Ragnars er fjölþættum
gáfum gæddur, og hneigð til lista
og fræðimennsku er honum i blóð
borin. Hann er alla vega vel á sig
kominn, með meiri mönnum á
velli, vel íþróttum búinn, frlður
sýnum og snyrtimannlegur og
höfðinglegur á allan hátt. Hann
kvæntist 1932 Mariu Matthlas-
dóttur Einarssonar yfirlæknis I
Reykjavík, fallegri, listfengri og
elskulegri konu, sem fyrir
skemmstu er látin. Þau eignuðust
tvær dætur, Ellen og Rögnu, og
Sölumaður frá okkur
verður staddur:
miðvikudaginn 1 8. og fimmtudaginn 1 9. ágúst
aðSINDRABÆ HÖFN, HORNAFIRÐI.
VALHÖLL ESKIFfRÐI föstudaginn 20 og
laugardaginn 2 1 ágúst.
VALASKJÁLF EGILSSTÖÐUM sunnudaginn
22. og mánudaginn 23. ágúst.
HERÐUBREIÐ SEYÐISFIRÐI þriðjudaginn
24. ágúst með sýnishorn af áklæði, kögri og
galloni.
Verzlunin
Húsmunir
Hverfisgötu 82, Reykjavík,
sími 13655.
kippir þeim I bæði kyn um glæsi-
leik og mannkosti.
Milli heimilis Sverris og konu
minnar lágu og liggja óslltandi
vináttuþræðir, og sjálfur á ég
honum þakkarskuld að gjalda fyr-
ir vinsemd og stuðning. í afmælis-
gjöf sendum við hjónin honum
innilegustu árnaðaróskir og þakk-
arkveðjur og mælum þar áreiðan-
lega fyrir munn fjöldamargra
annarra. Megi heill og hamingja
fylgja Sverri Ragnars og öllu hans
fólki um ókomna tíð.
GIsli Jónsson.
Tilboð
í þennan Mustang árg.
'70 302 cub, sjálfskiptur
með vökvastýri. Til sýnis
að Dugguvogi 23.
Electrolux
Tilboð
Við bjóðum næstu daga takmarkað magn af eftirtöldum
heimilistækjurn á sérlega hagstæðu verði og/eða
hagstæðum greiðslukjörum:
Ljósgræn heimilistæki
Eldavél SG 1 60 (70 cm breið)
Eldavél S.g 131 (60 cm breið)
Kæliskápa KS 362 (360 Itr 1 50 cm hár)
Frystiskápa FG 315(310 Itr 1 50 cm hár)
Kælir/ Frystir FK 380 (380 Itr. 1 70 cm)
Uppþvottavél DA-60
Gul heimilistæki
Kæliskápur AKS 156 (41 0 Itr. hæð 1 70 cm)
Frystiskápur AFK 1 35 (350 Itr. hæð 1 70 cm)
( Báðir skáparnir eru með 2 hurðum)
Frystiskápur brúnn
Frystiskápur TF 110 310 Itr
(150X60X60)
Frystiskápur rauður
Frystiskápur TF 110 310 Itr.
(150X60X60)
Sambyggður kæli- og
frystiskápur rauður
Módel TR 70/ 55 380 Itr. alls
(1 70x60x60)
Eldavél Cf 750 btún
Eldavél CF 750, 70 cm breið
( Er með 2 ofna, grill og klukku)
Vifta hvít 70 cm breið
Vifta CK 70 fyrir útblástur
Rétt Tðboðs-
verð verð 1 Magn
143.200 11 7.000 20
105 400 93.400 6
166 600 138 400 1 2
1 77.300 167.300 1 1
289 800 184.400 1 3
193.000 181.100 21
168 000 144.000 3
187.500 161.500 1 1
1 77.300 156.600 19
177.300 156.600 4
209 800 184.400 15
143.200 133.200 14
50 500 42.400 50
Veitum staðgreiösluafslátt frá þessu tilboðsverði
Einnig bjóðum við hagstæð greiðslukjör
Tilboðið stendur takmarkaðan tíma
Vörumarkaðurinn hl.
Ármúia 1A. Húsgagna og heimilisd S-86-11 2
Matvörudeild S-86-111, Vefnaðarv d S-86-113
Okkar sumarleyfi er lokið að þessu sinni
HURÐIR HF.,
SKEIFAfíl 13, SIM/ 81655.