Morgunblaðið - 17.09.1976, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 17.09.1976, Blaðsíða 17
MOKGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1976 17 Kínverskir embættis- menn standa við líkbörur Mao Tse-tungs í Höll þjóðarinnar i Peking. Jarðarför hans fer fram á laugardaginn. Stjórn- völd hafa fyrirskipað að allir Kínverjar, sem eru um 800 milljónir, skuli leggja niður vinnu þann dag og standa þögulir í þrjár mfnútur og votta Mao á þann hátt sína hinztu virðingu. Sósíalistum vex ásmegin í Svíþjóð Carlos: Bandaríkin mótmæla við Júgó- slavíu Washington 16. september — Reuter. BANDARÍKIN hafa mót- mælt því við stjórn Júgóslavíu að hún hafi ekki sinnt bandarískum ábendingum um að alþjóða skæruliðinn, sem gengið hefur undir nafninu Carlos, hafi verið í Belgrad nýlega. Talsmaður banda- riska utanríkisráðuneytis- ins sagði að mótmælin hefðu verið afhent 8. september. Sagði hann að Banda- ríkjastjórn hefði bent stjórn Júgóslavíu á, að C:rlos hefði verið í Bel- grad, en ábendingunni hefði ekki verið sinnt og nú væri ekki vitað hvar mað- urinn væri niður kominn. Carlos, sem álitinn er heita réttu nafni Ilich Ramirez Sanchez og vera frá Venuzuela, er grunað- ur um að hafa myrt tvo lögregluþjóna í París og samstarfsmann þeirra. Hann er einnig eftirlýstur í Austurríki fyrir að hafa tekið þátt í ráninu á olíu- ráðherrum Arabalanda í aðalstöðvum Opec í Vín. Vestur-Þýzkaland mun hafa sent svipuð mótmæli til Júgóslavíustjórnar. Talsmaður stjórnarinnar í Belgrad sagði í dag að svipazt hefði verið um eftir Carlos en engin spor hefðu verið finnanleg eftir hann í Júgóslavíu. — (Sjá grein á bls. 13) — Stokkhólmi 16. september. — Reuter. SVO virðist sem stjórn jafnaóar- manna í Svfþjóð ætli að iifa af kosningarnar, sem fram fara á sunnudag. Samkvæmt spá sem byggð er á skoðanakönnun, sem stofnunin Sifo hefur gert, munu jafnaðarmenn undir forystu Olofs Palme forsætisráðherra og hinn óopinberi bandalagsflokkur þeirra á þingi, Vinstriflokkurinn- Kommúnistarnir, fá 48.9% greiddra atkvæða. Borgaraflokk- arnir þrfr, sem eru f stjórnarand- stöðu, munu samkvæmt spánni fá 48.5%. Minni flokkar, sem ekki eiga fulltrúa á þingi, munu fá 2.6% greiddra atkvæða. Samkvæmt skoðanakönnuninni verður mun- urinn á milli sósialisku flokkanna og borgaraflokkanna mjög lftill eða um 20.000 atkvæði en heildar- atkvæðafjöldinn er 5.9 milljónir. Skoðanakannanir Sifo eru álitnar vera mjög nákvæmar og í kosn- ingunum 1973 urðu úrslit i sam- ræmi við könnun, sem stofnunin gerði vikuna fyrir kjördag. Samkvæmt skoðanakönnuninni munu jafnaðarmenn og kommúnistar fá 175 þingsæti en borgaraflokkarnir 174. Nú er hlutur þessara tveggja afla á þingi jafn, bæði hafa 175 þing- sæti, en til að koma í veg fyrir að afgreiða verði öll meiriháttar mál með hlutkesti, eins og verið hefur undanfarin þrjú ár, hefur þing- sætum verið fækkað um eitt. Skoðanakönnunin hefur valdið miklum vonbrigðum í herbúðum Miðflokksins, en formaður hans, Thorbjörn Fálldin, hefur verið álitinn líklegastur til að verða for- sætisráðherra í stjórn borgara- flokkanna. Samkvæmt henni mun London 16. september — AP ENGLANDSBANKI hefur gert brezku viðskiptabönkunum að auka innstæður sínar I bankanum í þvf skyni að treysta pundið er- lendis. Þetta ásamt líkum á sam- komulagi í sjómannadeilunni varð til þess að pundið hækkaði á flokkurinn missa ellefu þingsæti. Hægfara einingarflokkurinn mun hins vegar bæta við sig fjórum, Þjóðarflokkurinn sex, jafnaðar- menn einu en kommúnistar munu missa eitt. Stjórnmálafréttamenn í Sviþjóð vara við því að of mikið mark sé tekið á skoðanakönnuninni og benda á að þriggja klukkustunda kappræðufundur flokksleiðtog- anna i sjónvarpi á laugardags- kvöldið geti haft mikil áhrif á úrslit kosninganna. erlendum gjaldeyrismörkuðum uppí 1.7425 Bandaríkjadali um hádegi á míðvikudag, en hafði i gærkvöldi farið niður 1 1.7350. Fyrir einni viku stóð pundið i 1.77 Bandaríkjadölum, en fyrir 18 mánuðum jafngilti eitt sterlings- pund 2.40 dölum. Fall pundsins hefur átt rikan þátt í óhagstæðum greiðslujöfnuði, því Bretar flytja inn helming allrar matvöru sem neytt er í landinu. Aðferðir Englandsbanka mun draga úr peningamagninu og lán- tökum heima fyrir, en það tvennt hefur mikil áhirf á erlenda lánar- drottna þar á meðal alþjóða gjald- eyrisvarasjóðinn. Geimfar- ar taka myndir Moskvu 16. september — Reuter TVEIR sovézkir geimfarar komust á braut umhverfis jörðu í dag í Soyuz- geimfari. Er ferð þeirra gerð að einhverju leyti i samvinnu við Austur- Þjóðverja, en þetta er í fyrsta skipti sem einhver af bandalagsþjóðum Sovét- ríkjanna tekur þátt i geim- ferðum þeirra. Ferðin er talin munu taka eina til tvær vikur og eiga geim- fararnir tveir, Valery Bykovsky, sem er 42 ára, og Vladimir Aksy- onov, sem er 41 árs að tak myndir af Sovétrikjunum og Austur- Þýzkalandi til að afla jarðfræði- legrar og landfræðilegrar vitneskju um löndin. Allsherjarþingið að hefjast: Amerasinghe hefur auga- stað á embætti W aldheims HAMILTON Shirley Amera- singhe verður næsti forseti alls- herjarþings Sameinuðu þjóð- anna. sem hefst á sunnudag, en hann hefur verið fulltrúi Sri Lanka hjá samtökunum siðan 1967. Hann hefur verið forseti hafréttarráðstefnunnar, sem lýkur þriðja fundi sfnum í New York 1 dag, eftir sjö vikna setu. Hann er einnig formaður nefndar S.Þ. sem á að kanna Waldheim — gefur lfklega kost á sér. fullyrðingar Araba um að Isra- elsmenn virði ekki mannrétt- indi Araba, sem búa á her- numdum svæðum. Sagt er að Amerasinghe hafi augastað á embætti aðalframkvæmda- stjóra, sem er æðsta embætti samtakanna. Þegar U Thant ákvað að gefa ekki kost á sér til þess embættis 1971, varð Amerasinghe fyrstur til að gefa til kynna að honum léki hugur á embættinu. Hon- um gekk hins vegar illa í at- kvæðagreiðslunni I öryggisráð- inu og fyrrverandi utanríkis- ráðherra Austurríkis, Kurt Waldheim, var kjörinn. Kjörtímabili Waldheims lýk- ur i lok þessa árs og allsherjar- þingið, undir forsæti Amera- singhes, þarf að taka afstöðu til hvort eigi að endurkjósa hann eða kjósa eftirmann. Alitið er að Waldheim muni gefa kost á sér og hljóta kosningu. En Amerasinghe er einnig reiðu- búinn og hann hefur gengið úr skugga um að starf hans sem forseti allsherjarþingsins hefur engin áhrif á kjörg^ngi hans til aðaiframkvæmdastjóra. Að vera i forsæti á allsherjarþing- inu er aðeins 13 vikna starf en aðalframkvæmdastjórinn er skipaður til 5 ára. Sri Lanka hefur gott sam- band við Kína og Kínverjar, sem ekki hafa talizt með helztu aðdáendum W aldheims, eru fylgjandi því að diplómat úr þriðja heiminum sitji í embætt- inu. Stjórn Sri Lanka hefur einnig verið gagnrýnin og ómyrk í máli gagnvart Banda- ríkjunum og „vestrænum heimsvaldasinnum", og er Amerasinghe þvl ekki eins vin- sæll á Vesturlöndum. Þá er tal- ið að formennska hans í nefnd- inni, sem fjallar um mannrétt- indaskort i Israel, verði honum þrándur I götu. Þegar hann var í framboði 1971 létu Israéls- menn það orð berast að næði hann kosningu væri þátttöku S.Þ. i friðarumleitunum í Mið- Austurlöndum lokið. Amerasinghe, sem er einn reyndasti fulltrúinn hjá S.Þ., er að örðu leyti i mjög góðu áliti og honum hefur verið hælt mik- ið fyrir hvað hann á auðvelt með að halda aga i stórum hóp- um og sætta andstæð sjónar- mið. Hann stundaði háskóla- ■ám í London og er þrátt fyrir afstöðu stjórnar sinnar mjög undir brezkum áhrifum og Bandaríkjasinnaður. Stærstu málin á allsherjar- þinginu verða væntanlega vandamál suðurhluta Afriku. Búizt er við þvi að fordæming zionismans verði ofarlega á blaði eins og I fyrra og að mikl- um tima verði varið til að fjalla um vaxandi bil á milli rikra þjóða og fátækra. Amerasinghe — vili komast að. Englandsbanki eyk- ur innlánsbindingu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.