Morgunblaðið - 17.09.1976, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1976
Hraðfrystihús Utgerðarfé-
lags Akureyringa stækkað
NÝLEGA ákvað stjðrn (Jt-
gerðarfélags Akureyringa
að hefjast handa um
stækkun frystihússins. I
fyrirhugaðri stækkun, sem
á að ganga til suðurs frá
aðalbyggingunni, verður
fyrst og fremst ný og full-
komin fiskmóttaka, en
jafnframt því verður fisk-
vinnsla, vélasalur, skrif-
stofur, fiskkassaþvottastöð
og fiskkassageymsla.
Kostnaður við þessar fram-
kvæmdir er áætlaður 150
milljónir króna.
— UPPISTÖÐULÓNIÐ verður
fyllt á ný ( oktðber, þannig að það
verði fullt þegar vélarnar verða
reynslukeyrðar I nóvember, og
þessa dagana er verið að þétta
suðurkantinn á stíflunni með þvf
að keyra möl og leirmold á stað-
inn en þegar lónið var fylit til
reynslu, kom þar fram leki sagði
Páll Ólafsson verkfræðingur hjá
Landsvirkjun I samtali við
— Kostnaður
150 m. króna
I samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi sagði Vilhelm Þor-
steinsson, framkvæmdastjóri UA,
að þetta yrði mikil bygging, en þó
fyrst og fremst hráefnisgeymsla.
„Okkur hefur vantað kælda hrá-
efnisgeymslu tilfinnanlega um
langa hríð. Nú orðið er svo til
öllum fiski landað í kössum og
verða þeir að geymast i góðum,
kæidum geymslum. Þegar
Morgunblaðið
Páll sagði, að öll vinna gengi nú
vel í Sigöldu og kappkostað væri
að koma öllu í gang fyrir vetur-
inn. Vel gengi að koma fyrir vél-
um og annar tækja- og raf-
búnaður fylgdi með. — Það er
unnið á öllum vfgstöðvum af full-
um krafti og ef ekkert óvænt
kemur fyrir á allt að standast,
sagði hann.
geymslan verður risin, verður um
mikla bót að ræða.“
Vilhelm sagði, að hugmyndin
væri að hefja byggingarfram-
kvæmdir nú í haust, óvíst væri
hvenær verkinu lyki.
Guðlaug
langhæst
1 4. umferð sexlanda keppninnar
f skák í Bremen f V-Þýzkalandi f
gærkvöldi tefldu Islendngar við
Svfa. Ingvar vann Ornstein,
Magnús vann Schneider. Guðlaug
gerði jafntefli við Svensen. Ómar
tapaði fyrir Bergström. Júlfus á
unna biðskák við Valbom og Jón
tvfsýna biðskák við Janson.
önnur úrslit Noregur Bremen
3—1 og tvær í bið, Þýzkaland —
Danmörk 2—1 og 3 f bið.
1 þriðju umferð tefldu tslend-
ingar við Bremen og áttu slæman
dag, en Guðlaug -gerði jafntefli
við Pollach og Ingvar við Meier,
Jón, Magnús, Júlíus og Ómar töp-
uðu allir. Bremen keppir sem
gestur og eru skákir við þá ekki
taldar með í landskeppninni.
Guðlaug er nú langhæst kvenna á
mótinu oe hefur ekki tapað skák.
Fjárfestingarbankinn:
Viðræður um
lánsfjárhæð
á næstunni
BANKARÁÐSFUNDUR i Fjár-
festingarbanka Norðurlanda var
haldinn í Ósló nýlega og var þar
samþykkt að veita tslenzka járn-
blendifélaginu lán. Samkvæmt
upplýsingum Þórhalls Ásgeirs-
sonar, ráðuneytisstjóra, tók
bankaráðið jákvæða afstöðu til
umsóknar félagsins og verður
lánsfjárhæðin sfðan samnings-
atriði milli bankans og Járn-
blendifélagsins. Ekki hefur enn
verið ákveðið, hvenær viðræður
milli bankans og félagsins
hef jast, en það verður fljótlega.
Sigalda:
Uppistöðulónið verður
fyllt á ný í októbermán.
Verður lögveð tekið
í öllum bifreiðum
Aðeins 50% stöðumælasekta innheimtast
UMFERÐARNEFND Reykjavfk-
ur hefur rætt um það á fundum
sfnum á hvern hátt megi auðvelda
innheimtu stöðumælasekta, en
ekki munu innheimtast nema rétt
um 50% þeirra að sögn Sturlu
Þórðarsonar fulltrúa lögreglu-
stjórans f Reykjavfk. Ennfremur
hefur nefndin rætt um það
hvernig gera megi auðveldara en
nú er að fjarlægja bifreiðir, sem
lagt hefur verið ólöglega.
Valgarð Briem formaður um-
ferðarnefndar, tjáði Mbl. að sú
hugmynd ætti mikið fylgi innan
nefndarinnar að það ákvæði yrði
sett inn i umferðarlög, að lögveð
fyrir sektum yrði tekið I öllum
bifreiðum þannig að lögtök mætti
taka í þeim og bjóða þær upp ef
stöðumælasektir væru ekki
greiddar. Sagði Valgarð að þessi
háttur væri hafður á í Noregi og
þar borguðu menn sínar sketir
möglunarlaust og yfirvöld hefðu
enga erfiðleika af þessum þætti
umverðarmálanna.
Þá sagði Valgarð að það væri
vilji nefndarinnar að sett yrði í
lög afdráttarlausari heimild til að
fjarlægja bifreiðir sem lagt væri
ólöglega, og bifreiðir sem væri
þannig lagt, að þær sköpuðu
hættu fyrir umferðina. Astandið í
þessum efnum væri mjög slæmt í
Reykjavfk og brýnna úrbóta væri
þörf.
Valgarð sagði að lokum, að um-
ferðarnefndin myndi móta hug-
myndir sínar um þessi mál og
leggja þær siðan fram.
Aðgerðaleysi
á sjónvarpinu
ÞEGAR starfsmenn sjónvarpsins
mætti til vinnu I gærmorgun hófu
þeir ekki störf samkvæmt venju,
heldur settust niður, fengu sér
kaffi og gerðu ekki neitt, og svo
var allan daginn. Þessar aðgerðir
sjónvarpsmanna stafa af mikilli
óánægju I launamálum, en það
hefur oft komið fram f fjölmiðl-
um áður. Ekki er vitað hvort svip-
að ástand muni rfkja á sjónvarp-
inu f dag, en ef svo verður, þá
verður engin útsending f kvöld.
Einn starfsmanna sjónvarpsins
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi, að frekar mætti lita á
þetta sem aðgerðaleysi frekar en
einhverjar beinar aðgerðir. Hann
sagði að flestir vissu af hvaða
ástæðum sjónvarpsfólkið færi sér
hægt við vinnu sina. Fólk þar
hefði lengi verið óánægt með laun
sin. Sjónvarpið væri ung stofnun
og starfsfólk þess teldi, að það
væri ekki enn komið á sinn stað I
launakerfinu innan rikisins, ef
miðað væri við önnur Norður-
lönd.
Þá sagði starfsmaðurinn, að
ekkert væri ákveðið með daginn I
dag. Það kæmi allt I ljós, þegar
fólk kæmi til vinnu.
Pétur Guðfinnsson, fram-
kvæmdastjóri sjónvarpsins, sagði
I samtali við Morgunblaðið I gær,
að hann hefði lítið um þetta mál
að segja. Ef allt yrði með felldu
frá byrjun vinnudags I dag til
kvölds, yrði hægt að vinna það
upp sem sat á hakanum I gær og
útsending því eðlilega I kvöld. En
ef þessar aðgerðir héldu áfram,
þá kæmi þetta niður á fréttaöfl-
un, textun og ýmsu fleiru og um
leið myndi útsending brenglast.
Siálfstæðisflokkurinn;
Síðustu héraðs-
mótin í kvöld
og annað kvöld
SÍÐUSTU héraðsmót Sjálf-
stæðisflokksins verða hald-
in í Stapa í kvöld og Vest-
mannaeyjum annað kvöld.
Héraðsmótin hafa nú verið
haldin á 18 stöðum víðs vegar um
land I sumar og hafa forystumenn
flokksins flutt stutt ávörp á
mótunum. Þá hefur skemmti-
kröftunum Kristni Hallssyni og
Magnúsi Jónssyni óperusöngvur-
um, Jörundi og hljómsveitinni
Næturgölum verið vel tekið.
Allir eru velkomnir á héraðs-
mótið I Stapa I kvöld og Vest-
mannaeyjum annað kvöld.
Dansað verður til klukkan 02
bæði kvöldin.
Björn á Löngumýri
krefst 358 þúsund
kr. í skaðabætur
SVO SEM kunnugt er af fyrri
fréttum Mbl. hefur Björn Pálsson
bóndi á Ytri-Löngumýri kært Jón
Isberg sýslumann vegna böðunar-
málsins, sem upp kom s.l. vor og
Björn bóndi hefur nefnt valdböð-
un. Birgir Guðjónsson, sýslumað-
ur Strandamanna, var settur
dómari f málinu og hefur hann
það nú til meðferðar.
í kæru sinni gerir Björn Páls-
son bótakröfur á hendur sýslu-
manni, samtals að upphæð 358
þúsund krónur auk alls kostnaðar
af málarekstrinum. Morgunblaðið
hefur aflað sér upplýsinga um
skaðabótakröfur Björns á Löngu-
mýri, og sundurliðast þær þannig:
4 lambsverð vegna lambaláts.
1 ærverð fyrir tvflembu sem drapst
20 fóðureiningar, aukinn fóðurkostnaður
á hverja kind sem böðuð var miðað við fóður-
blöndu
á kind samtals þannig:
Ymis kostnaður og bætur vegna
árásar á heimili mitt. —
Þannig samtals:
kr. 28.000,-
kr. 20.000,-
kr. 1.000.-
Kr. 210.000,-
Kr. 100.000.-
Kr. 358.000.-