Morgunblaðið - 17.09.1976, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1976
Tryggingarfélag TWA
borgar steinolíuna
SKÍJLI Jón Sigurðsson fulltrúi
hjá flugmálastjóra kom að máli
við Morgunblaðið f gær vegna
fréttar um, hver borgaði eidsneyt-
ið, sem TWA þoturnar tóku á
Keflavíkurflugvelli og birtist I
blaðinu I gærmorgun. Þar var
haft eftir fulltrúa flugvallar-
stjóra á Keflavfkurflugvelli, að
Rjúpna-
veiði söm
og í fyrra?
„RJUPNAVEIÐI í haust verður
að öllum likindum ekki minni en
1 fyrra og kannski heldur meiri,
enda þótt erfitt sé að spá um það
á þessu stigi,“ sagði dr. Finnur
Guðmundsson fuglafræðingur f
samtali við Mbl. f gær.
Að sögn Finns var búizt við þvf
að rjúpnastofninn yrði í hámarki
nú í haust en svo virðis t ekki ætla
að verða af ástæðum, sem ekki
liggja Ijósar fyrir að sögn Finns.
Svo sem kunnugt er hafa verið
miklar sveiflur f rjúpnastofnin-
um hér á landi. Hann hefur náð
hámarki eínu sinni á áratug,
venjulega á árinu sem endar á 6,
en þó getur skakkað þar einu ári
til eða frá. Þegar stofninn hefur
náð hámarki hrynur hann aftur
og er venjulega kominn í lágmark
á öðru ári eftir að hann hefur náð
hámarki. Síðan fer stofninn
stækkandi árlega unz hámarkinu
er náð.
Að þessu sinni hefur fjölgunin
verið miklu hægari en áður hefur
þekkzt í þau 50 ár, sem örugg
vitneskja er til um sveiflur i
rjúpnastofninum. Sagði Dr. Finn-
ur Guðmundsson að næsta ár
mundi skera úr um það hvort
stofninn tekur stökk upp á við eða
hvort að þessu sinni verður yf-
irleitt ekki um eðlilegt hámark að
ræða.
Krafla:
120 kippir síð-
asta sólarhring
120 jarðskjálftakippir mældust
við Kröflu s.l. sólarhring, sam-
kvæmt þeim upplýsingum, sem
Halldór Halldórsson á jarð-
skjálftavaktinni f Reynihlíð veitti
Mbl. í gærkvöldi. Þetta er með því
mesta sem mælzt hefur, aðeins
einu sinni áður hafa svo margir
kippir mælzt á einum sólarhring.
Varð það 10. september.
TWA myndi þurfa að borga fyrir
eldsneytið og matinn.
Að sögn Skúla eru öll flugfélög
í veröldinni tryggð fyrir flugrán-
um og öðrum líkum óhöppum, og
þótt TWA verði f fyrstu sendur
reikningurinn fyrir steinolíunni,
sem vélarnar tóku, þá þarf trygg-
ingarfélag þess að borga að lok-
um.'
— Rannsókn
Framhald af bls. 36
haldsnámi erlendis. Gunnlaugur
Briem sagði að rannsókn málsins
væri á byrjunarstigi og því ekkert
hægt að segja um hana utan það,
að málið snerist um smygl á lit-
sjónvarpstækjum. Morgunblaðið
hefur hins vegar fregnað, að
þarna sé um að ræða all umfangs-
mikið mál, sem e.t.v. nái til nokk-
urra lögsagnarumdæma.
— Hvalvertíð
Framhald af bls. 36
tegund, og var búið að fylla töl-
una 23. ágúst s.l. Sfðan hefur ver-
ið veitt mest af búrhval.
Þá sagði hann, að mjög væri
misjafnt hve mikið veiddist’. af
hverri tegund frá ári til árs, þar
sem hvalirnir kæmu misjafnlega
nálægt landinu, og væri margt
sem ylli því.
Ókyrrð í
Elliðarárvogi
í SUÐ-AUSTANROKINU f gær-
kvöldi horfði illa fyrir skemmti-
bátum sem félagar I bátaklúbbn-
um Snarfara eiga í Elliðaárvogi
og voru menn úr Slysavarnafélag-
inu fengnir til aðstoðar. Þá losn-
aði trilla í Skerjafirði en félagar
úr bjögunarsveitinni Albert á
Seltjarnarnesi voru snarir í
snúningum og náðu trillunni áður
en hana rak upp. Loks var SVFl
byrjað að undirbúa leit að
tveimur trillum í gærkvöldi en
þær komu fram heilar á húfi.
25 danslög Guð-
jóns Matthíassonar
„Eg hafði gffurlegan ðhuga á
harmoníku þegar ég var ungur
piltur en engu að sfður var ég
orðinn þrftugur þegar ég byrjaði
að leika á harmonfku — nú og
sfðan hef ég vart stoppað," sagði
Guðjón Matthfasson harmonfku-
leikari f samtali við Morgunblað-
ið, en um þessar mundir er að
koma á markaðinn bók sem inni-
heldur 25 danslög eftir Guðjón,
en bókina gefur Leiftur hf. út.
Að sögn Guðjóns er elzta lagið
frá 1950, en það nýjasta frá því f
vor. „Ég hef ekki samið mikið uþp
á síðkastið, enda verið veikur.
Sum þessara laga hafa fengið
verðlaun og viðurkenningu f
danslagakeppnum. T.d. fékk lagið
Sonarkveðja 1. veTðlaun í dans-
lagakeppni 1956.“
Guðjón hóf upphaflega nám f
harmonfkuleik hjá Gretti Björns-
syni og samdi fljótlega mikið af
lögum, en þar sem Guðjón lærði
þá ekki að skrifa nótur fór hann
síðar að læra tónfræði í einkatím-
um, og setti út lög fyrir hljóm-
sveit.
Textarnir við lögin i 25 danslög
eru eftir marga höfunda, en Guð-
jón á sjálfur marga textana.
Guöjón Matthfaöson:
25 DANSLÖG
— íþróttir
Framhald af bls. 34
nefndir, ekki heldur, nema þá
helzt Björgvin. Hreyfingar Björg-
vins á línunni og barátta hans og
útsjónarsemi f vörninni gera
hann að framúrskarandi hand-
knattleiksmanni, og það hefði
ekki verið á nema fárra færi að
taka við þeim sendingum, sem
hann skilaði rétta boðleið í mark
Svisslendinganna í þessum leik.
Geir var mikið með f spili liðsins
og Olafur Einarsson skoraði
falleg mörk — átti reyndar nokkr-
ar misheppnaðar tilraunir, en
þær verða að fyrirgefast fyrir
mörkin sem hann gerði.
Auðvitað er erfitt að meta
islenzka liðið eftir þennan leik
bæði með skírskotun til þess sem
að framan segir, að leikmennirnir
eru að hefja keppnistímabilið, og
eins vegna þess að svissneska
liðið er hreinlega mun slakara en
okkar. Það lék af miklum hraða
og krafti f leiknum, en það var
líka nær það eina sem prýddi það.
I liðinu eru þó nokkrir góðir
handknattleiksmenn og ber fyrst
og fremst að nefna leikmann nr.
2, Ziillig, sem er geysilega kröft-
ugur og duglegur leikmaður og
leikmann nr. 5, Schár, sem aldrei
mátti líta af.
Leikinn dæmdu dómarar frá
Svíþjóð. Þeir höfðu lengst af mjög
góð tök á honum og dæmdu þvf
vel. Gerðu þó nokkrar skyssur,
eins og dómarar gera ævinlega.
— stjl.
Garðar Cortes
og Halldór
Kristinsson
syngja í
New York
I MORGUN fóru til New York f
„smásöngferðalag" þeir Garðar
Cortes og Halldór Kristinsson.
Syngja þeir á vegum Scandinavi-
an — American Festival ’76. Tón-
listarhátfð á vegum þessara sam-
taka hefur farið fram nú um ára-
bil, en er þetta f fyrsta sinn sem
lslendingar koma þar fram.
Forsaga þessa boðs er sú, að
fyrir tveim árum fóru þeir Garðar
og Halldór til New York og Chi-
cago með Ferðaleikhúsinu og
sungu fslenzk þjóðlög og kváðu
rfmur. í framhaldi af þeirri ferð
var þeim svo boðin þátttaka f
þessari tónlistarhátfð.
Á efnisskrá þeirra verða íslenzk
þjóðlög, kvintsöngvar og rfmur.
Samkvæmt beiðni forráðamanna
tónleikanna koma þeir fram f ís-
lenzkum lopapeysum sem
Rammagerðin hefur lagt þeim til
fararinnar.
Tónleikarnir fara fram f New
Jersey Garden State Arts Centre,
laugardaginn 18. sept.
ÞÚ AUGLÝSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
Ingibjörg Sigfúsdóttir og Aldfs Lárusdóttir, eigendur hinnar nýju
nuddstofu.
Heilsuræktin — ný
nuddstofa á Akureyri
HEILSURÆKTIN heitir ný
nuddstofa, sem tekin er til starfa
f verzlunarmiðstöðinnf Kaupangi
við Mýrarveg. Eigendur eru Aldfs
Lárusdóttir og Ingibjörg Sigfús-
dótti.r sem hafa lokið námi f
hressingarnuddi f Danmörku og
Reykjavfk.
i Heilsuræktinni geta við-
skiptamenn notið margs konar
þjónustu, og má þar nefna nudd
og megrunarnudd, leikfimi, þrek-
æfingar, saunabað ljósböð og ilja-
nudd (zonetherapi) sem mun
hvergi vera stundað annars staðar
á Islandi.
Margs konar íþróttatæki eru f
Heilsuræktinni, svo sem róðrar-
vél og þrekhjól. Starfsemin fer
fram daglega kl. 8—10.30 og
13—19 mánudaga til föstudaga.
Aðeins verður um einstaklings-
tfma að ræða og verða konur á
mánudögum, miðvikudögum og
föstudögum, en karlar á þriðju-
dögum og fimmtudögum.
Sv.P.
— Viðræður
Framhald af bls. 36
svipaðan fjölda flugtfma nú svip-
að og beggja Tri-Star þotnanna
eða sem næst 7500 milljónir
króna. Tri-Star-þotan tekur 350
farþega en Boeing 747(jumbo)
tekur um 480 farþega.
Svo sem fram hefur komið f
fréttum, hefur athugun leitt í
ljós, að Tri-Star-breiðþoturnar
geta flogið fullhlaðnar f einum
áfanga milli New York og Luxem-
borgar.
Ef stjórn Flugleiða ákveður að
ráðast í þessi flugvélakaup þarf
væntanlega að koma til rfkis-
ábyrgð og þurfa kaupin því að
hljóta samþykki fslenzkra stjórn-
valda.
— Tjónabætur
Framhald áf bls. 18
kvæmdir og það er gott hljóð i
fólkinu Þessar framkvæmdir hafa
þó enn einu sinni ýtt illyrmislega við
þeirri staðreynd að Skipaútgerð
ríkisins fæst ekki til að láta Esju eða
Heklu koma við hér með vö/ur
Bæði eiga skipin þó að vera sérstak-
lega hönnuð til að lesta á höfnum
eins og á Kópaskeri. Meðan þessu
heldur áfram verðum við að flytja
allt á bilum að sunnan eða taka
vörurnar í land á Húsavik og Raufar-
höfn. Fyrir hvert kiló, sem flutt er frá
Reykjavík með bilum, verðum við að
greiða 1 6 krónur i flutningskostnað
Þess eru líka dæmi að fara hefur
orðið með lyftara héðan og til
Raufarhafnar til að skipa upp vör-
um, sem fara áttu hingað Þetta er
óþolandi ástand fyrir íbúa Kópa-
skers og nágrannabyggðanna. sagði
Friðrik að lokum
— Líbanon
Framhald af bls. 1
manna frá vfgstöðvum f landinu
og tfmasetja gildistöku Kafrósam-
komulagsins frá 1969 milli
Llbanonmanna og Palestfnu-
araba. Samkomulag þetta kveður
á um að Palestínumenn megi hafa
her f Libanon, en takmarkar
ferðir þeirra við ákveðnar herr
búðir og nokkra staði við landa-
mæri ísraels. Sagði Kholi að
stefnt væri að því að samkomulag
um öll þessi atriði næðist fyrir 23.
þessa mánaðar, er Sarkis tekur
við embætti.
Pierre Gemayel, leiðtogi hægri-
sinnaðra falangista, sagði í dag er
hann kom frá Kaíró eftir við-
ræður við Sadat, Egyptalands-
forseta, að hann væri bjartsýnn á
friðarhorfur.
Helzta breytingin, sem
Franjieh gerði í gær, var að veita
Camille Chamoun heimild til að
kalla saman rfkisstjórnarfund, er
Karami er í burtu og gerði hann
einnig að utanríkisráðherra til
viðbótar varnar- og innanrfkis-
ráðuneytinu, sem hann heldur.
Chamoun, sem er formaður
Þjóðlega frjálslynda flokksins f
Lfbanon, er hataður af vinstri-
mönnum, Karami , sem er
múhameðstrúarmaður, hefur
ekki haldið ríkisstjórnarfundi frá
því í vor, er Lfbanon var skipt og
Franjieh forseti flutti embættis-
skrifstofu sfna til yfirráðasvæðis
kristinna. Karami var f Kaíró er
Franjieh tilkynnti breytingarnar.
— Kissinger
Framhald af bls. 1
vegar áfram þriðja daginn f röð
og gerði lögreglan f borginni
miklar öryggisráðstafanir til þess
að vernda þá, sem virtu verkfalls-
boðunina að vettugi.
Leiðtogum blökkumanna, lit-
aðra og hvftra hefur verið boðið
að hitta Kissinger einhvern tfma
á þeim tveimur dögum, sem hann
verður f S-Afríku, en ekki er vitað
hverjir það verða, sem ráeða við
utanrfkisráðherrann til að kynna
honum afstöðu hinna ýmsu hópa
og skýringu á kynþáttaóeirðum
undanfarinna vikna f landinu.
— Jarðskjálftar
Framhald af bls. 1
seinagang f sambandi við aðstoð
við uppbygginguna og vfða f þorp-
um eða rústum þeirra eru skilti,
sem á stendur: „Við þurfum ekki
á stjórnmálamönnum að halda
hér heldur húsum og atvinnu." Er
fólkið biturt vegna alls þess
fjölda stjórnmála- og embættis-
manna, sem hafa ferðazt um
héraðið, en lftið aðhafzt til hjáíp-
ar.